DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki |
836.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki 836.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= uppábrot á ermi |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Nonchalant |
||||
|
|
|||
Prjónuð peysa með stroffi og sjalkraga. Stærð S - XXXL. Hægt er að prjóna stykkið með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody.
DROPS 180-30 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 73-78-82-88-94-101 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 8 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 16-16-25-26-26-26 cm millibili alls 4-4-3-3-3-3 sinnum = 65-70-76-82-88-95 lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-62-63-64-66-67 cm fellið af 4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum. Fellið síðan af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-1-2-1-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-3-1-2 sinnum = 47-48-50-52-54-55 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-22-23 cm frá þar sem 4 fyrstu lykkjurnar voru felldar af fyrir handveg (stykkið mælist alls 80-82-84-86-88-90 cm) fellið af miðju 17-18-20-20-20-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 15-15-15-16-17-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 14-14-14-15-16-16 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist alls 82-84-86-88-90-92 cm. Prjónið alveg eins á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 27-29-30-33-36-39 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 8 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í lok umferðar frá réttu. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 lykkju í lok næstu umferðar frá réttu. Fækkið lykkjum svona með 16-16-25-26-26-26 cm millibili alls 4-4-3-3-3-3 sinnum = 23-25-27-30-33-36 lykkjum. Þegar stykkið mælist 60-62-63-64-66-67 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu eins og á bakstykki = 14-14-14-15-16-16 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 22-22-23-24-24-25 cm frá þar sem 4 fyrstu lykkjurnar voru felldar af fyrir handveg (stykkið mælist alls 82-84-86-88-90-92 cm). VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp eins og hægra framstykki og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á umferð frá réttu. Fellið af í hlið í byrjun á umferð frá réttu. Fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu. ERMI: Fitjið upp 44-44-44-51-51-51 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 8 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðiðr) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 4 cm eru allar 4 lykkjur brugðið fækkað til 3 lykkjur brugðið = 38-38-38-44-44-44 lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 14 cm. Setjið 1 prjónamerki í stykkið (= uppábrot). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6½-6½-5½-6-5½-4½ cm millibili alls 7-7-8-7-7-8 sinnum = 52-52-54-58-58-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-41-41-39-37-36 cm frá prjónamerki (stykkið mælist alls 56-55-55-53-51-50 cm) fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Fellið síðan af lykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1-2-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-3-4 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 49 cm frá prjónamerki (stykkið mælist alls 63 cm). Fellið nú af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af. Ermin mælist alls 64 cm (meðtaldir 14 cm í uppábroti). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. STROFF: Stroff í kringum peysu: Prjónið upp 219-225-231-237-243-249 lykkjur frá réttu á hringprjón 8 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody upp meðfram hægra framstykki, aftan í hnakka og niður meðfram vinstra framstykki innan við 1 lykkju. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð þannig: 3 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Prjónið þar til stroffið mælist 15 cm – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Í næstu umferð frá réttu eru allar 3 lykkjur brugðið auknar út til 4 lykkjur brugðið = 254-261-268-275-282-289 lykkjur. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið yfir fyrstu 42-42-42-48-48-48 lykkjur, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umferðina eins og áður. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið eins og umferð 1. UMFERÐ 3: Prjónið yfir fyrstu 6 lykkjur, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umferðina eins og áður. Endurtakið umferð 3 (þ.e.a.s. prjónið yfir 6 lykkjur færri í hverri umferð) alls 6-6-6-8-8-8 sinnum. Eftir að 78-78-78-96-96-96 lykkjur í hvorri hlið hafa verið settar á þráð eru allar lykkjur af þræði settar aftur til baka á prjóninn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Kraginn mælist ca 25-25-25-28-28-28 cm aftan í hnakka. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. FLÉTTA: Stutt flétta: Klippið 12 þræði Brushed Alpaca Silk eða 6 þræði Melody ca 80 cm og gerið eina fléttu. Löng flétta: Klippið 12 þræði Brushed Alpaca Silk eða 6 þræði Melody ca 100 cm og gerið eina fléttu. Fléttið 2 stuttar fléttur og 2 langar fléttur. Festið flétturnar í peysuna ca 60-70 cm frá uppfitjunarkanti þannig: Festið 1 stutta fléttu í vinstra framstykki og 1 langa fléttu í hægra framstykki í affellingarkant á stroffi. Festið 1 stutta fléttu í röngu á peysunni í hægra framstykki þar sem teknar voru upp lykkjur fyrir stroff. Festið 1 langa fléttu í réttu á peysunni í vinstra framstykki þar sem teknar voru upp lykkjur fyrir stroff. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (14)
Romy wrote:
Ich Stricke gerade das Modell Nonchalant as-078 Mir ist aufgefallen,das zwei Angaben nicht übereinstimmen. Bei den Angaben vom Rückenteil steht ab 67cm für die Armausschnitte abnehmen aber auf der Skizze wären es 92cm?
25.06.2022 - 16:34DROPS Design answered:
Liebe Romy, die 92 cm in de Skizze sind für die gesamte Höhe, so haben Sie 67 cm vor dem Armausschnitt + 25 cm Armausschnitt = 92 cm. Viel Spaß beim stricken!
27.06.2022 - 08:19Sandy Beach wrote:
I have looked and looked at the pictures, and the instructions... What is the point of the four braids? I can see No aesthetic or practical value in them.
