Last Days of Autumn |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og rúlluðum kanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-2 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. PRJÓNFESTA: Vegna áferðar í stykkinu kemur stykkið til með að teygjast þegar það er mátað, þess vegna eru gefnar upp 2 prjónfestur og 2 teikningar með máli. Prjónfesta 1 og teikning með máli 1 á við þegar stykkið liggur flatt. Það er þetta/þessi prjónfesta/mál sem stykkið á að hafa á meðan prjónað er. Prjónfesta 2 og teikning með máli 2 er þegar stykkið er notað. Prjónfestan á hæðina er gefin upp eftir sléttu lykkjunni, sem er prjónuð yfir 1 umferð færri en brugðnu lykkjunni, þar sem slétta lykkjan er lyft yfir á hægri prjón í annarri hverri umferð. Þ.e.a.s. 24 umferðir á hæðina mælt í sléttu lykkjunni á 10 cm jafngildir 48 umferðir mælt í brugðnu lykkjunni á 10 cm á hæðina. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan eru prjónaðar slétt saman. Prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa uppslættinum og lykkjunni sem er prjónuð af prjóninum, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið aftur 1 lykkju slétt í lykkjuna og uppsláttinn sem var prjónaður *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 216 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 44) = 4,9. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman! Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (án uppsláttar, uppsláttur á milli lykkja er einnig lyft yfir), steypið yfir næstu 3 lykkjur á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman: steypið 1 lykkju slétt + 1 lykkja brugðið + 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki) = 3 lykkjur án uppsláttar. Prjónið síðan: 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur) slétt saman, steypið síðan 3 lyftu lykkjunum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman (= 4 lykkjur færri + án uppsláttar). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Fyrst er prjónað berustykki með klukkuprjóni, síðan skiptist berustykkið upp fyrir ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Þar sem stykkið er prjónað með áferð þá kemur það til með að teygjast þegar það er mátað, það eru gefnar upp 2 PRJÓNFESTUR – sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 108-112-116-124-132-136 lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Síðan er mynstrið prjónað þannig: Umferðin byrjar ca við miðju að aftan. Hálft bakstykki: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 20-20-22-24-26-26 lykkjur. Hægri ermi: Prjónið A.2 (= 2 lykkjur), A.1 yfir næstu 12 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur. Framstykki: Prjónið A.1 yfir næstu 38-40-42-46-50-52 lykkjur. Vinstri ermi: Prjónið A.2 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 12 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur. Hálft bakstykki: Prjónið A.1 yfir síðustu 18-20-20-22-24-26 lykkjur. Í 8. umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð í sléttu lykkjuna) í A.2 er aukið út um 4 lykkjur í hverju A.2 (= alls 16 lykkjur, útaukning er teiknuð inn í mynsturteikningu), útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1. Haldið áfram með mynstur svona á hæðina. Þ.e.a.s. aukið út alls 16 lykkjur í 8. hverri umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 og A.2 alls 12-13-14-15-16-18 sinnum á hæðina. Þ.e.a.s. nú hefur verið aukið út um 12-13-14-15-16-18 sinnum = 300-320-340-364-388-424 lykkjur. Prjónið síðan með A.1 yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-31 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar þannig: Hálft bakstykki: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 44-46-50-54-58-64 lykkjur. Hægri ermi: Setjið næstu 64-68-72-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-14-14-14 lykkjur undir ermi. Framstykki: Prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 86-92-98-106-114-128 lykkjur. Vinstri ermi: Setjið næstu 64-68-72-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-14-14-14 lykkjur undir ermi. Hálft bakstykki: Prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 42-46-48-52-56-64 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-204-216-240-256-284 lykkjur. Haldið áfram hringinn í mynstri. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, setjið 1 prjónamerki í miðju sléttu lykkjuna undir hvorri ermi (= ca í hlið). Í næstu umferð (stillið af að næsta umferð er 1 umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman), aukið út í lykkju með prjónamerki undir hvorri ermi – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 5-5-4-4-4-4 cm millibili alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 216-228-248-272-288-316 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, stillið af að síðasta umferðin sé umferð án uppsláttar, prjónið stykkið áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umferð í sléttprjóni aukið út um 44-44-48-56-56-64 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-2 = 260-272-296-328-344-380 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-31-32-32-32-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið alls 3 umferðir. Prjónið síðan 1 umferð slétt áður en fellt er af með sléttum lykkjum. ERMI: Prjónið upp 1 lykkju í hverja af síðustu 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi =74-78-82-90-94-98 lykkjur. Prjónið mynstur hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, setjið 1 prjónamerki í miðju sléttu lykkju undir ermi. Í næstu umferð (stillið af að næsta umferð er umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónuð slétt saman), fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-4-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 7-8-9-10-11-11 sinnum = 46-46-46-50-50-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 34-33-32-32-31-29 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, stillið af að endað sé með 1 umferð án uppsláttar, prjónið ermina áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umferð í sléttprjóni er aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 56-56-56-60-60-64 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-42-41-39-38-35 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Í næstu umferð er prjónað stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið alls 3 umferðir stroff. Prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 65-66-66-66-67-67 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (69)
Michelev wrote:
Bonjour, je n’arrive pas à faire les augmentations 1 côtés dos et devant auriez-vous une vidéo ? Merci d’avance\r\nMichèle
17.05.2024 - 23:05DROPS Design answered:
Bonjour Michèle, dans cette vidéo, nous montrons comment faire cette augmentation et comment tricoter le tour suivant. Bon tricot!
