Sea Air |
||||
|
|
|||
Prjónuð poncho peysa með laskalínu úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni í tveimur litum. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-13 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓN MEÐ 2 LITUM (prjónað í hring): UMFERÐ 1: Prjónið með litnum hveiti. Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið með litnum þoka. Prjónið * uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* (takið eftir að síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum hveiti er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að hann myndi uppslátt) – sjá LEIÐBEININGAR. UMFERÐ 3: Prjónið með litnum hveiti. Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* (takið eftir að síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum hveiti er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að hann myndi uppslátt) – sjá LEIÐBEININGAR. UMFERÐ 3: Prjónið með litnum hveiti. Prjónið * sláið uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* (takið eftir að síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum þoka er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að hann myndi uppslátt). Endurtakið umferð 2 og 3. LEIÐBEININGAR: Ef þú ert ekki viss um hvaða litur er prjónaður í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða litur var prjónaður í fyrri umferð með því að sjá hvaða lit uppslátturinn hefur. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 17. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 17. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Öll útaukning er gerð í 1 umferð með litnum hveiti. Aukið út um 4 lykkjur þannig: Prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum sem prjónaður var af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur en það er enginn klukkuprjóns uppsláttur í útaukningu, þannig að lykkjan sem á að prjónast saman með uppslættinum, er prjónuð án uppsláttar. ÚRTAKA (á við um ermi): Öll úrtaka er gerð í 1 umferð með hveiti. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til eftir eru 3 lykkjur á undan prjónamerki (án uppslátta, uppslættir á milli lykkja eru einnig steyptir yfir), takið næstu 3 lykkjur laust yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi þær slétt saman: lyftið 1 lykkju slétt + 1 lykkja brugðið + 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki) = 3 lykkjur án uppsláttar. Prjónið síðan þannig: 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur) slétt saman, steypið síðan 3 lausu lykkjunum yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar slétt saman (= 4 lykkjur færri – fyrir utan uppslætti). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað, þar sem aukið er út fyrir ermum og fram- og bakstykki. Síðan skiptist stykkið, fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Umferðin byrjar í skiptingunni á milli 1 ermi og bakstykki. Fitjið upp 68-72-76-80-84-88 lykkjur á hringprjón 6 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4-0-4-0-4-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN MEÐ 2 LITUM (í hring) – sjá útskýringu að ofan. Setjið 6 prjónamerki í stykkið hér (öll prjónamerkin eru sett í 1 lykkju slétt með litnum hveiti): Bakstykki: Prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur, prjónið 1 lykkju og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju (= miðja að aftan), prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur. Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 7 lykkjur, prjónið 1 lykkju og setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju. Framstykki: Prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur, prjónið 1 lykkju og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju (= miðja að framan), prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur. Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju og setjið 5. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 7 lykkjur, prjónið 1 lykkju og setjið 6. prjónamerki í þessa lykkju. Prjónið 1 umferð með litnum þoka (= 2. umferð í klukkuprjóni). Í næstu umferð (= 3. umferð í klukkuprjóni) aukið út um 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki (= slétt lykkja með litnum hveiti) – sjá ÚTAUKNING-2 að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið útaukningu í 6. hverri umferð með litnum hveiti (þ.e.a.s. alls 12. hverri umferð) til loka. Þegar stykkið mælist 31-33-34-36-38-40 cm frá uppfitjunarkanti (þar sem aukið hefur verið út ca 8-9-9-10-10-11 sinnum) eru ca 91-99-103-111-115-123 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki (þ.e.a.s. lykkjur á milli 3. og 5. prjónamerki = framstykki og lykkjur á milli 6. og 12. prjónamerki = bakstykki) og ca 41-45-45-49-49-53 lykkjur á hvorri ermi (meðtaldar lykkjur með prjónamerki) = alls 264-288-296-320-328-352 lykkjur. Klippið frá og færið umferðina að lykkju með 2. prjónamerki (lykkja með 2. prjónamerki = fyrsta lykkjan í næstu umferð). Nú skiptist stykkið til fram- og bakstykki og ermar þannig: Hægri ermi: Setjið lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerkis, meðtaldar lykkjur með prjónamerki á þráð fyrir ermi (= ca 41-45-45-49-49-53 lykkjur) og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi. Framstykki: Prjónið klukkuprjón eins og áður fram að lykkju með 5. prjónamerki (= ca 91-99-103-111-115-123 lykkjur). Vinstri ermi: Setjið lykkjur á milli 5. og 6. prjónamerkis, meðtaldar lykkjur með prjónamerki á þræði fyrir ermi (= ca 41-45-45-49-49-53 lykkjur) og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi. Bakstykki: Prjónið klukkuprjón eins og áður út umferðina (= ca 91-99-103-111-115-123 lykkjur). FRAM- OG BAKSTYKKI: = ca 196-212-220-236-244-260 lykkjur. Haldið áfram í hring í klukkuprjón og aukið út um 4 lykkjur í lykkju með 1. og 4. prjónamerki (= miðja að framan/aftan) í 6. hverri umferð með litnum hveiti eins og áður (þ.e.a.s. alls 12. hverri umferð). Þ.e.a.s. aukið út alls 8 lykkjur í 6. hverri umferð með litnum hveiti. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum = ca 244-260-268-284-292-308 lykkjur (eftir 6 útaukningar á fram- og bakstykki). Passið uppá að næsta umferð sé 1 umferð með litnum hveiti. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja með sléttum lykkjum, þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur. ERMI: Setjið til baka lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 7 (= ca 41-45-45-49-49-53 lykkjur) og takið upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = ca 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í sléttu lykkjuna mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 4 lykkjur í lykkju með prjónamerki (= slétt lykkja) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-4½-3-3½-2½ cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni þar til ermin mælist 25-24-23-21-19-18 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, stillið af að næsta umferð sé prjónuð með litnum hveiti. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt með litnum hveiti, uppslátturinn er prjónaður slétt saman með brugðnu lykkjunni. Fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Lily wrote:
This looks beautiful on my list!
