Quilting Bee Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, áferðamynstri og I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-25 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um hringinn á berustykki): Lykkjum er ekki aukið út yfir ystu 12 lykkjur í hvorri hlið. Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 151 lykkjur), mínus lykkjur sem ekki á að auka út yfir (t.d. 24 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 3,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. Hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Síðan er fellt af fyrir næstu 6 hnappagötum með ca 6½-7-7-7½-8-8 cm millibili. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu eru notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið með þá lengd sem passar og skiptið eftir þörf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 137-143-151-155-159-167 lykkjur á hringprjón 3. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4 cm, fitjið upp 7 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða = 151-157-161-169-173-181 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður, en ystu 8 lykkjur í hvorir hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur að framan mælist 9 cm – endið eftir umferð frá röngu. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn tvöfaldur og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Setjið 1 merki að innanverðu við kant að framan. Mæla á berustykki frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-36-38-40-42 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) = 185-193-201-207-213-223 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar berustykkið mælist 3-4-5-5-5-6 cm frá merki, er aukið út um 38-42-46-46-52-54 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 223-235-247-253-265-277 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið þar til berustykkið mælist 4-5-6-7-7-8 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2 og endið með 8 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir ystu 12 lykkjur í hvorri hlið). Ör-1: Aukið út 18-18-18-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 241-253-265-277-289-307 lykkjur. Ör-2: Aukið út 18-24-24-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 259-277-289-301-313-337 lykkjur. Ör-3: Aukið út 18-24-24-30-36-36 lykkjur jafnt yfir = 277-301-313-331-349-373 lykkjur. Ör-4: Aukið út 23-23-29-35-35-35 lykkjur jafnt yfir = 300-324-342-366-384-408 lykkjur. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 348-376-397-425-446-474 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan þannig: 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.3 þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út 14-14-21-28-35-35 lykkjur jafnt yfir (ör-5), prjónið A.4 og endið með 8 kantlykkjum að framan eins og áður = 362-390-418-453-481-509 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og aukið út í hverri umferð merktri með ör í A.3 – munið eftir ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir ystu 12 lykkjur í hvorri hlið). Ör-6: Aukið út 9-13-17-22-26-30 lykkjur jafnt yfir = 371-403-435-475-507-539 lykkjur. Ör-7: Aukið út 6-10-10-14-18-18 lykkjur jafnt yfir – passið uppá að útaukningin skiptist þannig að gatamynstrið haldi sér = 377-413-445-489-525-557 lykkjur. Þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 19-20-21-22-24-25 cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður þar til berustykkið mælist 20-21-22-23-25-27 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 62-68-72-78-85-92 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 72-78-86-96-100-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 109-121-129-141-155-169 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 72-78-86-96-100-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 62-68-72-78-85-92 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 253-277-297-321-353-385 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður, þar til stykkið mælist 19-20-20-21-21-21 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 60-62-66-74-82-88 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 313-339-363-395-435-473 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið nú stroff frá röngu þannig: 8 kantlykkjur að framan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 8 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 72-78-86-96-100-102 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 82-88-98-108-114-118 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4-4-3-3-2-2 hverri umferð alls 8-10-14-18-19-20 sinnum = 66-68-70-72-76-78 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-41-41-41-40-38 cm frá skiptingunni. Það eru eftir 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir = 80-84-86-90-94-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 46-45-45-45-44-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
MURIEL wrote:
Bonjour Taille 1 Je ne comprends pas comment il peut y avoir 348 mailles à la fin de A1A2, alors qu'après la flèche 4 (dernière augmentation) il y en a 300??? Quand augmente-t-on ces 48 mailles? Merci de votre aide
13.05.2024 - 09:04DROPS Design answered:
Bonjour Muriel, on va augmenter 1 maille dans chaque A.1 et 1 maille dans A.2, donc après la flèche 4 vous avez 300 mailles et vous tricotez 47 fois A.1 en largeur pour terminer par les 2 m de A.2; vous allez ainsi augmenter 47+1 = 48 mailles et ainsi obtenir les 300+48=348 mailles. Bon tricot!
