DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

December Bloom

Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri á berustykki, köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-46
DROPS Design: Mynstur li-136
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 9021, rauður múrsteinn

Eða notið:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 82, rauðbrúnn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60-60-80-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60-60-80-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir annarri hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 175 lykkjur) og deilið með lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 11,7.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-104-108-116-120-124 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Lima eða DROPS Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 125-130-135-145-150-155 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-8-8 cm, aukið út þær 1 lykkja brugðið sem eftir eru til 2 lykkjur brugðið = 150-156-162-174-180-186 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 9-9-9-11-12-12 cm, aukið út aðra hverja 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 175-182-189-203-210-217 lykkjur.
Prjónið þar til stroffið mælist 10-10-10-12-13-13 cm. Prjónið nú berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir sléttprjón JAFNFRAMT í 3. umferð eru auknar út 15-18-21-25-30-35 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 190-200-210-228-240-252 lykkjur.
Eftir þessar 4 umferðir í sléttprjóni, prjónið A.1 hringinn (= 19-20-21-19-20-21 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 285-300-315-342-360-378 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-19-19-23-24-24 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið síðan sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 18-24-30-32-34-40 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 303-324-345-374-394-418 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 21-21-21-25-26-26 cm, aukið út um 13-16-19-22-25-28 lykkjur jafnt yfir = 316-340-364-396-419-446 lykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í stærð S, M og L – farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27-28-29 cm. Í næstu umferð er aukið út um 8-9-14 lykkjur jafnt yfir = 404-428-460 lykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í stærð XL, XXL og XXXL – farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 316-340-364-404-428-460 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-53-59-64-70 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 66-70-76-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 92-100-106-118-128-140 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 66-70-76-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 46-50-53-59-64-70 (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 196-212-228-252-276-300 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið.
Byrjið umferð við prjónamerki í hægri hlið á stykki (þegar stykkið er mátað) og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 17 cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli.
Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 98-106-114-126-138-150 lykkjum á prjóni og setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð eða hjálparprjón.
Prjónið síðan stroff eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 29-31-35-37-41-45 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 127-137-149-163-179-195 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Setjið þær 98-106-114-126-138-150 lykkjur af þræði/hjálparprjóni á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 29-31-35-37-41-45 lykkjur jafnt yfir = 127-137-149-163-179-195 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúin slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af frá réttu með garðaprjóni yfir garðaprjón, snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

ERMI:
Setjið 66-70-76-84-86-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-76-84-92-96-100 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 11-12-14-18-19-20 sinnum = 50-52-56-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-37-36-34-32-31 cm frá skiptingu (það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-2-4-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 52-56-58-60-62-66 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm.
Fellið af með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 45-43-42-40-38-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.11.2021
Leiðrétting: 2 mynsturtákn hafa verið fjarlægð, þau eru ekki notuð í mynsturteikningunni

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

December Bloom

Clo, France

December Bloom

Agnes, Norway

December Bloom

Anett Bjørndal Oulie, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Iris Down wrote:

Thanks for your reply. I cannot believe how long I looked at this chart and still did not see the answer! As you say there is no increase on this row the increase rows are further up the chart.

14.02.2024 - 11:25

country flag Iris Down wrote:

This has been asked before but I do not understand your reply. Row10 of the pattern is k1, 1 over, k3, s1, k2tog, slip 1 over, (1 stitch left) k3, 1 over. So that is 2 overs and 2 stitches lost so over the 10 worked stitches there are still 10 at the end. But the pattern indicates an increase of 105 stitches over the 20 rows which is 21 per pattern row. It can’t be s1, k1 slip stitch over as this leaves a spare stitch not on the pattern picture. What should it be please?

13.02.2024 - 20:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Down, the even numbered rows are rows without decreases/yarn overs in the diagrams, this means on row 10 in A.1, S,M,L you have 12 sts (you increased 2 sts on row 9) and in A.1 XL, XXL, XXXL, you have still 12 sts (you will increase on next row). Or which round 10 do you mean here? I might misunderstand your question, then sorry in advance., please try again. Thanks for your comprehension.

