DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Trekker

Prjónuð húfa og hálsskjól fyrir börn úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni. Stærð 2 til 12 ára.

DROPS Children 40-32
DROPS Design: Mynstur mb-002-bn
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/128 - 134/152

EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300 g litur 02, grár

HÚFA:

STÆRÐ:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál:
48/50 – 50/52 – 52/54 – 54/56 cm

EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-100-100 g litur 02, grár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/128 - 134/152

EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-200-200 g litur 02, grár

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 5.
DROPS PRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA (á við um efst á húfu):
Fækkið lykkjum á undan hverju prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 16.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 15. og 16. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 16. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo að ekki myndist gat.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, neðan frá og upp.

HÚFA:
Fitjið upp 84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-5-5-6 cm.
Nú r stykkið snúið þannig að uppfitjunarkanturinn verði fallegur þegar kanturinn er brotinn upp, þ.e.a.s. afgangur af húfunni er prjónaður í hring í gagnstæða átt við uppábrots kant.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-4-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA / ÚTAUKNING = 82-84-88-90 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 19-20-20-22 cm, setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 11-12-11-12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, setjið síðan 6 prjónamerki með 10-10-11-11 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Nú eru 11-12-11-12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-6-7-7 sinnum = 42-36-32-34 lykkjur eftir.
Prjónið 2 umferðir slétt þar sem allar lykkjurnar eru prjónaðar saman 2 og 2 = 11-9-8-9 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 24-26-27-29 cm ofan frá og niður. Brjótið upp neðstu 4-5-5-6 cm á stroffi.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjað er neðst á framstykki, prjónað upp að öxlum, fellt af fyrir hálsmáli, síðan er prjónað áfram yfir axlir, lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli aftan í hnakka og síðan prjónað niður á bakstykki. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hring í hálsi í stroffiprjóni.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 50-58-62-66 lykkjur á prjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-2-2-2 sinnum, prjónið sléttprjón yfir næstu 38-38-42-46 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 1-2-2-2 sinnum og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 42-48-52-56 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 1-2-2-2 sinnum, prjónið 30-28-32-36 lykkjur sléttprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-2-2-2 sinnum og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka í sléttprjóni, 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og 4-8-8-8 lykkjur í stroffprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15-15-18-20 cm, setjið miðju 12-12-14-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig.

VINSTRI ÖXL (þegar stykkið er mátað):
Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-2-3 sinnum = 11-14-15-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-24-26 cm. Setjið 1 prjónamerki – þetta prjónamerki merkir miðju á öxl. Prjónið 1 umferð eins og áður frá réttu og 1 umferð eins og áður frá röngu. Prjónið 1 umferð eins og áður frá réttu og fitjið jafnframt upp 1 lykkju í lok þessarar umferðar við háls = 12-15-16-16 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina öxlina.

HÆGRI ÖXL (þegar stykkið er mátað):
Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-2-3 sinnum = 11-14-15-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-24-26 cm. Setjið 1 prjónamerki – þetta prjónamerki merkir miðju á öxl. Prjónið 1 umferð eins og áður frá réttu. Prjónið 1 umferð eins og áður frá röngu og fitjið jafnframt upp 18-18-20-24 lykkjur í lok þessarar umferðar við háls. Setjið síðan lykkjur af vinstri öxl til baka á prjóninn og haldið áfram frá röngu eins og áður yfir þessar lykkjur = 42-48-52-56 lykkjur í umferð. Prjónið síðan bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
= 42-48-52-56 lykkjur. Prjónið fram og til baka svona í sléttprjóni, 2 kantlykkjur í garðaprjóni yst í hvorri hlið og 4-8-8-8 lykkjur stroffprjón í hvorri hlið.
Prjónið þar til stykkið mælist 15-16-20-22 cm frá prjónamerki á öxlum. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir sléttprjónaðar lykkjurnar – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 50-58-62-66 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón 4 og prjónið stroff frá röngu þannig: 2 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 19-20-24-26 cm frá prjónamerki á öxlum.

KANTUR Í HÁLSI:
Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 48-52-56-64 lykkjur í kringum hálsinn (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 72-80-84-96 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Prjónið þar stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kantur í hálsi mælist 12-14-16-18 cm – eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2022
FRAMSTYKKI:...Skiptið yfir á prjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 1-2-2-2 sinnum, prjónið 30-28-32-36 lykkjur sléttprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-2-2-2 sinnum og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Franziska Stämpfli wrote:

Warum verwenden Sie 3 verschiedene Grössen Stricknadeln bei der Maschenprobe und beim Schalkragen. Wird für 2 rechts 2 links Muster auch eine Maschenprobe gemacht? Und wenn ja auch 17 Maschen und 22 Reihen.\r\n\r\nLiebe Grüsse aus der Schweiz\r\nFranziska

26.11.2023 - 00:03

country flag Manoa wrote:

Bonjour, Je tricote le bonnet et ne comprends pas la consigne suivante : "Tourner l'ouvrage, ainsi le revers sera sur l'endroit quand on va le plier, et on tricote le reste du bonnet dans l'autre sens." Pourriez-vous m'aider, svp ? Merci, bonne journée !

