Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= br frá réttu, sl frá röngu | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l | |
= setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni | |
= setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sweet Peach |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með gatamynstri og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 159-16 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.2 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 146-162-178-194-218-234 l á hringprjóna nr 4 með Paris. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið síðan mynstur þannig: * A.3 A (= 2 l ), A.3 B yfir næstu 14-18-22-26-32-36 l, A.3 C (= 2 l), A.4 (= 37 l), A.2 A (= 2 l), A.2 B yfir næstu 14-18-22-26-32-36 l, A.2 C (= 2 l) *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 73.-81.-89.-97.-109.-117. l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm. Fellið nú af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 6 l í hvorri hlið) og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 67-75-83-91-103-111 l. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun á hverri hlið þannig: 2 l 1-2-3-4-6-7 sinnum og 1 l 0-1-2-3-5-6 sinnum = 63-65-67-69-69-71 l. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 25-27-29-31-31-33 l fyrir hálsmáli og hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 18-18-18-18-18-18 l. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 67-75-83-91-103-111 l. Fellt er af fyrir handveg í hliðum eins og á bakstykki = 63-65-67-69-69-71 l. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-54-56 cm setjið fyrstu 19-21-23-25-25-27 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. Fellið nú af fyrir hálsmáli í annarri hverri umf þannig: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinum = 18-18-18-18-18-18 l. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 37-39-41-43-44-46 l á sokkaprjóna nr 4. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 4-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 10-11-12-14-16-17 sinnum = 57-61-65-71-76-80 l. Þegar stykkið mælist 48-47-47-46-45-43 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 l mitt undir ermi (fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki). Prjónið nú ermi fram og til baka og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3 sinnum, 1 l 1-2-3-4-6-9 sinnum, fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-55-56-56-57-57 cm. Felli af 3 l 1 sinni í hvorri hlið áður en hinar l eru felldar af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 84-95 l (meðtaldar l af þræði) í kringum hálsmál á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (22)
Jenny Strick wrote:
Ein wunderschöner luftiger Pulli! Stricke ihn schon zum zweiten Mal. Macht richtig Spaß. Perfekt fürs Frühjahr und kühlere Sommerabende.
13.08.2022 - 14:46Teresa Ruiz De Azua García wrote:
Hola, estoy tejiendo este jersey (Sweet Peach) y de pronto, cuando llego a los 36 cm y dejo la aguja circular para hacer por separado el frente y la espalda me encuentro con el problema de que no sé cómo tejer el revés de los gráficos A.2 y A.3. Tengo claro que el punto del derecho pasa a ser del revés, pero ¿cómo tejo las lazadas, los dos puntos juntos del derecho o el surjete? Muchas gracias.
22.07.2021 - 16:15DROPS Design answered:
Hola Teresa, en las filas pares (por el lado revés) se trabajan todos los puntos de revés. El dibujo solo se trabaja por el lado derecho.
31.07.2021 - 17:57Helena wrote:
Ich habe noch etwas vergessen: die Schultern haben bei allen Grössen 18M! Aber auf dem Bild wird der Zopf bis oben gestrickt. Dazu müsste man mind. 24M haben...
01.01.2020 - 13:11Helena wrote:
Obwohl ich extra nur vorne das Mittelmuster gestrickt habe reicht die Wolle bei weitem nicht! Ich musste 3 zusätzliche Knäuel kaufen. Jemand anderer sogar 4 Knäuel... Bitte berichtigen sie die Garnmenge für die nachfolgenden Stricker.
27.12.2019 - 22:35Tannis Langford wrote:
I’m knitting Sweet Peach design and I’m having trouble understanding the pattern when I got to the back piece. How do I knitt in the round and not knitt the front at the same time .
04.04.2018 - 22:49DROPS Design answered:
Hi Tannis, You have worked in the round until the piece measured 35-36-37-38-39-40 cm. Then you bind off 3 stitches on each side of each marker thread for the start of the armholes. Now you continue by working back and forth with first the back piece then the front piece. Happy knitting!
05.04.2018 - 08:04Ulla-Britt Olofsson wrote:
Mönster 159-16 Paris. Jag har stickat med rundsticka till ärmhålet och delat på arbetet men jag förstår inte hur jag kommer´vidare med rundsticka när det bara ska stickas från framsidan och bakstycket först. har ni en bra förklaring.
