DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Empress

Prjónuð síð hringpeysa úr 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í hring með áferð. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-17
DROPS Design: Mynstur ai-134
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-450-500-550-600-700 g litur 03, perlugrár
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
225-250-275-300-325-350 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm, 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 40 cm fyrir stoff á ermum.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá hlið með brugðnum lykkjum.
Fækkið um lykkju með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá miðju á baki og út. Skiptið yfir á hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni. Prjónið síðan fram og til baka með stuttum umferðum fyrir framstykki og niður yfir bak. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður í sléttprjóni með rönguna út. Vegna þyngdar á garninu þá kemur flíkin til með að teygjast við notkun.

HRINGUR:
Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræð Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Skiptið lykkjunum yfir á 4 sokkaprjóna þannig að það verða 2 lykkjur á hverjum sokkaprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónamerki fylgir með í stykkinu. Prjónið mynstur í hring eftir A.1 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, alls 8 sinnum í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 er lokið eru 48 lykkjur í umferð.
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, alls 16 sinnum hringinn í umferð. Eftir næst síðustu umferð í A.2 eru 128-128-144-144-160-160 lykkjur í umferð. Síðasta umferð í A.2 er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 39-39-45-45-49-49 lykkjur (nú eru eftir 1-1-0-0-1-1 lykkja í síðustu mynstureiningu A.2 sem var prjónuð), setjið eitt nýtt prjónamerki hér (það fylgir með í stykkinu og er notað síðar þegar stuttar umferðir eru prjónaðar fyrir framstykki og niður yfir bol á bakstykki), fellið af næstu 20-21-22-23-24-25 lykkjur (= handvegur), prjónið næstu 49-47-55-53-63-61 lykkjur, fellið af síðustu 20-21-22-23-24-25 lykkjur (= handvegur). Stykkið mælist ca 39-39-41-41-47-47 cm að þvermáli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 8-8-9-9-10-10 lykkjur í fyrstu umferð í mynsturteikningu) alls 16 sinnum hringinn í umferð og fitjið jafnframt upp 20-21-22-23-24-25 nýjar lykkjur á prjóninn þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 128-128-144-144-160-160 lykkjur. Haldið áfram hringinn með A.3 þar til öll mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Nú eru 304-304-352-352-400-400 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 87-87-97-97-111-111 cm að þvermáli. Klippið frá. Setjið fyrstu 94-94-110-110-124-124 lykkjur í umferð (= lykkjur á milli 2 prjónamerkja) á þráð.

FRAMSTYKKI OG NIÐUR YFIR BOL Á BAKSTYKKI:
Nú eru 210-210-242-242-276-276 lykkjur fyrir framstykki og niður yfir bol á bakstykki.
Byrjið frá réttu eftir annað prjónamerki og prjónið stuttar umferðir fram og til baka fyrir framstykki og niður yfir bol á bakstykki þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og A.4 (= 3 lykkjur) yfir hvern kaðal þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki (þ.e.a.s. að byrjun á umferð), snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið til baka þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og A.4 yfir hvern kaðal þar til eftir eru 6 lykkjur á undan prjónamerki, JAFNFRAMT er auki út um 1 lykkju brugðið á eftir hverjum kaðli/A.4, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið.
Haldið áfram fram og til baka svona með því að prjóna yfir 3 lykkjur færri en í fyrri umferð og aukið út um 1 lykkju á eftir hverjum kaðli/A.4 í 4. hverri umferð þar til prjónaðar hafa verið 7 mynstureiningar með A.4 á hæðina (= 42 umferðir). Stykkið mælist ca 72-72-77-77-84-84 cm frá miðju á hring og niður yfir miðju á baki á hringpeysu. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Klippið ekki frá. Setjið eitt prjónamerki í miðju kaðal/A.4 miðja aftan á hringpeysu. Prjónið nú áfram fram og til baka með mynstri eins og áður yfir neðri hluta á vinstra framstykki þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan kaðli/A.4 með prjónamerki í miðju aftan á hringpeysu, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið þar til eftir eru 3 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð á undan prjónamerki (byrjun á umferð), JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju brugðna á eftir hverjum kaðli/A.4, snúið.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið þar til eftir eru 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð á undan kaðli/A.4 með prjónamerki í miðju baki á hringprjóni, snúið.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið þar til eftir eru 3 lykkjur fleiri en í fyrri umferð á undan prjónamerki, snúið.
Haldið áfram fram og til baka svona með mynstri og útaukningu á eftir hverjum kaðli/A.4 í 4. hverri umferð þar til prjónaðar hafa verið 3 mynstureiningar A.4 á hæðina (= 18 umferðir). Klippið frá.
Byrjið frá réttu og eftir A.4 (miðja að aftan) og prjónið stuttar umferðir fram og til baka yfir neðri hluta á hægra framstykki alveg eins, nema spegilmynd, þ.e.a.s. í hverri umferð frá röngu er snúið við þegar eftir eru 4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð á undan kaðli/A.4 með prjónamerki í miðju að aftan á hringpeysu og í hverri umferð frá réttu er snúið við þegar eftir eru 3 lykkjur fleiri en í fyrri umferð.

