Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= sl | |
= br | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l | |
= 2 l slétt saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sea Foam |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónað pils úr DROPS Andes með öldumynstri og stroffi. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-37 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á eftir 1.-2.-4. og 5. prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á undan 3.-4.-6. og 1. prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp, í hring á hringprjóna. PILS: Fitjið upp 136-136-153-170-187-204 l á hringprjóna nr 8 með Andes. Prjónið 1 umf sl. Prjónið A.1 yfir allar l. Eftir A.1 er prjónað áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 20-12-13-22-19-28 l jafnt yfir = 116-124-140-148-168-176 l. Setjið síðan 6 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett í byrjun umf (= hlið), 2. prjónamerki er sett eftir 18-19-22-23-26-27 l, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 22-24-26-28-32-34 l, 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 18-19-22-23-26-27 l (= hlið), 5. prjónamerki er sett á eftir næstu 18-19-22-23-26-27 l, 6. prjónamerki er sett á eftir næstu 22-24-26-28-32-34 l (nú eru 18-19-22-23-26-27 l eftir í umf á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki, fækkið um 1 l á eftir 2. og 5. prjónamerki og 1 l á undan 3. og 6. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku með 5-5½-5-5½-5-5 cm millibili 4-4-5-5-6-6 sinnum til viðbótar = 76-84-92-100-112-120 l. Þegar stykkið mælist 33-35-37-39-41-43 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 7. Prjónið 2 umf stroff 2 l sl, 2 l br yfir allar l. Næsta umf er prjónuð þannig: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-*. Í næstu umf heldur stroffið áfram eins og áður, uppslátturinn er prjónaður br, það eiga að myndast göt. Prjónið stroff alls 7 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 3 metra með Andes. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda saman þá kemur hún til með að tvinna sig aftur. Hnýtið hnút í hvorum enda. Þræðið snúruna upp og niður í gataumferðina á stroffi. Festið einn dúsk með þvermál ca 6 cm í hvorn enda og hnýtið slaufu við miðju að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11424 mynstur - 6942 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (28)
Rivka wrote:
I think there's a mistake. According to the gauge swatch, 15 rows makes 10cm but the cast on and the first knit row, the chart and then the first decrease row are already 19 rows, so how are we supposed to start the decreases at 10cm? Or is it 10cm measured from the top of the lace pattern??
29.12.2023 - 22:18DROPS Design answered:
Dear Rivka, the wave pattern is supposed to measure 8 cm (see chart - A.1 is not only stocking stitch, but includes 3 ridges, the tension in stocking stitch doesn't apply in height here), so that the decrease will start approx. 2 cm after the end of A.1. Happy knitting!
02.01.2024 - 10:32Rosalind wrote:
Are the measurements in the drawing of the skirt (under the wave pattern diagram) in cm?
12.06.2023 - 08:09DROPS Design answered:
Dear Rosalind, yes all measurements in chart are in cm - convert into inches here. Happy knitting!
12.06.2023 - 09:13Sandra Seltzer wrote:
I would love to have this pattern for a lighter weight cotton on number 4mm needles please
31.05.2022 - 20:46DROPS Design answered:
Dear Mrs Seltzer, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but maybe you can take inspiration from our skirt patterns worked with a yarn group B. Happy knitting!
01.06.2022 - 08:08Maud wrote:
Bonjour, lorsqu'on a terminé le motif A1 et que l'on passe en jersey, au 1er tour, nous devons faire 20 diminutions à répartir sur les 136 mailles. Quelle diminution conseillez-vous (2 mailles ensemble à gauche ? à droite ? ou encore la méthode 1 m glissée, 1 m end, rabattre sur la maille ?) Pouvez-vous me dire aussi pourquoi nous plaçons les 6 marqueurs si tôt dans l'ouvrage ? Merci d'avance pour votre aide Cordialement Maud
28.02.2022 - 19:37DROPS Design answered:
Bonjour Maud, diminuez avec 2 mailles ensemble à l'endroit, c'est suffisant, cette leçon indique comment répartir des diminutions à intervalles réguliers. Si vous préférez mettre vos marqueurs après, à vous de voir, c'est une question de choix, vous en aurez besoin quand la jupe mesure 10 cm de hauteur totale. Bon tricot!
