DROPS Muskat uni colour 100% Bómull |
572.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Muskat uni colour 100% Bómull 572.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja | |
= brugðin lykkja | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat | |
= prjónið 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman | |
= prjónstefna | |
= í þessari umferð byrjar útaukning í mynstureiningum með sléttum lykkjum á hvorri öxl – sjá útskýringu í uppskrift! |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Marie |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með hringlaga berustykki, gatamynstri og upprúlluðum kanti í hálsi, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-7 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 142 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 11,8. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 11. og 12. hver lykkja saman. ÚRTAKA (á við um hliðar): Prjónið fram að brugðnu lykkjum á hlið, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar brugðið saman, prjónið þar til 2 brugðnar lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur brugðið saman. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur færri í umferð). ÚTAUKNIG (berustykki): Mismunandi er aukið út eftir stærðum. Stærð S, M og L: Aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki. Stærð XL, XXL og XXXL: Aukið fyrst 2 lykkjur við hvert prjónamerki, síðan er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki. AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki er staðsett hér). Endurtakið á hinni hliðinni (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð). AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU ÞANNIG: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki er staðsett hér). Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). ATH: Í næstu umferð eru allir uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt! Prjónið síðan nýjar lykkjur slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 138-142-148-154-162-168 lykkjur á hringprjóna 4 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= í skiptingu á milli sléttprjónuðu ermi og mynstri aftan á kjól). Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 12-12-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA (jafnt yfir) = 126-130-134-140-148-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð til viðbótar með sléttum lykkjum. Prjónið mynstur þannig: * Prjónið A.1 alls 11-12-13-13-15-17 sinnum, prjónið 2 lykkjur brugðið, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 16-14-12-15-11-6 sléttar lykkjur (ermi), setjið eitt prjónamerki hér, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Nú eru 4 prjónamerki í stykkið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð (= umferð með stjörnu í A.1) byrjar útaukning við hvert og eitt af 4 prjónamerkjum – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út 1-1-1-2-2-2 lykkjur í annarri hverri umferð 11-14-16-4-5-6 sinnum og aukið um 1 lykkju í 4.-4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð 4-4-4-18-20-23 sinnum. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 91-99-107-107-123-139 lykkjur á milli prjónamerkja við framstykki og bakstykki. Endurtakið síðan A.2 yfir hverja mynstureiningar A.1. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 274-298-318-348-388-430 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 15-17-18-18-20-22 cm frá uppfitjunarkanti og niður (meðtalinn upprúllaður kantur í hálsi). Næsta umferð er prjónuð þannig: ATH: Í stærð S, M og L er prjónað í þessari umferð 4-4-3 lykkjur af mynstri A.2 í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Ef ekki er nægilegt pláss fyrir gatamynstur (bæði uppsláttur og úrtaka) eru prjónaðar sléttar lykkjur (í stað uppsláttar og úrtöku) yfir 4-4-3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónið fyrstu 4-4-3-0-0-0 lykkjur og setjið á þráð, prjónið næstu 81-89-95-105-121-137 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 56-60-64-69-73-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-89-95-105-121-137 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 52-56-61-69-73-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og setjið inn fyrstu 4-4-3-0-0-0 lykkjur sem settar voru á þráð á sama þráð (= 56-60-64-69-73-78 lykkjur á þræði) og fitjið upp 8-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 178-194-210-234-266-302 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-5-6-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Passið uppá að umferðin byrji við annað prjónamerkið undir ermum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið mynstur þannig: Prjónið 8-8-8-6-6-7 lykkjur brugðið, prjónið A.2 alls 9-10-11-13-15-17 sinnum, prjónið 17-17-17-13-13-15 lykkjur brugðið, prjónið A.2 alls 9-10-11-13-15-17 sinnum, prjónið 9-9-9-7-7-8 lykkjur brugðið. Nú eru 18-18-18-14-14-16 lykkjur brugðið í hvorri hlið meðtöldum brugðnu lykkjunum í A.2. Þegar stykkið mælist 4 cm í öllum stærðum byrjar úrtaka í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (á við um hliðar)! Fellið af í 3.