DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3784.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Enchanted Time Dress

Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað frá hlið í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð 0 – 4 ára.

DROPS Baby & Children 38-3
DROPS Design: Mynstur cm-005-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-200-200-200 (250-250) g litur 05, púður bleikur
50-50-50-50 (50-50) g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 1 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3784.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

PICOTKANTUR (prjónaður fram og til baka):
UMFERÐ1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, þær eru prjónaðar þannig: 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, síðan eru 2 lykkjur prjónaðar í hverja og af 2 síðustu lykkjum = 2 nýjar lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3 (= rétta): Lyftið fyrstu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 1 lykkja slétt og lyftið öftustu lykkjunni á hægri prjóni yfir fremstu lykkjuna, fækkað hefur verið um 2 lykkjur – prjónið síðan sléttar lykkjur út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umferð 1 til 4.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. Stykkið er prjónað frá hlið með stuttum umferðum í garðaprjóni og gatamynstri.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 68-72-80-89 (97-105) lykkjur á hringprjón 4 með litnum púðurbleikur Cotton Merino.

STUTTAR UMFERÐIR:
Setjið 1 prjónamerki innan við 4 fyrstu lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu (= prjónamerki-1). Prjónið síðan PICOTKANTUR – sjá útskýringu að ofan, yfir þessar lykkjur JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig:
* Prjónið 46-50-56-62 (68-74) lykkjur (prjónaður er picotkantur fram að prjónamerki 1 – (picotkanturinn er frá 4 lykkjum til 6 lykkjur), setjið 1 nýtt prjónamerki (= prjónamerki-2), snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið yfir allar lykkjur, snúið stykkinu og prjónið til baka *, prjónið frá *-* (þ.e.a.s. 1 mynstureining = 4 umferðir garðaprjón yfir neðstu lykkjurnar og picotkanti og 2 umferðir garðaprjón yfir efstu lykkjurnar).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 5-5-5-6 (6-6) cm þar sem stykkið er minnst, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þegar prjónað er til baka yfir allar lykkjur þannig (stuttar umferðir halda áfram eins og áður):
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni = 62-66-74-83 (91-99) lykkjur.
Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður.

GATAMYNSTUR OG OP MITT AÐ AFTAN:
Þegar stykkið mælist alls ca 9-9-10-11 (12-12) cm þar sem stykkið er minnst (= mitt að aftan) – stillið af að næsta umferð sé frá réttu, prjónið yfir allar lykkjur þannig:
Prjónið picotkant fram að prjónamerki-1, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 12-12-12-13 (13-13) lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið stykkinu, fellið af fyrstu 10 lykkjurnar í byrjun á umferð og prjónið sléttar lykkjur út umferðina.
Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður, en í lok umferðar sem prjóna á yfir allar lykkjur, fitjið upp 10 nýjar lykkjur = 62-66-74-83 (91-99) lykkjur. Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist ca 1½ cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp fyrir opi, fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þar sem prjónað er yfir allar lykkjur (stuttar umferðir halda áfram eins og áður):
Fitjið upp 1 lykkju 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og síðan 3 lykkjur 1 sinni = 68-72-80-89 (97-105) lykkjur.
Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-9-10-11 (12-12) cm þar sem stykkið er minnst, setjið 1 prjónamerki eftir 18-18-20-23 (25-27) lykkjur frá röngu – þetta prjónamerki sýnir hvar hliðarsaumurinn endar. Fellið af – sjá AFFELLING. Stykkið mælist 18-18-20-22 (24-24) cm þar sem stykkið er minnst og 36-36-40-44 (48-48) cm þar sem stykkið er breiðast.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki, en ekki er lykkjum fækkað yfir opi í hálsi, þ.e.a.s. lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli eins og á bakstykki þegar stykkið mælist 5-5-5-6 (6-6) cm.
Þegar stykkið mælist 9-9-10-11 (12-12) cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu yfir allar lykkjur, prjónið þannig:
Prjónið picotkant fram að prjónamerki-1, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2-2-2-3 (3-3) lykkjur eru eftir í umferð, prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist alls 11½-11½-13½-14½ (16½-16½) cm þar sem stykkið er minnst, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli eins og á bakstykki, í lok hverrar umferðar frá réttu yfir allar lykkjur.
Haldið áfram með stuttar umferðir eins og áður.
Prjónið þar til stykkið mælist alls 18-18-20-22 (24-24) cm þar sem stykkið er minnst og 36-36-40-44 (48-48) cm þar sem það er breiðast. Setjið 1 prjónamerki eftir 18-18-20-23 (25-27) lykkjur frá röngu – þetta prjónamerki sýnir hvar hliðarsaumurinn endar. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma í ystu lykkjubogana.
Saumið hliðarsauma í lykkjubogana, saumið upp að prjónamerki.

