Frosted Fruit Jacket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum, kúlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-24 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 17 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 2,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1 cm frá kanti í hálsmáli að framan við kant að framan. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9-9½-10-8½-8½-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka þangað til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Þegar öll stykkin hafa verið prjónuð til loka eru stykkin saumuð saman. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Vinstri öxl: Fitjið upp 17-18-19-18-20-22 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 23-24-25-24-26-28 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 18 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 5. umferð í A.1 er lokið. Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok þessarar umferðar (þ.e.a.s. frá réttu) fyrir hálsmáli = 24-25-26-25-27-29 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. Hægri öxl: Fitjið upp 17-18-19-18-20-22 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 23-24-25-24-26-28 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 18 lykkjur, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 4. umferð í A.2 er lokið. Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok þessarar umferðar (þ.e.a.s. frá röngu) fyrir hálsmáli = 24-25-26-25-27-29 lykkjur. Nýja lykkjan og það sem áður var kantlykkja í garðaprjóni við hálsmál er nú prjónað brugðið frá réttu og slétt frá röngu. Prjónið 2 umferðir til viðbótar með mynstri eins og áður, síðan eru fitjaðar upp 23-23-23-27-27-27 lykkjur í lok síðustu umferðar (þ.e.a.s. frá röngu) fyrir hálsmáli og prjónið frá röngu yfir lykkjur á vinstri öxl þannig: 1 lykkja slétt, prjónið 6. Umferð í A.1 og haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina = 71-73-75-77-81-85 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 24-25-26-25-27-29 lykkjur, prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 9-9-9-11-11-11 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 24-25-26-25-27-29 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir 23-23-23-27-27-27 lykkjur á milli A.1 og A.2. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.5 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og prjónið brugðið yfir miðjulykkju í stað kúlu í fyrstu umferð) yfir næstu 3-3-3-5-5-5 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.6 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 16 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-4-4-4-4-4 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-5-6 sinnum og 4-5-5-5-6-7 lykkjur 1 sinni (= alls 10-13-15-17-20-23 lykkjur fleiri í hvorri hlið fyrir handveg) = 91-99-105-111-121-131 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón við hlið. Haldið áfram fram og til baka með mynstur yfir miðju 61-61-61-65-65-65 lykkjurnar, 14-18-21-22-27-32 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm – stillið af að endað sé eftir umferð merktri með svartri eða hvítri stjörnu í A.4 og að í þessari umferð eru auknar út 3-3-4-3-6-5 lykkjur jafnt yfir í hvorri hlið yfir 14-18-21-22-27-32 lykkjur í sléttprjóni (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð) = 97-105-113-117-133-141 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff frá réttu. Ef mynstrið endar í umferð með hvítri stjörnu er prjónað STROFF-1 og ef endað er í umferð með svartri stjörnu er prjónað STROFF-2. STROFF-1 (er prjónað þegar endað er í umferð með hvítri stjörnu í A.4 – það er svona sem stroffið er sýnt á myndinni): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 20-24-28-28-36-40 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt (þetta eru miðjulykkjur í umferð), 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 20-24-28-28-36-40 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Bakstykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. STROFF-2 (er prjónað þegar endað er í umferð með svartri stjörnu í A.4): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-16-20-20-28-32 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir næstu 10-10-10-15-15-15 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-12-12-8-8-8 lykkjur, 4 lykkjur slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 3-3-3-5-5-5 lykkjur brugðið (þetta eru miðjulykkjur í umferð), 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 8 lykkjur, 4 lykkjur slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12-12-12-8-8-8 lykkjur, (3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-15-15-15 lykkjur, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12-16-20-20-28-32 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Bakstykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 17-18-19-18-20-22 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 23-24-25-24-26-28 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 18 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar prjónað hefur verið upp að 11. umferð í A.1, eru lykkjur fitjaðar upp í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni, 4-4-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni og 12-12-12-13-13-13 lykkjur 1 sinni (= 20-20-20-22-22-22 lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli og kanti að framan) = 43-44-45-46-48-50 lykkjur. Snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur, prjónið síðan eins og útskýrt er í mynsturteikningu yfir lykkjur í A.1 og prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið fyrstu 2-2-2-3-3-3 lykkjur í A.5 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og prjónið brugðið yfir miðjulykkju í stað kúlu í fyrstu umferð), 2 lykkjur sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-4-4-4-4-4 sinnum og 2 lykkjur 1-2-3-4-5-6 sinnum og 4-5-5-5-6-7 lykkjur 1 sinni (= alls 10-13-15-17-20-23 lykkjur fleiri í hlið fyrir handveg) = 53-57-60-63-68-73 lykkjur í umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón í hlið. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir síðustu 38-38-38-40-40-40 lykkjur og prjónið 14-18-21-22-27-32 lykkjur sléttprjón innan við 1 kantlykkju garðaprjón að hlið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm – stillið af að endað sé eftir umferð merktri með svartri eða hvítri stjörnu í A.4 og að í þessari umferð eru auknar út 3-3-4-3-6-5 lykkjur jafnt yfir 14-18-21-22-27-32 lykkjur í sléttprjóni að hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð) = 56-60-64-66-74-78 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff frá réttu. Ef mynstrið endar í umferð með hvítri stjörnu prjónið STROFF-1 og ef mynstrið endar í umferð með svartri stjörnu prjónið STROFF-2. STROFF-1 (er prjónað þegar endað er í umferð með hvítri stjörnu í A.4 – það er svona sem stroffið er sýnt á myndinni): Prjónið nú stroff þannig (= 1. umferð = rétta): 1 kantlykkja garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 20-24-28-28-36-40 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 5-5-5-6-6-6 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. STROFF-2 (er prjónað þegar endað er í umferð með svartri stjörnu í A.4): Prjónið nú stroff þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-16-20-20-28-32 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir næstu 10-10-10-15-15-15 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-12-12-8-8-8 lykkjur, 4 lykkjur slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 2-2-2-3-3-3 lykkjur brugðið 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 17-18-19-18-20-22 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 23-24-25-24-26-28 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir fyrstu 18 lykkjur, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar prjónað hefur verið upp að 10. umferð í A.2, eru lykkjur fitjaðar upp í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni, 4-4-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni og 12-12-12-13-13-13 lykkjur 1 sinni (= 20-20-20-22-22-22 lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli og kanti að framan) = 43-44-45-46-48-50 lykkjur. Snúið og prjónið mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, prjónið síðustu 2-2-2-3-3-3 lykkjur í A.5 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og prjónið brugðið í stað fyrir að prjóna kúlur í fyrstu umferð), prjónið A.4 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, prjónið 4-5-6-5-7-9 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 16 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, fitjið upp lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-4-4-4-4-4 sinnum og 2 lykkjur 1-2-3-4-5-6 sinnum og 4-5-5-5-6-7 lykkjur 1 sinni (= alls 10-13-15-17-20-23 lykkjur fleiri í hvorri hlið fyrir handveg) = 53-57-60-63-68-73 lykkjur í umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón í hlið. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir fyrstu 38-38-38-40-40-40 lykkjur og prjónið 14-18-21-22-27-32 lykkjur sléttprjón innan við 1 kantlykkju garðaprjón að hlið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm – stillið af að endað sé eftir umferð merktri með svartri eða hvítri stjörnu í A.4 og að í þessari umferð eru auknar út 3-3-4-3-6-5 lykkjur jafnt yfir 14-18-21-22-27-32 lykkjur í sléttprjóni að hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð) = 56-60-64-66-74-78 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff frá réttu. Ef mynstrið endar í umferð með hvítri stjörnu prjónið STROFF-1 og ef mynstrið endar í umferð með svartri stjörnu prjónið STROFF-2. STROFF-1 (er prjónað þegar endað er í umferð með hvítri stjörnu í A.4 – það er svona sem stroffið er sýnt á myndinni): Prjónið nú stroff þannig (= 1. umferð = rétta): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, 5-5-5-6-6-6 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3-3-3-4-4-4 lykkjur brugðið, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 20-24-28-28-36-40 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. STROFF-2 (er prjónað þegar endað er í umferð með svartri stjörnu í A.4): Prjónið nú stroff þannig (1. umferð = rétta): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, 2-2-2-3-3-3 lykkjur brugðið, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 8 lykkjur, 4 lykkjur slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12-12-12-8-8-8 lykkjur, (3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-15-15-15 lykkjur, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12-16-20-20-28-32 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Fitjið upp 21-23-23-25-27-29 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Prjónið mynstur jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar fyrir ermakúpu – lestu því allan næsta kafla: MYNSTUR: Prjónið mynstur fram og til baka þannig: Prjónið 2-3-3-3-4-5 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.3, prjónið 3-3-3-5-5-5 lykkjur brugðið (lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu), prjónið síðustu 7 lykkjur í A.6, prjónið 2-3-3-3-4-5 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar prjónað hefur verið upp að 13. umferð í A.3 og A.6, prjónið hóp með kúlum yfir miðju 3-3-3-5-5-5 lykkjur brugðið á ermi – kúlurnar eru prjónaðar eins og útskýrt er í síðustu 4 umferðum og fyrstu umferð í A.5 (þ.e.a.s. prjónið síðustu 4 umferðir í A.5 yfir miðju 3-3-3-5-5-5 maskorna, prjónið síðan fyrstu umferð í A.5, þannig að það myndist hópur með 4 kúlum mitt á ermi). Endurtakið þetta í 32. hverri umferð. ERMAKÚPA: Jafnframt eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 4-3-3-3-3-2 sinnum, 1 lykkja 1-5-5-6-8-12 sinnum og 2 lykkjur 4-3-4-4-3-2 sinnum í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 8-10-10-10-12-14 lykkjur = 63-67-71-75-79-83 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 8-10-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður yfir miðju 17 lykkjurnar á ermi og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar ermin mælist 4 cm frá þar sem ermakúpan var prjónuð til loka, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 9-10-12-13-14-15 sinnum = 45-47-47-49-51-53 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-41-40-39-38-35 cm frá þar sem ermakúpan var prjónuð til loka (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-9-7-9-7 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 55-56-56-56-56-55 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið ermi við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við uppfitjunarkantinn á ermakúpu. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu í hægri kanti að framan með stuttum hringprjón 4 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp 7 lykkjur yfir fyrstu 7 lykkjur (þ.e.a.s. yfir 5 kantlykkjur að framan + 2 næstu lykkjur), prjónið síðan upp 82 til 90 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) innan við 1 lykkju í kringum kant í hálsmáli þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir + 2 lykkjur slétt í vinstra framstykki, prjónið upp 7 lykkjur yfir síðustu 7 lykkjur = 96 til 104 lykkjur. Prjónið stroff þannig (1. umferð – frá röngu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 9 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir garðaprjón. Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Synne wrote:
Hei, jeg ser en feil i oppskriften. På venstre forstykke står det at man skal strikke A.3, men her skal det være A.6.
28.05.2023 - 12:32Julie wrote:
Silver linings
05.08.2021 - 08:52