DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 214-62
DROPS Design: Mynstur z-888
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M– M/L
Öll lengd á vettlingi: ca 24 - 25 cm
Lengd á vettlingi án kants: ca 18 - 19 cm
Lengd frá opi fyrir þumal að fingurtoppi: ca 11½ - 12 cm
Lengd á þumli: ca 6 - 7 cm

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-25 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni með 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vettlingarnir eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 45-50 lykkjur á sokkaprjón 3 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið mynsturteikningu A.1 hringinn.
Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka, mælist stykkið ca 8 cm, en brugðna einingin í byrjun kemur til með að rúllast inn og kanturinn kemur til með að mælast ca 6 cm við notkun.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón og fækkið um 5-6 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 40-44 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið eitt prjónamerki í 2.-3. lykkju í umferð (látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar mynsturteikningin er prjónuð) og setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkjuna í umferð (= merki fyrir þumal).

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir þumal hvoru megin við lykkju með merki fyrir þumal eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2. Haldið svona áfram með útaukningu þar til aukið hefur verið út alls 6-7 sinnum = 13-15 lykkjur fyrir þumal – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4 cm, á að prjóna eftir mynsturteikningu A.3 ofan á hönd. Byrjið á að prjóna mynsturteikningu A.3 í lykkjuna með prjónamerki og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru (lykkjur eru auknar út í mynsturteikningu þar sem kaðlarnir koma til með að draga stykkið saman, þessar lykkjur fækka aftur í lok mynsturteikningar).

Þegar stykkið mælist 6-7 cm frá merki fyrir þumal, setjið 13-15 þumallykkjur á þráð og fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn.
Prjónið áfram í sléttprjóni og mynsturteikningu A.3 eins og áður. Þegar mynsturteikning A.3 hefur verið prjónuð til loka, prjónið áfram í sléttprjóni og það eru 40-44 lykkjur í umferð. Þegar vettlingurinn mælist ca 14-15 cm (mælt frá eftir kanti, eru eftir ca 4 cm að loka máli – mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig að mynstur A.3 er staðsett mitt á milli 2 prjónamerkja með 20-22 lykkjur á milli prjónamerkja.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-7 sinnum = 4-4 lykkjur eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þræðina í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið að og festið þræðina vel að innanverðu á vettlingi.
Vettlingurinn mælist ca 18-19 cm (ca 24-25 cm með kanti).

ÞUMALL:
Setjið til baka 13-15 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 3 og prjónið upp 2 lykkjur aftan við þumal = 15-17 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist ca 5½-6½ cm frá holu við þumal (mátið e.t.v. vettlinginn, það eru ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 sléttar umferðir þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 4-5 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þræðina í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, en prjónamerki á undan mynsturteikningu A.3 og prjónamerki fyrir opi fyrir þumal eru sett í stykkið þannig:
Setið eitt prjónamerki í 22.-25. lykkju í umferð (látið það fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar prjóna á mynsturteikningu) og setjið prjónamerki fyrir op fyrir þumal í síðustu lykkju í umferð (= merki fyrir þumal).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.12.2020
Leiðrétting á staðsetningu á prjónamerki og merkiþræði

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – það eiga ekki að myndast göt
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið á stykki, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 1 lykkju brugðið frá kaðlaprjóni
symbols =
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur brugðið og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Let it Knit

knittinghege, Norway

Let it Knit

Stefanie Beiert, Germany

Let it Knit

Marit, Norway

Let it Knit

Marina, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-62

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Sylvie wrote:

Est-ce que je peux utiliser la méthode magic loop pour faire ces mouffles?

14.01.2022 - 22:30

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, tout à fait, vous pouvez utiliser la technique du magic loop dès lors qu'il n'y a pas assez de mailles pour tricoter sur une aiguille circulaire et/ou que vous ne voulez pas tricoter en rond sur les aiguilles doubles pointes. Bon tricot!

