Outdoor Adventure Jacket |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Children 40-17 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 73 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 63 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá RÉTTU): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá RÖNGU): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi hefur verið prjónaður til loka (þ.e.a.s. í skiptingunni á milli kants í hálsi og berustykkis). Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 6-7-7½-7-7-7½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 73-73-77-77-81-81 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á stuttan hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 82-82-86-86-90-90 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og 5 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar slétt = kantur að framan). Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerkið við hálsinn til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 17-17-16-16-17-17 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 12-12-16-16-16-16 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 24-24-22-22-24-24 lykkjur frá 2. prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 12-12-16-16-16-16 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 17-17-16-16-17-17 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (= framstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu eru auknar út fyrir axlarsæti þannig – sjá ÚTAUKNING-3: Aukið út um 1 lykkju á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 3. og 1. prjónamerki. Þ.e.a.s. aukið er út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar liggi fallega. Haldið svona áfram í sléttprjóni og aukið út alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 10-12-14-16-18-20 sinnum = 122-130-142-150-162-170 lykkjur - ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 8-9-8-9-11-13 sinnum = 154-166-174-186-206-222 lykkjur. Stykkið mælist ca 11-12-13-15-18-21 cm frá prjónamerki við háls. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Aukið nú út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju eftir prjónamerki. Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri). Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-3-2-1 sinnum = 186-198-206-210-222-230 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 15-17-17-18-20-22 cm frá prjónamerki í kanti í hálsi. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukningar að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 31-33-34-35-37-38 lykkjurnar (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn undir ermi, prjónið 52-56-58-60-64-66 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn undir ermi og prjónið yfir síðustu 31-33-34-35-37-38 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 126-134-138-146-154-158 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 14-16-19-22-22-22 cm frá skiptingu. Nú eru ca 4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 25-27-27-29-31-31 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 151-161-165-175-185-189 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að stroffið sem prjóna á, dragi ekki stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjóna 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 36-38-40-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-6-7-8-9-11 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 20-23-28-32-35-38 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 24-27-32-36-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Corthay wrote:
Bonjour, Les corrections apportées à ce modèle ne sont pas très explicites... Après les augmentations de l'empiècement, j'arrive bien à 186 mailles pour la 1ère taille, mais le nombre de mailles dans la répartition ne correspond pas. J'ai 26 /46/42/46/26. Ca joue avec ces chiffres? Merci pour votre réponse et bonnes salutations. Claire Corthay
27.03.2024 - 14:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Corthay, dans la 1ère taille, vous devez avoir 27 mailles pour chaque devant (= 17 m + 10 augm pour les manches marteau + 4 augm pour le raglan); 36 mailles pour chaque manche (=12 m + 2 x 8 augm pour les manches + 2 x 4augm pour le raglan) et pour le dos vous devez avoir 52 mailles (24 + 2 x 10 pour les manches marteau + 2 x 4 pour le raglan). En espérant que cela pourra vous aider. Bon tricot!
02.04.2024 - 12:38Eveline wrote:
Per favore c'è una fotografia del retro per capire se ho fatto bene le spalle? Grazie mille
24.12.2023 - 19:44DROPS Design answered:
Buonasera Eveline, non abbiamo ulteriori fotografie di questo modello. Buon lavoro!
26.12.2023 - 16:47Ann-Christin Olsfelt Johansson wrote:
Hej! I den svenska beskrivningen - där det beskrivs hur man placerar ut markörerna för sadelaxlarnas ökningar - står att man ska börja mitt bak. Rev mitt huvud över detta och tittade sedan på den norska beskrivningen - där står det "foran", alltså mitt FRAM. Då förstod jag hur det hängde ihop. Ändring av detta vore bra!
16.11.2022 - 09:29DROPS Design answered:
Hej! Tack för info, detta är nu rättat! Mvh DROPS Design
16.11.2022 - 14:03Frederike wrote:
Wat betreft de vraag over de markeerdraden, ik heb het inmiddels door. Het is ook zo logisch, maargoed het duurde even voordat ik het zag..
11.09.2022 - 14:50Frederike wrote:
Ik vroeg me af; de markeerdraden zijn genummerd van 1-4 is dit hoe je ze tegenkomt in de naald, voor of achterkant, of is het aan de goede kant draad 1-4 en aan de andere kant 4-1? Als ik naar het filmpje kijk over zadelschouders lijkt het dat je elke keer vanaf 1 telt, maar ik twijfel. Heb dit nog niet eerder zo gebreid. Alvast bedankt! Mvg frederike
10.09.2022 - 16:56DROPS Design answered:
Dag Frederike,
Je voegt de markeerdraden in aan de goede kant, dus aan de goede kant tel je van 1 tot 4 en aan de verkeerde kant inderdaad andersom; van 4 naar 1.
14.09.2022 - 12:08Marjorie wrote:
Bonjour, Pour avoir déjà tricoté cette laine, il me semble qu'elle est poilue et laisse des peluches un peu partout difficile à enlever (faute du polyamine ?). Je voudrais donc réaliser ce modèle avec une autre laine équivalente non-poilue, laine chaude (laine, alpaga... Ou autre), quelle laine me conseillère à-coups et combien de pelote pour un pull en 5-6ans? Merci de votre retour. Marjorie
08.01.2022 - 15:29DROPS Design answered:
Bonjour Marjorie, utilisez notre convertisseur pour découvrir toutes les possibilités pour remplacer DROPS Air (1 autre fil du groupe C ou bien 2 fils du groupe A) et la quantité correspondante. Votre magasin saura vous conseiller si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
10.01.2022 - 07:53Jan wrote:
Hello, I have found an error in the pattern for YOKE INCREASES, after "divide the yoke for the body and sleeves": The second set of cast on should be: "cast on 6-6-6-8-8-8 new stitches (= in side under sleeve)". Kind regards, Jan
29.12.2021 - 21:41DROPS Design answered:
Hi Jan, thank you for pointing this out. You are right. We will correct it. Happy knitting!
30.12.2021 - 09:33Cathy Shannahan wrote:
I love this. I will be making multiples
17.08.2021 - 16:56