DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Day to Knight

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Lima eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, köðlum, áferðamynstri og tvöföldum kanti í handvegi. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-5
DROPS Design: Mynstur li-141
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-500-500 g litur 9020, perlugrár

Eða notið:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-500-500 g litur 72, ljós perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 60 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 21. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 20. og 21. hverja lykkju slétt saman.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum. Síðan eru stykkin sett saman með því að sauma saman axlasauma og hliðarsauma. Að lokum eru kantar í handvegi prjónaðir í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 104-115-126-137-148-159 lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur í hvorri hlið) á hringprjón 4 með DROPS Lima eða DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan mynstur þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 99-110-121-132-143-154 lykkjur (= 9-10-11-12-13-14 mynstureiningar með 11 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað til loka 5 sinnum á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Prjónið nú A.2 yfir hverja mynstureiningu A.1 (kantlykkjur halda áfram eins og áður). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 95-105-115-125-135-145 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15 cm.
Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig:
Prjónið brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur í umferð og fækkið um 1-5-3-7-5-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 94-100-112-118-130-142 lykkjur. Fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= 1 kantlykkja), snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= 1 kantlykkja) = 96-102-114-120-132-144 lykkjur.
Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af 6-6-9-9-12-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum. Í næstu umferð frá réttu er felld af 1 lykkja í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3 lykkjur í mynstri eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 4 lykkjur í mynstri eins og áður. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-9-9-7-10 sinnum og í 4. hverri umferð 4-4-3-3-5-5 sinnum (= alls 9-9-12-12-12-15 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið) = 66-72-72-78-84-90 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Prjónið nú garðaprjón yfir miðju 28-28-28-34-34-34 lykkjur og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir þessar lykkjur, fellið af miðju 22-22-22-28-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu = 22-25-25-25-28-31 lykkjur eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið, 2 kantlykkjur í garðaprjóni við hálsmál og A.3 yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fellið síðan af fyrir handveg, jafnframt er stykkinu skipt upp fyrir hægra og vinstra framstykki og lykkjum er fækkað fyrir V-hálsmáli.

ÚRTAKA FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af 6-6-9-9-12-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3 lykkjur í mynstri eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 4 lykkjur í mynstri eins og áður. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-9-9-7-10 sinnum og í 4. hverri umferð 4-4-3-3-5-5 sinnum (= alls 9-9-12-12-12-15 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið).
V-HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður fram að miðju 2 lykkjum í umferð. Prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af miðju 2 lykkjum í umferð (þ.e.a.s. prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) = 2 lykkjur fleiri, prjónið út umferðina eins og áður. Snúið og prjónið út umferðina - nýjar lykkjur mitt á framstykki eru prjónaðar í garðaprjóni. Nú skiptist stykkið mitt í þessum miðjulykkjum og hvort stykki er prjónað fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið mynstur og úrtöku fyrir handveg eins og áður þar til 10 lykkjur eru eftir á undan V-hálsmáli, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-3-7-7-6 sinnum og í 4. hverri umferð 8-8-9-8-8-9 sinnum = 12-12-12-15-15-15 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli.
Þegar allar úrtökur fyrir handveg og hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 22-25-25-25-28-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.
Fellið af með sléttum lykjum frá réttu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið mynstur og úrtöku fyrir handveg eins og áður yfir fyrstu 8 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur út umferðina og úrtöku fyrir handveg eins og áður.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-3-7-7-6 sinnum og í 4. hverri umferð 8-8-9-8-8-9 sinnum = 12-12-12-15-15-15 lykkjur færri fyrir V-hálsmáli.
Þegar allar úrtökur fyrir handveg og hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 22-25-25-25-28-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.
Fellið af með sléttum lykjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður þar sem fitjuð var upp 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið (= ca 16 cm klauf).

TVÖFALDUR KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið mitt undir ermi í hliðarsaumi og prjónið upp frá réttu ca 136 til 162 lykkjur í kringum handveg með hringprjón 3 og DROPS Lima eða DROPS Karisma. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2.
Prjónið stroff hringinn þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* hringinn í 6 cm. Fellið af – sjá AFFELLING.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Brjótið niður stroffið í kringum handveg að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í handvegi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = þessi lykkja er ekki til þar sem búið er að fækka um þessa lykkju. Farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Margot wrote:

Die Anleitung leicht verständlich! Ergebnis: Super schön! So wie es sein sollte.Mit Baumwolle - Cashmere gestrickt.\r\nMaschenprobe angepasst.\r\nVoll zu empfehlen.\r\nDanke dafür.Hat nicht jeder!🥰

11.03.2024 - 19:42

country flag Michèle Tremblay wrote:

Bonjour, Je débute le devant gauche. Je comprends les diminutions du côté de l’emmanchure. Je ne sais pas où faire la diminution de une maille est ce avant de commencer les diminutions de l’emmanchure ou après Merci 😊

07.03.2024 - 15:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, lorsque l'on tricote les devants séparément, les diminutions des emmanchures ne sont pas encore terminées, autrement dit, vous continuez à diminuer comme indiqué auparavant sous DIMINUTIONS EMMANCHURES: pour votre taille, en début de rang sur l'endroit pour le devant gauche (vous diminuerez pour l'emmanchure en fin de rang sur l'endroit pour le devant droit)= après les 4 premières mailles pour l'emmanchure, en même temps, diminuez pour l'encolure avant les 8 dernières mailles sur l'endroit (devant gauche). Bon tricot!

