DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Sunrise Jacket

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli og blöðruermum með röndum. Stærð XS - XXL.

DROPS 221-23
DROPS Design: Mynstur as-147
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-175-175-200-225 g litur 17, ljós lavender
25-25-25-25-25-25 g litur 04, ljós beige
25-25-25-25-25-25 g litur 15, ljós sægrænn
25-25-25-25-25-25 g litur 13, gallabuxnablár
25-25-25-25-25-25 g litur 09, fjólublár

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 4-4-4-5-5-5 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

V-HÁLSMÁL:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Hægra framstykki:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Vinstra framstykki:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón.

RENDUR:
2 umferðir með 2 þræðir ljós beige.
4 umferðir með 1 þræði ljós beige + 1 þræði ljós sægrænn.
4 umferðir með 2 þræðir ljós sægrænn.
10 umferðir með 2 þræðir gallabuxnablár.
4 umferðir með 1 þræði gallabuxnablár + 1 þræði ljós sægrænn.
4 umferðir með 1 þræði gallabuxnablár + 1 þræði fjólublár
8 umferðir með 2 þræðir ljós lavender.
2 umferðir með 2 þræðir ljós beige.
4 umferðir með 2 þræðir fjólublár.
2 umferðir með 2 þræðir gallabuxnablár.
2 umferðir með 1 þráður gallabuxnablár + 1 þráður ljós lavender.
Prjónið síðan með 2 þráðum ljós lavender til loka.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 8,8.
Í þessu dæmi eru prjónaðar ca 8 og 9. hver lykkja slétt saman, lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.

ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg og framstykki og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp.
Að lokum er stykkið sett saman og prjónaðir eru kantar fram og til baka frá miðju aftan í hnakka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 116-124-136-144-156-172 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með 2 þráðum í litnum ljós lavender. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram svona með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-13-17-17-17-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 103-111-119-127-139-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8.
Setjið nú prjónamerki 26-28-30-32-35-39 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 51-55-59-63-69-76 lykkjur á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum fyrir handveg.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 29-31-33-34-36-36 cm, byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 6.-6.-6.-6.-6.-0. hverri umferð 1-1-1-1-1-0 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 7-7-7-7-8-10 sinnum (= alls 8-8-8-8-9-10 sinnum). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-36-37-38-39-40 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið þar til 1-1-1-2-3-5 lykkjur eru eftir á undan fyrsta prjónamerki (= framstykki), fellið af næstu 2-2-2-4-6-10 lykkjur fyrir handveg (= 1-1-1-2-3-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið næstu 49-53-57-59-63-66 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 2-2-2-4-6-10 lykkjur fyrir handveg (= 1-1-1-2-3-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið út umferðina.
Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið og úrtöku fyrir V-hálsmáli. Þegar allar úrtökur fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar eru 17-19-21-22-23-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-23-24 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið og úrtöku fyrir V-hálsmáli. Þegar allar úrtökur fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar eru 17-19-21-22-23-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-23-24 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
= 49-53-57-59-63-66. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18-18-19-20-21-22 cm frá skiptingu, fellið af miðju 13-13-13-13-15-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 17-19-21-22-23-24 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 28-28-28-32-32-32 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 2 þráðum í litnum ljós beige. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón nr 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 56-56-56-64-64-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 20 cm frá uppfitjunarkanti, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-5-3½-4-4½ cm millibili alls 6-6-5-8-6-5 sinnum = 44-44-46-48-52-54 lykkjur.
Þegar ermin mælist 52-52-51-50-48-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 54-54-53-53-52-52 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-2-2-3-4-5 cm efst á ermi.