-3.-3.-4.-4.-3. hverri umferð alls 8-8-8-6-6-7 sinnum (= 2 lykkjur brugðið á hvorri hlið) = 146-162-178-210-242-274 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-15-15 cm aukið út þannig: Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-9-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 1 lykkja brugðið (prjónamerki er staðsett hér). Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-9-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 1 lykkja brugðið (prjónamerki er staðsett hér) = 164-182-200-236-272-308 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. Haldið áfram með útaukningar, þ.e.a.s. aukið út til skiptis hvoru megin við brugðnu lykkjurnar, í 12. hverri umferð 7 sinnum til viðbótar = 290-322-354-418-482-546 lykkjur. Prjónið síðan með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og A.2 yfir A.2 þar til stykkið mælist 60-60-60-61-61-61 cm, en passið uppá að prjónuð sé ein heil mynstureining til loka á hæðina. Prjónið brugðnu lykkjurnar eins og áður og prjónið A.3 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 470-522-574-678-782-886 lykkjur í umferð. Stykkið mælist alls 84-86-88-90-92-94 cm frá öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. KANTUR Á ERMUM: Setjið til baka lykkjurnar af þræði á sokkaprjóna 3,5 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-12-12-14 nýju lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 64-68-74-81-85-92 lykkjur. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, hringinn á sokkaprjóna. Fellið af. Klippið frá og festið enda. Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (31)
Luciana wrote:
Buongiorno, io dovrei cominciare a lavorare la taglia XL di questo splendido modello. Come mi consigliate di lavorare i due aumenti per lato vicino al segnapunti per le maniche per non rovinare la linea e non creare buchi? Uno saprei come fare ma due vicini mi creano qualche problema..... Grazie per il consiglio!
07.04.2024 - 10:22Claire wrote:
Par exemple : "17x A1 au total, 2 mailles envers, placer 1 marqueur...". Est-ce que c'est 17x la ligne 1 (du bas) de A1 17x ou 17x A1 au complet donc 17 rangs ? Merci
08.09.2022 - 17:16DROPS Design answered:
Bonjour Claire, vous devez tricoter ainsi: *répétez 17 fois A.1 en largeur (= 17 x 4 m = 68 m), 2 m env, placez 1 marqueur, tricotez 6 m end, placez 1 marqueur, 1 m env*, répétez de *-*=(68+2+6+1)x2=154 m. Augmentez aux marqueurs comme indiqué et continuez à tricoter A.1 (= 1 case = 1 maille x 1 rang), vous allez ainsi augmenter d'abord 2 m à chaque marqueur (8 m au total) puis 1 m à chaque marqueur (= 4 m au total) + les mailles à augmenter dans A.1 (cf ovales noirs). Quand A.1 est terminé (= 22 rangs), vous avez 8 m dans chaque A.1, tricotez maintenant A.2 au-dessus de chaque A.1 et continuez les augmentations aux marqueurs. Bon tricot!
09.09.2022 - 08:54Claire wrote:
J'ai du mal à comprendre le tuto... Alors que j'ai déjà tricoté des vêtements. Il est très joli mais pour le moment aucun plaisir à le tricoter. J'ai vraiment l'impression d'être bête...
08.09.2022 - 15:50DROPS Design answered:
Bonjour Claire, si je résume la robe, vous tricotez de haut en bas, en suivant les diagrammes indiqués et les manches en jersey; vous augmentez dans les diagrammes et à la fois de chaque côté des marqueurs comme pour un raglan. N'hésitez pas à nous dire ce qui vous gène pour que nous puissions essayer de vous aider. Bon tricot!
08.09.2022 - 16:23Isabel wrote:
Para saber qué talla debo elegir, como lo hago? Y tiene holgura positiva este patrón?.Gracias
15.04.2022 - 00:08DROPS Design answered:
Hola Isabel, puedes ver el esquema de medidas de la prenda, en cm, debajo de las instrucciones del patrón y el diagrama, para cada una de las tallas. Si estás en duda entre dos tallas, es mejor elegir la más grande siempre. El modelo tiene buena caída y se asienta mejor, porque se trabaja de arriba abajo.
15.04.2022 - 19:36Elsemari Iversen wrote:
Hvordan kan jeg øke hver 2. Omgang 14 ganger, når mønster A,1 kun er på 22 omganger
07.02.2021 - 17:03DROPS Design answered:
Hei Elsemari, Etter du har strikket ferdig A.1, skal du strikke A.2; økningene fortsetter her. God fornøyelse!
