DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 185-5
DROPS Design: Mynstur ai-091
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-450-450-500-550 g litur 17, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 196 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 36) = 5,4.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ prjónanúmeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 196-214-226-242-258-288 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-42-42-42-42-48 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING að ofan = 160-172-184-200-216-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 80-86-92-100-108-120 lykkjur (= hliðar) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið mynstur þannig: Prjónið 23-26-29-33-37-43 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 34 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir þær 103-112-121-133-145-163 lykkjur sem eftir eru. Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 172-184-196-212-228-252 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 23-26-29-33-37-43 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 46 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir þær 103-112-121-133-145-163 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur, A.2 er endurtekið á hæðina til loka, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-6-7-4-5-6 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 8-8-8-9-9-9 cm millibili alls 5 sinnum = 192-204-216-232-248-272 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 4 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (= 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 86-92-98-106-114-126 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram með sléttprjón eins og áður, með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm fellið af miðju 24-24-26-26-26-28 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 30-33-35-39-43-48 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af – lesið AFFELLING. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 98-104-110-118-126-138 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram með mynstur eins og áður, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 56-58-60-61-63-65 cm fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir A.2 – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 86-92-98-106-114-126 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 12-12-14-14-14-16 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig í sléttprjóni, kantlykkjur eru prjónaðar eins og áður. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 30-33-35-39-43-48 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Fitjið upp 48-50-54-56-58-58 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-44 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 9-8-11-10-12-8 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚTAUKNING! Aukið svona út í 6.-6.-5.-5.-4.-4. hverri umferð alls 15-15-16-16-18-19 sinnum = 68-70-74-76-80-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 55-54-53-52-50-47 cm fellið af allar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkant þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón ofan á öxl. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 78-100 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 78-78-84-84-90-90 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Prjónið síðan 1 umferð brugðið, fellið af. Brjótið uppá kant í hálsmáli inn þannig að kanturinn verði ca 6 cm hár, saumið kantinn niður með smáu, fínu spori á innanverða peysu.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur brugðnar af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur brugðnar, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðna af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðna, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur brugðnar af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur brugðnar, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið einu sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið einu sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Ana Cecilia Ramirez wrote:

Jeg strikket ferdig genseren og ble ganske bra. Den ble gjennomvåt og ble utvidet. Den er helt ødelagt. Er det slik,at dette garn tåler ikke vann?

11.07.2019 - 23:19

DROPS Design answered:

Hei Ana Cecilia. Så trist å høre! Air skal tåle vann og håndvask helt fint, men det er viktig at plagget tørkes liggende/flatt, ellers kan det lett strekke seg (dette gjelder fler garntyper). Vi råder alltid til å lese vaskeanvisningen på banderolen nøye. Du kan finne god forklaring på vask av hvert enkelt garn om du trykker deg inn på de ulike garntypene her . hilsen DROPS

12.07.2019 - 07:46

country flag Ana Cecilia Ramirez wrote:

For,størrelse s i bolen økes til det er 192 masker. Om man beregner cm blir det 120 på breden. Men i diagrammet står at det skal bli 112 altså 8 cm lengre. Leser jeg feil?

29.03.2019 - 21:48

DROPS Design answered:

Hei Ana. Det stemmer at om du hadde strikket 196 masker glattstrikk hadde målene blitt 120 cm rundt. Men fordi du strikker flettemønster, og en flette trekker seg mer sammen enn glattstrikk, skal det stemme at du får 112 cm rundt. God fornøyelse

03.04.2019 - 09:56

country flag Ana Cecilia Ramirez wrote:

Garn farve 17 i Air drops virker gråelig på bildet. Er det sikkert at det er den farve? Som skal brukes?

