DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rocky Shores

Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-30
DROPS Design: Mynstur ee-726
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600-650-700-800-850-950 g litur 47, ljós beige

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
450-450-500-600-650-750 g litur 05, beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

DROPS TALA, MARBLE NR 630: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og gatamynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í mynsturteikningu A.1 og A.4 og veldu rétta stærð í A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT (ofan frá og niður):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): 1 hnappagat = Prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist 4 cm. Fellið síðan af fyrir de 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 9 cm millibili.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 117 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d.10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 13,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 13. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 68-68-68-76-76-76 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með DROPS Snow eða DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona.
Þegar stykkið mælist 4 cm, byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Haldið áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í lok hverrar brugðinnar einingar, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat = 82-82-82-92-92-92 lykkjur í umferð. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm, nú hafa verið prjónaðar alls 12 cm í stroffprjóni, endið umferð eftir umferð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið 1 umferð brugðið þar sem aukið er út um 3-3-3-5-5-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 85-85-85-97-97-97 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni).
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 11-11-11-14-14-14 lykkjur) (= 16-16-16-19-19-19 lykkjur á framstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.2 (= 11 lykkjur á ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.3 (= 23-23-23-29-29-29 lykkjur á bakstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.2 (= ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), A.4 (= 11-11-11-14-14-14 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= 16-16-16-19-19-19 lykkjur á framstykki). Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur í umferð, útaukningar eru teiknaðar inn í A.1 til A.4. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað þannig: (A.1 og A.4 heldur áfram á framstykki eins og áður).

BAKSTYKKI:
Prjónið A.5A yfir fyrstu 5-5-5-5-5-5 lykkjur, A.5B yfir næstu 24-24-24-30-30-30 lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.5C yfir síðustu 6-6-6-6-6-6 lykkjurnar.

ERMI:
Prjónið A.5A yfir fyrstu 5-5-5-5-5-5 lykkjur, A.5B yfir næstu 12-12-12-12-12-12 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.5C yfir síðustu 6-6-6-6-6-6 lykkjur.
Í hvert skipti sem A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri af A.5B á milli A.5A og A.5C.

Þegar A.1 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 189-189-213-225-249-273 lykkjur í umferð og það hefur verið aukið 13-13-16-16-19-22 sinnum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið án útaukningar (haldið áfram með mynstur eins og áður) þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram og bakstykki og ermar og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig.
Prjónið næstu umferð þannig frá réttu:
Prjónið 29-29-32-35-38-41 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 41-41-47-47-53-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fijtið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 49-49-55-61-67-73 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 41-41-47-47-53-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 29-29-32-35-38-41 lykkjur sem eftir eru í mynstri eins og áður (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 117-117-129-141-153-165 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 125-125-137-149-161-173 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 6 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 41-41-47-47-53-59 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 46-46-52-52-58-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 5 lykkjum undir ermi og byrjið umferð hér. Haldið áfram með mynstur hringinn, en án útaukningar, passið uppá að mynstrið passi á hæðina yfir lykkjur á berustykki – ATH! Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5½-5½-4½-4-3-2½ cm millibili alls 6-6-7-7-8-10 sinnum = 34-34-38-38-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-36-36-33-32-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 6 cm að loka máli). Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-42-39-38-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.11.2021
Ný mynsturteikning A.3.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1 og A.4.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Esther wrote:

Hi Do I knit the 5 cast on stitches on the body in stocking stitch or incorporate into the chart pattern? It doesn’t say in the body instructions . Although it does say in the sleeves to leave the 5 stitches as stocking stitch. Thanks in advance for your help!

05.04.2024 - 15:02

DROPS Design answered:

Dear Esther, the 5 cast on stitches are incorporated into the chart pattern of the body. Happy knitting!

07.04.2024 - 23:56

country flag Maria W wrote:

Samma fråga som Flavia(1a kommentaren), men förstår inte ert svar. När har man stickat A1&A4 en gång på höjden? Jag stickar stl XL, är det efter 32 varv där ett streck går för stl L-XL? Eller ska man sticka hela diagrammet?\r\n Men då fortsätter ju ökningarna, som det står i texten att man inte ska fortsätta med. Otroligt svårt att förstå.

