DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dalvik

Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu fyrir herra með laskalínu, hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónaðri húfu með marglitu norrænu mynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Karisma.

DROPS 185-1
DROPS Design: Mynstur u-845
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf:
450-500-550-600-650-700 g litur 21, milligrár
100-150-150-150-150-150 g litur 16, dökk grár
50-100-100-100-100-100 g litur 05, svartur
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g 72, ljós perlugrár

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 21, milligrár
50-100-100-100-100-100 g litur 16, dökk grár
50-100-100-100-100-100 g litur 05, svartur
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 72, ljós perlugrár

HÚFA:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: 57/59 - 59/61 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50 g litur 01, natur
50-50 g litur 72, ljós perlugrár
50-50 g litur 21, milligrár
50-50 g litur 16, dökk grár
50-50 g litur 05, svartur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Karisma 69, 50, 56, 01, 55.
B) DROPS Karisma 55, 52, 56, 01, 77.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 230 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 46) = 5. Í þessu dæmi eru prjónaðar ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverri lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Lykkjum er fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki er staðsett hér, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.2.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 230-252-270-300-332-362 lykkjur á hringprjón 3 með litnum milligrár Karisma.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 46-50-50-60-70-72 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 184-202-220-240-262-290 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð er sett 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 92-101-110-120-131-145 lykkjur (= í hliðar). Nú er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út í hvorri hlið í 22.-23.-24.-24.-28.-28. hverri umferð alls 4 sinnum = 200-218-236-256-278-306 lykkjur. Þegar stykkið mælist 35-36-37-37-39-40 cm, fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 92-101-108-118-127-139 lykkjur eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 66-66-76-76-76-84 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum milligrár Karisma.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-18-22-22-22-24 lykkjur jafnt yfir = 48-48-54-54-54-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælis 6-7-9-7-6-10 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 10.-8.-9.-8.-7.-6. hverri umferð alls 12-14-12-14-16-16 sinnum = 72-76-78-82-86-92 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-48-48-46-47-46 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 8-8-10-10-12-14 lykkjurnar undir ermi = 64-68-68-72-74-78 lykkjur eftir í umferð. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 312-338-352-380-402-434 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Prjónið sléttprjón með milligrár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýring að ofan (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-3-3-3-3 sinnum = 296-322-328-356-378-410 lykkjur. Eftir síðustu umferð með úrtöku er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-34-24-32-36-32 lykkjur jafnt yfir = 272-288-304-324-342-378 lykkjur eftir í umferð. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð = 17-18-19-18-19-21 mynstureining í umferð). Lesið LEIÐBEININGAR! Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka (endið eftir umferð merktri með ör í mynsturteikningu fyrir rétta stærð) eru 119-126-133-126-133-147 lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram og prjóna kant í hálsmáli ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun.

UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA:
Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka með litnum dökk grár. Setjið 1 prjónamerki í miðju að aftan í hnakka. Prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 14-15-16-15-16-18 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-30-32-36 lykkjur brugðið til baka.
Snúið og prjónið 42-45-48-45-48-54 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-60-64-72 lykkjur brugðið til baka.
Snúið og prjónið 70-75-80-75-80-90 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 84-90-96-90-96-108 lykkjur brugðið til baka.
Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið 1 umferð slétt með litnum dökk grár þar sem fækkað er um 25-30-35-26-29-39 lykkjur jafnt yfir = 94-96-98-100-104-108 lykkjur í kringum kant í hálsmáli. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið 5 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 22-22-24-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 116-118-122-126-130-134 lykkjur. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón. Fellið laust af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Brjótið uppá kant í hálsmáli saman tvöfaldan og saumið niður að innanverðu, garðaprjón við garðaprjón.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 132-154 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk grár Karisma. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 24-34 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 108-120 lykkjur. Prjónið A.2 (= 9-10 mynstureiningar með 12 lykkjum) – lesið LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með litnum milligrár til loka. Þegar stykkið mælist 17-18 cm er fækkað um 8-0 lykkjur jafnt yfir í umferð og jafnframt eru sett 10 prjónamerki í stykkið með 10-12 lykkjur á milli hverra lykkja = 100-120 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 10 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9-11 sinnum = 10-10 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 5 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið enda. Húfan mælist ca 24-26 cm á hæðina.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.06.2018
Leiðrétting á mynsturteikningu A.2: Fyrsta og síðasta umferð er dökk grár
Yfirfarið á vefsvæði: 05.12.2019
Ný mynsturteikning: A.1 S + M + L: Umferð 39,53,54. A.1 XL + XXL + XXXL: Umferð 47,61,62.

Mynstur

symbols = natur
symbols = ljós perlugrár
symbols = milligrár
symbols = dökk grár
symbols = svartur
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Dalvik

Justyna, Poland

Dalvik

Andreas Spiliotopoulos, Greece

Dalvik

Mari, Finland

Dalvik

Katie, United States

Pullover Dalvik sweater

Sonja, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (87)

country flag Jayne Isbister wrote:

Jeg har strikket denne trøje i str xxxl, men men...den er lige en str for lille til min mand😭 Hvordan kan jeg regne maske antal og mønster ud så den kan passe til en xxx l?

05.02.2021 - 13:39

DROPS Design answered:

Hej Jayne, åhh det var synd! Du finder trøjens mål i måleskitsen nederst i opskriften, men husk at for at få målene (i måleskitsen) er det vigtigt at du holder den strikkefasthed som står i opskriften. God fornøjelse!

