Golden Heart Jacket |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 187-11 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 100 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 7,7. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir kant með garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagöt með ca 8-8½-8½-8-8-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-120-126-130-136 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum sinnepsgulur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 13-23-17-25-21-29 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 123-137-137-151-151-165 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjur slétt í hvorri hlið fyrir kant að framan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 8-9-9-10-10-11 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.1A. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1 (ranga) er aukið út um 8-9-9-10-10-11 lykkjur jafnt yfir. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 163-182-182-201-201-220 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 8-9-9-10-10-11 mynstureiningar með 19 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2. Þegar A.2 er lokið eru 219-245-245-271-271-297 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-12-12-14-14-14 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan með litnum sinnepsgulur til loka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-5-1-3-3-5 lykkjur jafnt yfir = 226-250-246-274-274-302 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjur slétt í hvorri hlið. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Fyrsta prjónamerkið er sett eftir fyrstu 39-42-42-47-49-55 lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerkið er sett eftir næstu 40-46-44-48-44-46 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerkið er sett eftir næstu 68-74-74-84-88-100 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerkið er sett eftir næstu 40-46-44-48-44-46 lykkjur (= ermi). Nú eru 39-42-42-47-49-55 lykkjur eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Prjónið nú sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 11-12-16-16-19-19 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin = 314-346-374-402-426-454 lykkjur í umferð. Prjónið síðan eins og áður án útaukningar fyrir laskalínu, en til að rjúfa ekki gataumferð meðfram hverri laskalínu er A.3 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerkin eru staðsett mitt í A.3). Þegar stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm er næsta umferð prjónuð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 50-54-58-63-68-74 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 62-70-76-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-106-116-126-138 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 62-70-76-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), og prjónið eins og áður yfir 50-54-58-63-68-74 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-218-238-258-282-310 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 32 cm frá skiptingu er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið svona alls 9-12-15-15-16-17 sinnum í S: Í 8. hverri umferð, í M: Í 5. hverri umferð, í L: Í 4. hverri umferð, í XL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, í XXL: Í 3. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í annarri og 3. hverri umferð = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 26-24-23-21-19-18 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 4 umferðir garðaprjón í hring. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Jeannette K wrote:
Bonjour, je souhaite tricoter ce joli gilet, mais mon échantillon aig 4 de 10x10 est de 24 mailles et 32 rangs. Puis je tricoter la taille xxl au lieu du xl ?
31.07.2023 - 17:03DROPS Design answered:
Bonjour Jeannette K, vous devez d'abord recalculer si les explications correspondront aux bonnes mesures avec votre propre échantillon; il sera plus simple de vous tourner vers un modèle correspondant à votre tension - retrouvez ici tous les gilets et les vestes avec une tension de 25-23 mailles. Bon tricot!
01.08.2023 - 08:54Alejandra wrote:
Hola, para hacer las vueltas de revés sigo el patrón empezando por el lado izquierdo o hago punto revés sin seguir el diagrama?
29.09.2022 - 20:26DROPS Design answered:
Hola Alejandra, a no ser que se diga lo contrario, al comenzar a trabajar un patrón en la fila por el lado derecho, cuando trabajas la siguiente fila por el lado revés continuas con el patrón. Por lo tanto, comenzarías a trabajar la 2ª fila del patrón, desde el lado izquierdo del diagrama.
30.09.2022 - 13:14Inger Forsberg wrote:
I detta mönster sid 4 ärm. Ärmlängden är omvänd från minsta stl 26 cm till största 18 cm!! Hoppas ni ändrar detta
14.07.2022 - 19:04DROPS Design answered:
Hej Inger. I de större storlekarna kommer den totala vidden (från handled till handled) att vara större än i de mindre storlekarna, även om själva ärmen är kortare. De större storlekarna har längre ärmkupa samt bredare axelvidd. Detta resulterar i en bra passform i alla storlekar. (Se gärna måttskissen) Mvh DROPS Design
15.07.2022 - 09:39Anna wrote:
Hi! What are the measurement (S, M, L) for the finished garment? I can't find it.
05.07.2021 - 06:58DROPS Design answered:
Dear Anna, you will find all finished measurements for each size in the chart at the end of the patttern - measure a similar garment you have and like the shape to find ou the matching size - read more here. Happy knitting!
05.07.2021 - 08:47Nathania Christabel wrote:
Hello! Does this "Work from the right side until there are 3 stitches left at the end of the row, make 1 yarn over, knit the next 2 stitches together and knit the last stitch." mean the 5 band stitches? So it will be: k2, yo, k2tog, k1 is this correct?
03.07.2021 - 10:11DROPS Design answered:
Dear Nathania, yes, you are correct, the last 5 stitches are K2, YO, K2TOG and the edge stitch. Happy Knitting!
04.07.2021 - 00:32Målfrid Høgstavoll wrote:
Det gjelder oppskrift på ermer, både fellingene og lengden på ermene. Skal et erme i største str. være 18 cm? Skal det felles mye hurtigere i den minste str enn i den største? Jeg leste i den engelske versjonen her - samme som i den norske
20.08.2020 - 15:27Målfrid Høgstavoll wrote:
Oppskriften må være feil når det gjelder erme - i allefall hva lengde angår. Kan noen se på det?
18.08.2020 - 14:56DROPS Design answered:
Hej Målfrid, beskriv gerne hvad du anser er fejl og hvilken størrelse det gælder, så skal vi se på det. :)
20.08.2020 - 15:23Ayse wrote:
Hi, on the wrong side of A2.A should I begin with A2.B? I'm really confused. Thanks
17.05.2020 - 00:27DROPS Design answered:
Dear Ayse, from RS you repeat A.2A and finish with A.2B - from WS you work A.2B and repeat A.2A reading from the left towards the right. Read more about diagrams here. Happy knitting!
18.05.2020 - 08:24Elisabeth Sebald wrote:
Hallo, ich beginne jetzt mit dem stricken, habe aber keinen Hinweis darauf gefunden, wie die Randmaschen zu stricken sind?ein glatter Rand oder besser ein Knötchenrand? Freue mich über eine Antwort, Elisabeth
14.07.2019 - 19:33DROPS Design answered:
Liebe Frau Sebald, bei dieser Jacke werden die 5 ersten und 5 letzten Maschen krausrechts (= Krausrippe) gestrickt, dh es sind keine Randmasche dazu. Viel Spaß beim stricken!
15.07.2019 - 10:58Sandra wrote:
Hola. Estoy haciendo la chaqueta en la talla L. Terminé A2 y ahora el patrón dice tejer hasta completar la medida. Qué medida es? Las 12 cm.?
31.05.2019 - 18:52DROPS Design answered:
Hola Sandra. Después de terminar A.2 ( que se trabaja con varios colores) , tienes que trabajar según el patrón con sólo el color mostaza hasta terminar la chaqueta (hasta finalizar las medidas de la chaqueta como se explica en el patrón).
03.06.2019 - 23:05