KANTUR:
Setjið til baka allar lykkjur á hring á hringprjóna og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í kringum allan hringinn. Fellið af, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar með sléttprjóni og í frágang eru þær með rönguna út.
Fitjið upp 11-11-12-12-14-14 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá hvorri hlið þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 3-4-5-6-6-7 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 4 lykkjur 1 sinni = 37-39-42-44-46-48 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7-6-6-5-5-4 cm millibili alls 6-7-7-8-8-9 sinnum = 25-25-28-28-30-30 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-42-40-40-39-39 cm aukið út um 7-7-4-9-7-7 lykkjur jafnt yfir = 32-32-32-37-37-37 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff með byrjun frá hlið með brugðið (sléttprjón með rönguna út) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 55-56-55-56-56-57 cm frá ermakúpu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við affellingar-/uppfitjunarkantinn.
Saumið saum undir ermum. Passið að saumurinn verði ekki stífur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.11.2018
Leiðrétting: FRAMSTYKKI OG NIÐUR YFIR BOL Á BAKSTYKKI: UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið þar til eftir eru 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð á undan kaðli/A.4 með prjónamerki í miðju baki á hringprjóni, snúið.
Yfirfarið á vefsvæði: 28.03.2019
Leiðrétting: Mynsturteikning A.2 hefur verið uppfærð í stærð S-M og XXL-XXXL. Það var einni lykkju brugðið ofaukið í umferð 14 (S-M) og í umferð 14 og 20 (XXL-XXXL)
Yfirfarið á vefsvæði: 07.05.2019
Leiðrétting - Efni: DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)450-450-500-550-600-700 g litur 03, perlugrár
Og notið: DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)225-250-275-300-325-350 g litur 01, natur
Yfirfarið á vefsvæði: 23.02.2024
Mynsturteikning A.2 og A.3 hefur verið uppfærð í stærð XXL-XXXL.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
symbols = prjónið 2 lykkjur í eina lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = þræðið hægri prjón í gegnum miðju á 3 lykkjum slétt 4 umferðum að neðan, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið þráðinn til baka að réttu þannig að uppslátturinn verði 4½ cm langur (uppslátturinn má ekki vera of stífur – þá kemur prjónfestan til með að verða of stíf á hæðina), prjónið 3 lykkjur slétt, þræðið hægri prjón í gegnum sömu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið þráðinn til baka að réttu þannig að uppslátturinn verði 4½ cm langur.
symbols = lyftið 1. lykkju (= uppslátturinn sem var gerður í fyrri umferð) af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 3 lykkjur slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni (= uppsláttur sem gerður var í fyrri umferð) af prjóni eins og prjóna eigi brugðið
symbols = leggið þráðinn yfir stykkið þannig að hann snúi að þér, lyftið uppslættinum af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 3 lykkjur brugðið, leggið þráðinn yfir stykkið þannig að hann snúi að þér, lyftið uppslættinum af prjóni eins og prjóna eigi slétt
symbols = prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Drops Empress 194-17

Rachael, New Zealand

Empress

Simone, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (174)

country flag Ilse wrote:

Hi, Kan het zijn dat er een foutje zit in het patroon A2 voor de XXXL? Van naald 23 naar naald 24 komt er slechts 1 steek bij terwijl hetzelfde patroon van naald 17 naar naald 18 er 2 steken bijkomen. Ik zie niet waar ik het fout zie, tenzij het patroon het fout stelt. bedankt om na te kijken Ilse

07.02.2024 - 08:49

DROPS Design answered:

Dag Ilse,

Dag Ilse, waarschijnlijk heb je gelijk een moet er 1 omslag minder gemaakt worden in de een na laatste naald van A.2, dus de eerste omslag zou je dan niet moeten maken. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om na te kijken.

07.02.2024 - 19:06

country flag Barbara Dobbs wrote:

Thank you so much for this pattern I knitted it in red Aran with a couple of changes, I added a flower to the back centre circle, and I used the sleeves stocking stitch out. I would add a picture but not sure where I can do that, but very happy with the end result

26.01.2024 - 15:10

country flag Barbara D wrote:

What do I do with the 124 stitches I’ve put on a thread please?

20.01.2024 - 19:54

DROPS Design answered:

Hi Barbara D., these sts you use again when working the Edge - these stitches on a thread are at the top of the sweater, behind the neck. Happy knitting!

