DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Bedtime Stories

Prjónuð vafningspeysa fyrir börn í garðaprjóni og með hekluðum kanti úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar - 4 ára

DROPS Baby 25-11
DROPS Design: Mynstur nr bm-045-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: (40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
(100) 150-150-150-150 (200-200) gr litur nr 02, natur
(50)-50-50-50-50 (50-50) gr litur nr 23, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir kant og snúru.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónað er upp að öxl. Seinna framstykkið er prjónað og síðan eru framstykkin tvö sett saman og prjónað er niður yfir bakstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið LAUST upp (34) 37-44-48-52 (55-62) l á hringprjóna nr 3 með litnum natur og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist (9) 12-16-16-17 (20-23) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu, fækkið um 1 l fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju frá byrjun umf – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), (17) 17-21-23-25 (27-31) sinnum til viðbótar (= alls (18) 18-22-24-26 (28-32) úrtökur, fækkið síðan lykkjum í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 2 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm eru fitjaðar upp nýjar l í lok umf frá hlið fyrir ermi þannig: (3) 4-6-6-6 (6-6) l alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og síðan (16) 19-19-18-19 (23-26) l 1 sinni. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru (42) 52-63-70-79 (90-102) l á prjóni fyrir öxl/ermi.
Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (20) 24-28-30-32 (36-40) cm. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju á prjóni = mitt ofan á öxl. Héðan er nú mælt – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok umf við hálsmál, endurtakið útaukningu í næstu umf við hálsmál = (46) 56-67-74-83 (94-106) l (síðasta umf = ranga). Setjið allar lykkjur á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd (þ.e.a.s. að lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í lok umf frá réttu (í stað byrjun umf frá réttu). Að auki er prjónuð 1 umf slétt frá röngu í lokin á framstykki eftir að fitjaðar hafa verið upp l við hálsmál þannig að síðasta umf bæði á hægra og vinstra framstykki eru prjónaðar frá röngu.

BAKSTYKKI:
Prjónið inn vinstra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu), fitjið upp (8) 8-10-10-12 (14-16) nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu) = (100) 120-144-158-178 (202-228) l.
MÆLIÐ NÚ STYKKI FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM.
Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka.
Þegar stykkið mælist (6) 7-7-7½-8 (9-9) cm fellið af ermalykkjur þannig: Fellið af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: (16) 19-19-18-19 (23-26) l 1 sinni og (3) 4-6-6-6 (6-6) l alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum = (44) 50-58-62-68 (72-80) l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (20) 24-28-30-32 (36-40) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að framstykkin og bakstykkið séu jafn löng – fellið síðan laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann.

HEKLAÐUR KANTUR.
Heklið með heklunál nr 2,5 með litnum ljós beige í kringum allt opið á peysunni þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir ca 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* en þegar komið er að horni þar sem úrtaka byrjar fyrir hálsmáli er hekluð snúa / band þannig: Heklið 1 fl í oddinn, heklið síðan ll í ca 20-25 cm, snúið við og heklið 1 kl í hverja ll til baka, heklið síðan 1 fl í oddinn aftur á framstykki, haldið áfram að hekla kantinn í kringum peysuna fram að oddi á hinu framstykki, heklið snúru / band eins og á fyrra framstykki, heklið síðan í kringum afganginn af peysunni og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í fyrstu ll, * 4 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fl + 1 ll + 1 fl, heklið 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn (passið að heklað sé yfir snúruna / bandið þannig að snúran / bandið liggi neðst), endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf.
Heklið umferð 1. og umferð 2. alveg eins neðst niðri í kringum báðar ermar.
Heklið síðan 1 snúru / band alveg eins í hvert horn að innan verðu við sauminn í hægri hlið og að utanverðu við sauminn í vinstri hlið – passið uppá að snúrurnar/ böndin verði í sömu hæð og hornin á framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.04.2018
Útskýring hefur verið bætt varðandi prjónamerki á öxl og hekluðum kanti í kringum ermar.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Bedtime Stories

Kristin Nordal, Norway

Bedtime Stories

Kristin Nordal, Norway

Bedtime Stories

Joan, United States

Bedtime Stories

Stef Tren, Spain

Bedtime Stories

Aleksandra, Norway

Bedtime Stories

Maria, Netherlands

Bedtime Stories

Daniela, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (229)

country flag Huma Ali wrote:

Is there a complete step by step video tutorial of this baby wrap cardign

22.10.2023 - 16:35

DROPS Design answered:

Dear Huma, all relevant videos for making this pattern can be found after the pattern instructions; in the videos section. Happy knitting!

23.10.2023 - 00:20

country flag Jane Røsgaard wrote:

Jeg savner oppskriften på lua som er på bildet.

26.09.2023 - 22:53

DROPS Design answered:

Hej Jane, Huen hedder DROPS Baby 25-10, du finder den på billedet nedenfor i opskriften :)

29.09.2023 - 14:09

country flag Juju wrote:

Bonjour, je tricote le devant droit et je fais la taille 1-3 mois . Je n’arrive pas à comprendre l’étape d’augmentation : faire 4x6 + 1x19 , cela veut il dire que je dois augmenter de 43 mailles ?

