DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9367.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Rainbow Hugs Jacket

Peysa með Fana mynstri, hringlaga berustykki, röndum, prjónuð ofan frá og niður með klauf í hliðum úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL.

DROPS 183-26
DROPS Design: Mynstur ne-246
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-750-800-900 g litur 0300, beige
50-50-50-50-50-50 g litur 1709, sæblár
50-50-50-50-50-50 g litur 8906, skógur
50-50-50-50-50-50 g litur 8905, djúpsævi
50-50-50-50-50-50 g litur 6314, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 4434, fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 2923, skærgulur
50-50-50-50-50-50 g litur 8910, hindber
50-50-50-50-50-50 g litur 3608, djúprauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 fyrir kant með garðaprjóni og kanta að framan – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 25 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS STÁLTALA, Ójöfn NR 534: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9367.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um berustykki og fram- og bakstykki):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HRINGLAGA BERUSTYKKI:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út í berustykki hvoru megin við lykkjur með prjónamerki (= 16 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð – sjá ör í A.1) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Prjónið þar til 2 lykkjur eru á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman.
Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar með grunnlit.

HNAPPAGAT (á við um kant að framan):
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan.
Þegar kantur að framan mælist ca 1,5 cm er fellt af fyrir 7-7-7-8-8-8 hnappagötum jafnt yfir (fellt er af fyrir hnappagötum í brugðnu einingunum séð frá réttu). 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – efsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá toppi, hin hnappagötun eiga að vera með ca 7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þá verður berustykkið aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. Kantur að framan er prjónaður fram og til baka í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-80-84-88-92-98 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með litnum beige Nepal.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 13-14-15-16-17-18 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-2-2-2-3-5 lykkjur jafnt yfir, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 11 sinnum, 26-28-30-32-34-37 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-4-4-4-6-9 lykkjur jafnt yfir, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 11 sinnum, 13-14-15-16-17-19 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-2-2-2-3-4 lykkjur jafnt yfir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 98-110-114-118-126-138 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn, það á ekki að myndast gat. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í 2 miðju lykkjur í umferð (= miðja að aftan). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Byrjið frá réttu með litnum beige og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-60-65-65-70 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu.

BERUSTYKKI:
Setjið 8 prjónamerki í stykkið frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 5-7-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, * 11-12-13-13-14-16 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju *, prjónið frá *-* þar til 7-10-8-10-10-9 lykkjur eru eftir (= alls 7 sinnum), endið með 6-9-7-9-9-8 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð frá réttu er prjónað A.1 (= 4 lykkjur) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki (= 24-27-28-29-31-34 sinnum) JAFNFRAMT er auki út um 1 lykkjur hvoru megin við prjónamerki – lesið HRINGLAGA BERUSTYKKI, í umferð merktri með ör í mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið alls 9-10-11-12-13-14 sinnum (þegar aukið hefur verið út heildar fjöldi, er ekki lengur aukið út í umferð merktri með ör í mynsturteikningu) = 242-270-290-310-334-362 lykkjur. Haldið áfram með útaukningar þar til stykkið mælist 21-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu – passið uppá að það sé umferð sem er prjónuð með litnum beige: Prjónið 35-39-41-45-50-55 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 52-58-64-66-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið 68-76-80-88-98-108 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 52-58-64-66-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 35-39-41-45-50-55 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 150-166-178-194-218-238 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp. Setjið 1 prjónamerki í stykkið þar sem mælt verður frá, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram með litnum beige. Þegar stykkið mælist 3 cm þar sem ermar voru settar á þráð, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 5 cm millibili alls 6 sinnum = 174-190-202-218-242-262 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 29-30-31-31-31-31 cm frá þar sem stykkið skiptist upp (passið uppá að síðasta umferðin sé frá röngu), skiptið stykkinu upp við prjónamerkin og framstykki og bakstykki er nú prjónað til loka hvort fyrir sig (= 8 cm klauf).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 44-48-51-55-61-66 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á undan fyrsta prjónamerki, prjónið 5 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, snúið stykkinu. Haldið svona áfram yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-37-38-38-38-38 cm frá prjónamerki, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með hringprjón 5 (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Stykkið mælist alls ca 62-64-66-68-70-72 cm mælt frá öxl.

