DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 219-9
DROPS Design: Mynstur x-447
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
800-850-950-1050-1150-1250 g litur 02, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Sláið 1 sinni uppá prjóninn í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúin svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin.
Bakstykkið er prjónað í sléttprjóni og framstykkið með köðlum og sléttprjóni.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka. Kraginn er prjónaður í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-96-104-112-124 lykkjur á hringprjón 5 með Alaska.
Prjónið stroff fram og til baka – fyrsta umferð er frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 82-88-94-102-110-122 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 4 lykkjur 0-1-1-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 1-0-0-0-0-0 sinnum, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 0-1-2-3-3-5 sinnum = 76-78-82-84-88-92 lykkjur.

Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið af 30-30-32-32-34-34 miðju lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 22-23-24-25-26-28 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm – fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 82-90-98-106-114-122 lykkjur á hringprjón 5 með Alaska. Prjónið stroff fram og til baka – fyrsta umferð er frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 16-20-24-28-32-36 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 (= 6 lykkjur), A.1, A.3 (= 8 lykkjur), A.4 (= 6 lykkjur), A.5 (= 6 lykkjur), A.4, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 16-20-24-28-32-36 lykkjur, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff (endurtakið fyrstu 4 umferðir í A.1 til A.5) þar til stykkið mælist 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir fyrstu 16-20-24-28-32-36 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 0-1-2-2-2-0 lykkjur jafnt yfir, 2 lykkjur brugðið, A.1x, A.2x. A.1x, A.3x, A.4x, A.5x, A.4x, 2 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir næstu 16-20-24-28-32-36 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 0-1-2-2-2-0 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Nú eru 96-102-108-116-124-136 lykkjur í umferð. Þegar A.1x til A.5x hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 16-19-22-26-30-36 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur brugðið, A.6, A.6, A.6, A.7, A.8, A.8, A.8, 2 lykkjur brugðið, 16-19-22-26-30-36 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki = 90-92-96-98-102-106 lykkjur.

Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 30-31-33-34-36-38 lykkjur eins og áður, prjónið næstu 30 lykkjur – jafnframt er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal (= fækkið um 2 lykkjur yfir kaðal í A.6, 4 lykkjur yfir kaðla í A.7 og 2 lykkjur yfir kaðal í A.8, alls 8 lykkjur færri), setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (= 22 lykkjur á þræði), prjónið þær 30-31-33-34-36-38 lykkjur sem eftir eru eins og áður.
Prjónið nú hvora öxl fyrir sig.
Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-3-2-2 sinnum – ATH! Þegar prjónað er yfir kaðla í A.6/A.8 er jafnframt fækkað um 2 lykkjur yfir hvern kaðal = 24-25-26-27-28-30 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm – fækkið um 2 lykkjur yfir hvern kaðal í síðustu einingu af A.6/A.8 = 22-23-24-25-26-28 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 42-46-46-50-50-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með Alaska. Prjónið stroff fram og til baka þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff þar til stykkið mælist 7 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fækkið um 0-2-0-4-2-0 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-8-10 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 12-12-13-15-15-16 sinnum = 66-68-72-76-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-50-49-48-47-46 cm, fellið af 4 lykkjur í hvorri hlið. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2-2-3-3-4-4 sinnum, 1 lykkja 0-1-0-1-0-1 sinni. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm í öllum stærðum, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 57 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju garðaprjón.

KRAGI:
Kraginn er prjónaður í hring. Notið hringprjón 5 og byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Prjónið upp 72 til 84 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan og deilanlegt með 4). Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið niður efst í kraga innan á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kraginn verði stífur og sveigist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.02.2021
Leiðrétting-1: Mynsturteikning A.6, A.7 og A.8 hefur verið uppfærð.
Leiðrétting-2: ERMI: Fitjið upp 42-46-46-50-50-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með Alaska.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju, prjónið 2 lykkjur í lykkjuna af kaðlaprjóni = 4 lykkjur
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í lykkjuna af kaðlaprjóni = 4 lykkjur
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni = 4 lykkjur
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju, prjónið 2 lykkjur í lykkjuna af kaðlaprjóni = 4 lykkjur
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Monique Van Veen wrote:

Het is mij niet duidelijk hoe ik het telpatroon moet aflezen. Waar staat de 'x' voor. Ik vind de beschrijving niet duidelijk. Snap er helemaal niets van. Kunt u mij op weg helpen?

18.12.2023 - 20:06

DROPS Design answered:

Dag Monique,

Onderaan het patroon staat een link daar veel gestelde vragen. Als je hierop klikt krijg je een lijst waarin een link staat naar Hoe je een telpatroon leest. Hopelijk helpt dat je verder.

20.12.2023 - 19:20

country flag Tiff wrote:

Hi! When casting off stitches for armholes, should i continue making the garter stitches for the edges? If so, should I continue doing it after the armholes as well?

07.11.2023 - 18:44

DROPS Design answered:

Dear Tiff, stop with the edge stitches in garter stitch when casting off the stitches for armholes. This means the first and last stitch will then be worked in stocking stitch. Happy knitting!

