Hello Santa |
|||||||
|
|
||||||
Prjónaðir jólasveinar fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni með útsaumi fyrir augu og munn.
DROPS Baby 46-21 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTURTEIKNING: Sjá mynsturteikningu A og B. Mynsturteikning sýnir útsaumsspor. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASVEINAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjað er á að prjóna hendur, síðan er prjónað frá fótum og upp að toppi á húfunni. Hendur eru prjónaðar inn á stykkið. Á jólasveinakarli er skeggið prjónað inn á stykkið. Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni. Augun, munnur og tölur er saumað út. Jólasveinninn er saumaður saman eins og útskýrt er í mynstri og fylltur með vatti. Á jólasveinakerlingu eru gerðar fléttur sem saumaðar eru við húfuna í lokin. JÓLASVEINAKARL: HANDLEGGUR: Fitjið upp 8 lykkjur á prjóna 3,5 með litnum eyðimerkurrós í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, þannig: 4 umferðir garðaprjón með litnum eyðimerkurrós, 4 umferðir garðaprjón með litnum natur og 8 umferðir garðaprjón með litnum rauður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan með litnum rauður þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Fellið af 2 lykkjur, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, fellið af síðustu 2 lykkjur. Klippið þráðinn ca 25 frá stykkinu (nægilega langan þráð til að sauma stykkið saman með), þræðið þráðinn í síðustu lykkju. Setjið þær 4 lykkjur sem eftir eru á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið annan handlegg á sama hátt. FÆTUR OG BÚKUR: Fitjið upp 24 lykkjur á prjóna 3,5 með litnum svartur. Prjónið 8 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist ca 6½ cm (ca 18 umferðir garðaprjón með litnum rauður – endið eftir umferð frá röngu). Nú eru handleggirnir prjónaðir saman við búkinn frá réttu með litnum rauður þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt frá búk, prjónið 4 næstu lykkjur frá búk slétt saman með 4 lykkjur frá öðrum handleggnum (prjónið 1 lykkju frá handlegg saman með 1 lykkju frá búk þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar saman), prjónið 8 lykkjur slétt frá búk, prjónið næstu 4 lykkjur frá búk slétt saman með 4 lykkjum frá hinum handleggnum, prjónið 4 síðustu lykkjur frá búk slétt. Snúið stykkinu og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Geymið stykkið og prjónið skegg eins og útskýrt er að neðan. SKEGG: Fitjið upp 4 lykkjur á prjóna 3,5 með litnum natur. Prjónið garðaprjón fram og til baka þannig: UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 6 lykkjur. UMFERÐ 4-6: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúið slétt, svo ekki myndist gat). UMFERÐ 7. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 8 lykkjur. UMFERÐ 8-10: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúið slétt). UMFERÐ 11: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 10 lykkjur. UMFERÐ 12-14: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúið slétt). UMFERÐ 15: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 12 lykkjur. UMFERÐ 16: Prjónið fyrstu lykkju og uppslátt slétt saman, 8 lykkjur slétt, prjónið uppsláttinn og síðustu lykkju slétt saman = 10 lykkjur. Nú er skeggið prjónað saman með búk / höfði og húfu eins og útskýrt er að neðan. HÖFUÐ OG HÚFA: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar 24 lykkjur frá búk, með litnum natur. UMFERÐ 2: Prjónið 7 fyrstu lykkjur frá búk slétt, prjónið næstu 10 lykkjur frá búk slétt saman með 10 lykkjum frá skeggi (prjónið 1 lykkju frá búk slétt saman með 1 lykkju frá skeggi), prjónið 7 síðustu lykkjur frá búk slétt. UMFERÐ 3-4: Prjónið slétt með litnum natur. UMFERÐ 5-8: Prjónið slétt með litnum eyðimerkurrós. UMFERÐ 9-12: Prjónið slétt með litnum natur. UMFERÐ 13-14: Prjónið slétt með litnum rauður. UMFERÐ 15: Haldið áfram með litnum rauður og prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum = 18 lykkjur. UMFERÐ 16-18: Prjónið slétt. UMFERÐ 19: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, endið með 2 lykkjur slétt = 14 lykkjur. UMFERÐ 20-22: Prjónið slétt. UMFERÐ 23: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, endið með 2 lykkjur slétt = 10 lykkjur. UMFERÐ 24-26: Prjónið slétt. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið. FRÁGANGUR: Saumið út augun og munninn á jólasveinakarlinum með afgangsgarni. Við höfum notað litinn súkkulaði fyrir augun og litinn rauður fyrir munninn. Bæði augun og munnurinn eru með 2 lárétt spor í flatsaumi og hvort þeirra er ca 0,7 cm langt – sjá mynsturteikningu A og mynd. Saumið út 5 tölur á búk með frönskum hnútum í litnum svartur – sjá mynsturteikningu B og mynd. Saumið saum niður meðfram bakhlið á jólasveinakarlinum – saumið kant í kant í ysta lið á ystu lykkju þannig að saumurinn verði flatur. Fyllið jólasveinakarlinn með vatti. Saumið búkinn saman neðst – og saumið síðan saum fyrir fætur mitt í svarta umferð með garðaprjón í gegnum bæði lögin og vattið, þannig að fæturnir verði sýnilegir. Saumið sauminn meðfram hvorri hönd og saumið saman opið efst á hönd. Fyllið hendurnar með smá vatti. Þræðið þráði í gegnum lykkjur neðst á hvorri hönd, herðið á þræði og festið