DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Haze Tunica

Prjónuð peysa úr DROPS Big Delight í garðaprjóni, prjónuð frá hlið. Stærð S - XXXL.

DROPS 150-23
DROPS Design: Mynstur nr db-019
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL
Vegna þyngdar á garninu og garðaprjóns kemur flíkin til með að teygjast á lengdina og á armum. Mæling í mynsturteikningu jafngildir mál á peysunni þegar hún liggur flöt.

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
500-500-600-600-700-800 gr litur nr 13, grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 26 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Örvar í mynsturteikningu sýna prjónstefnu. Öll peysan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA – ef prjónfestan er ekki sú saman kemur það til með að hafa áhrif á útkomu á lögun á peysunni!

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l.
Fitjið upp 3-3-4-4-4-4 l á hringprjóna nr 7 með Big Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan ( 1. umf = rétta). JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun á hverri umf með því að prjóna 2 l í fyrstu l í öllum umf þar til 47-51-56-62-66-72 l á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið annan hluta á sama hátt.
Setjið bæði stykkin saman á hringprjóna nr 7 = 94-102-112-124-132-144 l. Setjið prjónamerki á milli þessa stykkja. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið þar til 1 l er eftir, prjónið 2 l í síðustu l. Haldið áfram með útaukningu og úrtöku í hverri umf frá réttu (lykkjufjöldinn kemur þar með að haldast stöðugur) þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm – mælt efst uppi meðfram hlið á stykki (ekki í prjónstefnu) – sjá mynsturteikningu.

Setjið 1 prjónamerki í hlið. Fitjið nú upp nýjar l í lok hverrar umf (þ.e.a.s. í hliðum) fyrir öxl þannig: Fitjið upp 6 nýjar l í hlið alls 4 sinnum (= 24 l útauknar l í hvorri hlið). Setjið 1 nýtt prjónamerki í hlið. ATH: Munið eftir að úrtaka við miðju að aftan heldur áfram eins og áður alla leið til loka = 134-142-152-164-172-184 l á prjóni.

Eftir síðustu útaukningu fyrir öxl heldur útaukning áfram í hlið eins og áður (þ.e.a.s. prjónið 2 l í fyrstu l og síðustu l í öllum umf frá réttu).
Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá síðasta prjónamerki (mælt efst uppi meðfram hlið) fellið af fyrir öxl þannig: Prjónið 2 fyrstu l í umf saman og 2 síðustu l í umf saman í öllum um frá réttu þar til eftir eru 38-42-44-48-52-56 l á prjóni (þ.e.a.s. fækkað er l bæði fyrir miðju og í hvorri hlið). Setjið fyrstu 13 l á þráð (prjónið þær fyrst), fellið af næstu 12-16-18-22-26-30 l = 13 l eftir á prjóni. Haldið áfram í garðaprjón yfir þessar l, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun hverrar umf. Haldið áfram þar til 1 l er eftir, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. Setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið alveg eins yfir þessar 13 l.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l á hringprjóna nr 7 með Big Delight.
Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 6 -4½-4-4-3-3 cm millibili 4-5-5-5-6-6 sinnum til viðbótar (= alls 5-6-6-6-7-7 útaukningar) = 46-50-52-54-58-60 l. Fellið af allar l þegar stykkið mælist 33-32-31-29-28-26 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið saum undir ermum og hliðasauma í eitt yst í lykkjubogann (svo að saumurinn verði ekki of þykkur).

Mynstur

symbols = prjónastefna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (59)

country flag Christina wrote:

Da habe ich mich wohl unklar ausgedrückt: ein Teil ist das, in dem man mittig abnimmt, das ist kein Problem. Das problematische Teil ist das, in dem man vor und nach der Markierung in der Mitte eine Masche doppelt strickt. Wenn ich am Anfang und Ende der Reihe zur Schulter abnehme und in der Mitte wieder zwei zunehme, bleibt doch die Maschenzahl gleich und es werden niemals 34 Maschen. Wie also komme ich in dem Teil weiter?

03.10.2023 - 17:38

DROPS Design answered:

Liebe Christina, es sind (1. Größe) 94 Maschen davor auf der Nadel, dann nehmen Sie 2 Maschen in jeder 2. Reihe (also 4 Mal = 8 Maschen) ab und gleichzeitig nehmen Sie 6 Maschen 4 Mal auf beiden Seiten = 94+24+24-8=134 Maschen. Dann nehmen Sie beidseitig zu, damit die Maschenanzahl immer gleich bleibt. Dann nehmen Sie beidseitig (und immer noch in der Mitte) ab bis 38 Maschen übrig sind. Viel Spaß beim stricken!

05.10.2023 - 09:30

country flag Christina wrote:

Ich war noch nicht fertig: hinter der Markierung zwei zusammen stricken. In der Anleitung steht: vergessen Sie nicht, in der Mitte weiterhin abzunehmen. Wenn ich von zunehmen auf abnehmen umsteige, gibt es eine Beule. Wenn ich weiterhin zunehme, muss ich woanders abnehmen. Ich hab mein Strickstück jetzt schon zweimal aufgeribbelt und komme trotzdem nicht klar. Bitte helfen Sie mir. Danke.

