Rose Whisper |
|
|
|
Prjónaður kjóll úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með v-hálsmáli og hlýra / bandi á öxl. Stærð XS - XXL.
DROPS 240-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 5-5-5-6-6-6 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 5-5-5-6-6-6 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 5-5-5-6-6-6 lykkjur slétt. Frá réttu er uppslátturinn prjónaður þannig: Prjónið brugðnar lykkjur fram að fyrsta uppslætti, lyftið uppslættinum af prjóni og setjið til baka yfir á prjóninn í gagnstæða átt / snúinn og prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann, prjónið brugðnar lykkjur að næsta uppslætti, prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. ÚTAUKNING-2: Aukið er út í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 4 lykkjur garðaprjón (prjónamerkið situr mitt í þessum lykkjum), 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Það hafa verið auknar út 4 lykkjur í umferð, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – það á ekki að myndast gat. ÚTAUKNING-3: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn við hvert prjónamerki, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – það á ekki að myndast gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er fyrst prjónað fram og til baka, ofan frá og niður í stykkjum, síðan er stykkið sett saman og prjónað er í hring niður yfir fram- og bakstykkið og pilsið. FRAMSTYKKI: Framstykkið samanstendur af 2 stykkjum, þegar bæði stykkin hafa verið prjónuð til loka, prjónið þau saman í eitt framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 10-10-10-12-12-12 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni þar til stykkið mælist 5-3-3½-4-3-4 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Prjónið 5-5-5-6-6-6 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5-5-5-6-6-6 lykkjur sléttprjón. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat = 11-11-11-13-13-13 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmál og handveg – sjá ÚTAUKNING-1 og prjónið eftir stærðum þannig: STÆRÐ XS - S - M - L - XL: Prjónið sléttprjón og aukið út frá réttu þannig: Aukið út í annarri hverri umferð á eftir fyrstu 5-5-5-6-6 lykkjum (fyrir v-hálsmál) og á undan síðustu 5-5-5-6-6 lykkjum (fyrir handveg) alls 7-9-10-11-13 sinnum. Nú breytist útaukningin. Útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram í annarri hverri umferð eins og áður 8 sinnum til viðbótar, en nú er einungis aukið út í 4. hverri umferð fyrir handveg þar til aukið hefur verið út 4 sinnum til viðbótar. Það hefur verið aukið út alls 11-13-14-15-17 sinnum fyrir handveg og 15-17-18-19-21 sinum fyrir v-hálsmáli. Það eru 37-41-43-47-51 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 16-16-17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti. Endið umferð með 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð. STÆRÐ XXL: Prjónið sléttprjón og aukið út frá réttu þannig: Aukið út í annarri hverri umferð á eftir fyrstu 5-5-5-6-6 lykkjum (fyrir v-hálsmál) og á undan síðustu 5-5-5-6-6 lykkjum (fyrir handveg) alls 22 sinnum. Það eru 57 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20 cm frá uppfitjunarkanti. Endið umferð með 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið alveg eins og vinstra framstykki þar til það eru 11-11-11-13-13-13 lykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og handvegi – sjá ÚTAUKNING-1 og prjónið í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ XS - S - M - L - XL: Prjónið sléttprjón og aukið út frá réttu þannig: Aukið út í annarri hverri umferð á eftir fyrstu 5-5-5-6-6 lykkjum (fyrir handveg) og á undan síðustu 5-5-5-6-6 lykkjum (fyrir v-hálsmáli) alls 7-9-10-11-13 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú breytist útaukningin. Útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram í annarri hverri umferð eins og áður 8 sinnum til viðbótar, en nú er einungis aukið út í 4. hverri umferð fyrir handveg þar til aukið hefur verið út 4 sinnum til viðbótar. Það hefur verið aukið út alls 11-13-14-15-17 sinnum fyrir handveg og 15-17-18-19-21 sinum fyrir v-hálsmáli. Það eru 37-41-43-47-51 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 16-16-17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti. Endið umferð með 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð. STÆRÐ XXL: Prjónið sléttprjón og aukið út frá réttu þannig: Aukið út í annarri hverri umferð á eftir fyrstu 5-5-5-6-6 lykkjum (fyrir handveg) og á undan síðustu 5-5-5-6-6 lykkjum (fyrir v-hálsmál) alls 22 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Það eru 57 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20 cm frá uppfitjunarkanti. Endið