DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Fly Away

Prjónuð síð peysa með stuttum ermum prjónuð frá hlið úr DROPS Alpaca og DROPS Vivaldi eða DROPS Brushed Alpaca Silk. Strl S - XXXL.

DROPS 119-1
DROPS Design: Mynstur nr Z-490
---------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
ATH! Vegna þess að peysan er prjónuð frá hlið kemur hún til með að teygjast ca 3-5 cm á lengdina þegar hún er mátuð miðað við mælingu á teikningu.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-300-300-350-400-400 gr litur nr 2917, ljós turkos:
Og einnig:
DROPS VIVALDI frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 22, ljós turkos
Eða:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 15, ljós sægrænn

DROPS HRINGPRJÓNN 6 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með einum þræði af hvorri tegund = 2 þræðir.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 (80 cm) – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna fjölda l er flíkin prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Prjónið frá miðju að framan og að vinstra framstykki og út með hlið, fellt er af fyrir handveg og síðan prjónað áfram fram að miðju að aftan áður en fellt er af. Síðan er hægra framstykki prjónað á sama hátt, nema gagnstætt frá miðju að framan áður en peysan er saumuð saman við miðju að aftan. Að lokum eru ermar prjónaðar fram og til baka og saumaðar í.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið laust upp 113-117-121-126-130-135 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca og Vivaldi eða Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (umf 1 = rétta). Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og haldið áfram í sléttprjóni með 2 l garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 46-51-56-63-70-80 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu – setjið síðustu 44-45-46-51-52-54 l frá vinstri hlið á stykkinu (séð frá réttu) á þráð. Prjónið 4-4-4-8-8-8 umf í sléttprjóni með 2 l garðaprjón í hvorri hlið (2-2-2-4-4-4 cm) yfir þær 69-72-75-75-78-81 l sem eftir eru á prjóni. Setjið nú þessar l á þráð. Setjið til baka þær 44-45-46-51-52-54 l af fyrri þræði á hringprjóna nr 6 og prjónið handveg frá réttu þannig:

STÆRÐ S – M – L: Fellið af fyrstu 29-30-31 l í byrjun umf, prjónið þær 15 l sem eftir eru á prjóni eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í síðustu l í hægri hlið á prjóni (séð frá réttu – prjónamerkið sýnir hvar sauma á ermakúpuna í op við handveg). Snúið við, prjónið 15 l á prjóni eins og áður og fitjið síðan upp 29-30-31 l í lokin.

STÆRÐ XL - XXL - XXXL: Fellið af fyrstu 16-17-18 l í byrjun umf, prjónið þær 35-35-36 l sem eftir eru á prjóni eins og áður, snúið við. Prjónið þær 35-35-36 l á prjóni eins og áður, snúið við. Fellið af fyrstu 17-17-18 l í byrjun á prjóni og prjónið þær 18 l sem eftir eru eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í síðustu l í hægri hlið á prjóni (séð frá réttu – prjónamerkið sýnir hvar sauma á ermakúpu í op við handveg). Snúið við, prjónið þær 18 l eins og áður, fitjið upp 17-17-18 nýjar l í lok umf, snúið við. Prjónið 35-35-36 l á prjóni eins og áður, snúið við. Prjónið 35-35-36 l á prjóni eins og áður og fitjið upp 16-17-18 nýjar l í lok umf.

ALLAR STÆRÐIR: Setjið til baka þær 69-72-75-75-78-81 l af þræði á prjóninn og prjónið sléttprjón með 2 l garðaprjón í hvorri hlið yfir allar 113-117-121-126-130-135 l. Þegar stykkið mælist 61-67-73-82-90-101 cm (mælt lengst út í vinstri hlið á stykkinu séð frá réttu. Stykkið kemur til með að mælast ca 62-68-74-84-92-103 cm yst í hægri hlið) prjónið stuttar umferðir til þess að fá aukna vídd við miðju á baki (byrjið í byrjun umf frá röngu = frá hálsmáli) þannig: Prjónið fyrstu 30-33-36-41-45-48 l á prjóni og setjið þær l á þráð, prjónið nú þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við og prjónið til baka yfir allar l, * prjónið fyrstu 11-8-7-7-6-5 l á prjóni, setjið síðan inn l á sama þráð og prjónið þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við og prjónið til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* alls 7-9-11-11-13-15 sinnum. Snúið við, prjónið þær 6-12-8-8-7-12 l sem eftir eru. Setjið nú til baka allar þær 107-105-113-118-123-123 l af þræði á prjóninn og prjónið 2 umf slétt yfir allar l áður en fellt er laust af = miðja aftan á peysu. Stykkið mælist nú ca 62-68-74-83-91-102 cm í vinstri hlið (séð frá réttu) og 72-80-88-98-108-121 cm í hægri hlið – mælt í prjónstefnu!

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstra stykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. að öll mæling sem gerð er í vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) er nú gerð í hægri hlið á stykki (séð frá réttu). Þegar prjóna á 4-4-4-8-8-8 umf undir ermi verður að passa uppá að fyrsta umf sé prjónuð frá röngu (í stað réttu) og síðustu 44-45-46-51-52-54 l í vinstri hlið á stykki (séð frá röngu, ekki réttu) eru settar á þráð. Fylgið nú nú leiðbeiningum um handveg frá röngu (í stað frá réttu). Að lokum eru prjónaðar stuttar umferðir við miðju að aftan með byrjun í byrjun umf frá réttu (í stað frá byrjun umf frá röngu).

