Bright Prairie |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað með áferðamynstri og puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-40 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.7. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjum (þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls). Endið umferð með 1 stuðli í 3. loftlykkju, þessi stuðull er heklaður til að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið og hoppar yfir í næstu umferð. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg): Fækkið alltaf lykkjum með því að hekla 2 og 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA-1. Í 3. og 4. umferð í A.1 er því heklaður 1 stuðull í hvern stuðul frá umferðinni að neðan yfir lykkjurnar sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu A.1 (1 mynstureining A.1 = 3 lykkjur á breidd). ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja (t.d. 156 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 26. Í þessu dæmi eru heklaðar 25. og 26. hver lykkja saman. Ef auka á út, þá eru heklað í þessu dæmi 2 lykkjur í 26. hverja lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp. Stykkinu er snúið við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði eins alla leiðina. Þegar stykkið skiptist við handveg er heklað fram og til baka. Ermar eru heklaðar fram og til baka og saumaðar saman. Að lokum er heklaður skrautkantur í kringum hálsmál. PEYSA: Heklið 156-168-180-192-216-240 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 4 með Cotton Merino. Tengið saman í hring með keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 156-168-180-192-216-240 lykkjur í umferð. Heklið síðan hringinn eftir A.1. Stykkið er heklað í hring, en stykkinu er snúið við í hverri umferð, þannig að heklað er bæði frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins á öllu stykkinu. A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Þegar stykkið mælist ca 4-5-6-7-8-9 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 5., eða 6. umferð í A.1, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA og ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir). Fækkið lykkjum í hvert skipti sem 1., 5. og 6. umferð er hekluð, fækkið lykkjum alls 6 sinnum = 120-132-144-156-180-204 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 5. eða 6. umferð í A.1. Nú er aukið út um 6 stuðla jafnt yfir í umferð með því að hekla 2 stuðla í 1. stuðul. Aukið svona út í hvert skipti sem 1. og 5. umferð er hekluð, aukið út alls 4 sinnum = 144-156-168-180-204-228 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 5. eða 6. Umferð, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki með því að setja prjónamerki í hvora hlið þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð, hoppið yfir næstu 72-78-84-90-102-114 lykkjur, setjið seinna prjónamerki hér, nú eru 72-78-84-90-102-114 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Heklið nú framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig og heklað er fram og til baka – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. FRAMSTYKKI: Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, heklið síðan fram þar til 4-5-4-5-6-7 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í annarri hlið, snúið stykkinu. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Heklið 4 ystu lykkjur í hvorri hlið saman 2 og 2. Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru 2 ystu lykkjurnar heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 4-4-4-5-6-7 sinnum til viðbótar. Eftir allar úrtökur eru 50-54-58-60-64-68 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 40-41-43-44-46-47 cm, heklið hvora öxl til loka fyrir sig – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Stykkið er nú heklað til loka með 1 stuðul í hvern stuðul, ekki er lengur heklað mynstur eftir A.1. ÖXL: Haldið áfram með stuðla yfir fyrstu 15-17-19-20-21-22 lykkjur frá réttu, snúið og heklið 4 fyrstu lykkjur saman 2 og 2 fyrir hálsmáli, síðan er heklað út umferðina. Snúið og heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, heklið þessar saman 2 og 2, snúið. Í næstu umferð eru heklaðar 2 fyrstu lykkjur saman, síðan er heklað út umferðina. Snúið, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið þær saman. Snúið, heklið 2 fyrstu lykkjur saman, heklið út umferðina = 8-10-12-13-14-15 stuðlar eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, klippið þráðinn frá. Heklið hina öxlina alveg eins, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. Byrjið frá réttu, úrtökur fyrir hálsmáli eru gerðar í lok umferðar frá röngu og í byrjun á umferð frá réttu. BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og framstykki. ERMI: Heklið 44-46-48-50-52-54 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, á heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju = 44-46-48-50-52-54 stuðlar. UMFERÐ 2- 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Nú er aukið út þannig: Heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul, heklið *, 1 loftlykkju, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* þar til 1 stuðull er eftir, heklið 2 stuðla í síðasta stuðul = 88-92-96-100-104-108 lykkjur í umferð. Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.3 yfir fyrsta stuðul, heklið A.4 þar til 1 stuðull er eftir í umferð, heklið A.5 yfir síðasta stuðul. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar mynsturteiknin hefur verið hekluð til loka, endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 43-42-40-41-38-38 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu! Heklið nú handveg þannig: Heklið frá umferð með ör í A.6, (þ.e.a.s. heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 6 lykkjur í umferð), haldið síðan áfram með síðustu lykkjur í A.6, síðan er heklað mynstur eins og áður þar til 4 stuðlahópar eru eftir í umferð. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og útskýrt er í A.6 og A.7 og heklið mynstur eins og áður yfir miðjulykkjur í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu 2-2-3-3-4-4 sinnum til viðbótar = 8-8-10-10-12-12 umferðir með úrtöku í hvorri hlið. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 3 loftlykkjur í byrjun á umferð, heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir næsta stuðul, heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju/loftlykkjuboga *, heklið frá *-* út umferðina. Klippið þráðinn og festið. Heklið ermarnar saman í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju neðst á ermi við uppfitjunarkantinn, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* upp þar sem ermakúpan byrjar. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant þannig að ekki myndist þykkur saumur. Saumið ermar í. SKRAUTKANTUR: Skrautkanturinn er heklaður í kringum hálsmál. Heklað er með heklunál 4 með Cotton Merino þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fastalykkju *. Heklið frá *-* út umferðina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Steffi wrote:
Vielen lieben Dank für die schnelle Antwort. Tatsächlich habe ich die Anleitung wegen der Puffärmel ausgesucht.... Ihr habt mir aber bestätigt, dass ich eigentlich mit der Anzahl der V-Maschen usw.alles richtig gemacht habe. Ich habe für mich jetzt einfach entschieden, in die V-Maschen nur eine Luftmasche, anstatt wie in A4 angegeben, 2 Luftmaschen zu machen und jetzt passt die Breite mehr wie im Diagramm angegeben und sieht trotzdem noch "puffig" aus. Herzliche Grüße
03.05.2022 - 09:16Steffi wrote:
Hallo, ich habe Probleme mit dem Ärmel. Die 92 Maschen (M) sind erreicht und ich fange mit dem Muster in A3 an....bei ca,20 cm habe ich bemerkt, dass der Ärmel viel zu breit wird (ca.27cm statt 19cm wie im Bild) wo liegt mein Fehler? Ich habe es mehrere Male versucht, aber wenn ich A3 einhalte wird der Ärmel immer so breit. Toll wäre die Maschenanzahl nach der ersten Reihe von A3. Vielen Dank und Grüße
02.05.2022 - 15:30DROPS Design answered:
Liebe Steffi, die 92 Maschen häkelnSie so: A.3 (= 1 Stb), wiederholen Sie A.4 insgesamt 11 Mal (= über die nächsten 88 Maschen = 2 "V-Maschen"), häkeln Sie noch die 2 ersten Maschen in A.4 (1 "V-Masche") und A.5 = 1+88+2+1=92 Maschen; und es sind dann 1 Stb + 23 "V-Maschen" + 1 Stb. Die Ärmel sind her Puffärmel - deshalb sind es etwas breiter. Viel Spaß beim häkeln!
02.05.2022 - 16:29Cécile wrote:
Bonjour, je fais le L et je ne comprends pas le rythme des diminutions emmanchures. J'ai déjà diminué2x2 mailles du bord de chaque côté à 2 rangs consecutifs. Puis 1x2 de chque côté et je dois encore faire 1x2 de chaque côté 4 fois tous les 4 rangs...ca fait presque 16 rangs, presque 15 cm ? Ça fait beaucoup non ? Qu'est ce que je ne comprends pas ? Je vous remercie encore une fois de votre aide.
