DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3129.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Spring Rain

Prjónuð peysa með kanti í öldumynstri, ¾ ermum, laskalínu og röndum á berustykki úr DROPS Fabel. Stærð S - XXXL.

DROPS 177-25
DROPS Design: Mynstur fa-367
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-450 g litur 100, natur
50-50-50-100-100-100 g litur 914, strönd

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð og 24 lykkjur og 40 umferðir með áferðamynstri (A.5) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – fyrir kant á ermum og garðaprjón í kringum háls.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3129.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 12 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 20 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 20 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt út í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 8. Í þessu dæmi þá er prjónuð 7. og 8. hver lykkja saman.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir slétt svo að ekki myndast göt.

LASKALÍNA:
Fækkið fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki eru prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 399-420-462-483-525-567 lykkjur á hringprjón 3 með litnum natur. Prjónið A.1 hringinn (= 19-20-22-23-25-27 mynstureiningar 21 lykkja). Þegar A1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 361-380-418-437-475-513 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 hringinn (= 19-20-22-23-25-27 mynstureiningar 19 lykkjur). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.3 prjónað hringinn (= 19-20-22-23-25-27 mynstureiningar 19 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 323-340-374-391-425-459 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.4 hringinn, en í síðustu umferð í A.4 er fækkað um 5-0-10-1-3-5 lykkjur jafnt yfir í viðbót við úrtöku í mynstri – LESIÐ ÚRTAKA-1. Eftir A.4 eru 280-300-320-344-372-400 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 140-150-160-172-186-200 lykkjur (= í hliðum). Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið svona með 1 cm millibili alls 20 sinnum í hvorri hlið = 200-220-240-264-292-320 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 40 cm í öllum stærðum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 94-104-112-124-136-148 lykkjur sléttprjón (= framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 94-104-112-124-136-148 lykkjur með sléttprjóni (= bakstykki) og fellið af þær 3-3-4-4-5-6 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 60-62-64-68-70-72 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum natur. Prjónið A.6 hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út í 12.-8.-5.-5.-4.-4. hverri umferð alls 8-12-16-16-18-19 sinnum = 76-86-96-100-106-110 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-36-34-32-31-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 6-6-8-8-10-12 lykkjurnar mitt undir ermi (3-3-4-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 70-80-88-92-96-98 lykkjur í umferð. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón 3 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 328-368-400-432-464-492 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið rendur í hring eins og útskýrt er í A.5. JAFNFRAMT í 5. umferð í A.5 (þ.e.a.s. umferð með sléttum lykkjum) er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 5-5-5-7-7-8 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 18-22-26-26-30-32 sinnum = 144-152-152-168-168-172 lykkjur eftir á prjóni.
Á eftir síðustu úrtöku fyrir laskalínu er prjónuð 1 umferð slétt. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 2,5 og litinn natur og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-26-26-32-32-36 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-2 = 126-126-126-136-136-136 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt með natur
symbols = brugðið með natur
symbols = slétt með strönd
symbols = brugðið með strönd
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Coraline wrote:

Bonjour Il n’y aura pas de différence entre le dos et le devant au niveau du raglan ? Merci

03.06.2019 - 18:29

DROPS Design answered:

Bonjour Coraline, le dos et le devant sont identiques au niveau du raglan. Bon tricot!

03.06.2019 - 19:24

country flag Coraline wrote:

Bonjour je ne comprends pas « Diminuer de cette façon 5-5-5-7-7-8 fois au total tous les 4 tours, et 18-22-26-26-30-32 fois tous les 2 tours = 144-152-152-168-168-172 mailles.  » Tous les 2 tours on fait l’étape Raglan de 8 diminutions Mais tous les 4 tours ? On fait 2 fois l’étape du raglan ? 16 diminutions donc tous les 4 rangs ? Merci

03.06.2019 - 18:22

DROPS Design answered:

Bonjour Coraline! Si tu diminues tous les 4 tours, tu diminues toujours 8 mailles par tour (on fait l’étape Raglan, le meme que tous les 2 tours). Bon tricot!

03.06.2019 - 19:45

country flag Anne wrote:

Hva er kyst?

