DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Polar Daylight

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað með háum kraga eða tvöföldum kanti í hálsmáli í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-4
DROPS Design: Mynstur u-922
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 50, sægrænn

Eða notið:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-500-550-600-700-750 g litur 18, dökk blágrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 127 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 125 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,9.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmál þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 4 lykkjur eins og áður.
Fækkið lykkjum fyrir hálsmál þannig: Prjónið fyrstu 4 lykkjur eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkju slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Síðan við frágang eru stykkin saumuð saman. Að lokum er prjónaður hár kragi eða tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 127-136-148-160-172-190 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy.
Prjónið stroff þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins), 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 11 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 32-33-37-39-41-47 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 95-103-111-121-131-143 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (ysta kantlykkjan í hvorri hlið er prjónuð slétt). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-7-8-10 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á næstu 2 umferðum = 91-99-103-107-115-123 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið nú af miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 29-33-34-36-39-43 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 127-136-148-160-172-190 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy.
Prjónið stroff þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 11 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 32-33-37-39-41-47 lykkjur jafnt yfir = 95-103-111-121-131-143 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (ysta kantlykkjan í hvorri hlið er prjónuð slétt). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-7-8-10 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á næstu 2 umferðum = 91-99-103-107-115-123 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm. Setjið nú miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá réttu alls 7 sinnum – sjá ÚRTAKA = 29-33-34-36-39-43 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 51-54-57-60-63-66 lykkjur á sokkaprjóna 3,5. Prjónið A.1 hringinn í 11 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 13-12-11-10-9-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, síðar eru lykkjur auknar út hvoru megin við prjónamerkið! Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 15-15-15-15-15-17 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 15-14-9-6½-5-3½ cm millibili alls 2-3-4-5-6-7 sinnum = 68-72-76-80-84-88 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 49-48-47-45-44-42 cm. Prjónið nú ermina áfram fram og til baka í sléttprjóni frá byrjun á umferð, þannig að það myndist lítil klauf mitt undir ermi. Þegar ermin mælist alls 50-49-49-49-48-47 cm, fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki – sjá teikningu fyrir frágang. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður þar sem stroffið endar (= 11 cm klauf í hvorri hlið).

HÁR KRAGI:
Prjónið upp 108 til 126 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði) á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy innan við 1 kantlykkju í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið A.1 hringinn í 11 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 108 til 126 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy innan við 1 kantlykkju í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið A.1 hringinn í 12 cm. Aukið nú út um 1 lykkju í hverri einingu með brugðnum lykkjum. Prjónið stroffprjón þar til kanturinn í hálsmáli mælist alls 16 cm. Síðar er kanturinn brotinn saman tvöfaldur þannig að það myndist kantur í hálsmáli ca 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
symbols = 11 cm á við um þegar prjónaður er hár kragi. Ef prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsi þá verður hann 8 cm við loka frágang.
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Willeke wrote:

Hallo, Ik ben een beginnend breister en kom niet uit het boordpatroon. Moet ik A1 telkens van rechts naar links lezen of moet ik bij de verkeerde kant van links naar rechts lezen? Want als ik dat laatste doe, gaat het patroon toch scheef?? Dank voor uw antwoord

06.03.2024 - 15:53

DROPS Design answered:

Dag Willeke,

Aan de goede kant lees je de steken van rechts naar links en aan de verkeerde kant (wanneer je dus weer terug breit) van links naar rechts. De steken die je aan de goede kant recht breit, moet je aan de verkeerde kant averecht breien en de steken die je aan de goede kant averecht breit, moet je aan de verkeerde kant recht breien.

06.03.2024 - 21:52

country flag Marte wrote:

Er det brukt DROPS Karisma eller DROPS Daisy på genseren på bildet?