14.10.2023 - 20:11

DROPS Design answered:

Hei Maria. I str. XL avslutter du økninger der du ser streken i diagrammet. Når du har strikket A.1 og A.4 1 gang i høyden (32 rader av A.1 og A.4) skal du ha økt 16 ganger og ha 225 masker på pinnen. Strikk videre uten økninger til arbeidet måler 23 cm fra merket i halsen. Om strikkefastheten stemmer måler arbeidet ditt ca 22 cm når A.1 og A.4 er strikket 1 gang i høyden, og da strikkes det ca 1 cm uten økninger. mvh DROPS Design

23.10.2023 - 11:53

country flag Alena wrote:

V části RUKÁVY jsou chybně uvedeny počty ok: Odložených 35-37-38-40-40-42 ok převedeme z pomocné jehlice na ponožkové/ kruhové jehlice č.8 a navíc k nim nabereme po 1 oku z 4-6-8-8-10-10 ok nahozených v podpaží = 39-43-46-48-50-52 ok. správně má být: pro velikost S: 41 odložených ok + 5 ok z podpaží = celkem 46 ok.

23.12.2022 - 13:52

DROPS Design answered:

Dobrý den Aleno, děkujeme za upozornění, opraveno. Ať se daří!

24.12.2022 - 13:42

country flag Alena wrote:

Dobrý den, prosím o radu: po dokončení sedla rozdělíme práci na trup, rukávy a zároveň přidáme 2x 5 ok pro podpaží. moje otázka - kdy začít plést tato přidaná oka? začít je plést v rámci trupu a rozšířit jej o ně? (trup by pak měl 127, nikoliv v návodu uvedených 117 ok.) následně je pak z okrajů nabrat i k doplnění spodní strany rukávů? (rukávy by pak měly v návodu uvedených 46 ok.) děkuji, alena

23.12.2022 - 13:51

country flag Atiya Gul wrote:

Can you plz show any video of this patern...

21.10.2022 - 07:26

country flag Bindy P wrote:

I am knitting drops pattern # 226-30 . I’ve competed the neck and I’m now starting the yoke. After knitting the first row I have the 8 increased stitches leftover at the end of the row. What am I doing wrong? Please HELP!

13.09.2022 - 21:57

DROPS Design answered:

Hi Bindy, You do not say which size you are working, so we will take size S as the example. On the first row you have 5 band sts, A.1 (11 sts), 2 sts in stocking st, A.2 (11 sts), 2 sts in stocking stitch, A.3 (23 sts), 2 sts in stocking st, A.2 (11 sts), 2 sts in stocking st, A.4 (11 sts)and 5 band sts. 5+11+2+11+2+23+2+11+2+11+5 =85 sts, which is the number you have after increasing on the neck. Hope this helps and happy knitting!

14.09.2022 - 07:05

country flag Claudia wrote:

Was mache ich falsch? Wenn ich in der Passe A1 stricke ende ich mit einer rechten Masche. Anschließend kommen die 2 rechten Raglanmaschen. Das ergibt im Bild 3rechte Maschen, aber nur an der einen Stelle.

24.08.2022 - 21:59

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, das Diagram A.1 sieht spiegelverkehr aus, unser Design Team wird das mal prüfen und korrigieren. Danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

25.08.2022 - 09:32

country flag Abelia wrote:

Bonjour, je tricote la taille L du modèle 226-30 (veste Rocky shores)et je pense qu’il y a une erreur dans le diagramme A3. En effet il manque un jeté au début de l’avant-dernier rang. Sans ce jeté on obtient 34 m au lieu des 35 m que l’on doit retrouver au dernier rang. Le diagramme A3 des tailles S-M-L est le seul qui ne comporte pas de jeté à ce niveau là du point ajouré. S’il s’agit bien d’un oubli, merci de me le confirmer.

08.04.2022 - 14:27

DROPS Design answered:

Bonjour Abélia, et merci pour votre retour, il semble bien que ce soit un oubli, nos stylistes corrigeront cela prochainement; merci pour votre retour. Bon tricot!

08.04.2022 - 17:21

country flag Berthelot Joelle wrote:

Je réalise le modèle en wish taille M, comme je suis petite j'ai raccourci de 5cm la hauteur de la veste et commandé10 pelotes soit 500g . Malgré cela il me manque une pelote pour pouvoir faire des manches longues. Le modèle est trés joli dommage!

01.04.2022 - 19:20

country flag Avril wrote:

Hello, I am knitting the xxl size. Do I need to make a yarn over as the first stitch as it suggests in the diagram / pattern? Thanks Avril

27.02.2022 - 22:04

DROPS Design answered:

Dear Avril, you have to work all stitches as shown in the diagram, ie including all yarn overs: start row 3 in A.1/size XL: with YO, K2 tog, YO, K1 etc.. happy knitting!

28.02.2022 - 10:38