05.12.2022 - 22:30

DROPS Design answered:

Bonjour Manoa, le bas du bonnet doit être replié sur l'endroit à la fin, ainsi, pour que l'endroit de cette bordure soit sur l'endroit quand on la replie, on doit continuer la tricoter sur l'envers - cette vidéo montre (sur un autre modèle) comment procéder pour retourner le début de l'ouvrage et continuer. Bon tricot!

06.12.2022 - 11:07

country flag Linda wrote:

I’m having a problem with the neck warmer. After the rib row decrease on the right side it says change to 5 mm and the next row is on the right side! It states to k2,p2, after the 2 garter edge stitches. How can there be 2 right sides following on with no wrong side in between. For the back piece it talks about a right then wrong side at this point. Many thanks

27.10.2022 - 22:19

DROPS Design answered:

Dear Linda, you are right, work the next row from wrong side with 2 edge stitches in garter stitch as before + the first 4 or 8 sts in rib as before (K over K and P over P from WS) and purl the middle stitches (stocking stitch). Happy knitting!

28.10.2022 - 10:09

country flag Ella wrote:

Hei, hvordan lager jeg 2 kantmaske i rille ?

25.10.2022 - 11:02

DROPS Design answered:

Hej Ella, RILLE (strikkes frem og tilbake): Strikk rett på alle pinner. 1 rille i høyden = 2 pinner rett. Hvordan strikke kantmasker i rillestrikk

26.10.2022 - 08:31

country flag Ulrica wrote:

Hej, ska göra Little Trekker Halsvärmaren, förstår inte hur man gör två kantmaskor i rätstickning, har kopierat från ert mönster:, " FRAMSTYCKE: Lägg upp 50-58-62-66 maskor på sticka 4 med DROPS Big Merino. Sticka 1 varv avigt från avigsidan. Nästa varv stickas så här från rätsidan: 2 kantmaskor i RÄTSTICKNING – läs förklaring ovan, * 2 rätmaskor, 2 avigmaskor *, sti o s v. finns det någon video som förklarar?

28.09.2022 - 13:41

DROPS Design answered:

Hej Ulrica, ja så här stickar du rätstickning: Rätstickning Du hittar massa andra videos längst ner i mönstret :)

28.09.2022 - 15:33

country flag Ghia wrote:

I forgot to label this as a question, so again: "Hi, and thank you for your answer. This one is the only neck warmer with this look made out of Drops Big Merino (which is the yarn I have). I indeed checked through your entire selection. Please refer to a certain adult pattern, that can be made from Drops Big Merino. " I would also appreciate if you could just comment whether it is difficult or fairly easy to enlarge this pattern.

26.07.2022 - 12:37

DROPS Design answered:

Dear Ghia, you could try pattern 226-56, which is worked with 2 threads of group A = 1 thread of Group C, so you could try to work it with Big Merino (Group C yarn). Happy knitting!

31.07.2022 - 16:56

country flag Ghia wrote:

Hi, and thank you for your answer. This one is the only neck warmer with this look made out of Drops Big Merino (which is the yarn I have). I indeed checked through your entire selection. Please refer to a certain adult pattern, that can be made from Drops Big Merino.

26.07.2022 - 12:32

country flag Ghia wrote:

Hello! I would love to make the neck warmer for my mum. Would it be possible to just add some stitches, like 8 or 16 stitches? I'm not a very experienced knitter (yet), so I would love some insight on how hard it would be to enlarge this pattern. Do I add those 8 stitches to every part or do the proportions differ and I just have to try and see? Thank you in advance! Ghia

26.07.2022 - 12:05

DROPS Design answered:

Hi Ghia, why don't you choose from adult patterns. We have manny women patterns for neck wormers you can knit with our yarns. Please see HERE. Happy knitting!

26.07.2022 - 12:29

country flag Marta wrote:

Dzień dobry. Mam pytanie co do drutow w kominie. W wykazie podane są druty pończosznicze nr 5, natomiast we wzorze pojawia się wielkość drutów nr 4 ( przerabianie golfu). Która wielkość jest prawidłowa?

19.07.2022 - 10:16

DROPS Design answered:

Witaj Marto, potrzebne będą druty pończosznicze nr 4. Poprawiłam to już na stronie. Dziękuję za informację. Pozdrawiam!

19.07.2022 - 10:36

country flag Florence L Bass wrote:

Hello - me again! Apologies, I should have included that my question is regarding the HAT instructions! The question in my original post: Towards the end of the instructions it says: "Work 2 rounds where all stitches are knitted together 2 and 2 = 11-9-8-9 stitches." What does this mean? Is this just a standard "k2tog" but explained oddly? Many thanks - Florence

24.04.2022 - 07:58

DROPS Design answered:

Dear Florence, please see answer below.

24.04.2022 - 22:08