FRÁGANGUR:
Frágangurinn er gerður með 2 þráðum í litnum ljós lavender.
Saumið axlasauma með lykkjuspori.
Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handveg – sá teikningu.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Notið hringprjón 5 og 2 þræði í litnum ljós lavender.
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp 72 til 88 lykkjur innan við 1 kantlykkju frá neðri kanti mitt aftan í hnakka (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4).
Fyrsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt eru lykkjur auknar út með uppslætti nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði þannig: * Byrjið frá réttu neðst í hægra framstykki og prjónið upp 72 til 88 lykkjur innan við 1 kantlykkju frá neðri kanti mitt aftan í hnakka (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4).
Fyrsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt er aukið út með því að slá uppá prjóninn nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri), endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Nú er stroffið prjónað þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 1 cm, fellið af fyrir 4-4-4-5-5-5 hnappagötum jafnt yfir. Efsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm fyrir neðan þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjaði og neðsta hnappagatið ca 4 cm frá neðri kanti.
1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur slétt saman. ATH: Fallegast er að fella af í brugðinni einingu (séð frá réttu).
Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Notið hringprjón 5 og 2 þræði í litnum ljós lavender.
Byrjið frá réttu mitt aftan í hnakka og prjónið upp 72 til 88 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli aftan í hnakka og síðan niður meðfram framstykki (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4).
Fyrsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, jafnframt eru lykkjur auknar út með uppslætti nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri), endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Prjónið nú stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Saumið saman 2 kanta að framan mitt aftan í hnakka innan við 1 kantlykkju garðaprjón.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.04.2021
ERMAR:Fitjið upp 28-28-28-32-32-32 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 2 þráðum ljós beige. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón nr 8.
Yfirfarið á vefsvæði: 29.09.2021
Leiðrétting á úrtöku á ermi í stærð L.

Mynstur

symbols = Saumið ermakúpu við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Janna wrote:

Hallihallo, Meine Jacke ist fast fertig gestellt und ich bin gerade dabei die Ärmel zu stricken . Meine Frage: gibt es eine Beschreibung, wie ich die Armkugel stricken muss? Ich finde leider nichts dazu und weiß nicht wirklich weiter. Vielen Dank! Liebe Grüße Janna

02.06.2023 - 13:13

DROPS Design answered:

Liebe Janna, in diesem Video zeigen wir, wie so eine Ärmel fertig gestrickt wird, und ab ca 02:50 wie man die Ärmal annähen wird - (vielleicht kann Ihnen dann auch dieses Video mit helfen. Viel Spaß beim stricken!

02.06.2023 - 14:57

country flag Charlotte wrote:

Bonjour, quelle quantité de laine il faudrait pour tout tricoter d'une seule couleur ? Merci!

20.11.2022 - 14:33

DROPS Design answered:

Bonjour Charlotte, nous n'avons malheureusement que la quantité de ce modèle avec les rayures, et n'avons plus le gilet pour le peser; ajoutez les différentes couleurs, il vous en faudra probablement un peu moins; votre magasin DROPS saura vous aider et vous conseiller - même par mail ou téléphone. Bon tricot!

21.11.2022 - 09:24

country flag Debby wrote:

In de beschrijving staat elke 6de naald 1 x mindere en elke 4e naald 8 x. Is het nu dat je maar 1 x de 6de minderd en 8 x de 4de minder of snap ik het verkeerd

14.01.2022 - 16:44

DROPS Design answered:

Dag Debby,

Je mindert 1 keer op de 6e naald, daarna minder je nog eens 8 keer, maar niet dan telkens op de 4e naald, dus na die eerste mindering tel je steeds 4 naalden en dan maak je weer een mindering.

16.01.2022 - 14:40

country flag Angelina wrote:

Ich verstehe nicht ganz wie man die Vorderteile weiter strickt sobald man mit dem rumpfteil fertig ist. Werden nochmal neue Maschen aufgenommen oder wie stricke ich dann weiter? Mir ist der Vorgang dieser Anleitung nicht ganz ersichtlich was dieses rumpfteil sein soll.