BAKSTYKKI:
= 86-94-100-108-120-130 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur perluprjón, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið, endið með 5 lykkjur perluprjón, snúið stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-37-38-38-38-38 cm frá prjónamerki, stillið að með vinstra framstykki, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með hringprjón 5.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 44-48-51-55-61-66 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur perluprjón, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-37-38-38-38-38 cm frá prjónamerki, stillið af við vinstra framstykki, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með hringprjón 5.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Setjið 52-58-64-66-68-72 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-72-74-78-82 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram með litnum beige. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-12-16-16-17-18 sinnum = 38-40-40-42-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-40-40-38-37-35 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur. Fellið af með sokkaprjón 5 (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Ermin mælist ca 42-41-41-39-38-36 cm frá þar sem stykkið skiptist upp í fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið efst í hálsi á vinstra framstykki, prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið upp ca 118-138 lykkjur (deilanlegar með 4 + 2) frá réttu á hringprjón 4, með litnum beige. Prjónið 1 umferð slétt til baka, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið í hægri kanti að framan, en þá eru lykkjur teknar upp með byrjun frá neðri kanti – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.04.2018
Teikning sem sýnir mál hefur verið uppfærð
Yfirfarið á vefsvæði: 29.04.2019
Leiðrétting - UPPHÆKKUN Í HNAKKA:..Snúið, herðið á bandi og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á bandi og prjónið 66-66-60-65-65-70 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á bandi og prjónið slétt út umferðina. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu.
Yfirfarið á vefsvæði: 09.11.2021
Leiðrétting á lykkjufjölda undir vinstra framstykki / bakstykki / hægra framstykki.

Mynstur

symbols = beige
symbols = sæblár
symbols = skógur
symbols = djúpsævi
symbols = gallabuxnablár
symbols = fjólublár
symbols = skærgulur
symbols = hindber
symbols = djúprauður
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Rolien Verbruggen wrote:

Ik ben dit patroon aan het breien in maat XL. Ik ben de pas aan het breien, en meet nu 25 cm vanaf de opzetrand (langs de middenvoor rand). Maar ik heb pas 11x gemeerderd, ik ben nu dus bij de 11e pijl van het telpatroon. Dus qua hoogte zou ik nu de steken moeten verdelen in mouwen en lijf, maar ik kom nog 16 steken tekort. Hoe zal ik dit oplossen? NB Ik brei met Drops Nepal op nld 5,5, ik heb een steekgrootte van 17 steken/10cm en 20 naalden/10cm

17.02.2023 - 20:02

DROPS Design answered:

Dag Rolien,

Om het patroon te kunnen volgen zou je dezelfde stekenverhouding moeten hebben als in het patroon. Als je minder steken in de hoogte hebt, dan kun je af en toe een naald extra breien (zonder te meerderen). In jou geval dus 2 naalden extra op 20 naalden.

18.02.2023 - 10:03

country flag Marie wrote:

Guten Abend, ich stecke bei der Teilung der Arbeit (Rumpfteil zu getrennte Vorder-/Rückteile) fest. Laut Anleitung soll ich bei Größe M am Ende der Rumpfteil-Zunahmen 190 Maschen haben. Danach soll ich dann aber teilen in rechtes/linkes Vorderteil a 42 Maschen und Rückenteil mit 82 Maschen. Das ergibt aber nur 166 Maschen, also der Anzahl der Maschen vor den Rumpfteil-Zunahmen. Ich nehme an, korrekt müssten es je 48 Maschen für linkes/rechtes Vorderteil und 94 fürs Rückenteil sein?

29.10.2021 - 22:51

DROPS Design answered:

Liebe Marie, Sie sind ja recht, danke für den Hinweis; die Maschanzahl sollen korrigiert werden, teilen Sie die Arbeit an den Seiten, wo Sie die Markierungen am Anfang Rumpfteil eingesetzt haben. Viel Spaß beim stricken!

02.11.2021 - 13:41

country flag Hanna wrote:

Hei! Onkohan ohjeessa virhe silmukka määrissä, kun lähdetään tekemään etu- ja takakappaleita erikseen? Lisäysten jälkeen ohjeen mukaan työssä on L koossa 202 silmukkaa, jonka jälkeen etu-kappaleisiin tulee 45 ja 45 silmukkaa sekä takakappaleeseen 88 silmukkaa. 24 silmukkaa jää työhön, mutta niitä ei ole ohjeessa.

26.04.2020 - 20:44

country flag Jane W Collins wrote:

I can't find the designated button. What is the size of the button, please.