14.02.2018 - 11:35DROPS Design answered:
Hei Ulla-Britt. Selv om du strikker med rundpinne, skal det etter du har kommet til armhullet og arbeidet delt, strikkes frem og tilbake. Først strikker du bakstykket frem og tilbake (følg oppskriften under BAKST) og deretter strikker du forstykket (følg oppskriften under FRAMST). God Fornøyelse!
14.02.2018 - 12:53Pia Träger wrote:
Sweet peach 159-16 Jeg skal lave bluse i str. xl jeg slår 194 masker op starter på mønsteret selve mønstret er på 104 masker det ville sige at jeg har 90 masker tilbage I opskriften står der ud fra sidste mønster at jeg skal gentage fra *-* dette kan ikke helt lade sig gøre da der mangler 14 masker for at kunne lave mønstret endnu engang er de sidst 90 masker glatstrik Pia Träger
19.04.2016 - 15:26DROPS Design answered:
Hej Pia mønsteret imellem *-* går over 97 m, du strikker samme mønster på forstykket som på ryggen. * A.3 A (= 2 m ), A.3 B over de næste 26 m, A.3 C (= 2 m), A.4 (= 37 m), A.2 A (= 2 m), A.2 B over de næste 26 m, A.2 C (= 2 m) * = 97 masker. God fornøjelse!
20.04.2016 - 09:33Angelika Kneifel wrote:
Danke für die Info. Ich wollte leider nicht 3 Wochen auf Ihre Antwort warten und habe jetzt selbst ausprobiert. Wenn man in XL am Armausschnitt nicht so viele Maschen abnimmt (ich habe 3 x 2 und 3 x 1 abgenommen, dann passt die Schulter einigermaßen und mit der Ärmellänge zusammen kommt man hin. Aber insgesamt habe ich mit Drops Herz you 5 - viel mehr Garn gebraucht als angegeben, trotz gleicher Lauflänge (75 m / 50 g) - insgesamt 4 Knäuel mehr!
21.09.2015 - 15:26Angelika Kneifel wrote:
Ich habe genau nach Anleitung gestrickt. XL. Mit den Abnahmen nach dem Rumpfteil werden hinter und Vorderteil zu schmal. Auf dem Bild, das sicher kleiner als xl ist, sehen die Schultern auch breiter aus. 18 Maschen am Schluss bei den Schultern ist zu schmal. Hat das noch niemand reklamiert? Ich habe jetzt bis zum Rumpf alles wieder aufgetrennt. Gerne hätte ich Ihre Meinung gehört. Sonst muss ich es evtl selbst vermessen. Die Zeichnung sieht auch anders aus. Viele Grüße Angelika Kneifel.
03.09.2015 - 01:21DROPS Design answered:
Nach der Skizze ergibt sich für alle Größen in etwa die gleiche Schulterbreite. In Gr. XL haben Sie ja auch einen weiteren Halsausschnitt und eine längere Armkugel, durch die die vergleichsweise schmalere Schulter dann wieder ausgelichen werden sollte.
20.09.2015 - 15:49Sarah wrote:
Hallo liebes Drops-Hilfs-Team :) Ich bräuchte bitte Ihre Hilfe zum Weiterstricken....ich befinde mich an der Stelle, wo ich beidseitig des Markierers je 3M für die Armausschnitte abketten soll... Nun meine Probleme: 1.) soll ich die ersten 3 Maschen besser gleich am ENDE der Runde abnehmen? sonst "schlepp" ich ja nachher die letzte abgekette Masche noch im abgeketteten Armausschnitt hinterher??? und 2.) kette ich in der Muster-Runde oder in der Umschlag-Abstrick-Runde ab? und
22.03.2015 - 22:01DROPS Design answered:
Ja, Sie können die ersten 3 M am Ende der letzten Rd abketten, wenn Sie den Faden nicht abschneiden und neu ansetzen wollen. Oder Sie ketten die ersten 3 M der Rd nicht am Anfang, sondern ganz zuletzt ab, das ist dann letztendlich das gleiche Ergebnis. Ich würde die M in einer Zwischenrunde abketten, dann kommen Sie mit dem Muster nicht durcheinander. Ansonsten sollten Sie die M, die Sie abketten, glatt re stricken.
23.03.2015 - 10:43