14.02.2024 - 08:12

country flag Sharon Hunt wrote:

Trying to finish the sleeves on this sweater. A question about the sleeve decreases. When I knit til last 3 sts k2 together then k1 sl 1 pass sl sts over this is the 6th round when I continue this round to the marker would this be the begynning of the 1 round again. I guess what I sm asking is when do I start counting for the next sett of decreases. When does 1 round begin and the other ends. Thanks for your help. Sharon

29.10.2023 - 18:05

DROPS Design answered:

Dear Sharon, you should count in cm or inches, not in rounds. When the piece measures enough, regardless of the round or if it is the end of one round and the beginning of the next one you work the decreases. It doesn't matter that the decreases start in one round and end in the next one. Happy knitting!

29.10.2023 - 23:46

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi When the piece measures 2 cm = 3/4" from the division in all size… what is this referring to? Between yoke and body. 🤔 thanks for your response. Sharon

11.09.2023 - 18:07

DROPS Design answered:

Hi Sharon, Yes, the body is measured from where you divided for the body and sleeves (between the yoke and the body). Happy knitting!

12.09.2023 - 06:49

country flag Peggy wrote:

After sending my last question and studying the pattern I realize that the actual design features split sides - not evident in photos. As I prefer my sweaters without slits do you have any advice on how pattern could be adapted to be all one piece? Meaning, no slits. Since i've ordered the yarn I am determined to knit up this gorgeous sweater. Thanks so much!

08.09.2023 - 00:53

DROPS Design answered:

Dear Peggy, you can of course decide to continue working in the round without split on the sides, just adjust the number of sts increased to get an even number of stitches for ribbing edge. Happy knitting!

08.09.2023 - 08:14

country flag Peggy wrote:

I'm a bit confused as to working front piece/back piece. From my understanding these sections are worked back and forth straight, where the top is worked circular. Is this correct? Pattern refers to using circular, yet refers to "rows" rather than "rounds". I understand knitting back and forth on a circular. Is this what I would be doing here? Thanks!

07.09.2023 - 22:10

DROPS Design answered:

Dear Peggy, neck edge, yoke and body are worked in the round, but then you will work front and back piece separately back and forth to create vents on each side of jumper. Happy knitting!

08.09.2023 - 08:10

country flag René wrote:

Thank you for your prompt reply! Kind regards.

26.07.2023 - 20:09

country flag René wrote:

This is my very first top down sweater. I am knitting size large. My body and sleeves have now been separated. I am now in the centre back where the cast on commenced. How do I now get to "Start the round at the marker thread on he right side (when the garment is worn)??? Do I break the yarn and slip the stitches to the marker thread and start there afresh? Hope my question is understood. Thank you!

25.07.2023 - 21:10

DROPS Design answered:

Hi Rene, Yes, you cut the strand and begin again under the sleeve on the right side. This is so the slight jump where the rounds finish and begin is under the sleeve and is there fore least noticeable. Happy knitting!

26.07.2023 - 06:47

country flag Sharon Hunt-Edwards wrote:

Hello! I have dividend the sweater, and am now knitting from armhole down. The pattern says ti knit 17 cm before ribbing. Isn’t this too short or am I missing something? I know I can knit to desired length. Thanks for responding. Sharon

12.07.2023 - 07:17

DROPS Design answered:

Dear Sharon, as you can see in the measurements schematic the pattern is correct; from the armhole to the side splits/ribbing there are 17cm. Take into account that there are 6 cm of ribbing later, so the body will measure 23 cm in total from the armhole. This model also has a lower armhole than usual (by 4cm), which makes the body seem shorter. However, you can always work up to your desired measurements; you can make the body longer if you prefer it. Happy knitting!

17.07.2023 - 10:07

country flag Sharon Hunt wrote:

Please explain: After the 4 rounds of stockinette stitch, work A.1 in the round (= 19-20-21-19-20-21 repeats of 10-10-10-12-12-12 stitches). Continue this pattern. Thank you

05.07.2023 - 19:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, for yoke you will first knit 4 rounds increasing on 3rd round 15 - 35 sts (see size) evenly spaced, then you will work the pattern repeating diagram A.1, A.1 is either 10 or 12 sts (see size) and you will repeat the diagram a total of 19 - 21 sts in the round depending on the size. Read more about diagrams here; Happy knitting!

06.07.2023 - 10:12