05.02.2021 - 15:20

country flag Chrysa M Cullather wrote:

I am stuck on the neckline. The pattern says to decrease stitches then knit a ridge, then increase stitches and "continue" the rib. There are no instructions for the 1 x 1 rib between the decrease and the ridge. Please assist.

23.01.2021 - 16:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cullather, for neck knit first 1 round decreasing stitches, then work 2 ridges = knit 1 round, purl 1 round, knit 1 round, purl 1 round while increasing evenly on this purl round. Now work K1 /P1 in the round for 8 cm (to work K1/P1, work first round with K1, P1 and then always K over K and P over P). Happy knitting!

25.01.2021 - 08:45

country flag Anne wrote:

Hallo, Ist es möglich diesen Pullover auch von oben beginnend zu stricken.? Liebe Grüße

03.01.2021 - 18:34

DROPS Design answered:

Liebe Anne, wahrscheinlich können Sie den Pullover so umrechnen, um ihn von oben nach unten zu stricken - oder hier finden Sie unsere Anleitungen für Herren Pullover, von oben nach unten gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

05.01.2021 - 09:23

country flag Dea wrote:

Buonasera, c'è un errore in questa frase "Completo formato da: maglione da uomo lavorato ai ferri con sprone arrotondato e motivo multicolore nordico, lavorato dall’alto in basso e cappello da uomo lavorato ai ferri con motivo multicolore nordico. Taglie: S - XXXL. Lavorati in DROPS Karisma." in realtà è lavorato dal basso verso l'alto come indicato nella spiegazione.

22.11.2020 - 21:27

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea, abbiamo adeguato il titolo alla versione inglese. Grazie per la segnalazione. Buon lavoro!

23.11.2020 - 11:58

country flag Gitte Stefansen wrote:

Forstår ikke hvad der menes med at man skal se forklaringen over når jeg skal igang med halskanten? Hvor der skiftes til pinde nr 3.

24.10.2020 - 14:16

DROPS Design answered:

Hei Gitte. Det er en henvisning til hvordan RETSTRIK skal strikkes, før det fortsettes med rib. mvh DROPS design

25.10.2020 - 20:44

country flag Karin Raaen wrote:

Jeg skal strikke Davik i står L til herre. Han jeg skal strikke til liker ikke at den blir smalere etter vrangborden. Hvordan blir det hvis jeg legger opp likt antall masker til vrangborden som det antall masker som blir igjen når bolen er ferdig med å legge ut masker? Altså hvis jeg legger opp 236 masker og ikke feller og ikke øker

30.09.2020 - 12:31

DROPS Design answered:

Hei Karin. Det kan du, men det at du har flere masker til vrangborden for så å felle før du begynner bolen, vil gjøre det slik at det blir en penere overgang mellom vrangbord og bol. Men om ønskelig kan du etter vrangborden kun felle det maskeantallet du må ha når du begynner på bærestykket. Slik at det ikke blir noen fellinger opp til bærestykket (sidene blir rette). Alså, i str. L, legg opp 230, strikk vrangbord, fell 34 masker = 236 masker. God Fornøyelse!

05.10.2020 - 10:20

country flag Grete wrote:

Skal det strikkes raglan annenhver omgang pluss rundfelling som angitt i mønster?

26.08.2020 - 13:18

DROPS Design answered:

Hej Grete, du starter med raglan og tager derefter ind til rundfelling ifølge opskriften. God fornøjelse!

27.08.2020 - 14:51

country flag Wendy Jackson wrote:

I’m at the point where I’m putting sleeves onto the same needle with front and back. Im struggling to knit the sleeve stitches as they are so tight (they are a curve). How do I proceed. Also where I decrease at each side of the arms how do I keep my tension from being too loose at each join? Thank you

26.08.2020 - 08:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jackson, this video shows how to put sleeves on the same needle as body to work yoke, the first rounds might be somewhat tricky, but after some rounds it will work nice. For the first rounds you can get helped with another circular needle (work for example with 2 circular needles in the round) - your DROPS store might have even more tips for you, don't hesitate to ask them even per mail or telephone. Happy knitting!

26.08.2020 - 08:40

country flag COURAUD wrote:

Bonjour, J'ai commencé le modèle Taille L pour mon mari et si je compare vos mesures avec celle de ses pulls la longueur sous bras = 37cm est courte. La hauteur totale de ses pulls est plutôt de 68cm alors que vous donner 62 pour taille L. Est ce que 62cm c'est avec les côtes ? Merci de votre réponse Laurence

01.04.2020 - 17:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Couraud, les 62 cm en taille L sont bien la hauteur totale: 7 cm de côtes + 30 cm avant les emmanchures + 2 cm de raglan + 19 cm d'empiècement + 4 cm d'épaules = 62 cm. Vous pouvez choisir d'allonger le pull en vous inspirant d'autres modèles de pulls du groupe B par exemple. Votre magasin devrait pouvoir également vous aider si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

02.04.2020 - 07:40

country flag Tina Damgaard wrote:

Er ved at strikke Dalvik sweater i str M. I diagram A1, pind 39 skal man lukke 2 masker af i diagram = 9 masker x 18 = 162 masker på pinden. På pind 40 i diagram er der en maske for meget ? 10 masker til mønstret ? Læser jeg diagrammet forkert ?

30.03.2020 - 19:32

DROPS Design answered:

Hej Tina, på pind nr 39 mangler der en maske, der skal være 12 masker som på pinden før og der skal nu tages 2 masker ind for hver rapport (4 ret masker imellem hver indtagning). Tak for info, så retter vi diagrammet :)

16.04.2020 - 15:39