04.11.2022 - 23:49Grethe Rød wrote:
Er maskene fordelt på både forstykket og rygg .Finner ikke noe om bakstykke. Mvh Grethe Rød
23.09.2021 - 11:30DROPS Design answered:
Hej Grethe. Ja det stämmer, maskene är fordelt på både forstykket og rygg, så du stickar allt på en gång. Mvh DROPS Design
23.09.2021 - 13:51Kate wrote:
I would like to make this pattern as a poncho with no sleeves. Do you have any suggestions as to the length of circular needles required towards the bottom and how to continue at the point of separation for sleeves etc.? Do I continue with the same increase every 6 rows or would this change? I'm not sure how wide this would be towards the bottom with so many increases.
12.03.2021 - 15:27DROPS Design answered:
Dear Kate, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, you might have to try working to the division for sleeves then try on the poncho and decide how to continue depending on the desired shape. Your DROPS store should be able to assist you if required - even per mail or telephone. Thanks for your comprehension. Happy knitting!
12.03.2021 - 15:39Hannelis Olsen wrote:
Starter jeg med en vrang pind eller en ret pind der står farven er tåge
10.01.2021 - 16:40DROPS Design answered:
Hej Hennelis, Pinden med hvede strikkes fra retsiden, med mindre du vil have den anden side ud - se også gerne videoen som er lavet til denne opskrift :)
11.01.2021 - 12:55DonnaKlara wrote:
HalliHallo Kann mir mal jemand erklärende erklären was das "4-0-4-0-4-0" bedeutet? Sind es Zunahmen für das Vorderteil? LG DonnaKlara
17.12.2020 - 18:33DROPS Design answered:
Liebe DonnaKlara, die Anleitung ist in 6 Größe geschrieben, und so werden diese Zahl gelesen: bei der 1. 3. und 5. Größe sollen Sie 4 Maschen gleichmäßig zunehmen - bei der 2., 4. und 6. Größe wird es nicht zugenommen. Viel Spaß beim stricken!
18.12.2020 - 07:04Torgunn wrote:
Hei! Jeg skjønner ikke hvordan jeg skal gjøre den første økningen, altså i omgang nr. 2. Jeg har lagt opp 80 masker, hvor mange økninger og hvor mange masker skal Det bli på pinnen etter økningen?
26.01.2020 - 15:41DROPS Design answered:
Hei Torgunn. Les ØKETIPS-1 (jevn fordeling) i oppskriften. Du har 80 masker og skal øke jevnt fordelt 0 ganger i str XL. dette er 1. økningen i oppskriften i str XL. Om du mener 1. økningen i patentstrikk, altså 3.omgang i patentmønsteret– les ØKETIPS-2, evnt se Hjelpevideo under oppskriften: Hvordan øke i helpatent ved å strikke flere masker i samme maske. God Fornøyelse!
10.02.2020 - 13:31Anja Holmes wrote:
Hejsa. Er det mon muligt at bruge Drops Brushed Alpaca Silk til denne opskrift?
03.01.2020 - 20:55DROPS Design answered:
Hej Ja du kan använda Drops Brushed Alpaca till detta mönster. Använd gärna vår omregner för att beräkna garnåtgången. Tänk också på att få rätt stickfasthet. Lycka till!
31.01.2020 - 11:09Genevieve Renancio wrote:
Bonjour,j'ai un petit problème pour installer les marqueurs,es ce que je dois compter les jetés comme des mailles à tricoter dans le premier rang de côte? Parce que la j'y arrive pas
07.11.2019 - 12:01DROPS Design answered:
Bonjour Mme Renancio, les marqueurs doivent être placés sur une maille, pas entre les mailles, et les jetés ne comptent pas comme une maille; vous pouvez placer vos marqueurs avant de tricoter le tour, ce peut être plus simple, indiquez-nous la taille tricotée, nous pourrons vous donner le détail si besoin. Bon tricot!
07.11.2019 - 12:08Birgit Hagedorn wrote:
Når jeg følger jeres video om udtagning, får jeg på omgangen efter udtagning for mange masker på pinden. Iflg video strikkes der slå om, løs af, en vrang, slå om løs af, en vrang, slå om løs af. Det giver tre ekstra masker seks gange, altså atten masker for meget?
21.09.2018 - 09:26DROPS Design answered:
Hej Birgit, du har 2 nye masker på hver side af midterste maske. De 2 nye masker danner en ny patentmaske på hver side af den du udgik fra. God fornøjelse!
24.09.2018 - 10:19Bodil wrote:
Jättebra videounstruktion om ökning! Finns det en med minskningsstickning också?
17.09.2018 - 21:33