Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= slétt lykkja frá röngu | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sweet Primrose Bonnet |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð húfa / hetta fyrir börn úr DROPS Alpakka. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð 0 – 2 ára.
DROPS Baby 43-16 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MIÐJUSTYKKI ÞANNIG: Prjónið síðustu lykkju frá þræði/hjálparprjóni slétt saman með fyrstu lykkju frá miðjustlykki. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK Á MIÐJUSTYKKI ÞANNIG: Prjónið síðustu lykkju frá miðjustykki snúna slétt saman með fyrstu lykkju frá þræði/hjálparprjóni. ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á MIÐJUSTYKKI ÞANNIG: Prjónið ystu lykkju á miðjustykki saman með næstu lykkju frá þræði/hjálparprjóni eins og áður, síðan eru prjónaðar næstu 2 lykkjur slétt saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK Á MIÐJUSTYKKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á miðjustykki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið síðustu lykkju saman með næstu lykkju frá þræði/hjálparprjóni eins og áður. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá framan á húfu og aftur að bakhlið. Lykkjur eru settar á þráð í hvorri hlið, síðan er prjónað miðjustykki sem er prjónað saman með lykkjum sem settar voru á þráðinn í hvorri hlið, þannig að húfan formast. Neðst á húfunni er prjónaður kantur með gataumferð. Að lokum er tvinnuð snúra þrædd í gegnum gatakantinn. HÚFA: Fitjið upp 75-83-91 (99) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Alpaca. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fyrir fald fyrir saum með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Næsat umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni (uppábrot). Prjónið 5 umferðir sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 9-10-11 (12) sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 11-12-13 (14) cm frá uppábroti – endið eftir 4. eða 12. umferð í A.1. Setjið ystu 27-30-33-36 lykkjur í hvorri hlið á sitt hvorn þráðinn eða hjálparprjón. Það eru 21-23-25-27 lykkjur eftir á prjóni (miðjustykki). Klippið þráðinn. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir miðjustykki – JAFNFRAMT í hverri umferð frá réttu er prjónuð ysta lykkjan í hvorri hlið á miðjustykki saman með næstu lykkju af þræði/hjálparprjóni – sjá ÚRTAKA-1. Haldið svona áfram. JAFNFRAMT þegar miðjustykkið mælist 4-4-5 (5) cm fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á miðjustykki – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar miðjustykkið mælist 7-7-8 (9) cm og 10-10-11 (13) cm = 15-17-19 (21) lykkjur á miðjustykki. Prjónið áfram þar til allar lykkjur af þræði/hjálparprjóni í hvorri hlið hafa verið prjónaðar saman með miðjustykki. Haldið lykkjunum á prjóni. FRÁGANGUR: Brjótið inn faldinn fyrir saum framan á húfu að röngu. Saumið faldinn niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. KANTUR MEÐ GATAUMFERÐ: Byrjið frá réttu neðst á húfunni, notið hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 28-31-34 (35) lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni frá kanti með uppábroti frá miðjustykki og prjónið upp ca 28-31-34 (35) lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni frá miðjustykki fram að kanti með uppábroti = ca 71-79-87 (91) lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 3). Byrjið frá röngu og prjónið A.2 (í 5. umferð í A.2 er táknið prjónað frá röngu, þ.e.a.s. 2 lykkjur slétt saman, 1 uppsláttur frá röngu). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 3. Fellið af. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði DROPS Alpaca ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum gataumferðina. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11424 mynstur - 6942 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (10)
Adelgunde Baier wrote:
Hallo, wenn ich diese Mütze in kraus rechts stricke muss ich die Abnahmen auch auf diese Weise stricken? Mit freundlichen Grüßen Adelgunde Baier
07.04.2024 - 09:06DROPS Design answered:
Liebe Frau Baier, bei diesem Modell wird das hintere Teil von der Mütze (das mit den Abnahmen) krausrechts gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
08.04.2024 - 08:12Raffaela wrote:
Ho eeli realizzato la cuffietta come da descrizione. Complimenti per le descrizioni che sono veramente accurate e precise. Unica domanda è questa: i cordini arrotolati girano tutti intorno alla cuffia o solo nel bordo del collo? Cioè anche intorno alla testa? Grazie per una risposta e complimenti ancora ciao
13.03.2024 - 18:07DROPS Design answered:
Buongiorno Raffaella, i cordini sono inseriti nel bordo traforato. Buon lavoro!
