Myosotis Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og ¾ ermum með blúndu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 191-36 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi lykkjum jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 2,8. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 3. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónuð ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 8 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 16 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kant að framan): Í umferð með mynsturbekk á berustykki er prjónað með grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverjum samskeytum á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til eftir eru 3 lykkjur í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir kant með garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagöt með ca 7½-7½-8-7½-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykki verði aðeins hærri í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun aðeins neðar í uppskrift. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-116-120-126-130-136 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum pistasía. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 36-39-44-38-43-46 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 146-155-164-164-173-182 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður slétt). Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð mitt í umferð (í S, L, XL og XXXL er merkiþráðurinn er settur á milli 2 miðju lykkjur, í M og XXL er merkirþráðurinn settur í miðjulykkju = miðja að aftan). Byrjið frá réttu með litnum pistasía og prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði/lykkju með merkiþræði í, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-33-34-36-39-40 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45-49-51-54-58-60 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-68-72-77-80 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-81-85-90-96-100 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt). BERUSTYKKI: = 146-155-164-164-173-182 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15-16-17-17-18-19 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.1A er aukið út um 21-36-27-39-54-45 lykkjur jafnt yfir = 167-191-191-203-227-227 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 13-15-15-16-18-18 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu með litnum natur þar sem aukið er út um 4-0-0-8-4-4 lykkjur jafnt yfir = 171-191-191-211-231-231 lykkjur (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni og ekki er aukið út yfir kanta að framan). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 8-9-9-10-11-11 mynstureiningar með 20 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2A. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 251-281-281-311-341-341 lykkjur í umferð. Prjónið síðan með natur til loka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-1-9-11-1-9 lykkjur jafnt yfir = 258-282-290-322-342-350 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (prjónið brugðið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið): Prjónið 41-44-46-51-56-59 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 52-58-58-64-64-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 72-78-82-92-102-108 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 52-58-58-64-64-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki og prjónið þær 41-44-46-51-56-59 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Nú eru 4 prjónamerki í stykkinu. Í næstu umferð (rétta) er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-5-7-7-8-9 sinnum = 290-322-346-378-406-422 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 45-49-53-58-64-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-68-72-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-96-106-118-126 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-68-72-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 45-49-53-58-64-68 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Takið frá öll prjónamerki. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-222-242-270-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 49-53-58-63-70-75 lykkjur inn frá hvorri hlið = 88-96-106-116-130-140 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir hnappagati í hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 202-218-238-258-286-306 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 200-219-238-257-295-314 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 10-11-12-13-15-16 mynstureiningar með 19 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 280-307-334-361-415-442 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-68-72-78-80-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-82-88-92-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi og byrjið umferð við prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 8-11-13-15-16-15 sinnum = 52-54-56-58-60-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 25-23-22-20-19-17 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Prjónið síðan 2 umferðir slétt og aukið JAFNFRAMT út 16-14-12-10-25-21 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 68-68-68-68-85-85 lykkjur. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og prjónið A.4 hringinn (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 17 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 108-108-108-108-135-135 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 34-32-31-29-28-26 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Maritha wrote:
Hej Undrar var beskrivningen till den gula koftan finns? Något måste ha blivit fel. Mvh
06.09.2020 - 17:27DROPS Design answered:
Hej Maritha. De färgerna du ser på bilden märkt med A är DROPS Cotton Merino 01, 17, 29, 15 (den första färgen ersätter den första färgen i mönstret under garnåtgång osv). Mvh DROPS Design
08.09.2020 - 08:37Marjan Van Riel wrote:
Aan het einde van de mouw moet ik patroon A4 breien, deze kan ik echter niet meer vinden bij het patroon, is A4 weggehaald?
06.06.2020 - 17:38DROPS Design answered:
Dag Marjan,
Nee, hij staat er wel bij hoor, het is het onderste telpatroon, direct boven de maattekening. Misschien dat hij tijdelijk niet goed geladen werd...
07.06.2020 - 14:14Willa Strahle wrote:
There are no notations in how many inches for s-m-l, etc. Am ready to start but need to know that before I start. Thank you.
04.04.2019 - 21:54DROPS Design answered:
Dear Mrs Strahle, all measurements in the chart are in cm - convert and read more about sizing here. Happy crocheting!
05.04.2019 - 09:53Jennie wrote:
Ska diagrammet verkligen se ut så? Likadant i diagrammet för den som är en pullover. I A2, så är den högra blomman väldigt skev jämfört med den vänstra. Ser inte ut så när man tittar på bilderna på den färdiga tröjan. Fler har kommenterat på detta i mönstret för pullover-varianten men ni har inte besvarat dem eller ändrat i mönstret.
12.05.2018 - 04:45DROPS Design answered:
Hei Jennie. På grunn av økningen på den 19 omgangen av A.2a blir mønsteret forskjøvet med 1 maske fra omgang 20 og oppover - dette for at det skal gå opp med både masketall og mønster. Det blir pent og vil ikke virke skjevt på den ferdige genseren. God fornøyelse.
16.05.2018 - 09:49Guillaumond wrote:
Pourquoi faites vous les modèles tricotés de haut en bas sachant que le suivi du tricot est beaucoup plus difficile à contrôler de cette façon. Je tricote depuis très longtemps et je ne trouve pas que cette méthode soit un plus , pouvez-vous me dire quelles sont les raisons de cette méthode ?
18.04.2018 - 16:53DROPS Design answered:
Bonjour Mme Guillaumond, cette technique est de plus en plus plébiscitée par nos utilisatrices, elle permet notamment de pouvoir essayer l'ouvrage au fur et à mesure et de faire des ajustements individuels (longueur par exemple). Bon tricot!
19.04.2018 - 09:17Montse Martínez wrote:
Precioso patrón, bonitos colores.
15.04.2018 - 22:48Gunilla Anttila wrote:
Fin den vill jag sticka.
02.01.2018 - 12:10Conny wrote:
Gelungene Kombination aus Blumenmotiv und Muschelmuster, die möchte ich nacharbeiten
18.12.2017 - 13:46