28.05.2021 - 19:31DROPS Design answered:
Bonjour Cécile, effectivement, ces diminutions doivent se faire encore 4 fois (en L) tous les rangs, pas tous les 4 rangs, la correction a été faite. Bonne continuation!
31.05.2021 - 07:16Cécile wrote:
Bonjour, je fais le L et je ne comprends pas comment on fait les diminutions des emmanchures et au rang 3 et 4 du motif... "Une bride dans chaque bride du tour précédent qui ne peuvent se crocheter en un motif complet de A2"? Pouvez vous m'expliquer s'il vous plaît ? A2 c'est bien le schéma qui indique comment commencer et finir les rangs ? Je vous remercie de votre aide.
27.05.2021 - 23:22DROPS Design answered:
Bonjour Cécile et merci pour votre retour, il fallait lire "A.1", correction faite. Aux rangs 3 et 4 deA.1 on crochète sur 3 m: sauter 1 m, crocheter 1 b, 1 ml, 1 b dans la m suivante, sauter 1 m; si vous avez diminué 1 de ces 3 m, crochetez 1 b dans les 2 mailles restantes, si vous avez diminué 2 de ces m, crochetez 1 b dans la m restante (car il n'y a pas assez de place pour crocheter ce motif complet). Bon crochet!
28.05.2021 - 08:19Cécile wrote:
Bonjour, je fais le L, je commence les emmanchures mais ne comprends pas comment faire les diminutions-2au au début de rang alors que la première bride est toujours remplacée par 3 mailles en l'air? Je vous remercie de votre aide.
23.05.2021 - 18:09DROPS Design answered:
Bonjour Cécile, en début de rang, crochetez 2 mailles en l'air (au lieu de 3), crochetez la bride suivante et au dernier jeté, écouler les 3 boucles sur le crochet - au rang suivant, crochetez bien dans cette bride (et pas dans le haut des 2 mailles en l'air). Bon crochet!
25.05.2021 - 08:00Eveline wrote:
Aanpassing op mijn vraag : 5 x 2 steken samen haken iedere 4 toer.
11.05.2021 - 14:00Eveline Meijer wrote:
Wordt aangegeven dat je bij 35 cm met de mindering moet beginnen voor de armsgaten de eerst 5 steken niet mee haken en dan 1 x 4 steken minderen en dan in mijn maat 5 x 2 steken samen haken en zou je volgens het patroon door moeten haken tot 44 cm maar met de mindering kom ik op 54 cm uit. Doe ik wat verkeerd of is er een fout in het patroon.
11.05.2021 - 13:57Gloria wrote:
Las disminuciones de las dudas no las entiendo bien. Para la talla xs dice hacer una disminución cada 4 vueltas, 4 veces, pero esto sería un total de 16 filas, sería una sisa demasiado larga. A parte dice q al final se tiene un total de 50 puntos como si se hubieran hecho 11 disminuciones por cada lado, y yo solo cuento 7 disminuciones por lado. Podríais aclarármelo? Gracias
25.04.2021 - 22:33DROPS Design answered:
Hola Gloria, la sisa mide 18 cm, que son unas 16 filas de trabajo, por lo que la primera parte sería correcta. En cuanto a la segunda parte, no olvidar que la primera disminución es 4 puntos seguidos a cada lado. Después se disminuyen 2 puntos a cada lado, trabajando los 4 puntos más externos juntos de 2 en 2. Después se disminuyen 5 veces 1 punto a cada lado. Eso son igual a 50 puntos, partiendo de 72.
09.05.2021 - 20:31Claudia Crick wrote:
Leuk eindelijk een gehaakte versie van een pofmouw.
16.03.2021 - 20:03Britt H Hamborg wrote:
Nydelig og fantastisk. Flott at den er heklet.
07.03.2021 - 18:55