13.02.2020 - 17:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Collins, you will find all our buttons here - the jagged # 534 are 20 mm. Happy knitting!

14.02.2020 - 08:08

country flag Monika wrote:

Ich habe gerade gesehen, dass die letzte Reihe für die Erhöhung doch korrigiert wurde. Danke! :-)

21.09.2019 - 12:17

country flag Linda Roberts wrote:

This is so beautiful, though it is not a sweater for now, but I will look to make it toward the fall

02.05.2019 - 19:10

country flag Tapiola wrote:

Bonjour, merci de m expliquer les augm. du début. En taille S, on monte 76 mailles, puis on fait 11 X 0 augm. après 14 m., 11 X 0 augm. après 26 m. suiv. +1 X 0 augm. Comment obtenir 98 mailles au total sans aucune augm. ? Pour la taille M, sont prévues : après 15 m -11 X 2 augm, après 26 m. suiv -11 X 4 augm, puis 1 X 2 augm. sur les 15 dernières m. Cela devrait faire 15m+22 augm+28m+44 augm+15m+2 augm =126 m. et non 110. Où est le pb ? Merci, et bonne journée

06.03.2019 - 12:14

DROPS Design answered:

Bonjour Tapiola, le décompte des mailles se fait ainsi: Taille S: 1 + 13 + (*1 jeté, 1 m end*, répéter de *-* 11 fois au total = 11 x 2 m) + 26 + (11 x 2) + 13 + 1 =98 m. Taille M: 1 + (14+2) + (*1 jeté, 1 m end*, répéter de *-* 11 fois au total = 11 x 2 m) + (28+4) + (11 x 2) + (14+2) +1 =110 m.Bon tricot!

06.03.2019 - 15:58

country flag Marieke Jansen wrote:

Brei size M. Nadat de mouwen op een hulpdraad zijn gezet, ga je bij een hoogte van 3 cm meerderen. Tot zo ver duidelijk, 6 x 4 steken is dus 24, opgeteld bij de 166 van het lijf kom je dan inderdaad op 190 steken. Alleen wanneer er gesplitst wordt voor de splitten, kom ik niet weer op 190 steken...maar wel op 166. Voorpanden. 2 x 42 en achterpand 82 opgeteld die 166 steken, kunnen jullie mij zeggen of ik het verkeerd lees?

17.01.2019 - 19:35

DROPS Design answered:

Dag Marieke,

Het klopt zoals je het leest; je meerdert in totaal 24 steken, dus van 166 naar 190 steken. En volgens mij staat er inderdaad een foutje in het patroon waardoor de meerderingen in de zijnaden niet meegenomen zijn vanaf de splitten. Je kunt de aangegeven aantallen steken negeren en het werk splitsen bij de markeerdraden.

23.01.2019 - 11:15

country flag Monika wrote:

Ich muss doch aber irgendwo die erste Reihe, in der ich mit Wenden beginne, auch zu Ende stricken. Wo stricken ich denn Blendenmaschen?? Die Blende wird doch am Ende separat angestrickt?? Das verstehe ich schon, dass ich auch ohne Erhöhung stricken kann.

12.10.2018 - 12:54

DROPS Design answered:

Liebe Monika, oops Sie sind ja recht, Blendemaschen werden später aufgenommen und gestrickt, mein Fehler. Nach der Reihe über 55-70 M (= Hinreihe), stricken Sie die nächste Rückreihe bis zur Ende der Reihe (= 1 Seite ist "fertig"), dann wenden Sie und stricken Sie die nächste Hinreihe bis zur Ende = alle Maschen sind jetzt gestrickt.

12.10.2018 - 14:22

country flag Linda H. wrote:

Just started the yoke in size small. Inserted the markers as written, but ended the row with 4 stitches not 7. Counted 3 times and have 98 stitches total. Is this a mistake in the pattern or did I miss something.

06.04.2018 - 23:14

DROPS Design answered:

Hi Linda, You have 98 stitches when you have finished the neck and are starting on the yoke. On the first row of the yoke you work 1 edge stitch (garter stitch) 5 stitches in stocking stitch and then insert a marker in the next stitch - so you have worked 7 stitches so far. Work 11 more stitches and insert next marker in next stitch, so now you have worked 19 stitches (7 + 12). Repeat these last 12 stitches another 6 times, so you have worked 91 stitches (7 + 12 x 7) and then you will have 7 stitches left. I hope this helps and happy knitting!

09.04.2018 - 08:21