DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 108-7
DROPS Design:
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Þetta mynstur er hægt að prjóna sem pils, topp eða kjól.

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio

Kjóll:
450-500-550-600-650-700 g litur nr 0506, koksgrár
Pils:
300-350-400-400-450-500 g litur nr 0506, koksgrár
Toppur:
250-250-300-350-350-400 g litur nr 0506, koksgrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 - eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 19 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 4
DROPS HEKLUNÁL NR 5

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STROFF:
* 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS / KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón.

PILS / KJÓLL:
Fitjið upp 168-184-188-202-210-231 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað um 42-46-38-40-30-33 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s í ca 4.-4.-5.-5.-7.-7. hver lykkja fækkuð (fækkið lykkjum með því að prjóna saman 2 lykkjur slétt) = 126-138-150-162-180-198 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með stroff.

Pils: Fellið af þegar stroffið mælist 18 cm, pilsið mælist alls 58-59-60-61-62-63 cm.

TOPPUR:
Fitjið upp 126-138-150-162-180-198 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið stroff í 18 cm. Fylgið síðan uppskrift fyrir kjól.

Kjóll: Þegar stroffið mælist 18 cm er prjónuð 1 umferð slétt og 1 umferð brugði'ð. Skiptið yfir á hringprjón 6 og haldið áfram með sléttprjón. Þegar stykkið mælist 33 cm, fellið af 6-6-6-8-8-10 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = 57-63-69-73-82-89 lykkjur eftir á framstykki og á bakstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 57-63-69-73-82-89 lykkjur. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð: 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-3-5-4-5-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-38-38-39-39-40 cm setjið miðju 15-15-17-17-18-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið síðan af í byrjun á umferð, við hálsmál þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 7-7-7-8-9-10 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm. Allur kjóllin mælist nú 92-94-96-98-100-102 cm.

BAKSTYKKI:
= 57-63-69-73-82-89 lykkjur. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á framstykki = 49-49-51-53-56-59 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm fellið af miðju 27-27-29-29-30-31 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun á hverri umferð, við hálsmál þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 7-7-7-8-9-10 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið er jafn langt og framstykki.

FRÁGANGUR (toppur/kjóll):
Saumið axlasauma.

KANTUR HÁLSMÁL:
Prjónið upp 132-132-138-138-144-144 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) í kringum hálsmál á hringprjón 4 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Haldið áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 7 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR ERMI:
Prjónið upp 84-90-96-102-108-114 lykkjur í kringum handveg á hringprjón 4 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Haldið áfram með stroff.
Eftir 2 umferðir stroff eru felldar af 6 lykkjur neðst í handvegi. Prjónið áfram fram og til baka – JAFNFRAMT eru felldar af 3 lykkjur í byrjun á hverri umferð þar til kanturinn mælist 3 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru.

FRÁGANGUR (pils/kjóll):
Heklið með heklunál 5 með 2 þráðum Alpaca neðst í kringum pilsið þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 108-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (87)

country flag Vel wrote:

Ich würde dieses Kleid so gerne mit Cotton Merino Stricken, bin aber nicht sicher, wie ich das mit der maschenzahl machen soll. Kann ich garngruppe b mit einfachem Faden in einer größeren Größe lt. Anleitung machen? ZB statt s die Anleitung in l. Oder besser doppelter Faden, kleinere nadelgröße aber richtige Größe?

31.01.2016 - 21:35

DROPS Design answered:

An sich können Sie das Garn nicht als Ersatz verwenden, da es in Garngruppe B gehört, Alpaca doppelfädig wäre 2 x Garngruppe A oder als Ersatz Garngruppe C 1-fach. Es ist daher etwas riskant, wenn Sie das Garn trotzdem verwenden möchten, Ihre Vorschläge sind zwar theoretisch alle möglich, aber es ist nicht garantiert, dass das Kleid dann tatsächlich die passende Größe bekommt, und gerade bei diesem Modell ist es ja wichtig, dass es gut sitzt. Nehmen Sie lieber 2 Garne der Gruppe A oder ein Garn der Gruppe C.

03.02.2016 - 20:15

country flag Katharina wrote:

Kann ich dieses Kleid auch mit Alpaca Boucle' stricken? Das wäre dann 1 Faden mit Garngruppe C anstatt 2 Fäden mit Garngruppe A, wie hier angegeben. Würde das funktionieren? Danke.

02.01.2016 - 16:43

DROPS Design answered:

Ja, das geht. Beachten Sie, dass Sie die Garnmenge anhand der Lauflänge berechnen und anpassen müssen. Da Sie mit A doppelfädig stricken, brauchen Sie bei C nur die Hälfte der Lauflänge, also z.B. für Größe S: 450 g Alpaca = 9 x 50 g = 9 x 167 m = 1503 m, durch 2 = ca. 750 m. Auf Alpaca Bouclé (50 g = 140 m) umgerechnet sind das 6 Knäuel, für Größe S. Beachten Sie außerdem, dass Sie die Maschenprobe einhalten und dass das Kleid aufgrund der anderen Garnstruktur von Alpaca Bouclé einen anderen "Charakter" bekommt.