19.01.2022 - 10:23

country flag Céline wrote:

Il a erreur dans le diagramme A3 , les explications de pictogramme à faire .selon les notes de la légende nous devons utiliser 4 mailles et sur la grille nous utilisons seulement 3 mailles . À corriger .

06.04.2021 - 01:31

DROPS Design answered:

Bonjour Céline, pouvez-vous nous indiquer de quel symbole vous parlez? Sauf erreur de ma part, je compte bien le bon nombre de mailles pour chacun d'eux. Merci!

07.04.2021 - 08:13

country flag Rukhsana wrote:

Got it 🤗tusan takk nd v sory for causing too much trouble💐

07.01.2021 - 13:04

country flag Rukhsana wrote:

Can you kindly write the exect number of stitches for both mittens to mark thread for A3. On correction site there is just wrote to replace of markerbt not number,i actually want to know the exects stitches number.plz

06.01.2021 - 22:15

DROPS Design answered:

Dear Rukhsana, the online pattern has already been edited with correct placement of markers under both left mittens (= Insert a marker thread in the 2nd-3rd stitch on the round (allow it to follow your work onwards; it will be used when working the diagram) and insert a marker in the first stitch on the round (= thumb-marker). and right mitten (= Insert a marker thread in the 22nd-25th stitch on the round (allow it to follow your work onwards; it will be used when working the diagram) and insert a marker in the last stitch on the round (= thumb-marker).. Happy knitting!

07.01.2021 - 10:11

country flag Rukhsana wrote:

Then what is the correction?i print the pattren 2 time ‘d both are same .A.3 requir 18 stitches .bt with 2nd stitch i can not make dis☹️Am i doing somethng wrong. (Thumb stitches are not involved in A.3)how can i make then

06.01.2021 - 13:11

DROPS Design answered:

Dear Rukhsana, there was a correction on 23/12/2020 - and marker thread should be inserted as explained in the pattern for left/right mittens to work A.3. Happy knitting!

06.01.2021 - 13:32

country flag Rukhsana wrote:

Hei, im little confuse for A.3 diagram ,if this is 22nd stitch is start stitch for A.3 on left mitten then which number of stitch is start for A.3 on tight mitten ?plz help me🙏

05.01.2021 - 21:30

DROPS Design answered:

Dear Rukhsana, on the left mitten, you start A.3 with the stitch with the marker thread = the 2nd stitch on the round (before increasing for thumb) - on right mitten, the marking thread will be added in the 22nd stitch on the round. Happy knitting!

06.01.2021 - 07:29

country flag Rukhsana wrote:

Where can i find the correct (correction)pattren update

04.01.2021 - 15:15

DROPS Design answered:

Dear Rukhsana, if you printed the pattern before the correction, click on the red link at the end of writte pattern, if you printed the pattern after the correction, the online pattern is then already updated. Happy knitting

05.01.2021 - 10:50

country flag Rukhsana wrote:

Hei , can you define the number of stitch for starting the design on left mitten coz im stuckk on design plz.

04.01.2021 - 15:09

DROPS Design answered:

Dear Rukhsana, you should work the increase for thumb as shown in A.2 = the middle stitch in A.2 is the stitch with the marker (= in the first stitch on the round). Then work A.3 starting with the stitch with the marker thread. Happy knitting!

05.01.2021 - 10:46

country flag Elena wrote:

Me encanta. La talla ha quedado perfecta con agujas del 3. El patrón ha sido fácil de seguir y me han quedado preciosos. Haré más para regalar. Gracias por este precioso patrón!

21.12.2020 - 21:12

country flag Nina wrote:

Jeg får heller ikke mønsteret til å stemme. Det ser ut på bildene som det er plassert midt på oversiden, mens det iflg diagrammet blir skjevt.

18.12.2020 - 22:34

DROPS Design answered:

Hei Nina. Oppskriften er oversendt til design avd, slik at de kan ta en dobbeltsjekk evnt komme med en rettelse. mvh DROPS design

21.12.2020 - 11:56