North Tide Sweater |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð oversized / stór peysa úr DROPS Melody. Stykkið er heklað neðan frá og upp með klauf í hliðum, ísettum ermum og háu hálsmáli. Stærð S – XXXL.
DROPS 243-30 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.3 sýnir úrtöku fyrir hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Axlasaumar eru saumaðir saman. Ermar eru heklaðar við handveg. Saumar undir ermum og hliðarsaumar er saumað saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál í hring. FRAMSTYKKI: Heklið 67-71-79-83-91-95 LOFTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, með heklunál 7 í litnum ljós sægrænn í DROPS Melody. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju = 66-70-78-82-90-94 fastalykkjur og 1 loftlykkja. Næsta umferð er hekluð frá réttu samkvæmt mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A í fyrstu fastalykkju, heklið A.1B þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið A.1C í síðustu fastalykkju = 32-34-38-40-44-46 stuðlahópar og 1 stuðull í hvorri hlið. Næsta umferð er hekluð samkvæmt mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. heklið A.2C í fyrsta stuðul, heklið A.2B þar til 1 stuðull er eftir, heklið A.2A í síðasta stuðul. Skiptið yfir í litinn perlugrár og haldið áfram með A.2 fram og til baka (A.2 er endurtekið á hæðina). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 41-41-43-43-45-46 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Heklið 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul í umferð, * heklið 1 loftlykkju, 1 keðjulykkja í toppinn á fyrsta / næsta stuðlahóp *, heklið frá *-* alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, 3 loftlykkjur (= A.2A), heklið A.2C þar til eftir eru 2-2-2-3-3-3 stuðlahópar og 1 stuðull í umferð, heklið A.2C í fyrsta stuðlahóp, snúið stykkinu. Heklið síðan fram og til baka eins og áður með 28-30-34-34-38-40 stuðlahópa og 1 stuðul í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-56-58-60 cm, heklið A.3 yfir fyrstu axlalykkjur frá réttu þannig: Heklið A.3A í fyrsta stuðul, heklið A.3B alls 6-7-9-9-10-11 sinnum, heklið A.3C = 8-9-11-11-12-13 stuðlahópar og 1 stuðull í hvorri hlið. Haldið svona áfram með A.3 fram og til baka. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið 6-7-9-9-10-11 stuðlahópa fram og til baka eins og áður með 1 stuðul í hvorri hlið þar til framstykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn og festið. Snúið stykkinu, byrjið í hlið frá röngu og heklið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI. Heklið allt bakstykkið á sama hátt og framstykki þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm. Byrjið frá réttu í hlið og heklið öxlina þannig: Heklið A.2A í fyrsta stuðul, heklið A.3B alls 6-7-9-9-10-11 sinnum, heklið A.2C efst í næsta stuðlahóp, snúið stykkinu. Heklið 6-7-9-9-10-11 stuðlahópa til baka með 1 stuðul í hvorri hlið. Klippið þráðinn og festið. Snúið stykkinu, byrjið í hlið frá röngu og heklið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist nú ca 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitjunarkanti. ERMI: Heklið 47-51-51-55-55-59 loftlykkjur með heklunál 7 í litnum ljós sægrænn. Heklið 1 fastalykkju í aðra loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 46-50-50-54-54-58 fastalykkjur og 1 loftlykkja. Næsta umferð er hekluð frá réttu eins og mynsturteikning A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A í fyrstu fastalykkju, heklið A.1B þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið A.1C í síðustu fastalykkju = 22-24-24-26-26-28 stuðlahópar og 1 stuðull í hvorri hlið. Næsta umferð er hekluð eins og mynsturteikning A.2, þ.e.a.s. heklið A.2C í fyrsta stuðul, heklið A.2B þar til 1 stuðull er eftir, heklið A.2A í síðasta stuðul. Skiptið yfir í litinn perlugrár og haldið svona áfram með A.2 fram og til baka þar til ermin mælist 47-47-44-45-43-42 cm frá uppfitjunarkanti. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Heklið ermakúpuna við handveg – sjá A til a í teikningu. Heklið stykkin saman þannig: Leggið ermakúpuna við handveg með röngu á móti röngu, byrjið í horni á milli botns á opi fyrir ermi og sjálfum handvegi. Heklið 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í gegnum bæði lögin *, heklið frá *-* meðfram öllum handveginum. Klippið þráðinn og festið. Saumið botninn á handvegi – sjá B til b í teikningu. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma kant í kant þar til ca 18 cm eru eftir neðst í hvorri hlið fyrir klauf (eða saumið að óskaðri lengd á klauf). KANTUR Í HÁLSMÁLI. Byrjið við annan axlasauminn og heklið með litnum perlugrár með heklunál 7. Heklið A.2B hringinn í hálsmáli – stillið af að það verða ca 30-30-32-32-34-36 stuðlahópar í hálsmáli hringinn. ATH: Þar sem heklaðir eru fleiri stuðlahópar í kringum hálsmál er hægt að fækka þeim jafnt yfir í fyrstu umferð til að ná réttum fjölda stuðlahópa. Fækkið um 1 stuðlahóp þannig: Heklið 1 stuðlahóp í bili innan næsta stuðlahóps, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar í sama bil, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (1 stuðlahópur færri). Haldið síðan áfram með 1 stuðlahóp á milli hverra stuðlahópa frá fyrri umferð. Þegar kantur í hálsmáli mælist 10-10-10-12-12-12 cm, skiptið yfir í litinn ljós sægrænn. Heklið 2 umferðir með litnum ljós sægrænn. Klippið frá og festið þráðinn. Hálsmálið mælist ca 13-13-13-15-15-15 cm. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Andrea Liebig wrote:
Hallo.Ich habe mich für Größ L entschieden. Ich bin gerade bei dem Vorderteil. Ich verstehe Diagramm A3, allerdings nicht die Beschreibung: A.3A in das erste Stäbchen, A.3B insgesamt 6-7-9-9-10-11 x, A.3C = 8-9-11-11-12-13 Stäbchengruppen und je 1 Stäbchen beidseitig. Was bedeutet A.3B insgesamt 9x (Größe L) und A3.C 11. Vielen Dank
10.02.2024 - 09:57DROPS Design answered:
Liebe Frau Liebig, das Diagram A.3B wiederholen Sie insgesamt 9 Mal, so zusammen mit A.3 sind es insgesamt 11 Stäbchen-gruppen + 1 Stäbchen beidseitig (in A.3A + die letzte Masche A.3C). Viel Spaß beim häkeln!
12.02.2024 - 07:18Emily wrote:
Eg ville bere sei at ingen forstår oppskriftene ka e 3staver sammen (1stavgruppe) i fast masken
12.10.2023 - 16:15Margaretha wrote:
Snowie dream
06.08.2023 - 16:33Vanilla wrote:
Antarctic hug
04.08.2023 - 17:34Nigar wrote:
Mint
04.08.2023 - 05:45JMFS wrote:
The abominable snowman in the Rudolph stop motion Christmas show is named Bumble, and these colors, with the fluffiness, made me think of him.
03.08.2023 - 21:22Noemi wrote:
Fluffy comfort
03.08.2023 - 21:00