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 41-43-44-47-50-53 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Alpaca og Vivaldi eða Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf garðaprjón, skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælst 5 cm er felld af 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 10 cm, síðan er fellt af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið alls 4-4-5-6-7-8 sinnum. Fellið nú af 4 l í byrjun á næstu 2 umf áður en fellt er laust af allar l, ermin mælist ca 15-15-16-17-18-19 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman peysuna við miðju að aftan innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umf garðaprjón á miðju að aftan. Saumið ermar í – ATH! Ermakúpan er saumuð niður við prjónamerki á öxl og ermin er saumuð niður hvoru megin meðfram opi við handveg merkt með stjörnum á teikningu (það á ekki að vera saumur fyrir miðju undir ermi heldur á að vera opið fyrir miðju undir ermi þar sem 4-4-4-8-8-8 umf voru prjónaðar).

Mynstur

symbols = prjónastefna
symbols = miðja að framan
symbols = hér er ermi saumuð í
symbols = miðja að aftan
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 119-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (173)

country flag Anobibodzui wrote:

Exa prolonged release formulations comprising anastrozole liquid anastrozole review what is anastrozole used for

20.05.2016 - 10:40

country flag Ababechibug wrote:

Hrc anastrozole infertility anastrozole natco anastrozole mental side effects

17.05.2016 - 23:01

country flag Chambre wrote:

Je n'ai pas d'imprimante et désire commander un modèle + laines, est-ce possible ? si oui, comment procéder ? merci

07.02.2016 - 11:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chambre, vous trouverez ici la liste des revendeurs DROPS (magasins et boutiques en ligne), vous pourrez y commander votre laine et les catalogues. Bon tricot!

08.02.2016 - 12:40

country flag Sonja Kastrupsen wrote:

Hej hvor langt skal der strikkes med 2 farver kan ikke se mig ud af det på forhånd tak

23.11.2015 - 16:57

DROPS Design answered:

Hej Sonja, du strikker hele jakke med 1 tråd af hver kvalitet. God fornøjelse!

25.11.2015 - 14:06

country flag Linda wrote:

Hej Kan jakken ikke strikkes ud i eet i stedet for i 2 dele til sammensyning? Hilsen Linda

02.06.2015 - 12:48

DROPS Design answered:

Hej Linda. Modellen strikkes ud forstykket og til midten med forkortede pinde midt bag. Strikker du ud i et, vil dine masker vende den anden vej paa dit andet forstykke - men det er jo et spörgsmaal om hvad du selv synes. Og du skal selvfölgelig lige omregne saa det passer. Men du kan da pröve - god fornöjelse.

03.06.2015 - 14:01

Adela Rivera wrote:

Yo entiendo que la parte de adelante es lo más ancho después de la sisa y lo más angosto es la espalda,luego entonces creo que está mal la explicación de la parte izquierda y la parte derecha, ha de ser a la inversa, por favor sáquenme de dudas. Por lo que respecta a este sitio,todo está maravilloso.

02.06.2015 - 03:03

DROPS Design answered:

Hola Adela, la parte más ancha es la de la espalda. Al coser las 2 mitades al final queda una especie de pliegue en el centro de la espalda en la parte inferior.

07.06.2015 - 10:41

country flag Teresa wrote:

I would love to make this. What yarn can I use if I only want to use one thread instead of 2? thanks!

27.05.2015 - 19:03

DROPS Design answered:

Dear Teresa, Alpaca belongs to group A and Vivaldi to group C, you could use 1 yarn group D - see also other alternatives there. Happy knitting!

28.05.2015 - 09:47

country flag Carrie wrote:

Salve..mi chiedevo se fosse possibile lavorare questo modello solo con uno dei due filati anzich¨¦ tutti e due Grazie

25.04.2015 - 06:41

DROPS Design answered:

Buongiorno Carrie, usando uno solo dei due filati il risultato potrebbe cambiare molto rispetto a quello del modello, però può provare ad esempio ad usare 3 capi di Alpaca (Vivaldi è un filato del gruppo C, che corrisponde a 2 capi di un filato di gruppo A); se invece vuole proprio cambiare filato, deve utilizzarne uno che le permette di lavorare il campione indicato. Buon lavoro!

26.04.2015 - 17:57

country flag Van wrote:

For a small sized sweater starting from the shortened row section to create extra width for the mid back, every time we slip stitches(starting from 30 then 11(7x)), do we cut the yarn and attach new yarn in order to continue with the rest of the stitches for that row? It seems logical but just want to confirm that there will be a lot of yarn loose ends to weave in for this last section of the sweater. Thank you for your guidance.

11.11.2014 - 03:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Van, there is no need to cut the yarn, you work as follows: work the first 30 sts from neck towards bottom edge and put them on a thread and work the remaining sts to the bottom edge. Then *work 11 sts, put them on a thread, work remaining sts, turn and work back row* repeat from *-* a total of 7 times (= 107 sts on the thread) work the remaining 6 sts and work the 107 sts from the thread back. Happy knitting!

11.11.2014 - 09:28

country flag Georgia Shirley wrote:

Love this pattern. It looks like "Angel Wings".

01.11.2014 - 19:16