16.03.2024 - 18:55Maria Hilitos wrote:
Me encanto esta precioso. Muchas gracias por el tutorial.
06.03.2024 - 16:50Brigitte Flamand wrote:
Au moment des diminutions 2 je dois continuer à tricoter les mailles laissées sur les côtés ou pas ? contrairement au diminution 1
17.03.2023 - 21:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Flamand, la diminution-1 est expliquée dans la diminution-2, autrement dit, vous tricotez la m suivante en attente avant la partie centrale avec la 1ère m de la partie centrale, tricotez 2 m ens à l'end, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 3 m de la partie centrale, tricotez 2 m ens torse à l'end et tricotez ensemble à l'end la dernière m de la partie centrale et la m suivante en attente. Bon tricot!
20.03.2023 - 09:49Annick LECLAIR wrote:
Bonjour. j'ai des problèmes avec le diagramme, il y a plus de jetés que de maille ensemble diminuées, comment faire pour garder le même nombre de mailles?
06.03.2023 - 11:49DROPS Design answered:
Bonjour Mme Leclair, dans les deux diagrammes A.1 et A.2 vous devez avoir le même nombre de jetés que de mailles à diminuer - dans A.1, vous diminuez 2 m au milieu (= glissez 1 m, tricotez 2 m et passez la m glissée par-dessus la m tricotée) et faites 2 jetés (1 avant et 1 après cette diminution); dans A.2, on diminue 1 m (= 2 m ens à l'end) et on fait 1 jeté ; autrement dit le nombre de mailles va toujours rester le même. Pour A.1, n'hésitez pas à mettre un marqueur après chaque diagramme, vous pourrez ainsi contrôler que vous avez toujours bien 8 mailles. Bon tricot!
06.03.2023 - 14:58Anna wrote:
Ik begrijp niet hoe de kantrand gemaakt moet worden. Ik heb 71 steken op mijn naald (ik maak de kleinste maat). Wordt A2 herhaald tot alle steken op de naald gebreid zijn? Maar dan kom ik toch niet uit met oneven steken? Met vriendelijke groet, Anna
02.02.2023 - 19:48Anne wrote:
”Se tricote en aller et retour sur aiguilles circulaires” Donc, on ne tricote pas en rond en fermant le tricot. Du coup, peut le tricoter aux aiguilles droites? Merci beaucoup de votre réponse.
19.12.2022 - 19:21DROPS Design answered:
Bonjour Anne, tout à fait, vous pouvez utiliser des aiguilles droites si vous êtes plus à l'aise - retrouvez ici d'autres infos sur les aiguilles circulaires. Bon tricot!
20.12.2022 - 08:59PEMANA wrote:
El gráfico A1 hay que empezarlo por abajo no? Para que el dibujo quede como en la foto .
08.10.2022 - 13:03DROPS Design answered:
Hola PEMANA, los diagramas se leen siempre de abajo arriba y de derecha a izquierda (en las filas por el lado derecho) o de izquierda a derecha (en las filas por el lado revés).
09.10.2022 - 18:55Steph wrote:
Hi, I’m very confused about how to knit the back of the head. Do you have a picture of the back and how it’s constructed? An example of how to knit the stitches from the side threads into the midsection would be very helpful. Thank you!
27.09.2022 - 00:46DROPS Design answered:
Dear Steph, you will work the stitches on mid back in garter stitch, and at the same time you will work at the beginning of every row from the right side the first stitch on row + the next stitch on the side together and at the end of the same row you will work the last stitch on mid back with the next stitch on the side together. see DECREASE TIP-1:. Happy knitting!
27.09.2022 - 09:15Wilma Vinton wrote:
I would like to make this pattern, but I don't quite understand what is meant by the section "Place the outer most 27... stitched on each side on separate threads/extra needles.... through to the end. Do you only knit the sides, when you are decreasing? Thanks Wilma
12.06.2022 - 09:07DROPS Design answered:
Dear Mrs Vinton, you will now work the back of the head, so you slip the first and last 27 stitches on a thread and work now the remaining 21 stitches on needle (middle of piece), and now work garter stitch and at the same time, work the last of these 21 stiches together with the next stitch slipped on a thread at the end of every row until all the 27 stitches on each side have been worked together with the edge stitches of the middle section (and then decrease at the middle of this section) Happy knitting!
13.06.2022 - 09:28