26.08.2023 - 15:27

DROPS Design answered:

Bonjour Juju, tout à fait, vous montez 43 mailles au total pour la manche (4 x 6 mailles + 1 x 19 mailles). bon tricot!

28.08.2023 - 16:45

country flag Sima wrote:

Si j’ai bien compris on dois travailler le dernier Rang sue l’envers avant de mettre les mailles sur un arrêt de mailles chose que je n’ai pas faites car je me retrouve avec les demi devant sur l’envers 😊 c’est ça merci de m’éclairer

21.08.2023 - 15:09

DROPS Design answered:

Bonjour Sima, pour commencer le dos sur l'endroit, vous devez effectivement terminer le devant gauche (et le devant droit aussi) après un rang sur l'envers, ainsi, après ce dernier rang sur l'envers, vous tournez et tricotez les mailles du devant gauche sur l'endroit, puis vous montez les mailles de l'encolure dos et tricotez les mailles du devant droit aussi sur l'endroit (ainsi pas de décalage dans le point mousse). Bon tricot!

21.08.2023 - 15:18

country flag Sima wrote:

Bonjour svp je n’ai pas compris ce passage : D’os: Tricoter les mailles du devant gauche sur l'aiguille circulaire (= à l'end sur l'endroit) est ce qu’ils y aurait pas une vidéo qui explique bien merci

21.08.2023 - 15:01

DROPS Design answered:

Bonjour Sima, ce gilet se tricote en commençant par le devant droit (on met les mailles en attente quand on a monté les mailles de l'encolure dos), puis on tricote le devant gauche, et, à la fin du devant gauche, on va tricoter les 2 devants ensemble en montant en même temps les mailles de l'encolure dos, autrement dit: tricotez les mailles du devant gauche, montez les mailles indiquées pour l'encolure et tricotez les mailles du devant droit. Vous tricotez maintenant le dos de haut en bas, vous rabattrez les mailles des manches et continuerez jusqu'à ce que le dos ait la même hauteur que le devant. Bon tricot!

21.08.2023 - 15:14

country flag Malin wrote:

Jag håller med Martine från Norge, 23.07.2023 - 18:09, om att det är något som inte stämmer i räkningen med mått 1/3 månader, titta gärna igenom och fixa. För det vi läser är att man ska lägga upp 44 maskor i början på arbetet.

05.08.2023 - 12:47

country flag Martine wrote:

Jeg lurer på om det kan være en feil i oppskriften til høyre forstk. Jeg strikker for str 1/3 mnd og etter alle økninger og fellinger står det at det skal være 63 m på p til skulder/ erme, men da går ikke regnestykket opp: Jeg la opp 44 masker, felte 1 m 22 ganger og økte 6 m totalt 4 ganger og deretter 19 m 1 gang. 44-22+6+6+6+6+19=65. Hva gjør dere med de to ekstra maskene?

23.07.2023 - 18:09

DROPS Design answered:

Hei Martine, I størrelse 1/3 mnd, skal du legge opp 37 masker (tall nr 2 i rekken). Deretter skal du felle til halsen 1 maske x 18 + 1 maske x 2 = 20 maske felt. Samtidig skal du legge opp 4 x 4 masker i siden + 19 masker = 35 økte masker. Da har du 37 - 20 + 35 = 52 masker igjen på skulderen. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

24.07.2023 - 06:48

country flag Sherill wrote:

I have finished both the right and front piece and am now joining them on 1 circular needle after casting on 8 stitches. Do I only knit back and forth between the markers I have placed in the center of each piece? Or do I knit 1 full row and then between the markers only? HELP! Thanks!

09.06.2023 - 02:33

DROPS Design answered:

Dear Sherill, you now work back piece over all stitches (left front piece + the new stitches cast on in between + right front piece), the markers on the shoulders both front piece mark the middle on top of shoulder and will be used to measure piece from. Happy knitting!

09.06.2023 - 09:15

country flag Ingrid Wendel wrote:

Ich komme mit der Maschenzahl am Rücken nicht zurecht.Ich habe die Maschen vom Halsausschnitt noch .Das sind doch dann 58 plus 14.

05.06.2023 - 20:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wendel, stricken Sie die 6. Größe? dann stricken Sie das Rückenteil mit den Maschen vom linken Vorderteil (94 M) + 14 neuen Maschen für den Halsausschnitt + den Maschen vom rechten Vorderteil (94 M) = 202 Maschen. Dann nach 9 cm werden Sie die Maschen von den Ärmeln an beiden Seiten abketten, bis 72 Maschen noch übrig sind. Kann das Ihnen helfen oder missverstehe ich Ihre Frage?

06.06.2023 - 09:01

country flag Maria Mol wrote:

Volgens de beschrijving heb ik voor 1-3 maanden 150 gr dus 3 bollen van de basiskleur nodig. Gelukkig heb ik 4 bollen gekocht. Kom maar net uit. Garenindicatie klopt niet voor dit patroon.

03.04.2023 - 22:31