DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 225-40
DROPS Design: Mynstur pu-055
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Höfuðmál: Ca 54/56 – 58/60 cm

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200 g litur 02, beige

Eða notið:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200 g litur 02, marzipan

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Höfuðmál: Ca 54/56 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-150 g litur 02, beige

Eða notið:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-150 g litur 02, marzipan

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í prjónanúmeri 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Mál: Ummál: Ca 18-20 cm. Lengd: Ca 25-26 cm.

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 02, beige

Eða notið:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 02, marzipan

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 20,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptist á eftir ca 20. og 21. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 19. og 20. hver lykkja og 20. og 21. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um vettlinga):
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Næsta útaukning er gerð þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukninga í annarri hverri umferð, þ.e.a.s. aukið út allan tímann utan með útauknum lykkjunum.

ÚRTAKA (á við um vettlinga):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 124-132 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Puna eða DROPS Daisy.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 14 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 130-140 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið sléttprjón hringinn í 1-2 cm. Prjónið nú mynstur A.1 hringinn í umferð (= 13-14 mynstureiningar með 10 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 24-25 cm frá uppfitjunarkanti (nú eru eftir ca 8 cm að loka máli, prjónið e.t.v. að óskaðri lengd) – stillið af þannig að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina.
Prjónið nú A.2 yfir hvert A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 39-42 lykkjur í umferð.
Fækkið nú lykkjum þannig:
Prjónið 1-0 lykkjur slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman út umferðina = 20-21 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 0-1 lykkja slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman út umferðina = 10-11 lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24-25 cm með 8 cm uppábroti neðst niðri.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Puna eða DROPS Daisy. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6½ cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur og aukið jafnframt út um 0-1 lykkju, prjónið A.3 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 8 lykkjur og aukið jafnframt út um 0-1 lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 30-34 lykkjur og fækkið jafnframt um 10-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 42-46 lykkjur.
Haldið áfram hringinn með sléttum lykkjum og prjónið A.3 yfir miðju 6 lykkjur á vettlingi.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 9 cm, setjið eitt prjónamerki í 23.-25. lykkju í umferð (= þumallykkja). Aukið nú út fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við þumallykkju – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 11-13 lykkjur fyrir þumal = 52-58 lykkjur.
Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 13-14 cm frá uppfitjunarkanti.
Í næstu umferð eru 11-13 þumallykkjur settar á þráð, haldið áfram hringinn með mynstri og sléttprjóni og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 42-46 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 20-21 cm (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd).
Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki, þannig að það verða 8-9 lykkjur á milli prjónamerkja í hvorri hlið og A.3 (= 20-22 lykkjur á milli prjónamerkja neðan á vettlingi og 22-24 lykkjur á milli prjónamerkja á framhlið á vettlingi).
Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður og fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, annarri hverri umferð 4 sinnum og í hverri umferð 1 sinni = 18-22 lykkjur. Þegar ekki er nægilegt pláss til að prjóna allar lykkjur í kaðli, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem prjónaðar eru 2 og 2 lykkjur slétt saman = 9-11 lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 25-26 cm.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 3,5, prjónið að auki upp 4 lykkjur aftan við þumal = 15-17 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5-6 cm (nú er eftir ca ½ cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Puna eða DROPS Daisy. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6½ cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= á undan 2 lykkjur slétt). Prjónið mynstur þannig: sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur og aukið jafnframt út um 0-1 lykkju, prjónið A.3 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 8 lykkjur og aukið jafnframt út um 0-1 lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 30-34 lykkjur og fækkið jafnframt um 10-12 lykkjur jafnt yfir = 42-46 lykkjur.
Haldið áfram hringinn með sléttum lykkjum og prjónið A.3 yfir miðju 6 lykkjur á vettlingi.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 9 cm, setjið eitt prjónamerki í síðustu lykkju í umferð (= þumallykkja). Aukið nú út fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við þumallykkju – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 11-13 lykkjur fyrir þumal = 52-58 lykkjur.
Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 13-14 cm frá uppfitjunarkanti.
Í næstu umferð eru 11-13 þumallykkjur settar á þráð, haldið áfram hringinn með mynstri og sléttprjóni og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 42-46 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 20-21 cm (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd).
Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki, þannig að það verða 8-9 lykkjur á milli prjónamerkja í hvorri hlið og A.3 (= 20-22 lykkjur á milli prjónamerkja neðan á vettlingi og 22-24 lykkjur á milli prjónamerkja á framhlið á vettlingi).
Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður og fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, annarri hverri umferð 4 sinnum og í hverri umferð 1 sinni = 18-22 lykkjur. Þegar ekki er nægilegt pláss til að prjóna allar lykkjur í kaðli, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem prjónaðar eru 2 og 2 lykkjur slétt saman = 9-11 lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 25-26 cm.
Prjónið þumal á sama hátt og á hægri vettlingi.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Huguette wrote:

Bonjour je tricote la moufle avec A3 vous m'avez répondu que je devais commencer par 2 rangs endroit ,torsade ,5 rangs endroits ,,est-ce que je recommence les prochaines torsades avec 2 rangs endroits , 1 torsade et 5 rangs ou 1 torsade et 5 rangs endroits merci beaucoup

05.02.2024 - 18:15

DROPS Design answered:

Bonjour Huguette, tout à fait, quand vous répétez le diagramme en hauteur, vous reprenez au 1er rang, autrement dit vous aurez 7 rangs entre chaque torsade. Bon tricot !