21.01.2024 - 11:11

country flag Ingrid Hens wrote:

Maat moet je berekenen met een vergelijkbaar kledingstuk in je bezit. Ik heb geen vergelijkbaar kledingstuk. Graag een echte matentabel. S komt overeen met werkelijke borstomtrek van x cm, etc. Dat maakt het voor iedereen duidelijker. Nu kan ik moeilijk een maat kiezen.

06.01.2024 - 11:17

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

De maten komen redelijk goed overeen met de confectiematen zoals je kledingstukken in de winkel koopt, dus als je normaal bijvoorbeeld altijd een shirt in maat M koopt, zou je dat nu ook aan kunnen houden.

07.01.2024 - 14:00

country flag Helen Sundkvist wrote:

Hej, jag har sett att det beror på löplängd, så jag behöver inte svar på min tidigare fråga men har en ny. Om jag byter garn till garngrupp E står att jag ska använda stickor 9 i stället för stickor 8 till det garnet. Vilket ska jag använda?

03.01.2024 - 17:58

DROPS Design answered:

Hej Helen, det som er vigtigt er at du har 11 masker på 10 cm for at få målene som står i mönsteret :)

09.01.2024 - 14:50

country flag Helen Sundkvist wrote:

Hej, Jag är lite fundersam på garnåtgången. Varför går det åt mindre av alpacka silk än av drops air? Jag kan inte se någonstans att man bara ska använda det ena garnet?

03.01.2024 - 17:15

DROPS Design answered:

Hei Helen. Når du strikker med disse 2 trådene bruker man like mange meter, men DROPS Air nøste er på 50 gram og har en løpelengde på 150 meter, mens et DROPS Brushed Alpaca Silk nøste er på 25 gram og har en løpelengde på 140 meter. Altså du trenger 2 nøster / 100 gram DROPS Air for å ha ca like mange løpemeter som 1 nøste / 25 gram DROPS Brushed Alpaca Silk. mvh DROPS Design

08.01.2024 - 14:44

country flag Pablo wrote:

Hello, I have two questions about FRONT PIECES AND DOWN THE BODY: - "increase 1 stitch after each cable/A.4 every 4th row": This is every 4th row after the increase in ROW 3 (ROW 3, ROW 7, ROW 11,...) or in each row 4 of the A.4 diagram? - If I increase always after the A.4 diagram in the right side, the jacket will be asymetric. Should the increases be done at different sides of A.4 like in diagram A.3?

21.12.2023 - 21:13

DROPS Design answered:

Dear Pablo, increase on every 4th row as explained under ROW 3, this means, in this section: row 3, row 7, row 11, etc. Happy knitting!

22.12.2023 - 08:40

country flag Manuela Liener wrote:

Hallo Liebes Team es geht mir um die Maschenprobe. Mache ich diese mit Beiden Garnen zusammen, oder mit jedem Garn einzeln? Bei einem anderen Modell mit 2 Garnen steht "1 Faden von Fabel + 1 Faden Flora (=2 Fäden)" Hier steht "mit 1 Faden von jeder Garnqualität" Ich danke für eine rasche Antwort, denn ich würde schon gerne beginnen. Lg Manu

27.11.2023 - 17:10

DROPS Design answered:

Liebe Manu, diese Jacke wird mit 2 Fäden von der Garngruppe C gestrickt: Air und Brushed Alpaca Silk, gerne können Sie mit Fabel und Flora stricken aber am besten mit insgesamt 4 Fäden der Garngruppe A und nicht nur 2, sonnst können Sie die Maschenprobe nicht erreichen. Viel Spaß beim stricken!

28.11.2023 - 08:32

country flag Sabine wrote:

Ich habe den unteren Rücken gestrickt und den Markierungsfaden an der hinteren Rückenmitte angebracht. Laut Anleitung soll ich den Faden nicht abschneiden. Aber ich soll doch eine Hinreihe über den unteren Teil des linken Vorderteils stricken, da ist der Faden doch an der falschen Stelle. Soll ich eine Rückreihe bis zum Anfang des linken Vorderteils stricken oder soll ich den Faden abschneiden?

06.11.2023 - 15:50

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, die letzte Reihe von Vorderteile und unterer Rücken ist eine Rückreihe; das linke Vorderteil beginnt dann mit einer Hinreihe nach unten bis die Markierung in der Mitte vom Rückenteil (also 4 Maschen vor dieser Markierung), und bei den Rückreihen stricken Sie 3 Maschen weniger, so stricken Sie diese verkürzten Reihen weiter, dann wird der Faden abgeschnitten und das rechte Vorderteil genauso gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

07.11.2023 - 08:00

country flag Susanna Nilsson wrote:

Det står att omtaget skall vara 4,5 cm Är det hela omtaget el bara på en sida??? Om det bara är på en sida så blir hela omtaget 9 cm

10.10.2023 - 20:54

DROPS Design answered:

Hej Susanna, jeg forstår ikke hvad det er som skal være 4,5 cm. Hvor er du i opskriften og hvilken størrelse strikker du?

17.10.2023 - 13:26