Summer Peach Jacket |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með klukkuprjóns lykkjum á berustykki og ¾ löngum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-25 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá röngu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur brugðið (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð. Í næstu umferð (rétta) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-8½-9-8-8½-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 43-45-47-53-55-57 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 8 með 2 þráðum Air + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Takið frá annan þráðinn með Air og prjónið afgang af stykki með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar kantur í hálsi mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 klukkuprjóns lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 59-62-65-74-77-80 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir klukkuprjóns lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, innan við 5 kantlykkjur að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 16-17-18-21-22-23 mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 klukkuprjóns lykkju, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 klukkuprjóns lykkju (A.2) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 75-79-83-95-99-103 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir klukkuprjóns lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Haldið áfram með mynstur eins og áður, en með A.4 yfir A.3. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-8 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4 yfir 4 fyrstu lykkjurnar, prjónið A.5 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15-16-17-20-21-22 mynstureiningar með 4 lykkjum), haldið áfram með A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 135-143-151-175-183-191 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 31-33-35-41-43-45 mynstureiningar með 4 lykkjum), haldið áfram með A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 14-15-17-19-20-22 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, haldið áfram með A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist ca 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við háls, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 23-25-26-29-31-33 lykkjur í garðaprjóni og mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 27-27-29-35-35-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-6-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 35-39-41-47-51-53 lykkjur í mynstri eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 27-27-29-35-35-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-6-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 23-25-26-29-31-33 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 93-101-109-117-125-135 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 26-28-30-32-34-37 lykkjur inn frá hvorri hlið. Nú eru 41-45-49-53-57-61 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu = 101-109-117-125-133-143 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 27-27-29-35-35-36 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkjur í hverja af 6-6-8-6-6-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 33-33-37-41-41-44 lykkjur. Byrjið umferð mitt undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist ca 28-26-25-22-21-19 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir affelling! Ermin mælist ca 31-29-28-25-24-22 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
LILLIAN MARIT GJERDENE wrote:
Har holdt meg helt til oppskriften for str L men får ca et halvt nøste for lite. Noen pleier å sentrifugere på full styrke etter håndvask. Synspunkt?
23.05.2022 - 18:08Inger wrote:
Hej igen Nu såg jag hur maskan ska stickas ☺️
14.11.2021 - 21:29Inger wrote:
Hej! I mönster A.5 börjar det med en ⚫️ Som det inte finns någon förklaring för. Hur ska denna maska stickas?
14.11.2021 - 21:26DROPS Design answered:
Hej Inger. Så fint att det löste sig. Mvh DROPS Design
15.11.2021 - 09:38Tina wrote:
Really great pattern and splendid result!!! I have made it twice in Natural and Wheat, both with natural Brushed alp. silk. It is really soft and light to wear, perfect for a chilly summer morning walking the dog. Thanks!
10.08.2021 - 20:20Linda wrote:
Buonasera, mi scuso per non aver inserito la taglia nel precedente commento 🙈 Vorrei lavorare una taglia S, grazie per aver risposto
30.04.2021 - 20:34DROPS Design answered:
Buonasera Linda, per la taglia S le serviranno circa 400g di DROPS Wish. Provi e leggere qui le informazioni per la sostituzione del filato. Buon lavoro!
30.04.2021 - 20:56Linda wrote:
Posso sostituire il filato usato con 300 gr di Drops Wish (gruppo filati E) per questo modello?
29.04.2021 - 12:54DROPS Design answered:
Buonasera Linda, che taglia vuole lavorare? Buon lavoro!
30.04.2021 - 20:32Marilena Merz wrote:
Tolle Jacke👍Modell zum verlieben, danke für die tolle Anleitung. Grüsse aus der Schweiz 🇨🇭 Marilena Merz
26.04.2021 - 13:16Laila wrote:
Hvis jeg ønsker at strikke den model i 10 Tåge mix, hvilken ekstra farve bør jeg vælge i det andet type garn? Tak
30.01.2021 - 01:00DROPS Design answered:
Hei Laila. Fargevalg er ganske personlig, så det er best å sjekke ut fargene selv. Men kanskje du vil like lys lavende farge nr. 17 i DROPS Brushed Alpaca Silk? mvh DROPS design
01.02.2021 - 14:32Dody wrote:
Hello , i try to make this pattern but i could not understand the ( include 5 band stitches on each side ) to start the neck i choose to cast on 45 stitches. is the total will be 55 stitches ???? thank you
24.11.2020 - 19:47DROPS Design answered:
Dear Dody, the front band sts are included in the total number of stitches to cast on, this means, in size M you cast on 45 sts = 35 sts + 5 front band sts on each side. Happy knitting!
25.11.2020 - 07:28Jax wrote:
Hi I would like to knit the Cardigan in drops air yellow can you suggest a good colour to go with from the brushed alpaca silk yarn?
01.10.2020 - 19:56DROPS Design answered:
Dear Jax, if you want to knit the jacket from eh no 22 yellow color of Air, I would suggest to try to pair it with the np 19 curry színű Brushed Alpaca Silk yarn. I hope this helps. Happy Knitting!
02.10.2020 - 01:41