14.10.2021 - 01:01DROPS Design answered:
Hi Sandy, The braids can be left out if you wish. Happy knitting!
14.10.2021 - 06:59Conny wrote:
Hallo, ich habe eine Frage zum Strickmantel „Nonchalant“. Ich weiss nicht, wo ich die Zöpfe genau anbringen soll, der Anleitung kann ich leider nicht folgen und auf den Bildern ist es auch nicht richtig ersichtlich. Übrigens ein tolles Teil geworden, die Arbeit hat sich gelohnt.
08.04.2021 - 17:42DROPS Design answered:
Liebe Conny, die Zöpfe sollen ca 60-70 cm von der unteren Kante sein (ziehen Sie mal die Jacke an, um die genaue Läng anzupassen). Dann nähen Sie beim linken Vorderteil: 1 kurzen Zopf in den abgeketteten Maschen der linken Blende + 1 langen Zopf in die 1. Reihe der Blende (Außerseite); beim rechten Vorderteil: 1 kurzen Zopf bei der 1. Reihe der Blende (Innenseite) + 1 langen Zopf in den abgeketteten Maschen der rechten Blende. Hoffentlich kann dies helfen!
09.04.2021 - 07:28Anita wrote:
Ik heb het boord aan het vest gebreid tot aan 78 steken op hulpdraad(-naald) aan beide kanten. Nu moeten de steken van beide kanten van de hulpdraad weer op de (rondbrei)naald en moet begonnen worden met afkanten. Alleen mijn naald eindigde op het middenstuk. Hoe begin ik met het afkanten? Vanaf punt middenstuk de 78 steken doorbreien tot eind van de naald en dan in 1x alle steken afkanten? Dan heeft de ene kant 1x een rij (78 steken) teveel gebreid. Of zie ik iets over het hoofd?
18.01.2021 - 17:47DROPS Design answered:
Dag Anita,
Nee, ik zou niet door breien tot het eind, maar de draad afknippen en aan het begin beginnen met afkanten. Anders wordt het inderdaad ongelijk.
22.01.2021 - 16:15Deborah Dash wrote:
I can't figure out what size to make. I am a new knitter. Do you double the bust cm measurement to figure out the size? Then convert the total cm's to inches? I am used to seeing a front and back schematic which I can add together to get the total cm/inches around. I am usually a L--42 inches measured around with a tape measure. Thanks.
24.05.2020 - 21:21DROPS Design answered:
Dear Mrs Dash, measure a similar garment you have and like the shape and compare the measurements to those in the chart to find out the matching size - read more about chart here and convert into inches here. Happy knitting!
25.05.2020 - 10:17Annika wrote:
I følge svaret deres skal det altså (i strl. XL) felles en maske i hver side ved 10cm,, 36 cm., 62cm, og ved 88cm - altså da man feller av (diagrammet sier at den er 88cm lang i str. XL)? Og så stemmer jo selvfølgelig ikke oppgitt antall masker da man feller til ermehull og hals samtidig, så ved 88cm har man 82 masker minus hva enn man har felt til ermer og hals? Blir veldig forvirret av tellingen her.
26.04.2020 - 00:11DROPS Design answered:
Hej Annika, du feller ved 10cm, 36cm og sidst 62cm. Så feller du til ærmehull ved 64cm osv. Når du er færdig med alle fellinger skal du have 52 masker. God fornøjelse!
29.04.2020 - 10:28Muriel wrote:
Bonjour, quelles sont les mesures exactes d'une taille XXXL ? Bien à vous et merci pour la réponse
18.02.2020 - 21:33DROPS Design answered:
Bonjour Muriel, vous trouverez toutes les mesures de l'ouvrage terminé pour chaque taille dans le schéma, dans l'ordre des tailles indiqué. Vous trouverez plus d'infos sur les tailles et les schémas ici. Bon tricot!
19.02.2020 - 09:09Annika wrote:
Bakstykke: Når jeg har felt to masker etter 10 cm, og så skal felle hver 26. cm - mener man da fra start, eller fra man feller ved 10cm? Så felle masker ved 26 eller 16 cm andre gang?
28.12.2019 - 19:41DROPS Design answered:
Hej Annika, Da feller du igen efter 26 cm. God fornøjelse!
31.01.2020 - 11:36Maribel wrote:
Estoy tejiendo la espalda en la talla L . Dice en patrón " Disminuir 1 punto a cada lado cada 25 cm un total de 3 veces= 76 puntos Si ya hemos disminuido anteriormente 2 puntos a los 10 cm , más 6 puntos que disminuimos ahora serían 82 iniciales - 8puntos disminuidos = 74 puntos ????.. Otra cuestión es : Si disminuimos 3 veces cada 25 cm tendríamos 75 cm .Dice el patrón: Cuando la labor mida 63 cm ...... No lo entiendo con claridad.
25.10.2018 - 18:54DROPS Design answered:
Hola Maribel. El patrón está correcto. Disminuir un total de 3 veces ( en el total se incluye la primera disminución = 6 puntos disminuidos). Después de la primera disminución repetimos cada 25 cm ( es decir, 2 veces x 25 cm = 50 cm).
27.10.2018 - 11:12Marjan wrote:
Aanvulling vorige mail: ik bedoel mouwkop, niet mouwloos.
15.11.2017 - 11:29