DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5852.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Riviera Stripes

Prjónuð peysa með áferðamynstri, röndum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.

DROPS 191-30
DROPS Design: Mynstur as-084
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-125-150-150-175-175 g litur 01, natur
50-50-75-75-75-75 g litur 13, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 28 umferðir með áferðamynstri verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5852.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukningar/úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4.
Í þessu dæmi er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 3. og 4. hver lykkja slétt saman í þessu dæmi.

RENDUR:
* Prjónið 2½-3-3-3-3½-3½ cm með litnum gallabuxnablár, prjónið 5-5-5-5½-5½-5½.cm með litnum natur *, endurtakið síðan frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA Á ERMI:
Aukið út um 1 lykkju (= 2 nýjar lykkjur á hvorri ermi) þannig:
Á eftir A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Á undan A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.1.

LASKALÍNA Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Aukið út um 2 lykkjur (= 4 nýjar lykkjur á framstykki/4 nýjar lykkjur á bakstykki) þannig:
Á eftir A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Á undan A.2: Prjónið þar til eftir er 1 lykkja á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 1 lykkju (= 2 nýjar lykkjur á framstykki/2 nýjar lykkjur á bakstykki) þannig:
Á eftir A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Á undan A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Fram- og bakstykki skiptist við klauf og fram-/bakstykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 96-96-96-102-102-102 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 24-24-28-30-34-50 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 120-120-124-132-136-152 lykkjur.
Nú byrjar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Umferðin byrjar ca við miðju að aftan. Prjónið A.1 yfir fyrstu 22-22-22-24-24-28 lykkjur (= hálft bakstykki), prjónið A.2 (= 3 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= ermi), A.2, prjónið A.1 yfir næstu 42-42-44-46-48-56 lykkjur (= framstykki), A.2, prjónið A.1 yfir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur, A.2, prjónið A.1 yfir síðustu 20-20-22-22-24-28 lykkjur (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Mismunandi er aukið út á framstykki/bakstykki og á ermum þannig:
ERMI:
Aukið út í annarri hverri umferð alls 17-18-18-22-23-24 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 7-8-9-8-9-10 sinnum.
FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við A.2 í annarri hverri umferð alls 6-9-12-18-21-24 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í annarri hverri umferð alls 25-25-24-20-20-20 sinnum.

Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 364-396-424-476-512-560 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram hringinn án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-26-27-29-31 cm frá hálsmáli.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 61-67-72-82-88-98 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið A.1 yfir næstu 120-132-144-162-176-196 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið A.1 yfir síðustu 59-65-72-80-88-98 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 240-264-288-324-352-392 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið.
Haldið áfram með rendur og A.1 eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 19-19-19-20-20-20 cm frá skiptingu – stillið af þannig að endað sé á eftir rönd með litnum gallabuxnablár, prjónið með litnum natur til loka. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem auknar eru út 6-6-6-6-2-4 lykkjur jafnt yfir = 246-270-294-330-354-396 lykkjur. Nú skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 123-135-147-165-177-198 lykkjur. Prjónið síðan stroff frá réttu – þannig: 3 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 6 lykkjur, prjónið 3 lykkjur slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 9 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

BAKSTYKKI:
= 123-135-147-165-177-198 lykkjur. Prjónið á sama hátt og á framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjónum.
Setjið 62-66-68-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5. Haldið áfram með rendur eins og áður og mynstur A.1 yfir allar lykkjur. Þegar prjónuð hefur verið 1 rönd með litnum gallabuxnablár á ermi, haldið áfram með litnum natur til loka. Þegar stykkið mælist ca 7 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-0-2-4-2-0 lykkjur jafnt yfir = 60-66-66-72-78-84 lykkjur. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið í 9 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.05.2018
Efnismagn leiðrétt

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Riviera Stripes

Alison, United Kingdom

191-30 Riviera Stripes

jobeard, United States

191-30 Riviera Stripes

Alison, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag MARCEAU Claude wrote:

EST-CE QUE QUELQU\' UN A FAIT CE PULL ET AVEC COMBIEN DE PELOTES\r\nsvp\r\nmerci\r\nPULL N° 191 30 coloris naturel et bleu lavande

17.05.2018 - 19:27

country flag MARCEAU Claude wrote:

BONJOUR\\r\\nJE ME JOINS A GRIBOUILLETTE\\r\\net j\\\' attends avec impatience votre rectification, pour pouvoir commander\\r\\nMERCI

17.05.2018 - 15:40

country flag Carola wrote:

Hallo, auf dem Bild sieht es aus, als wäre mehr Garn in "natur" nötig, als in "jeansblau". In der Materialangabe steht es aber umgekehrt. Stimmt das so?

17.05.2018 - 08:35

DROPS Design answered:

Liebe Carola, Danke für den Hinweis, unser Designteam wird die Garnangabe mal prüfen. Viel Spaß beim stricken!

17.05.2018 - 09:11

country flag Gribouillette wrote:

Bonjour. Je trouve ce modèle magnifique ! un modèle estival "option mer" ! Je suis étonnée du nombre de pelotes citées pour chacune des deux couleurs. En regardant l'image du modèle, j'aurais pensé que la quantité "couleur naturelle" serait plus importante que la couleur "bleu jean". Il est annoncé 125 g pour la bleue, et 50 g pour la naturelle. Est-ce réellement le cas ? Merci de votre réponse.

16.05.2018 - 19:04

DROPS Design answered:

Bonjour Gribouillette, merci pour votre retour, nos stylistes vont vérifier les quantités et une correction sera alors faite. Bon tricot!

17.05.2018 - 08:24

country flag Adelheid Egger wrote:

Sehr geehrte Damen !Kann bei diesem Modell die Mengenagabe der Wolle stimmen:\r\nDROPS BRUSHED ALPACA SILK von Garnstudio (gehört zur Garngruppe C)\r\n125-125-150-150-175-175 g Farbe 13, jeansblau\r\n50-50-75-75-75-75 g Farbe 01, natur\r\n\r\nDas Modell schaut doch eher so aus , alswäre mehr vom Garn natur nötig.\r\nDanke\r\nLiebe Grüße\r\nAdeheid

15.05.2018 - 08:50

country flag M.E. Keijzer wrote:

Dag. Klopt het wel wat in het patroon staat aangegeven dat er veel meer denimblauw (125 gram) nodig is dan naturel (75 gram)? Ik heb heel sterk de indruk dat het andersom moet zijn dan wat aangegeven is. Er zit toch zeker veel meer naturel kleur in de trui dan blauw?

14.05.2018 - 20:38

DROPS Design answered:

Dag M.E. Keijzer, Dank voor het doorgeven! Het lijkt er inderdaad op dat de hoeveelheden voor blauw en naturel zijn omgedraaid. Het is al doorgegeven aan het designteam en er zal binnenkort waarschijnlijk een correctie op het patroon komen.

16.05.2018 - 17:00

country flag Pinny wrote:

La stessa domanda è postata da una utente in inglese. Le quantità dei colori bianco e blu sono invertite?\r\nGrazie

14.05.2018 - 09:47

DROPS Design answered:

Buongiorno Pinny. Sì molto probabilmente sono invertiti. E' stata mandata una segnalazione e il modello verrà corretto online. Grazie per la segnalazione. Buon lavoro!

14.05.2018 - 10:06

Heather wrote:

Are the counts for the number of balls reversed? It seems there is more white in this than the blue but you need more of the blue than the white in the requirements?

11.05.2018 - 16:10

DROPS Design answered:

Dear Heather, yes, they seem to be reversed. I will send your question to the Drops correction panel.

13.05.2018 - 13:04

country flag Rumpelstiltzchen wrote:

A perfect summer piece...on my list

28.12.2017 - 11:19

country flag Josiane Petitpretre wrote:

D' accord avec Cathy et en plus ça sent la mer !

15.12.2017 - 11:37