Sleeping Roses Jacket |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóns lykkjum í berustykki og blöðru ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-17 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 259 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 249 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 24,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 25. hverja lykkju. Aukið ekki út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 24. og 25. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum): Hægt er að stilla af lengdina á ermunum eins og útskýrt er í uppskrift, en passið uppá að lengdin á ermum á að vera aðeins lengri en venjulega til að ermarnar komi til með að poka aðeins neðst niðri. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-8-8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða það er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 89-95-98-101-107-110 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: S, M og L: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 141-151-156 lykkjur í umferð. XL, XXL og XXXL: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 191-203-209 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, það á að mæla berustykkið frá prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 26-28-29-30-32-33 mynstureiningar með 5-5-5-6-6-6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja), og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-9-10-10-11-11 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1A yfir fyrstu 5-5-5-6-6-6 lykkjur, prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 25-27-28-29-31-32 mynstureiningar með 5-5-5-6-6-6 lykkjur), haldið áfram með A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 241-259-268-307-327-337 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1A yfir fyrstu 5-5-5-6-6-6 lykkjurnar, prjónið A.3 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 25-27-28-29-31-32 mynstureiningar með 9-9-9-10-10-10 lykkjur), haldið áfram með A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið síðan svona áfram þar til stykkið mælist ca 18-20-22-22-24-25 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-10-21-6-6-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 245-269-289-313-333-357 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka (prjónið slétt frá réttu, brugðið frá röngu) með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 19-21-23-24-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 41-44-47-51-55-60 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 71-77-83-91-99-109 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-44-47-51-55-60 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 165-177-193-209-229-249 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-4-5-3-5-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 161-173-188-206-224-245 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni*, prjónið 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkja brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-58-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 4-6-8-9-10-10 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-16-16-15-15-15 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 15 sinnum í öllum stærðum = 74-76-78-80-82-84 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-40-39-37-35-34 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-4-0-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 72-72-78-78-78-84 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 36-36-39-39-39-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 48-46-45-43-41-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Caroline wrote:
Je n'arrive pas à voir le tuto? quand je click sur la photo je n'ai qu'un agrandissement. pouvez vous me dire quand il sera disponible
26.10.2019 - 20:28DROPS Design answered:
Bonjour Caroline, je ne suis pas bien sûre de comprendre de quel tuto vous parlez, vous trouverez toutes les vidéos relatives à ce modèle ici; cliquez sur les autres liens pour plus de tutoriels (à rechercher dans les menus). Bon tricot!
04.11.2019 - 12:18Elise Pedersen wrote:
En rigtig god model.
18.09.2019 - 17:59Birgitta Svaneblom wrote:
Väntar fortfarande på mönstret
19.08.2019 - 10:18Birgitta Svaneblom wrote:
Hej Den är åxo jätte snygg
18.08.2019 - 10:19Ellis wrote:
Famous pattern on rav, like it but will have to change wide sleeves because they are not for bigger sizes . our former queen allways wares these sleeves ;-) I'm not a queen
09.06.2019 - 19:17Christina Helander wrote:
Söt gammaldags modell!
08.06.2019 - 13:38Margrethe Steensig wrote:
Skøn cardigan, lun og lækker og lyngfarve er en af mine yndlings farver, dog måtte både trøje og cardigan være længere.
08.06.2019 - 12:46Emma wrote:
Stunning yoke detailing - at the same time very graphic/modern and also very organic looking! Love the puff sleeve too. A lot of your a/w 2019 patterns seem to be influenced by the new scandinavian/nordic designers & I love it! I knit a lot in this style but mostly use Drops yarns and get gorgeous results, so really happy to see a lot of your new designs in this vein...!
05.06.2019 - 21:05