01.03.2022 - 09:48Margery Ross wrote:
About rather sea foam green miniskirt. Can you help me with the same features as a tube skirt? ( I woke up from a nap with the image of a knit tube skirt that color exactly, and something like that bottom pattern. Not really sure how to proceed but don’t get many post-nap knitting projects assigned either.)
13.12.2020 - 14:45DROPS Design answered:
Dear Mrs Ross, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request - thanks for your comprehension. You might find help with this pattern adding the wave pattern? Your yarn store should be able to help you even per mail or telephone. Happy knitting!
14.12.2020 - 09:05Marika wrote:
Salve, nella caso della taglia L, bisogna dividere 153 maglie per 13, il risultato è 11,7. Significa che bisogna lavorare insieme tra l' 11° e la 12°?
10.10.2020 - 12:20DROPS Design answered:
Buongiorno Marika, può diminuire in questo modo: 9 maglie diritto, 2 maglie insieme a diritto (9 maglie diritto, 2 maglie insieme a diritto) fino a quando rimangono 10 maglie, 10 maglie diritto. Buon lavoro!
12.10.2020 - 10:39Mudite wrote:
Takk for oppskriften! Jeg strikket i gråfarge , lengde til knær med bølgene i tynnere ulltrå med grader farge fra mørke grå nederst til en myk overgang til samme gråfarge som er i hele lengden. . Tråden snurret jeg i kombo med den mørke tråden. Dette ble lekkert . Vellykket resultat
13.02.2020 - 17:33Phyll wrote:
How do I order patterns and download them?
28.04.2019 - 02:19DROPS Design answered:
Dear Phyll, you do not need to order our patterns - its free and you can print it directly from our web or save it as favorite and print later. The only way to download is to "print it" as .pdf, so the file will convert to .pdf format and you should be able to save it. Happy crafting!
28.04.2019 - 11:53Maiken Jacobsen wrote:
Vidden ble 10 cm kortere, syns det ble så mye mindre ved bare å gå ned en pinnestørrelse
11.02.2019 - 16:02DROPS Design answered:
Hei Maiken. Det har med strikkefastheten din å gjøre, for at målene skal bli som på målskissen er det viktig at den angitte strikkefasteheten overholdes - og pinnestørrelsen må justeres etter dette (som nevnt i forrige kommentar). Om du ønsket å strikke plagget smalere enn målskissen, kan du selvfølgelig gjøre slik du nå gjorde, og strikke med en tettere strikkefasthet. Neste gang du lurer på hvilke mål du får med en annen strikkefatshet kan du ta maskeantallet og dele på strikkefastheten din. Så får du målene i cm. God fornøyelse
13.02.2019 - 11:33Maiken wrote:
Strikket i str medium. Da skal midjen være 38x2. Hvis jeg strikker med pinne 7 istede for 8 (jeg strikker løst). Hvor mye mindre må jeg regne med at det kan bli?
06.02.2019 - 17:32DROPS Design answered:
Hei Maiken. Ja, i størrelse M vil midjen bli 38 x 2 (=76 cm). Det er strikkefastheten din som avgjør målene på plagget. Siden strikkefasthet er individuelt er pinnestørrelsen kun en guide. Du må bruke den pinnestørrelsen som gir deg den angitte strikkefastheten. Strikk deg en prøvelapp på pinne 7 og se om du får 11 masker x 15 pinner glattstrikk = 10 x 10 cm. Hvis ikke må pinnestørrelsen justeres ytterligere. Strikker du med en annen strikkefasthet en angitt vil du risikere at plagget ditt får andre mål enn på målskissen. God fornøyelse
11.02.2019 - 09:29