08.11.2023 - 07:58

country flag Birte Stisen wrote:

Strikker XL Efter ribben skal der tages der 4 masker ind på første pind. Så går jeg fra 106 m til 102, men der står at man skal have 116. Jeg forstår det ikke. Det er DROPS 219-9

01.11.2023 - 12:12

DROPS Design answered:

Hei Birte. Jo, du har 106 masker og når vrangborden måler 5 cm skal du strikke 1 kantmaske i rille, deretter felle 2 masker jevnt fordelt over de neste 28 maskene. Og nå skal du strikke A.1x, A.2x. A.1x, A.3x, A.4x, A.5x, A.4x (og når du strikker disse diagrammene øker du masker), så stikker du 2 vrang og så glattstrikk over de neste 28 maskene samtidig som det felles 2 masker + 1 kantmaske i rille. Kort skrevet: 1 kantmaske + 26 (felt 2) + 2 vrang + 8+8+8+10+8+8+8+2 vrang + 26 (felt 2 m) + 1 kantmaske = 116 masker. mvh DROPS Design

06.11.2023 - 10:38

country flag Claudia wrote:

Beim Stricken des Vorderteils soll ich 82 Maschen anschlagen. Nach 5 cm soll bei Größe s keine Masche abgenommen werden. Danach sollen 96 Maschen auf der Nadel sein. Es steht aber nichts von zunehmen. Was soll gemacht werden?

13.08.2023 - 22:26

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, wenn man die 5. Reihe von den Diagramme strickt, wird man jeweils Maschen zunehmen - siehe 3. + 4. + 5. + 6. Symbol. Viel Spaß beim stricken!

14.08.2023 - 10:40

country flag Dorothee wrote:

Bonjour j ai essayer de faire la manche a deux reprises elle est trop petite et pas assez grande malgré que j ai respecter tout ce qui as été ecrite rabattre 2 mailles de chaque côté 2 mailles jusqu a ce que l ouvrage mesure 56 cm est ce a tout les rangs que je dois rabattre. Même chose pour rabattre 3 mailles de chaque côté. J ai vraiment besoin des informations svo merci

24.07.2023 - 06:58

DROPS Design answered:

Bonjour Dorothée, pour que le haut de la manche ait la bonne longueur, vous devez rabattre 2 mailles de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 56 cm , cela signifie que vous allez rabattre 2 mailles en début de rang sur l'endroit et 2 mailles en début de rang sur l'envers jusqu'à la hauteur requise (vous devez avoir rabattu le même nombre de mailles de chaque côté). Rabattez ensuite 3 mailles au début des 2 rangs suivants (= de chaque côté = 3 m en début de rang sur l'endroit + 3 m en début de rang sur l'envers) et rabattez les mailles restantes. Bon tricot!

27.07.2023 - 12:08

country flag Marjolaine wrote:

Est-ce possible de tricoter les manches en ronds? Si oui quel modification dois je faire??

16.03.2023 - 23:27

DROPS Design answered:

Bonjour Marjolaine, montez simplement 2 mailles en moins (en rond, pas besoin des mailles lisières), et quand la manche mesure 51-50-49-48-47-46 cm, rabattez 2 mailles au milieu sous la manche (1 m de chaque côté de votre marqueur début des tours), et continuez en allers et retours comme indiqué dans les explications. Bon tricot!

17.03.2023 - 08:46

country flag Davesne Martine wrote:

Dans l’explication du devant on monte ( pour la taille M) 90 mailles après les schémas en côtes 2x2 il faut DIMINUER 1 maille au début et 1 maille à la fin du rang ….. on obtient 102 mailles !!!? Y a t’il quelque chose qui m’échappe mais on ne peut obtenir 12 mailles de plus en diminuant 2 mailles ! Que dois je faire ?

22.01.2023 - 15:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Davesne, on va diminuer dans les côtes de chaque côté mais aussi augmenter 2 m dans chacun des diagrammes A.1 à A.5 x (cf *3ème, 4ème et 5ème symbole de la légende des diagrammes) - autrement dit vous aviez 90 m, diminuez 2 m et augmentez 2 m x 7 (=A.1x, A.2x. A.1x, A.3x, A.4x, A.5x, A.4x,) = 102 mailles. Bon tricot!

23.01.2023 - 09:53

country flag Jette Rosenmeyer wrote:

Hej Drop. Jeg forstår ikke forstykkes opskrft. Skal der ikke strikkes rib først og så mønster? Sådan ser det ud på billedet. Men opskriften lyder på at mønster startes fra først pind på forstykke. Jeg forstår heller ikke om mønster skal gentages. Det ser i opskriften ud som om, det kun er een gang. Men det kan jo ikke passe. Kan I gøre det lidt klarere? Og det ville være mere overskueligt, hvis der var afsnit med hvert af de steps. Ville jeg sætte stor pris på. Mange tak. Jette.

03.12.2022 - 12:17

country flag Samios Zelina wrote:

Je vous remercie

02.12.2022 - 08:09

country flag Samios Zelina wrote:

Bonjour, si je comprends bien on glisse les mailles pour l'encolure devant sur un arrêt de mailles mais on rabat les mailles de l'encolure de dos. Il paraît bizarre.

01.12.2022 - 18:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Samios, tout à fait, on procède très souvent ainsi, l'encolure devant reste ainsi plus souple. Bon tricot!

02.12.2022 - 07:54