26.02.2019 - 09:30

DROPS Design answered:

hei Anne. Det er fargenavnet på mønsterfargen, så det forteller deg hvilken farge du skal bruke. God fornøyelse

26.02.2019 - 14:52

country flag Dagmar Thiel wrote:

Liebes Drops- Team, ich verstehe nicht, das man beim Rumpfteil nach 40 cm Höhe für alle Größen die Arbeit schon teilen soll. Laut Diagramm sind es 62 cm? Über eine kurze Information würde ich ich freuen! Viele Grüße! Dagmar Thiel

25.01.2019 - 17:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Thiel, in jede Grösse mist das Rumpfteil 40 cm, dann stricken Sie eine unterschiedliche Höhe für die Passe, z.B. in der 1. Grösse: 40 cm Rumpfteil + 22 cm Passe vom Schulter = 62 cm Gesamthöhe vom Schulter bis unteren Rand. Viel Spaß beim stricken!

28.01.2019 - 08:47

country flag DENIS wrote:

Bonjour, J'ai un problème avec l'échantillon. Comme je tricote serré j'ai utilisé les aiguilles n° 4 pour le faire. J'obtiens le bon nombre de rangs mais j'ai 2 mailles en trop. Si je prends du 4,5, j'aurai trop de rangs. Avez vous une astuce ? Merci de votre réponse. Cordialement Laurence

26.09.2017 - 13:29

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, vous pouvez dans un premier temps laver et faire sécher votre échantillon pour vérifier les mesures après lavage, puis ajuster la taille des aiguilles en conséquence. Si vous obtenez la bonne largeur mais pas la bonne hauteur, vous pouvez ajuster la hauteur du raglan en conséquence (par exemple s'il c'est toujours trop serré, tricotez des rangs supplémentaires à intervalles réguliers entre les rangs de diminutions du raglan), vous pourrez ainsi recalculer le nombre de rangs supplémentaire à faire pour vous permettre d'avoir les bonnes mesures. Bon tricot!

26.09.2017 - 14:59

country flag Fab wrote:

Bonjour, Je n'arrive pas à comprendre le nombre de mailles indiquées au départ. Si on prend 24 mailles pour 10 cm, alors pour la taille S, 2x58 cm pour un tour complet, ne devrait il pas faire 116x2,4= 279 mailles soit 294 mailles pour un multiple de 21 pour le diagramme? Du coup, avec les 399 mailles indiquées, je suis un peu perdue. Merci d'avance pour votre aide.

28.05.2017 - 14:33

DROPS Design answered:

Bonjour Fab, l'échantillon se tricote en jersey, si vous avez bien 24 m = 10 cm de large, quand vous ferez le point de vagues du bas du pull, vous aurez la bonne largeur (il faut un peu plus de mailles pour 10 cm pour ce type de motifs). Bon tricot!

29.05.2017 - 09:57

country flag Veronika wrote:

Hei, hvis man ser på siste del av bolen der man skal felle 3 masker, strikke 104, felle 6 masker, og deretter de 3 siste når man har kommet rundt igjen. Når jeg da skal overføre armene har jeg jo en maske i mellom der jeg felte 3 på starten og 3 på slutten... får det ikke til å stemme når jeg da skal sette på armen... burde man ikke da (som på armen) starte 3 masker før merketråden, slik at det ikke blir noen maske i midten. Første genseren min, så dette gav meg skikkelig hodebry.

02.05.2017 - 01:20

DROPS Design answered:

Hei Veronika. Etter du har felt de siste 3 maskene kan du klippe tråden. Når du setter på ermene på samme rundpinne som bolen, kan du strikke videre med tråden du har brukt på ermet. God Fornøyelse!

04.05.2017 - 10:48

country flag Emma wrote:

Hej! Jag undrar om arbetet verkligen ska stickas till 40 cm för att därefter maska av - med tanke på bilden med måtten så känns det lite kort?

02.03.2017 - 14:22

DROPS Design answered:

Hej Emma. Det er kun til aermegabet, saa skal du strikke aermerne og herefter saette alt ind paa ind pind og strikke baerestykket. Saa den hele höjde er mere :)

02.03.2017 - 15:27

country flag Nina wrote:

My favorite!

16.12.2016 - 10:27