DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16368.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Hive

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað með köðlum, býkúpumynstri og háum kraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 224-15
DROPS Design: Mynstur wi-019
Garnflokkur E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600-650-700-800-850-950 g litur 04, hveiti

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16368.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, í stykkjum sem síðar eru saumuð saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 74-82-82-90-98-106 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-8-12-16-20 lykkjur, A.1 (= 14 lykkjur), A.2 (= 32 lykkjur), A.3 (= 14 lykkjur), 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-8-12-16-20 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 6 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu:
1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur, jafnframt er fækkað um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir, A.4 (= 14 lykkjur), A.5 (= 32 lykkjur), A.6 (= 14 lykkjur), sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur, jafnframt er fækkað um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 72-78-82-88-94-100 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 3-4-4-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 66-70-74-78-80-82 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fækkið nú um 14 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.5. Í næstu umferð eru miðju 12-12-12-14-14-14 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er lykkjum fækkað í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 16-18-20-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.4 / A.6 = 12-14-16-17-18-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 74-82-82-90-98-106 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-8-12-16-20 lykkjur, A.1 (= 14 lykkjur), A.2 (= 32 lykkjur), A.3 (= 14 lykkjur), 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-8-12-16-20 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 6 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu:
1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur, jafnframt er fækkað um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir, A.4 (= 14 lykkjur), A.5 (= 32 lykkjur), A.6 (= 14 lykkjur), sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur, jafnframt er fækkað um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 72-78-82-88-94-100 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur.

Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 3-4-4-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 66-70-74-78-80-82 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fækkið nú um 14 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.5. Í næstu umferð eru miðju 18-18-18-20-20-20 lykkjur felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 16-18-20-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.4 / A.6 = 12-14-16-17-18-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Fitjið upp 36-40-40-44-44-48 lykkjur á sokkaprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 11-11-10½-10½-10-9½ cm millibili alls 5 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 56-55-54-53-50-49 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna að loka máli.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 58-58-57-57-56-56 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-3-3-4-6-7 cm efst á ermi. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu og á annarri öxlinni og prjónið upp ca 56 til 64 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði), á stuttan hringprjón 7 með DROPS Wish.
Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm, eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2021
BAKSTYKKI:..Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur, jafnframt er fækkað um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir, A.4 (= 14 lykkjur), A.5 (= 32 lykkjur), A.6 (= 14 lykkjur), sléttprjón yfir 6-10-10-14-18-22 næstu lykkjur,

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Grace Day wrote:

Hello, This may be a silly question, how much must the whole garment measure, top to bottom? Are the numbers on the chart in inches or in cm?

27.03.2024 - 11:24

DROPS Design answered:

Dear Grace, you can fins all the measurements on the schematic drawings at the bottom of the pattern. The length is on the left side of the drawing. Every measurement is given in centimeters. Happy Knitting!

27.03.2024 - 14:31

country flag Baetens wrote:

Ik snap de correctie niet goed. Daar staat hetzelfde als in het originele patroon. Is het patroon nu aangepast en wel degelijk correct?

04.11.2023 - 17:15

DROPS Design answered:

Dag Baetens,

Als er een correctie is gemaakt, dan is deze correctie al doorgevoerd in het online patroon. Als je een afdruk hebt gemaakt van voor de correctiedatum dan is de correctie daar nog niet in doorgevoerd.

05.11.2023 - 19:38

country flag Cal wrote:

Hi, thanks for answering my previous question. I’m now stuck on the part on the shoulders where you have to decrease 4 stitches evenly over the cables on A.4/A.6. Do you do the decreases on the one row or over multiple rows? I can’t seem to work it so the cable looks right; instead it looks too small compared to the rest of the piece. Would you recommend any specific way to decrease over the cables? Thanks again!

23.09.2023 - 22:19

DROPS Design answered:

Dear Cal, you decrease on one row, in the last row of working the cable. You should be able to decrease normally with knit 2 together. This is all done since, as the cable will contract the piece, we increase stitches for the cables before starting to work the pattern. Then, as we finish the cable, we decrease over the cable stitches so that the neck won't be curved and will be flat. These decreases shouldn't affect the size of the cables. Happy knitting!

25.09.2023 - 00:01

country flag Cal wrote:

I’m stuck when it comes to repeating the pattern; chart A5 is shorter than A4 & A6, where do I start the repeat? Thanks

13.09.2023 - 13:25

DROPS Design answered:

Dear Cal, the diagrams are repeated over a different number of rows in height, so when A.5 is done, repeat A.5 from first row and continue A.4 and A.6 as before, when A.4 and A.6 are done in height, repeat them from first row, continuing A.5 as before. Happy knitting!

13.09.2023 - 16:21

country flag Thera wrote:

Winter Hive DROPS Design: Model wi-019 Jeg er ny udi strikkeriets forunderlige verden og indtil videre er det gået rigtigt fint med denne opskrift, hvor alt er godt forklaret. Men jeg kan ikke helt gennemskue, hvordan man strikker ærmekuppel? Synes ikke det fremgår. præcist hvordan man gør dette?

13.01.2023 - 08:21

DROPS Design answered:

Hei Thera Du har til nå strikket ermet rundt på rundpinne, men når ermet måler 56-55-54-53-50-49 cm, skal det strikkes frem og tilbake over maskene i noen cm (se hvor mange cm i oppskriften og den str. du strikker). Dette blir da ermtoppen og det blir en splitt iarbeidet fra der du begynte åstrikke frem og tilbake. Ta gjerne en titt på denne videoen, kanskje du da får en bedre oversikt: Hvordan monterer man ærmerne i ryg & forstykke mvh DROPS Design

16.01.2023 - 11:04

country flag Guillaume Lisicki wrote:

Bonjour C'est la première fois que j'essaye un patron en forme de texte. Il y a une chose que je ne comprends pas. Pour faire le devant vous demander de monter 74 mailles en taille s. Lorsque j'additionne le nombre de mailles du dessin A1 + A2 + A3 =60 mailles. J'ai une différence de 14 mailles je ne comprends pas où elles sont passées. pouvez-vous m'aider sur le sujet

02.03.2022 - 17:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mr Lisicki, vous n'allez pas uniquement tricoter les diagrammes, mais en taille S ainsi: 1 m lis, 2 m end, 2 m env, 2 m end, A.1 (= 14 m), A.2 (= 32 m), A.3 (= 14 m), 2 m end, 2 m env, 2 m end, 1 m lis = 1+2+2+2+14+32+14+2+2+2+1=74 mailles. Bon tricot!

02.03.2022 - 17:44

country flag Motte wrote:

Bonjour . Combien de pelotes faut il pour une taille M

12.02.2022 - 19:17

DROPS Design answered:

Bonjour Motte, pour la taille M il vous faut 13 pelotes (650 g) de DROPS Wish. Bon tricot!

14.02.2022 - 07:33

country flag Philippart Joelle wrote:

J\'ai un problème pour payer : aucune de mes carte ne fonctionnent f723333aabf33-12000

31.01.2022 - 17:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Philippart, n'hésitez pas à contacter directement le magasin où vous avez voulu passer votre commande, on pourra vous y aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

31.01.2022 - 17:58

country flag Iselin wrote:

Peut on tricoter le modèle drops 224 15 avec des aiguilles normales?

04.10.2021 - 13:26

DROPS Design answered:

Bonjour Iselin, c'est tout a fait possible. Seuls les manches et le col sont tricotes sur les aiguilles double pointes. Bon tricot!

04.10.2021 - 13:54