DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tiny Cloud

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsi og axlarsæti. Stærð 3 - 14 ára.

DROPS Children 40-14
DROPS Design: Mynstur sk-014-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára.
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-150-200-200-200 g litur 15, ljós mynta

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3. Lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff..
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 78-80-82-84-86-88 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Sky.
Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-22-24-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 96-100-104-108-108-112 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Teljið 31-32-34-35-36-37 lykkjur og setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju = miðja að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerkið við hálsinn til að aðgreina þau.
Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki á undan fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan þegar flíkin er mátuð).
Annað prjónamerki: Teljið 14-14-16-18-18-18 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 34-36-36-34-36-38 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 14-14-16-18-18-18 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Nú eru 34-36-36-34-36-38 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki (= bakstykki).
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Prjónið sléttprjón hringinn.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 12-14-16-20-22-26 sinnum = 144-156-168-184-196-216 lykkjur - útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Haldið áfram með sléttprjón. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-10-8-7-7-7 sinnum = 184-196-200-212-224-244 lykkjur.
Stykkið mælist ca 11-12-12-12-13-14 cm frá prjónamerki mitt að framan. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Nú eru 34-34-32-32-32-32 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-5-65-5-4 sinnum = 224-236-248-252-264-276 lykkjur.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 15-16-16-16-17-17 cm frá prjónamerki mitt að framan. Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki mitt að framan – endið síðustu umferð þegar eftir eru 1-2-3-4-5-7 lykkjur í umferð.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 46-48-50-50-52-54 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 66-70-74-76-80-84 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 66-70-74-76-80-84 lykkjur (= bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 144-152-160-168-176-184 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Skiptið yfir á hringprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður.

ERMAR:
Setjið 46-48-50-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. í miðju af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-3-3-4-4 cm millibili alls 7-8-8-9-9-10 sinnum á hæðina = 38-38-40-40-42-42 lykkjur eftir.
Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-30-34-38-42 cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 3 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 24-28-33-37-41-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsi dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Erika wrote:

Hello, you have a mistake in the grams required for size 5-6 and up, I'm using Karisma that is also in Group B, I am on my third ball and not even done with the body and missing the sleeves, I'm estimating it would take me close to the 300gr I purchased to make two sweaters. Just letting you know for other people trying this pattern

20.02.2024 - 14:06

DROPS Design answered:

Dear Erika, this pattern is worked with DROPS Sky, which has a different metrage, this means you need 150 g DROPS Sky but if you like to use DROPS Karisma, that's right, you would need 300 g instead, see our converter. Happy knitting!

20.02.2024 - 15:58

country flag Nathalie wrote:

Ich stricke die kleinste Größe. In der Anleitung steht, dass nach der letzten Zuname für die sattelschulter 144 Maschen und 4cm Länge sind. Ich habe aber nur 116 Maschen bei 6cm schon. Hätte ich in jeder Runde zunehmen müssen? Ich habe jede Zunahmerunde abgestrickt. Die Mascherobe war perfekt, daran kann es nicht liegen

01.01.2024 - 21:13

DROPS Design answered:

Liebe Nathalie, man soll in jeder Runde zunehmen, dh 12 Runden = ca 4 cm; 12 Runden mit je 4 Zunahmen sind 48 Zunahmen insgesamt + die 96 Maschen = 144 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 12:17

country flag Marian Verberkt- Claessen wrote:

Een vraag, ik ben bezig met patroon 40-14 maat 158/164. 3 bolletjes wol voor het lijf. Kan ik nog uit 1 bol twee mouwen breien? Zo nee, klopt het patroon niet qua hoeveelheid en heb ik 5 bollen nodig voor deze maat. Gr.

08.02.2023 - 14:34

country flag Anne wrote:

Bonjour, N'y a-t-il pas une erreur "quand toutes les augmentations sont faites l'ouvrage mesure 15,....cm puis continuer en jersey jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 15.....cm "???? merci

18.01.2023 - 07:01

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, si vous avez la bonne tension en hauteur, alors vous aurez 15 cm après toutes les augmentations, sinon, vous devrez continuer jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 15 cm; dans certaines tailles (les 3 plus grandes) on tricote encore 1 -2 cm après les dernières augmentations, mais pas dans les 3 premières tailles. Bon tricot!

18.01.2023 - 09:47

country flag Enni wrote:

Riittääkö 200g oikeasti isoimpaan kokoon?!

09.05.2022 - 14:58

DROPS Design answered:

DROPS Sky on riittoisa lanka, joten 200 gramman tulisi riittää, kunhan neuletiheytesi on sama kuin ohjeessa annettu tiheys. Voit halutessasi varmuuden vuoksi hankkia yhden ylimääräisen kerän.

19.05.2022 - 17:22

country flag Brodier wrote:

Bonjour je ne comprends pas où placer les marqueurs pour commencer les manches marteau. Pourquoi un marqueur milieu devant alors qu’il y a un marqueur début d’ouvrage milieu dos ?

02.05.2022 - 16:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brodier, le marqueur du milieu dos sert de repère aux début des tours, celui du milieu devant sert de repère pour mesurer. Lorsque vous avez placé vos 4 marqueurs, vous allez augmenter avant les marqueurs 1 et 3 et après les marqueurs 2 et 4 (= pour le devant et le dos, le nombre de mailles entre les marqueurs 1 et 2 et les marqueurs 3 et 4 reste le même). cette vidéo montre comment procéder. Bon tricot!

03.05.2022 - 08:59

country flag Magdalena wrote:

Hej! Jag har ett ullgarn hemma med masktäthet 18 bredd och 25 höjd, 4,5-5,5 tjocka stickor. Kan detta garn funka till detta mönster? Hur ska jag tänka? Tack!

21.10.2021 - 16:43

DROPS Design answered:

Hej Magdalena. Du kan testa med lite tunnare stickor för att se om du kan få en stickfasthet på 21 maskor på bredden och 28 varv på höjden med slätstickning = 10 x 10 cm med det garnet. Isåfall kan du använda det till detta mönster. Annars låter det som det garnet skulle passa bättre till ett mönster som passar för garngrupp C. Mvh DROPS Design

22.10.2021 - 08:36