02.02.2019 - 18:05

DROPS Design answered:

Hei Ana. Dette kan ha noe med lyssetting når bildet ble tatt (som du kan se er det solfylt på bildet). Det varierer også fra skjerm til skjerm hvordan faregene fremstår. Vi råder alltid til å gå i en butikk og se på garnene fysisk ved fargevalg. Du kan se på damemodellen, 184-11 av samme genseren for å se biler tatt under andre lysforhold. Om du ønsker en sterkere/lysere farge kan du vurdere farge 16, blå som er brukt på modell 194-10. God fornøyelse

08.02.2019 - 07:49

country flag Anita Weum Iversen wrote:

Mønster A1 har 6 masker økt i 1. Omg. Pp 2. Omg er det 12 masker ekstra? Skal mønsteret forlenges med en ekstra linje?

22.08.2018 - 12:25

DROPS Design answered:

Hei Anita. Det er 2 typer økinger på første omgang av A.1, 6 av hver =12 masker økt. De sorte ovalene (kast, neste omgang strikkes kastet vridd rett), og de hvite ovalene (kast, neste omgang strikkes kastet vridd vrang). Sistnevnte sitter mellom vrangmaskene – men de er litt vanskelige å se i diagrammet, vi skal få tegnet dette inn på nytt slik at de blir tydeligere. Takk for beskjed og god fornøyelse.

23.08.2018 - 09:46

country flag Elly Vereycken wrote:

Beste, Ikzit alvast bij patroon a1. Ik maak 6 keer een omslag in de eerste priem en moet 12 steken vermeerderd hebben. Ik snap dit niet. Kan u mij helpen aub

13.07.2018 - 21:17

DROPS Design answered:

Dag Elly, Het is niet zo heel duidelijk te zien, maar tussen de symbolen met het kruisje zit ook nog een open ovaal symbool = maak een omslag tussen 2 steken op de naald, brei op de volgende naald de omslag gedraaid averecht. Met deze erbij kom je op 12 meerderingen.

16.07.2018 - 12:42

country flag Eva Pap De Pestény wrote:

Herrtröja 185-5 Ärmlängden ar väl skrivits baklänges eftersom S är längre än XXXL

16.02.2018 - 18:31

DROPS Design answered:

Hej Eva, ärmlängden stämmer, då själva fram och bakstycket är bredare i de stora storlekarna. Lycka till!

20.02.2018 - 11:23

country flag Paola wrote:

Cucire le spalle all’interno del bordo di chiusura delle maglie in modo che ci siano 2 coste a legaccio sulla spalla: come faccio?

22.11.2017 - 11:47

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. Può cucire le spalle come è abituata. Provi a consulatre il video che le suggeriamo. In caso di difficoltà può cucire le parti seguendo il metodo che più la soddisfa. Buon lavoro!

22.11.2017 - 14:30

country flag Paola wrote:

Io sono sempre più confusa: 1) gli intrecci si fanno sia in andata che in ritorno? o una riga si e una riga no? 2) è la spalla di sx rispetto al motivo quella su cui intreccio al rovescio? Scusatemi tanto.

21.11.2017 - 10:49

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. Intreccia un ferro sì e uno no, quando la prima maglia del ferro è quella vicina allo scollo. Quindi, sulla spalla sinistra (inteso quando il maglione sarà indossato) intreccia sul rovescio del lavoro; sulla spalla destra, intreccia sul diritto del lavoro. Deve intrecciare le maglie indicate e poter proseguire sulle altre maglie senza tagliare il filo. Buon lavoro!

21.11.2017 - 11:55

country flag Paola wrote:

Quindi praticamente intreccio solo sui ferri di diritto! Ditemi se ho capito bene!

20.11.2017 - 23:47

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. Su una spalla, intreccia sui ferri sul diritto del lavoro, sull'altra intreccia sul rovescio del lavoro. Deve intrecciare all'inizio del ferro e proseguire con le altre maglie. Buon lavoro!

21.11.2017 - 08:32

country flag Paola wrote:

Vi prego aiutatemi con delle spiegazioni chiare, perchè non vorrei fare pasticci e finito lo scollo, devo solo attaccare le maniche e fare il collo e il maglione è finito....e fin'ora mi è uscito molto bello!

20.11.2017 - 23:05