21.05.2024 - 12:10E Bou wrote:
Merci pour tous ces beaux modèles. J'ai terminé le dos/devant et le bord ne se met pas en place comme sur la photo. Il s'enroule de façon inesthétique sur au moins 5cm . Est-ce que le blocage va résoudre ce problème ? Merci pour votre réponse. Bien cordialement
14.04.2024 - 19:44DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bou, en le bloquant vous allez effectivement avoir un bord plat, notez que sur notre photo, le bas se retourne légèrement, à vous de choisir si vous le voulez complètement plat ou pas en plaçant des épingles au bord ou un peu plus haut, au choix. Bonnes finitions!
15.04.2024 - 08:22Raisa wrote:
Hei! Mitä tarkoittaa tarkemmin selitettynä kohta "Siirrä seuraavat 64-68-72-76-80-84 silmukkaa apulangalle hihaa varten ja luo hihan alapuolelle 10-10-10-14-14-14 silmukkaa." Miten nuo silmukat luodaan hihan alle?
04.03.2024 - 23:23DROPS Design answered:
Nämä silmukat luodaan heti, kun silmukat on siirretty apulangalle, eli ne luodaan apulangan silmukoiden tilalle. Näiden silmukoiden kohdalta poimitaan myöhemmin silmukoita hihaa varten.
05.03.2024 - 17:24Miriam wrote:
Hallo, ich bin gerade an der Stelle, wo am Ärmel das erste Mal abgenommen werden soll. Nur leider ist bei mir die rechte Masche mit dem Markierer genau da, wo die Runde anfängt. Habe ich da etwas falsch gemacht? Ich habe noch mal alles überprüft und glaube eigentlich, dass es so richtig sein müsste. Aber dann kommt es mit dem Muster nicht hin, weil die Maschen vor dem Markierer ja noch anders (mit Umschlägen) gestrickt werden... Viele Grüße, Miriam
21.02.2024 - 10:14DROPS Design answered:
Liebe Miriam, die Abnahmenrunde so anpassen, damit die rechten Maschen zusammen mit ihrem Umschlag gestrickt werden, aber die Abnahmen beginnen 3 Maschen davor, dh die 2 letzten Maschen der Runde (die Runde wo man die Umschläge machen soll) + die erste Masche (= die mit der Markierung) abheben, dann die 2 nächsten Maschen rechts zusammen stricken und die abgehobenen Maschen über die gestrickte Masche ziehen, die Markierung in dieser Masche einsetzten. Viel Spaß beim stricken!
21.02.2024 - 14:59Germana wrote:
Salve, ho avviato i 108 punti iniziali con i ferri circolari da 80, ma risultano troppo lunghi, quelli da 40 sono troppo corti, siete sicuri che le indicazioni siano corrette?
04.02.2024 - 20:48DROPS Design answered:
Buonasera Germana, può lavorare con i ferri da 40 cm fino a raggiungere il numero di maglie necessario per lavorare con gli 80 cm. Buon lavoro!
25.02.2024 - 16:35Berbett wrote:
Bonjour, Ma question porte sur les diminutions. Comment glisser les jetées ? Comment passer les 3 mailles glissées ainsi que les jetés par-dessus les mailles tricotées ensemble ? Merci d'avance.
28.01.2024 - 10:37Berbett wrote:
Bonjour, Ma question porte sur les diminutions. Comment glisser les jetées ? Comment passer les 3 mailles glissées ainsi que les jetés par-dessus les mailles tricotées ensemble ? Merci d'avance.
28.01.2024 - 10:32DROPS Design answered:
Bonjour Berbett, glissez les jetés en même temps que la maille à laquelle ils appartiennent, autrement dit, quand vous devez glisser 1 maille mais que c'est une maille avec jeté, glissez cette maille et son jeté (qui ne comptent que pour une maille). Pour passer les 3 mailles glissées par-dessus, vous pouvez insérer l'aiguille gauche de gauche à droite dans ces 3 mailles glissées et les passer par-dessus les mailles tricotées ensemble , ou bien les passer une par une, si c'est plus simple pour vous. Bon tricot!
29.01.2024 - 12:11Paulette KRENTNER wrote:
Bonsoir, je ne vois pas les explications concernant les fausses côtes anglaises. Je vous est adressé également un message concernant les aiguilles circulaires doit-on mesurer entièrement les aiguilles plus le câble pour avoir par exemple des aiguilles 80 cm pour faire ce joli pull. Merci de me répondre.🌺🧚♀️
17.01.2024 - 17:37DROPS Design answered:
Bonjour Mme Krentner, le point fantaisie est expliqué ici sous forme de diagramme, vous retrouvez les diagrammes A.1 et A.2 à droite du schéma des mesures, sous la manche. La longueur d'une aiguille circulaire se mesure en général d'une pointe à l'autre. Bon tricot!
18.01.2024 - 08:36Germana wrote:
SAlve, i ferri a doppia punta di quale lunghezza devono essere? grazie
05.01.2024 - 22:37DROPS Design answered:
Buongiorno Germana, deve utilizzare la misura con cui lavora più comodamente. Buon lavoro!
07.01.2024 - 12:57Susanna wrote:
Vorrei sapere se avete un video che spiega come fare le diminuzioni per le maniche. Come si fa a calare sul giro dove la maglia gettata e la maglia diritto vengono lavorate insieme . Se devo calare ai lati del segnapunti significa che ne calo due a fine ferro e gli altri due all’inizio del successivo ? Grazie
19.02.2022 - 16:57DROPS Design answered:
Buonasera Susanna, si, deve diminuire le maglie all'inizio di un ferro e all'inizio dell'altro. Buon lavoro!
05.03.2022 - 22:15