DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 693.00 kr /50g
DROPS Super Sale

Frosty Morning Cardigan

Prjónuð aðsniðin peysa með röndum úr DROPS Delight og DROPS Alpaca með gatamynstri, laskalínu og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 165-45
DROPS Design: Mynstur nr de-141
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-200-200-200-250-250 gr litur nr 05, beige/grár/bleikur
Og notið:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 506, dökk grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 9 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 693.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

RENDUR:
* Prjónið 2 umf með Alpaca, prjónið 2 umf með Delight *, endurtakið frá *-* uppúr.

AÐSNIÐ:
Fækkið lykkjum við 4 prjónamerkin. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út við 4 prjónamerkin (= aðsnið). Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út undir ermum þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fellið af fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fellið af á eftir A.3 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fellið af 2 l á undan A.3 þannig: 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ: S: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 43, 49 og 55 cm.
STÆRÐ M: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44, 51 og 57 cm.
STÆRÐ L: 3, 10, 17, 24, 31, 38, 45, 52 og 59 cm.
STÆRÐ XL: 3, 11, 19, 26, 33, 40, 47, 54 og 61 cm.
STÆRÐ XXL: 3, 11, 19, 27, 35, 42, 49, 56 og 63 cm.
STÆRÐ XXXL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 58 og 65 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 223-241-262-286-310-337 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýring að ofan, 1 l br, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, 1 l sl, 1 l br, 5 l kantlykkjur í garðaprjóni. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3 cm eru prjónaðar 2 umf sléttprjón innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 6 l eru eftir, JAFNFRAMT er fækkað um 12-10-11-11-11-10 l jafnt yfir í 1. umf í mynstri, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 211-231-251-275-299-327 l. ATH: Í 7. umf í mynstri er síðasta l prjónuð á undan kanti að framan slétt! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka áhæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3 og prjónað er áfram í sléttprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 31-32-34-35-35-36 l, 2. prjónamerkið er sett eftir næstu 48-56-62-72-84-96 l, 3. prjónamerkið er sett eftir næstu 53-55-59-61-61-63 l og 4. prjónamerkið er sett eftir næstu 48-56-62-72-84-96 l (nú eru 31-32-34-35-35-36 l eftir í umf eftir síðasta prjónamerki).Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir AÐSNIÐ – sjá skýringu að ofan (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) 6-6-6-6-5-5 sinnum til viðbótar = 183-203-223-247-275-303 l. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum eru aukið út á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6.-8.-8. hverri umf, 6-6-6-6-5-5 sinnum til viðbótar = 211-231-251-275-299-327 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-39-39-40-41-43 cm – stillið af að næsta umf sé síðasta umf með Delight! Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 50-55-60-65-71-78 l (= vinstra framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 91-101-111-121-133-147 l sléttprjón (= bakstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg og prjónið síðustu 50-55-60-65-71-78 l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 57-57-60-60-63-66 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið stroff þannig: * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til stroffið mælist 3 cm. Prjónið nú áfram 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 1-1-2-0-1-2 l jafnt yfir = 56-56-58-60-62-64 l. Prjónið nú mynstur eftir mysnturteikningu A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Haldið síðan áfram í sléttprjóni og rendur, JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-17 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 41-39-39-38-38-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af að næsta umf er síðasta umf með Delight. Í næstu umf eru felldar af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki. Byrjið frá réttu og haldið áfram með rendur (þ.e.a.s. 2 fyrstu umf eru prjónaðar með Alpaca), sléttprjón og kantlykkjur í garðaprjóni eins og áður þannig: Prjónið l frá hægra framstykki, prjónið síðan l frá fyrri ermi og setjið 1 prjónamerki í fyrstu og síðustu l á ermi, prjónið l frá bakstykki, prjónið l af hinni erminni og setjið 1 prjónamerki í fyrstu l og síðustu l á ermi og prjónið l frá vinstra framstykki = 331-359-383-411-439-475 l og 4 prjónamerki í stykki.
Prjónið nú A.3 í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við l með prjónamerki í) og fellið af fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) 5-6-7-7-8-8 sinnum til viðbótar = 283-303-319-347-367-403 l. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni), JAFNFRAMT er fækkað um 20-26-28-32-36-40 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 263-277-291-315-331-363 l. Nú er prjónað og lykkjum fækkað eftir A.4 innan við 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið (veljið mynstur fyrir rétta stærð). ATH: Í síðustu l á undan kanti að framan (séð frá réttu) prjónið sléttprjón! Í næst síðustu umf í mynstri er fækkað um 4-6-8-28-30-44 l jafnt yfir = 187-195-203-211-221-231 l. Haldið nú áfram með Alpaca til loka. Prjónið nú A.5 innan við 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið (ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð). (Síðasta l á undan kantlykkju að framan er prjónuð í sléttprjóni). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið nú A.1 innan við 5 kantlykkjur að framan. Í 1. umf í mynstri er fækkað um 30-28-36-34-44-44 l jafnt yfir = 157-167-167-177-177-187 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð upphækkun í hnakka í garðaprjóni þannig: Byrjið frá réttu og prjónið sl þar til 20-20-22-22-24-26 eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 20-20-22-22-24-26 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 36-36-40-40-44-48 l eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 36-36-40-40-44-48 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl út umf. Haldið áfram með 2 umf sléttprjón innan við kantlykkjur að framan, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 157-166-166-178-178-187 l. Prjónið nú stroff þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l br * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið *-* þar til 7 l eru eftir, 1 l sl, 1 l br, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Peysan mælist ca 56-59-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = lykkja felld af - sjá skýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Thi wrote:

Hei, jeg forvirrer om A 3 og raglan felling. Skal jeg strikke A 3 og raglan felling en omgang på rett side deretter bare A3 uten raglan felling og i 4. omgang skal strikke A3 med raglan felling igjen?. Til sammen skal jeg felle 7 ganger for M. Størrelse slik at jeg får 303 m. I bærestykke. Håpe at du skal hjelpe meg med en forklaring om dette. På forhånd tusen takk! Mvh Thi

12.10.2020 - 15:30

DROPS Design answered:

Hej. Ja du stickar A.3 hela tiden i overgang mellan bol og ermer, men du feller kun till raglan på hver 4. pinne. På de pinner du feller till raglan feller du totalt 8 m per pinne. 8x7= 56 m. 359 m - 56 m = 303 m. Mvh DROPS Design

16.10.2020 - 12:08

country flag Anita wrote:

De pasvorm van het vestje is niet goed. Ik heb maat 38 en maat M is veel te krap op de schouders. De mouwen zijn te kort. Het bovenste stuk met Alpaca valt niet mooi. Ik ga dat maar uittrekken en het patroon voor de zoveelste keer aanpassen. Heel teleurstellend.

02.02.2019 - 09:46

country flag Anita wrote:

Ik begrijp niet hoe ik de raglan moet maken. Ik moet A3 breien. Volgens de uitleg van het telpatroon moet ik 1r afh, 2r samen, afgeh st overhalen en aan weerszijden een omslag maken. Dan minder ik niets en er ontstaan gaatjes. Is dat de bedoeling? En moet ik dan tegelijkertijd voor de raglan minderen? Maar dat moet volgens het gestelde bij RAGLAN aan elke kant van A3 en in elke overgang tussen mouwen en lijf. In de tekst staat iets anders: elke 4e naald. Dat komt dus niet overeen. Hoe moet het??

14.11.2018 - 10:39

country flag Anita wrote:

Volgens de uitleg van het telpatroon betekent een sterretje een naald met meerderingen, zie uitleg in patroon. Bij A4 staat zo'n sterretje in de één na laatste naald. Maar in het patroon staat niets over meerderen. Betekent de zin bij A4 "Let op, brei de laatste st voor de voorbies (gezien aan de goede kant) in tricotsteek dat ik A4 pas in de 7e steek ga breien?