01.10.2023 - 20:07

DROPS Design answered:

Liebe Christina, es wird dann genauso wie zuvor gestrickt, die Abnahmen beidseitig von der Mrakierung in der Mitte genauso stricken, bis Sie die 34-142-152-164-172-184 Maschen haben. Dann nehmen Sie genauso wie geschrieben ab ((am Anfang jeder Hin-Reihe, und immer noch in der Mitte) Viel Spaß beim stricken!

02.10.2023 - 11:58

country flag Christin wrote:

Erst einmal vielen Dank für die vielen tollen kostenlosen (!!) Anleitungen, meine Tochter liebt ihre von mir gestrickten Pullis. Jetzt wollte ich Mal für mich stricken und bin prompt gescheitert: nach der Zunahme für die Ärmel muss man ja eine bestimmte Höhe ersticken, während der man das Muster beibehalten muss. Beim einen Teil ist es in der Mitte zunehmen (re und li der Mitte zweimal die selbe Masche), beim anderen Teil ist es in der Mitte abnehmen (vor der Markierung eine abheben, eine

01.10.2023 - 20:03

country flag Carole Brabant wrote:

Bonjour, Dans explications DOS, que voulez-vous dire par : en tricotant 2 fois 2 fois la première maille tous les rangs - je dois tricoter 2m dans la 1ère m du début de chaque rang- pourquoi 2 fois 2 fois? Merci

21.11.2022 - 14:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brabant, il s'agissait juste d'une faute de frappe, désolée, vous devez juste tricoter 2 fois la même maille, alternativement dans le brin avant et le brin arrière (on augmente 1 maille ainsi). Correction faite, merci pour votre retour et bon tricot!

21.11.2022 - 16:22

country flag Paola Lauwers wrote:

Hallo, als je 4 maal 6 steken opzet voor de mouwen plus de mindering middenachter dan heb je in maat S maar 126 steken ipv 134 steken zoals het patroon voorschrijft.klopt dit? groetjes Paola

22.04.2020 - 22:03

DROPS Design answered:

Dag Paola,

Je hebt 94 steken op de naald. Je meerdert in totaal 48 steken (aan beide kanten 24) voor de mouwen. Hierdoor kom je op een totaal van (94+48=) 142 steken, maar omdat je over die 4 naalden dat je aan het meerderen was voor de mouwen, ook in totaal 8 steken hebt geminderd midden achter, kom je op een totaal van 138 steken.

25.04.2020 - 21:00

country flag Johanneke wrote:

Na het meerderen voor de schouders, brei je dan de dubbele steek in de steek aan het eind vd naald? Of voor de laatst geplaatste markeerde, zoals ervoor?

06.07.2019 - 22:16

DROPS Design answered:

Dag Johanneke,

Na het opzetten van steken voor de schouders brei je de dubbele steek inderdaad aan het eind van de naald.

08.07.2019 - 10:10

country flag Francesca wrote:

Sto iniziando questo lavoro. Ho fatto il primo triangolo, adesso taglio il filo e inizio il secondo? O lo faccio con un altro gomitolo in modo da avere la stessa sfumatura? Una volta fatti entrambi li metto sullo stesso ferro e saranno uniti grazie al ferro successivo? Spero di essermi spiegata bene e grazie.

16.03.2019 - 00:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. Finito il primo triangolo, non taglia il filo, ma inizia il secondo con un gomitolo la cui sfumatura sia il più possibile simile a quella del primo triangolo. I due triangoli verranno uniti tra loro quando li riporta sullo stesso ferro. Buon lavoro!

16.03.2019 - 06:51

country flag Francesca wrote:

Buonasera, vorrei sapere se posso sostituire il colore del filato con un altro qualsiasi di big delight ed ottenere un effetto simile. Grazie

13.02.2019 - 22:20

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca, questo maglione è lavorato con lo stesso colore, per cui le sfumature sono quelle del gomitolo di DROPS Big Delight. Può utilizzare il colore che preferisce. Buon lavoro!

14.02.2019 - 06:38

country flag Susan Bennett wrote:

How many yards of yarn are required for this tunic?

06.11.2017 - 01:31

DROPS Design answered:

Dear Suzanne, depending on the size, about 500-500-600-600-700-800 gramms (5-5-6-6-7-8 balls/ 950 -950- 1140 -1140-1330 -1520 meters)yarn is needed. Happy Knitting!

06.11.2017 - 02:10

country flag Marianne wrote:

Bedankt voor het snelle antwoord. De stekenverhouding klopt wel, maar ik ben er inmiddels achter wat ik fout heb gedaan: ik ben 20 cm na de eerste markeerder gaan minderen voor de schouder in plaats van na de tweede markeerder.

30.11.2016 - 17:57