09.02.2021 - 07:37Anna wrote:
Komme mit der Anleitung nicht klar.. Ich glaube bei der Anleitung hat sich ein Fehler eingeschlichen. Ich habe für die Ärmel 50 Maschen und für vorder- bzw. RÜCKENTEIL 99 Maschen. In der Anleitung steht jedoch 60 für Ärmel und 89 für Vorder. Und Rückenteil 89.
26.03.2020 - 07:45DROPS Design answered:
Liebe Anna, bei der Verteilungsrunde werden die ersten 4 Maschen für die Maschen stillgelegt, dann nur die nächsten 89 Maschen (dh nicht alle 99 M) gestrickt, die 6 nächsten Maschen werden mit den Ärmelmaschen stillgelegt. Bei den Ärmeln werden dann die 6 letzten Maschen von Rücken/Vorderteil stillgelegt + die 50 M von der Ärmel + die 4 ersten Maschen von Vorder/Rückenteil damit stillgelegt = 60 M bei den Ärmeln und 89 M beim Vorder- bzw Rücken teil (+ 8 neuen Maschen unter den Armen). Viel Spaß beim stricken!
26.03.2020 - 10:19Aga wrote:
Hello, I have some difficulty understanding the pattern. In the yoke for size M, it says to increase 1 st every 4th row 14 times. Does this mean that I should increase 1 st in total every 4th row or 1 st near every marker, i.e. 4 sts increase in total every 4th row? At the end it says that after increase we have 298 sts on needle but according to my calculations only 206 sts will be on the needle once all increases are done. Am I missing something? Looking forward to your reply.
01.11.2019 - 00:18DROPS Design answered:
Dear Aga, you increase 1 stitch at each marker - see INCREASE TIP (yoke) over the DRESS/ YOKE pattern. There are 130 sts + 14 x 4 inc (= 4 markers) + 4 x 4 inc and at the same time you increase as shown in A.1 = 4 sts in each of the 24 A.1 = 130 + 72 sts inc at markers + 96sts inc in A.1 = 298 sts. Happy knitting!
04.11.2019 - 14:53Karin wrote:
Hallo, Is er al een verbetering van het patroon betreffende het aantal steken op de hulpnaald te zetten voor de mouwen aub? Want deze klopten niet.
11.03.2019 - 15:18DROPS Design answered:
Dag Karin,
Er is inmiddels een correctie op het patroon gekomen aangaande het onderdeel wat je bedoelt. Bedankt voor het geduld!
25.03.2019 - 10:24Michelle wrote:
Se gerne bort fra mit tidligere spørgsmål i dag. Jeg tror jeg har fundet fejlen. Jeg har vidst lavet udtagningerne forkert, så jeg har fået for få masker i ærmerne, og for mange i mønsterdelen. Jeg strikker en str. L. Jeg har først strikket udtagningerne på ærmerne på hver 2. omgang 16 gange og derefter på hver 4. omgang 4 gange. Hvad gør jeg forkert? Jeg havde 134 masker, inden jeg påbegyndte udtagningerne. MVH Michelle
28.02.2019 - 17:10DROPS Design answered:
Hei Michelle. Vi har nå laget en rettesle på inndelingen til bol og ermer, det skal være 95 masker på for og bakstykkene, og 64 masker på hvert erme. Altså 3 masker fra i hver side på for og bakstykket blir altså en del av ermet. God fornøyelse
18.03.2019 - 09:24Michelle wrote:
Hej. Jeg skal til at dele til ærmer, for- og bagstykke. Men jeg er aktuelt på 2. omgang af diagram A2. Hvordan får jeg mønstret til at passe, når jeg skal påbegynde kroppen og lave vrangmasker i siden? Har jeg mon lavet fejl? Mvh Michelle
28.02.2019 - 16:09DROPS Design answered:
Hej Michelle, Jeg læser det som at du skal dele arbejdet på første pind i diagrammet. Men det gør ikke noget hvis du bare sørger for at mønteret stemmer over kroppen, men de masker som er nærmest vrangmaskerne midt under ærmet strikker du i glatstrik hvis der ikke er nok til at strikke omslag og indtagning. God fornøjelse!
05.04.2019 - 12:26