vel. JÓLASVEINAKERLING: HANDLEGGUR: Fitjið upp 8 lykkjur á prjóna 3,5 með litnum eyðimerkurrós í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, þannig: 4 umferðir garðaprjón með litnum eyðimerkurrós, 4 umferðir garðaprjón með litnum natur og 8 umferðir garðaprjón með litnum rauður. Prjónið síðan með litnum rauður þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Fellið af 2 lykkjur, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, fellið af síðustu 2 lykkjur. Klippið þráðinn ca 25 frá stykkinu (nægilega langan þráð til að sauma stykkið saman með), þræðið þráðinn í síðustu lykkju. Setjið þær 4 lykkjur sem eftir eru á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið annan handlegg á sama hátt. FÆTUR OG BÚKUR: Fitjið upp 24 lykkjur á prjóna 3,5 með litnum svartur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1: 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt = 28 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúið slétt, svo ekki myndist gat). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 3: 6 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt = 32 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: 7 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 14 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 lykkjur slétt = 36 lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir í litinn rauður, prjónið 8 umferðir garðaprjón. Síðan er prjónað og lykkjum fækkað með litnum rauður þannig: UMFERÐ 1: 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúið slétt saman, 12 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúið slétt saman, 6 lykkjur slétt = 32 lykkjur. UMFERÐ 2-4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúið slétt saman, 10 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúið slétt saman, 5 lykkjur slétt = 28 lykkjur. UMFERÐ 6-8: Prjónið slétt. UMFERÐ 9: 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúið slétt saman, 8 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúið slétt saman, 4 lykkjur slétt = 24 lykkjur. UMFERÐ 11: Prjónið slétt. Nú eru handleggirnir prjónaðir saman við búkinn frá réttu með litnum rauður þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt frá búk, prjónið 4 næstu lykkjur frá búk slétt saman með 4 lykkjur frá öðrum handleggnum (prjónið 1 lykkju frá handlegg saman með 1 lykkju frá búk þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar saman), prjónið 8 lykkjur slétt frá búk, prjónið næstu 4 lykkjur frá búk slétt saman með 4 lykkjum frá hinum handleggnum, prjónið 4 síðustu lykkjur frá búk slétt. Snúið stykkinu og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. HÖFUÐ OG HÚFA: Prjónið 8 umferðir garðaprjón með litnum eyðimerkurrós, yfir allar 24 lykkjur frá búk. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan með litnum rauður þannig: UMFERÐ 1: * 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 20 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 16 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 12 lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: * 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 10 lykkjur. UMFERÐ 8: Prjónið slétt. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið. FRÁGANGUR: Saumið út augun og munninn á jólasveinakerlingunni með afgangsgarni. Við höfum notað litinn súkkulaði fyrir augun og litinn rauður fyrir munninn. Augun eru með 2 lárétt spor í flatsaumi og hvort þeirra er ca 0,7 cm löng. Munnurinn er 2 lóðrétt spor í flatsaumi fyrir miðju og 1 lárétt flatsaumsspor hvoru megin við þau, hvort ca 0,5 cm – sjá mynsturteikningu A og mynd. Saumið út 3 tölur á búk með frönskum hnútum í litnum svartur – sjá mynsturteikningu B og mynd. Saumið saum niður meðfram bakhlið á jólasveinakerlingunni – saumið kant í kant í ysta lið á ystu lykkju þannig að saumurinn verði flatur. Fyllið jólasveinakerlinguna með vatti. Saumið búkinn saman neðst – og saumið síðan saum fyrir fætur mitt í svarta umferð með garðaprjón í gegnum bæði lögin og vattið, þannig að fæturnir verði sýnilegir. Saumið sauminn meðfram hvorri hönd og saumið saman opið efst á hönd. Fyllið hendurnar með smá vatti. Þræðið þráði í gegnum lykkjur neðst á hvorri hönd, herðið á þræði og festið vel. Til að hálsinn á jólasveinakerlingunni verði sýnilegur þá höfum við þrætt þráð með litnum rauður, upp og niður í gegnum lykkjur í skiptingunni á milli búks og höfuðs, hert á þræði og fest vel. FLÉTTA: Klippið 6 þræði í litnum natur, alla ca 20 langa. Leggið þræðina saman og þræðið 6 þræðina í kringum 1 lykkju í annarri hlið á höfði (í skiptinguna á milli höfuðs og kant með litnum natur á húfunni). Leggið þræðina saman (= 12 þræðir). Skiptið þráðunum í 3 hluta með 4 þræði í hvorum hluta. Fléttið hlutana saman og hnýtið hnút í enda. Gerið aðra fléttu á sama hátt í hinni hlið á höfði. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Mo wrote:
What are the approximate dimensions of these two cute little figures? Thanks,
15.12.2023 - 21:06DROPS Design answered:
Hi, the height of each of them is approximately 13 cm. Happy knitting!
17.12.2023 - 07:43Heidi Rønde Bitsch wrote:
Her mangler der nogle billeder. Det ligner at I har sat nogle hæklediagrammer ind ved en fejl.
15.12.2023 - 16:26