03.01.2016 - 16:23

country flag Michaela wrote:

Ich bin fast fertig mit dem Kleid und es wird toll! Allerdings rollt sich der Saum stark ein. Was kann ich dagegen machen? Vielen Dank im Voraus!

07.12.2015 - 19:40

DROPS Design answered:

Sie können das Kleid bzw. den unteren Rand unter feuchten Tüchern trocknen lassen oder den Saum anfeuchten und mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage feststecken und trocknen lassen. Das wirkt dem Einrollen entgegen.

09.12.2015 - 21:50

country flag Karin wrote:

Det franska svaret är inte bra; man ska börja maska av 4 m innan 1a markören, annars blir det ju hack i denna och tråden hamnar mitt i arbetet.

10.09.2015 - 19:13

country flag Tricotteuse wrote:

Bonjour, j'aimerais savoir ou je dois rabattre les mailles quand les instructions donnent à 33cm des côtes rabattre 8 mailles de chaque côté. Est-ce que je dois rabattre 8 mailles au début du tour et 8 mailles à la fin? Merci

10.09.2015 - 14:41

DROPS Design answered:

Bonjour Tricotteuse, on rabat les mailles des 2 emmanchures: placez 2 marqueurs, 1 au début du tour et l'autre à la moitié des mailles. Rabattez ensuite les 4 premières m, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 4 m avant le 2ème marqueur, rabattez les 8 m suivantes (= 4 m avant+ 4 m après le marqueur), continuez jusqu'à ce qu'il reste 4 m, rabattez les 4 dernières m. Continuez ensuite chaque partie (devant & dos) séparément, en allers et retours. Bon tricot!

10.09.2015 - 17:12

country flag Iris Bellekens wrote:

Maat:M Ik heb zelf zitten puzzelen en denk dat het zoiets is. Aan beide kanten 6 steken afkanten. Werk opsplitsen in voor en achterkant dan verder afkanten. 2*2 steken aan beide kanten van voor en achterpand en dan nog 3*1 steek daarna afkanten beide kanten zowel voor als achterpand. Dan kwam ik op de 49 steken dat er dan nog over zijn. 6+2+2+1+1+1=13 en dan andere kant 2+2+1+1+1= 7 Dus 69 -20= 49 steken Ik heb daar stevig op zitten puzzelen denk dat het zo hoort.

28.01.2015 - 18:32

DROPS Design answered:

Hoi Iris. Ja, dat klopt. Je moet het patroon zo lezen: Je breit in de rondte en hebt 138 st = 69 voor elk pand. Dan moet je 6 st aan beide zijkanten afkanten voor de armsgaten (= 3 st op elk pand) = 63 st over op voor- en achterpand. Kant vervolgens af aan beide zijkanten van het pand zoals beschreven: 2 keer 2 st en 3 keer 1 st = 14 st in totaal = 49 st over.

29.01.2015 - 14:36

country flag Iris Bellekens wrote:

Ik zit een beetje vast met het afkanten voor de armsgaten. Als ik alle steken optel dat je moet afkanten voorpant: 1-2-2-3-4-5 x 2 st en 2-3-5-4-5-5 x 1 st. Kom ik op 51 steken afkanten. dan heb ik nog maar 12 steken over voor de hals en de schouders en dat klopt niet.

28.01.2015 - 11:04

DROPS Design answered:

Hoi Iris. Kan je misschien aangeven welke maat je breit? Dan kan ik sneller meekijken en uitleggen. bvd.

28.01.2015 - 16:17

country flag AMOR MAGALI wrote:

Bonjour, Puis-je utiliser la laine drops alpaca pour faire ce modèle sur une machine à tricoter ? Merci de vos conseils Cordialement MAGALI AMOR

19.12.2014 - 18:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Amor, Consultez la notice de votre machine à tricoter pour savoir quelle type de tension elle peut utiliser. Ce modèle se tricote avec 2 fils Alpaca (= fil en double) sur la base d'un échantillon de 15 m x 19 rangs = 10x 10 cm. Bon tricot!

22.12.2014 - 14:57

country flag Karin-Beate Busch wrote:

Schönen guten Tag, ich würde dieses Kleid gern mit Ärmeln stricken und wüsste gern, wie viel Wolle ich ungefähr zusätzlich kaufen muss. Haben Sie da eine ungefähre Idee? Vielen Dank! Herzliche Grüße

20.10.2014 - 10:26

DROPS Design answered:

Liebe Karin-Beate, je nach Grösse und Ärmelschnitt benötigen Sie von doppelt verstricktem Alpaca für die Ärmel 4-6 Knäuel. Ich würde Ihnen empfehlen, genügend zu kaufen, damit Sie nachher keine Probleme mit dem Farbbad bekommen.

27.10.2014 - 09:55

country flag Daurat Marie-Hélène wrote:

Bonjour . J' ai décidé de tricoter le haut séparément et j' aimerais ajouter des manches au pull .Pourriez-vous me guider SVP ou me conseiller ? Merci pour votre attention .MH

17.03.2014 - 09:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Daurat, vous pouvez vous inspirer d'un modèle de pull ou de gilet de syle similaire avec cette tension. Bon tricot!

17.03.2014 - 09:56