06.02.2024 - 08:21

country flag Huguette wrote:

J'ai tricoter 1cm en jersey ensuite A1.est-ce que je tricote 2 rangs endroits avant de commencer le motif torsade pour les diagrammes A2 et A3? Merci

24.01.2024 - 20:42

DROPS Design answered:

Bonjour Huguette, tout à fait car les diagrammes commencent par 2 tours endroit. Bon tricot!

25.01.2024 - 09:12

country flag Imogen Stevens wrote:

I am very confused about the decreasing instructions for the mittens when finishing them. Am I being silly or does this not make sense at all? Please could you clarify what these instructions mean? When it says to decrease once either side of the markers every 4th round and then 4 times every second round and once every round. I really don't understand.

19.12.2023 - 22:19

DROPS Design answered:

Hi Imogen, You have 2 markers, one in each side. Decrease 1 stitch on each side of both markers on the first round, then work 3 rounds without decreasing, decrease on the next round, work one round, decrease on the next round, repeat this 2 more times ( every 2nd round four times), then decrease for the last time on the subsequent round. Hope this helps and happy Christmas!

20.12.2023 - 06:46

country flag Karoline wrote:

Hej, jeg laver vanten i str L/XL og jeg er noget til spidsen af vanten. Er noget til: Tag ind således på hver 4.omgang 1 gang, hver 2.omgang 4 gange og hver omgang 1 gang = 18-22 masker. Når det ikke er plads til at strikke alle masker i snoningen, strikkes der glatstrik over disse masker. Her forstår jeg hvor mange omgange det er i alt. Jeg læser det som at man skal tage flere gange ind på en omgang og at man kun strikker 4 omgange!?

28.11.2023 - 18:45

DROPS Design answered:

Hej Karoline, du tager ind på 4. - 6. - 8. - 10. - 12. - 13. omgang :)

29.11.2023 - 11:39

country flag Karoline wrote:

Jeg er noget til indtagningen i højre vante, men kan ikke forstå beskrivelsen?

28.11.2023 - 07:32

DROPS Design answered:

Hej Karoline, hvilken størrelse strikker du, hvor langt er du kommet (hvilken en af indtagningerne). Skriv hvad du ikke forstår :)

28.11.2023 - 11:04

country flag Uschi wrote:

Hallo, welchen Umfang brauche ich für die Fäustlinge? Handgelenk oder Handfläche? Danke für die Antwort - ich freue mich schon auf die Handschuhe 😀

15.10.2023 - 10:33

DROPS Design answered:

Liebe Uschi, die Maßen (Umfang und Länge) finden Sie unter den Grössen für die Fäustlinge. Viel Spaß beim stricken!

16.10.2023 - 09:36

country flag Chantal Berthiaume wrote:

Bonjour, À la fin des explications pour le bonnet, on écrit tricote 1-0 maille endroit, puis tricoter les mailles 2 par 2. Que signifie tricoter 1-0 ,aille endroit? Merci. Chantal

16.11.2022 - 20:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berthiaume, en fonction de votre taille, vous commencez le tour soit par 1 maille endroit, soit directement par 2 mailles ensemble à l'endroit. Bon tricot!

17.11.2022 - 10:06

country flag Maria wrote:

Hej! Jag förstår inte nedan beskrivning. Vad ska man göra? Sticka 1-0 rätmaska? /Maria Sticka 1-0 rätmaska, sticka 2 och 2 maskor räta tillsammans varvet ut = 20-21 maskor. Sticka 1 varv rätt. Sticka 0-1 rätmaska, sticka 2 och 2 maskor räta tillsammans varvet ut = 10-11 maskor.

18.09.2022 - 11:09

DROPS Design answered:

Hei Maria. Det kommer an på hvilken str du strikker. Når det står 1-0 eller 0-1, gjelder det første tallet den minste str og det andre tallet den største str. Så i den minste str har man etter å ha strikket ferdig A.2 39 masker på pinnen, da skal man strikke 1 rett maske, deretter 2 og 2 masker sammen = 20 masker på pinnen. Så strikker man 1 omgang rett og så skal man strikke 0 masker for så å strikke 2 og 2 masker sammen = 10 masker på pinnen. mvh DROPS Design

19.09.2022 - 13:28

country flag Madelief Engels wrote:

Wat wordt bedoeld met: "alle steken 2 aan 2 recht samen breien"? is dat gewoon elke 2 steken recht samen breien voor de hele tour?

01.03.2022 - 09:29

country flag Bea Janssens wrote:

Ik begrijp de beschrijving van de muts niet helemaal. Je moet na 24 cm beginnen met patroon A2, over elke A1? Wanneer begin je met minderen?

17.01.2022 - 18:09

DROPS Design answered:

Dag Bea,

Klopt, je breit A.2 over elke A.1 in de breedte. De minderingen zijn verwerkt in A.2, dus als je A.2 gewoon volgt, minder je vanzelf. Als je A.2 helemaal klaar is brei je nog eens alle steken twee aan twee samen zoals aangegeven in de beschrijving.

21.01.2022 - 09:26