11.11.2018 - 15:03

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Er stond een fout in het patroon; bij het sterretje in de uitleg voor de symbolen moet staan: 'naald met minderingen' (ipv meerderingen) en het is nu aangepast. De minderingen staan wel beschreven in het patroon.

13.11.2018 - 08:55

country flag Anita wrote:

Ik begrijp niet hoe ik de raglan moet maken. Ik moet A3 breien. Volgens de uitleg van het telpatroon moet ik 1r afh, 2r samen, afgeh st overhalen en aan weerszijden een omslag maken. Dan minder ik niets en er ontstaan gaatjes. Is dat de bedoeling? En moet ik dan tegelijkertijd voor de raglan minderen? Maar dat moet volgens het gestelde bij RAGLAN aan elke kant van A3 en in elke overgang tussen mouwen en lijf. In de tekst staat iets anders: elke 4e naald. Dat komt dus niet overeen. Hoe moet het??

11.11.2018 - 14:58

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Je breit inderdaad A.3 zoals beschreven, waarbij het aantal steken in A.3 gelijk blijft (omslagen en minderingen heffen elkaar op. Verder staat bovenaan bij 'RAGLAN' beschreven hoe je mindert voor de raglan, dus hoe je dit doet als je voor A.3 bent en hoe je dit doet als je na A.3 bent. In de beschrijving van het patroon staat vervolgens hoe vaak je dit minderen voor de raglan doet. Hopelijk is het zo duidelijk. :)

19.11.2018 - 07:31

country flag Idun Hammeren wrote:

Hei!\r\nFinner ikke str veiledning på frosty morning cardigan. Hva er overvidde i cm på str S/M/L ?

10.08.2018 - 10:12

DROPS Design answered:

Hej, jo aller nederst i opskriften finder du måleskitsen i de 6 størrelser. God fornøjelse!

14.08.2018 - 12:58

country flag Mette Skov wrote:

Forstår ikke diagram A5. Jeg formoder at der skal tages ind når jeg nærmer mig afslutningen på bærestykket. I dette diagram skal der slås om på 3 pinde og dette giver ikke mindre masker men uændret antal masker.....? Er diagrammet så ikke helt overflødigt ? Forstår ikke at jeg ikke skal tage ind i stedet for.....

24.07.2018 - 10:44

DROPS Design answered:

Hei Mette. A.5 lager et hullmønster øverst på genseren, før halskanten – som du kan se på bildet om du zoomer inn. Du feller masker i diagrammene både før og etter, men i A.5 forblir maskeantallet konstant da det økes og felles samme antall masker på hver omgang. Det er disse økingene som skaper hullmønster. God fornøyelse.

31.07.2018 - 11:19

country flag Els Van Vinken wrote:

Ik brei dit mooie vest. Ben bij de raglan. Moet ik A3 in elke naald breien of alleen samen met de mindering voor de raglan?

15.07.2018 - 10:27

DROPS Design answered:

Dag Els, A.3 brei je inderdaad op elke naald, in elke overgang van mouw naar lijf. Daarnaast minder je naast A.3 voor de raglan.

16.07.2018 - 12:29

country flag Merete Løwe Larsson wrote:

Hej Kan det være rigtigt at der skal være 157 masker tilbage ,når man starter den sidste rib i halsen ? Synes den er meget vid / betinget ?

10.07.2017 - 16:56

DROPS Design answered:

Hei Merete. Denne jakken har en vid hals, men kanten vil trekke seg litt sammen når man strikker vrangborden. God Fornøyelse.

11.07.2017 - 07:32

country flag Britt Winther wrote:

Stemmer det at armen kun skal måle 39cm(str.L) før den settes inn på bolen?

09.02.2017 - 12:49

DROPS Design answered:

Hej Britt. Ja, det er korrekt. Skulderen er breddere paa de större str, saa aermet vil blive laengere naar den er faerdig (maalt op til skulder).

09.02.2017 - 14:22