13.05.2024 - 12:27Albina Vidal García wrote:
Inicio el proyecto con lana más gruesa y la talla S es grande. Con cuántos puntos debo iniciar el cuello para obtener una talla menos. Sí S son 136 p y M 143 p, una talla menos de S serían 129 p? Gracias por tu atención
14.04.2024 - 18:30DROPS Design answered:
Hola Albina, no puedes hacer una regla de 3 directa; tienes que hacer tus propios cálculos con tus medidas deseadas y tu nueva tensión. Puedes leer la siguiente lección para más información: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=23
14.04.2024 - 23:24C Hristina wrote:
På diagram A1 skall man på v9 bara ha 5 maskor av de 6 man använt. Kan inte få antalet maskor att stämma med diagrammet på stl XL. 301 maskor, tag bort 16 kantmaskor, tag bort de 3 maskor som skall vara A2, då återstår 282 m. Kan inte fördela detta över 5 maskor som skall stickas. Hur skall jag tänka?
14.04.2024 - 08:42DROPS Design answered:
Hej, Vi kan se hvad du mener og skal få design til at se på det. Hold øje her, så vil der blive lagt en opdatering ud - tak for info :)
16.04.2024 - 07:47Gerda Hijink wrote:
Volgens mij klopt de meerdering bij pijl 2 niet.Voor maat m moet je 24 steken meerderen tot 277 steken.277-16 kant steken is 261 en als je die deelt door 5 steken kom je op 52 herhalingen en hou je maar 1 steek over ipv 3 voor A2
03.04.2024 - 23:46Karin wrote:
Tak :), nu mønster A3 mangler igen.
06.03.2024 - 06:57Karin wrote:
Er det korrekt at i række nr. 11 i mønster A1 i forbindelse med “strik 3 ret, løft derefter den første maske som blev strikket over de 2 andre så den ligger rundt om de 2 andre maske”, at jeg lukker en maske af? Så der kun er 5 masker. I række 9 i forbindelse med den “sorte” maske, har lukket jeg lukker en maske af og taget en ud ved omslag lidt tidligere. Så i denne række er der 6 masker. Når jeg udtager ved pil nr 3 mangler jeg de lukkede masker i pind 11.
03.03.2024 - 00:03DROPS Design answered:
Hej Karin, tak for info - vi skal høre med design, så kommer vi tilbage med en opdatering :)
05.03.2024 - 14:54Lieke De Rooij wrote:
The pattern is missing A3.
27.02.2024 - 17:55Lieke De Rooij wrote:
The sweater quilting bee has patterns A1,A2 and A3, but A3 is not shown.
27.02.2024 - 17:47DROPS Design answered:
Hi Lieke, Pattern A.3 is bottom right, above the size-chart. Happy knitting!
28.02.2024 - 07:02Lena Kolmodin wrote:
Det skrivna maskantalet stämmerinte efter alla ökningar i A1 o A2 får det till 342 m. I mönstret står det 397 m Med vänlig hälsning Lena Kolmodin
25.02.2024 - 19:16DROPS Design answered:
Hej Lena. Kom ihåg att du ska öka maskor vid varje pil i diagram A.1 också enligt beskrivning. Mvh DROPS Design
27.02.2024 - 07:34Ann-Karin Persson wrote:
I Diagram A1 ser det ut som det blir aviga maskor på rätsidan men på bilden är det räta maskor. Och det ser ut som ökning och minskning görs på avigan. Tänker jag alldeles fel. Mvh Ann-Karin
21.02.2024 - 18:52DROPS Design answered:
Hej Ann-Karin, det er vrangmasker (set fra retsiden) på billedt :)
23.02.2024 - 13:17