07.03.2024 - 15:47

country flag Michèle Tremblay wrote:

Bonjour Je fait le modèle de 126 mailles. Je n’arrive pas à comprendre le début pour le dos. Il me dise de faire 11 fois le motif A1 au dessus des 121 mailles plus deux mailles de chaque côté mais il me reste une maille de surplus. Merci de me répondre et Bonne journée!

19.02.2024 - 14:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, tricotez ainsi: 2 m point mousse, répétez ensuite 11 fois les 11 mailles de A.1, tricotez maintenant la 1ère maille de A.1 pour que le motif soit symétrique et terminez par 2 m point mousse soit: 2+(11x11)+1+2= 126 mailles. Bon tricot!

19.02.2024 - 15:24

country flag Nelly Gautier wrote:

Bonjour Comment faire pour avoir les mensurations ? Merci

15.01.2024 - 12:42

country flag Emilia wrote:

Wanneer je mindert voor de armsgaten: hoe werk je dan verder in het patroon? Bv. Die 9 keer iedere andere naald, daar doe je 1 kantsteek, 3 steken in patroon, 1 afhalen, 1 recht, en de vorige eroverheen afhalen, ga je dan met de volgende steek terug verder in het patroon of telt die ene geminderde of die ene rechte mee in het patroon?

16.12.2023 - 23:11

DROPS Design answered:

Dag Emilia,

Op het moment dat je mindert voor de armsgaten ben je patroon A.3 aan het breien. Zorg ervoor dat A.3 over de rest van het pand door loopt. Als je bijvoorbeeld 1 steek hebt geminderd dan brei je 1 steek minder in het patroon, maar het patroon mag niet verschuiven.

17.12.2023 - 17:23

country flag Helga Heathcote wrote:

Day to it pattern, I dont understand the symbol in a1 chart row 3 and 7. Do I have to purl 3 tog. 2 times? Pls explain the symbol. Thank you

23.11.2023 - 03:09

DROPS Design answered:

Hi Helga, The diagonal lines in chart A.1 are for the cabling. The first line from top right to bottom left is "place 1 stitch on cable needle held behind the piece, knit 1 as usual, then purl the stitch on the cable needle". The line from bottom right to top left is "place 1 stitch on the cable needle held in front of the piece, purl 1 as usual and knit the stitch on the cable needle". Happy knitting!

23.11.2023 - 07:26

country flag Ine Van Der Meer wrote:

Telpatroon: aangegeven is dat het telpatroon alle naalden aan de goede kant laat zien. Alleen als ik uitga van heen- en teruggaande naalden, krijg ik het juiste patroon. Klopt dit?\r\nTelpatroon A1-3e naald (heengaand) Steek op kabelnaald achter het werk, 1 recht en 1 averecht van de kabelnaald . Daarna steek op kabelnaald 1 steek voor het werk, 1 averecht en 1 recht van de kabelnaald (dus precies andersom dan is aangegeven. Idem voor 7e naald - ook andersom dan is aangegeven.

11.11.2023 - 18:13

country flag Ximena wrote:

Tengo una duda. En la espalda, al seguir tejiendo, despues de la disminucion de las sisas, habla de trabajar en punto musgo en algunos puntos y segun el patron en el resto, pero no me queda claro si el punto musgo es sobre los puntos centrales o no.

10.08.2023 - 03:02

DROPS Design answered:

Hola Ximena, se trataba de una errata, ya está corregida. Trabajas en punto musgo sobre los 28-28-28-34-34-34 puntos centrales.

20.08.2023 - 18:20

country flag Majbrit Hansen wrote:

Hej der står i opskriften at diagrammet viser alle retninger. Skal jeg så strikke vrangpind som masken viser. På forhånd tak for hjælpen. Håber på hurtig svar da jeg skal til at begynde på den . Venlig hilsen Majbrit Sloth Jørgensen

01.05.2023 - 06:07

DROPS Design answered:

Hei Majbritt. Man leser et strikkediagram motsatt av slik man normalt leser: Fra høyre mot venstre, nedenfra og opp. Du begynner altså nederst i det høyre hjørnet (fre retten), og jobber deg mot venstre og oppover. Da blir 2.rekke i diagrammet fra vrangen og det strikkes da fra venstre mot høyre. Og så er det viktig å lese diagramikon forklaringen. F.eks blank firkant strikkes rett fra retten, vrang fra vrangen, og en firkant med en vannrett strekk strikkes vrang fra retten, rett fra vrangen . mvh DROPS Design

02.05.2023 - 13:38

country flag Majbrit Hansen wrote:

Hej der står i opskriften at diagrammet viser alle retninger, skal jeg så strikke vrangpinden som masken viser . På forhånd tak håber på hurtig svar da jeg skal til igang med den

01.05.2023 - 06:05