umferð með 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð. BAKSTYKKI: Prjónið hægra bakstykki eins og vinstra framstykki, klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð. Prjónið vinstra bakstykki eins og hægra framstykki, klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð. FRAMSTYKKIN OG BAKSTYKKIN PRJÓNUÐ SAMAN Nú eru 4 stykkin sett saman á sama prjón. Prjónið lykkjur frá hægra framstykki, prjónið lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (hlið), prjónið lykkjur frá vinstra bakstykki, prjónið lykkjur frá hægra bakstykki, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (hlið). Það eru 164-180-196-212-236-260 lykkjur á prjóni. Nú hafa framstykkin og bakstykkin verið prjónuð saman. Fram- og bakstykkið er síðan prjónað í hring og stykkið er mælt héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Nú er prjónað í hring þannig: Prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir að fyrra prjónamerki, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni - sjá GARÐAPRJÓN - í útskýringu að ofan (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni (prjónamerkið situr á milli þessa 4 lykkja) og prjónið sléttprjón út umferðina. JAFNFRAMT eru sett 8 ný prjónamerki í stykkið án þess að prjóna, teljið frá öðru prjónamerkinu í hlið þannig: * Teljið 17-18-20-21-23-26 lykkjur, setjið eitt prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 16-18-19-21-24-26 lykkjur og setjið eitt prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 16-18-20-22-24-26 lykkjur og setjið eitt prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 16-18-19-21-24-26 lykkjur og setjið eitt prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 17-18-20-21-23-26 lykkjur fram að prjónamerki í hlið *. Teljið frá *-* alveg eins frá hinu prjónamerkinu, nú hafa verið sett 4 prjónamerki framan á kjólnum og 4 prjónamerki aftan á kjólnum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þessi prjónamerki eru notuð síðar þegar lykkjum er aukið út. LESTU ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm aukið út við prjónamerkin í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2½-3-3-3 cm millibili alls 16-16-16-18-18-18 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-21-22-23-24-25 cm er aukið út um 1 lykkju á undan hverju af 8 prjónamerkjum sem sitja framan og aftan á kjólnum – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið út við þessi prjónamerki í 12. cm millibili alls 3 sinnum (skiptist á að auka út á undan og á eftir þessum prjónamerkjum). Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 252-268-284-308-332-356 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 64-66-67-68-69-70 cm frá þar sem framstykkið og bakstykkið var sett saman. Fellið af með sléttum lykkjum. Kjólinn mælist 80-82-84-86-88-90 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið hlýrann / band á öxl saman á hvorri öxl – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Laura wrote:
How many balls of yarn will i need for the size M
22.05.2024 - 08:03DROPS Design answered:
Dear Laura, you will always find the amount of yarn required for each size under the header, at the top of the page, this means you need here in size M: 500 g DROPS Belle/50 g a ball = 10 balls. Happy knitting!
22.05.2024 - 11:07Nicole wrote:
Hi, when doing the increases on the left front, it says every other row. Is this every right side row then since we are also purling, or does it mean every other right side row?
20.05.2024 - 15:41DROPS Design answered:
Dear Nicole, when increasing on every other row on left front piece you will increase on every row from right side, ie on every row when knitting; when/if you have to increase on every 4th row, you will increase on every other row from right side. Happy knitting!
21.05.2024 - 13:34Kristina wrote:
Söker ett gammalt mönster på armlös damklänning i a-modell. Röd klänning på mönstret. Mönstret kanske 15-20 år. Både klänning och mönster brann upp i en brand i våras, och jag hittar inte mönstret när jag letar på nätet. Finns det möjligen kvar någonstans? Mönstret Rose Whisper påminner om mönstret jag söker.
28.08.2023 - 16:03DROPS Design answered:
Hej Kristina. Jag känner dessvärre inte till det mönstret, men kanske du kan hitta ett liknande här? Mvh DROPS Design
30.08.2023 - 12:08Kathryn Radmall wrote:
Islander
22.01.2023 - 16:01Simone wrote:
Cool nights
21.01.2023 - 22:51Elisa wrote:
Summer breeze dress
21.01.2023 - 17:34Kristin wrote:
Woodrose Breeze
21.01.2023 - 11:05Kari Little wrote:
Rosebud Slip Dress
19.01.2023 - 10:12Zia wrote:
Soft sexy touch
19.01.2023 - 03:17Véronique wrote:
Jolie robe mais trop ouverte sous les bras à mon goût .
18.01.2023 - 19:53