14.11.2021 - 12:29

DROPS Design answered:

Liebe Angelina, die Jacke wird von unten nach oben zuerst in einem Teil (re. Vorderteil + Rückenteil + li. Vorderteil) gestrickt, dann werden Maschen für die beiden Armlöcher abgekettet und jedes Teil wird separat bis zur Ende gestrickt. Beim beiden Vorderteil werden Sie Maschen für Halsausshnitt abnehmen und dann für Schulter abketten. Beim Rückenteil stricken Sie gerade bis Halsausschnitt und enden Sie jedes Schulter separat. Kann das Ihnen helfen?

15.11.2021 - 08:08

country flag Anne Vikkelsø Rasmussen wrote:

Rigtig smart.

09.11.2021 - 06:15

country flag Wlach wrote:

Was ist mit dem Rumpfteil gemeint? Ich verstehe nicht wo dies am Schluss an der Jacke angebracht wird

20.10.2021 - 21:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wlach, die Jacke wird von unten nach oben gestrickt, am Anfang stricken Sie re. Vorderdteil + Rückenteil + li. Vorderteil (= Rumpfteil) in einem Stück bis zum Armlöchern dann wird jedes Teil einzeln gestrickt. Kann das Ihnen helfen?

21.10.2021 - 07:11

country flag Kirsten Johansen wrote:

I ærmet str L står der at der skal være 48 masker efter indtagning. Man starter med 64 masker, skal tage ind 4 x 2 masker. Det giver 56?

01.09.2021 - 06:20

DROPS Design answered:

Hei Kristen. Ja, her er det noe feil. Oppskriften er videresendt til design avd slik at de kan kontrollere om det skal flere fellinger til eller maskeantallet skal forandres. mvh DROPS design

06.09.2021 - 13:33

country flag Peters wrote:

Guten Tag, mit welcher Nadelstärke soll man die Maschenprobe stricken? Und wodurch erkennt man die linke-, rechte Seite und Rückenteil, die man seperat stricken soll? An den abgeketteten Armausschnitten vielleicht? Danke im Voraus!

19.08.2021 - 11:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Peters, die Maschenprobe soll mit Nadeln Nr 8 glatt rechts gestrickt werden. Nach den Bündchen nehmen Sie regelmäßig verteilt ab und dann setzen Sie Markierungen (= 26-28-30-32-35-39 M für jedes Vorderteil und 51-55-59-63-69-76 M für das Rückenteil). Viel Spaß beim stricken!

19.08.2021 - 14:37

country flag Loreta wrote:

So ein komplizierte Anleitung hab noch nie erlebt..

16.08.2021 - 21:47

DROPS Design answered:

Liebe Loreta, gerne können Sie Ihre Frage hier stellen, so können wir Ihnen weiterhelfen, gerne wird Ihnen auch Ihr DROPS Laden weiterhelfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

17.08.2021 - 10:29

country flag Duhm wrote:

Hallo, ich verstehe beim Rumpfteil nicht wie man in jeder 6. Reihe und 4. Reihe abnimmt. Insgesamt 8 also eigentlich 6. Reihe doch nur 1 mal und 4. Reihe 7 mal oder? Und wie strickt man rechtes und linkes Vorderteil separat?

16.08.2021 - 08:09

DROPS Design answered:

Liebe Frau Duhm, die 1. Abnahme für V-Ausschnitt wird bei 29-36 cm gestrickt, dann stricken Sie 5 Reihen, und *bei der nächsten Hinreihe nehmen Sie noch mal für den V-Auschnitt, stricken Sie dann 3 Reihen* und von *-* insgesamt 7 Mal stricken = es sind jeweils 8 Maschen für den V-Ausschnitt abgenomen. Gleichzeitig, nach 34-40 cm stricken Sie jedes Teil separat fertig, dh die Maschen von linken Vorderteil und Rückenteil stilllegen und das rechte Vorderteil bis Schulter stricken, Faden abschneiden, linkes Vorderteil bis Schulter stricken und dann Rückenteil bis Schulter stricken. Viel Spaß beim stricken!

16.08.2021 - 08:35