KANTUR Í HANDVEGI:
Heklið kant í kringum handveg með litnum natur Cotton Merino með heklunál 3,5 þannig:
Byrjið mitt undir ermi, heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið fram ca 1 cm *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Passið uppá að heklaði kanturinn dragi ekki handveginn saman, heklið e.t.v. fleiri loftlykkjur á milli fastalykkja.
Heklið á sama hátt í kringum hinn handveginn.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið neðst í opi og heklið í kringum hálsmál og niður meðfram annarri hlið á opi. Heklið með litnum natur Cotton Merino með heklunál 3,5 þannig: Heklið 1 keðjulykkju neðst í opi, 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja í næstu lykkju / umferð, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fastalykkju, hoppið fram ca 1 cm *, heklið frá *-* og endið með 1 fastalykkju neðst í opi.

Saumið tölu efst í opi, tölunni er hneppt í gegnum heklaða kantinn

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Mariagrazia wrote:

Le istruzioni al punto Scollatura Dietro dopo lo spacco indicano di aumentare le maglie, ma poi spiegano di intrecciarle. Non so come procedere. Grazie

27.04.2024 - 18:54

country flag Mariagrazia wrote:

Le istruzioni al punto Scollatura Dietro dopo lo spacco indicano di aumentare le maglie, ma poi spiegano di intrecciarle. Il numero finale delle maglie è indicato come più alto ma le istruzioni per aumentarle non ci sono. Grazie

27.04.2024 - 18:52

country flag Thea Stormorken wrote:

Som Lena har nevnt over, virker det som mønsteret er feil mtp at økning av masker etter splittet på bakstykke kommer på 1,5cm. Jeg strikket dette først, men andre siden er det ca 4cm fra splittet til halsavrunning. Så dette ble helt feil

31.08.2022 - 22:07

country flag Stefania wrote:

Ho già lavorato tantissimi dei vostri schemi ai ferri, anche di tecnicamente più complessi di questo. Ma la spiegazione di questo vestito non è comprensibile, non si capisce l'esatta sequenza delle azioni da svolgere. Credo che la spiegazione corretta è *lavorare il bordo a picot, posizionare il segnapunti-1, lavorare x-x-x-x-x maglie, posizionare il segnapunti-2, girare il lavoro eccetera eccetera * . Datemi conferma se è corretto.

25.11.2021 - 19:27

DROPS Design answered:

Buonasera Stefania, il segnapunti va posizionato prima perchè il bordo a picot si lavora durante la lavorazione a ferri accorciati. Buon lavoro!

28.11.2021 - 19:38

country flag Nieves Espallargas-Sanz wrote:

Hola, me pierdo un poco al hacer las lavores, vivo wn Alemania. Hay posibilidad de tener los patrones en papel?

04.11.2021 - 22:04

DROPS Design answered:

Hola Nieves, ya no se publican las revistas pero puedes imprimir los patrones, pulsando el botón de imprimir bajo la foto. También puedes ver los patrones en otros idiomas, incluyendo alemán, si te sientes más cómoda en otro idioma; puedes seleccionar el idioma bajo la foto.

07.11.2021 - 13:55

country flag Marcela wrote:

Hello, I am working on the Enchanted time pattern. I have knit the dress and am wondering how to do the crochet around the neck. The pattern reads …” 3 chain stitches, 1 treble crochet in double crochet”. I am really confused as what to do after I do the 3 chain stitches. Am I going into one of those chain stitches for the next stitch. Also, I don’t understand what 1 treble crochet in double crochet means. Thank you for your help.

23.09.2021 - 21:34

DROPS Design answered:

Dear Marcela, this video shows how to crochet such a crocheted edge, but for this edge you will insert the crochet hook in the double crochet (UK-English)/single crochet (US-English) to make the treble crochet (UK-English)/double crochet (US-English) . Happy crocheting!

24.09.2021 - 07:39

country flag Lena Falck wrote:

Hej. På bakstycket börjar man maska av för halsen efter 5cm. Sedan stickar man till 9cm,maskar av 10m, läger sedan upp 10 ny m. Men ska börja maska av för halsen efter 1 1/2 cm efter man lagt upp dom nya 10 m. Är det rätt? Då blir dom ju inte lika eller? Tacksam för hjälp. Mvh Lena Falck

19.09.2021 - 13:17

DROPS Design answered:

Hej Lena. Jo jag tror det ska bli riktigt. Du börjar då att lägga upp nya maskor till halsringningen ca 1,5 cm efter sprundet i mitten. Sedan fortsätter du att lägga upp maskor på varven efter så att när när du lagt upp färdigt så kommer det vara ca 5 cm kvar att sticka på axeln som på den andra sidan. Hoppas du förstår vad jag menar. Mvh DROPS Design

23.09.2021 - 09:56