13.02.2024 - 09:15

DROPS Design answered:

Hej Marte, genseren på billedet er strikket i DROPS Karisma :)

22.02.2024 - 11:34

country flag Solange wrote:

Bonsoir le modèle polar 227-4 taille S me plaît mais je voudrais faire les manches droites comment puis-je calculer le nombre de mailles et les augmentations jusqu’aux emmanchures Merci pour votre aide

10.02.2024 - 00:55

DROPS Design answered:

Bonjour Solange, vous pouvez vous baser sur un modèle similaire de tension identique avec la forme des manches souhaitées. Bon tricot!

12.02.2024 - 07:13

country flag FRED wrote:

Bonjour pourriez vous me dire si d'après le diagramme une fois montée mes 127 mailles, je tricote pour mes côtes pour le premier rang , 2 mailles endroit et 1 maille torse endroit etc et pour le deuxième rang 2 mailles envers et 1 maille torse envers ? Mon modèle est le 227-4 et j'avoue débuter. Donc pour moi les explications sont compliquées et diagramme compliqué. Merci

16.01.2024 - 10:47

DROPS Design answered:

Bonjour Fred, les côtes du bas du pull se tricotent en suivant le diagramme A.1 (retrouvez plus d'infos sur les diagrammes ici), autrement dit ainsi, sur l'endroit: 3 m point mousse, (1 m torse à l'endroit, 2 m envers) répétez de (à) jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles et terminez par 1 m torse à l'endroit et 3 m point mousse; sur l'envers, tricotez: 3 m point mousse (1 m torse à l'envers, 2 m endroit), répétez de (à) jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles et terminez par 1 m torse à l'envers et 3 m point mousse. Bon tricot!

17.01.2024 - 08:37

country flag FRED wrote:

Bonjour je souhaiterai savoir si les côtés se tricote en 2/2 ou 3/3 Merci

11.01.2024 - 21:04

DROPS Design answered:

Bonjour Fred, les côtes en bas du dos, du devant et des manches ainsi que le col se tricotent en suivant le diagramme A.1, autrement dit en côtes (1 maille torse à l'endroit, 2 mailles envers). Bon tricot!

12.01.2024 - 08:00

country flag MOURGUES wrote:

Bonjour, Je souhaiterai connaitre le nombre de pelote "DROPS Karisma" à acheter pour Tricoter le Pull "DROPS 227-4" en taille "S" ? Merci , j'attends votre réponse pour passer commande. Cordialement

05.12.2023 - 13:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mourgues, vous trouverez la quantité nécessaire pour chaque taille, au poids, dans l'en-tête, en même temps que les tailles, les aiguilles et l'échantillon. Il vous faudra ainsi en taille S par ex. 500 g DROPS Karisma/50 g la pelote = 10 pelotes. Bon tricot!

05.12.2023 - 16:14

country flag Stef wrote:

Hi, gestrickt wird mit den Nadelstärken 3,5 und 4,5. Welche Nadelstärke ist für die Maschenprobe zu nehmen: 3,5 oder 4,5? Danke & Grüße, Stef

29.11.2023 - 09:30

DROPS Design answered:

Liebe Stef, benutzen Sie die grösseren Nadeln für die Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!

29.11.2023 - 14:10

country flag Maria Claesson wrote:

Jag tycker det var en onormalt kort tröja på mönstret , jag fick mixtra och förlänga , synd

21.10.2023 - 22:44

country flag Anita Meter wrote:

Waarom de steken op een rondbrei naald zetten, als de panden heen en weer worden gebreid?

02.10.2023 - 21:32

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Als je veel steken op de naald hebt, kan het makkelijker zijn om met de rondbreinaald te breien omdat ze er dan beter op passen, maar verder is daar geen reden voor, dus je zou ook met rechte naalden kunnen breien.

03.10.2023 - 06:00

country flag Ma Eugenia wrote:

Hello !!! I´d like to knit this sweater using Karisma and Kid Silk. They form group C. Is it possible to change the gauge ?? How can I do that ?? TIA

03.09.2023 - 15:05

DROPS Design answered:

Dear Ma Eugenia, you need to work a gauge with your desired yarns and compare it to the pattern. Then check if you can adapt the pattern to your gauge by working a smaller size. You can see how to calculate a pattern here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=19. Happy knitting!

03.09.2023 - 23:49