Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= milligrár | |
= natur | |
= hindber | |
= hveiti | |
= svartur | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Merry Santas |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa og jólasveinahúfa fyrir börn úr DROPS Air. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki og jólasveinamynstri. Húfan er prjónuð í sléttprjóni með stroffi. Stærð 2 – 14 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 41-1 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-3 (á við um húfu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hvert prjónamerki. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72-76 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 með litnum milligrár í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-14-10-16-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 66-72-78-78-84-84-90 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 (= 11-12-13-13-14-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 176-192-208-208-224-224-240 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum milligrár, þar sem fækkað er um 4-8-12-8-12-4-8 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-200-212-220-232 lykkjur. Haldið áfram með litnum milligrár og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 112-120-128-132-140-144-148 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum milligrár. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27-28 cm frá skiptingu (eða óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-46-48-50-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum milligrár. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-5-6-7-8-9-10 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-38-40-42-46 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 15-20-24-26-30-34-37 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm til loka máls. Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-4-6-6-4-6-2 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 18-23-27-30-34-38-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. HNÚTUR: Það á að gera hnút efst á hverja jólasveinahúfu. Hnúturinn er hnýttur í kringum lykkju. Klippið 2 þræði af litnum natur, ca 10 cm. Leggið þræðina saman, notið nál og þræðið þræðina í gegnum efstu natur lituðu lykkjuna efst á húfu, þannig að báðir þráðarendarnir liggi frá réttu á stykki, hvoru megin við lykkjuna. Hnýtið hnút, hnýtið síðan annan hnút, í gagnstæða átt – sjá teikningu. Klippið þræðina ca 1 cm langa. Endurtakið efst á öllum jólasveinahúfum. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, frá stroffi og upp að topp á húfu. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum milligrár í DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-5-5-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 84-88-92-96-100 lykkjur. Skiptið yfir í litinn hindber og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19-19-19-20 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 0-4-2-0-4 lykkjur jafnt yfir = 84-84-90-96-96 lykkjur. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 14-14-15-16-16 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-2-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum í 6.-7.-7.-7.-7. hverri umferð alls 10-10-11-11-11 sinnum = 12 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist alls ca 50-52-54-56-58 cm og prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðinn og festið vel. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 5 cm að þvermáli með litnum milligrár. Saumið dúskinn niður efst á húfu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (22)
Lucas wrote:
Pourquoi le téléchargement des explications est impossible ? J ai comme message "erreur" alors que tout se passe bien avec d'autres modèles.
10.12.2023 - 21:28DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lucas, nos modèles peuvent seulement être imprimés, cliquez sur le bouton "imprimer / explications" pour ouvrir une fenêtre de dialogue avec votre imprimante et ainsi choisir vos réglages. Bon tricot!
11.12.2023 - 09:32Hanne Kjærgaard wrote:
Er der ikke en fejl i opskriften? Jeg strikker str 3/4 og skal efter mønsterrappprten have 192 masker (det har jeg) og tage 8 m ud. Så har jeg 200. Men i opskrift står der, jeg har 184. Det er str 7-8 der har 200 m. Det går jo så i ged når jeg skal sætte af til ærmer. Suk!
03.11.2023 - 16:54DROPS Design answered:
Hej Hanne, du skal tage 8 masker ind (ikke ud) så du har 184 masker :)
09.11.2023 - 15:00Marianne Schäfer wrote:
Ich bin totale Stickanfängerin und frage Sie, ob der wunderschöne Pullover mit Wintermotiv “, Weihnachtspullover und passende Zipfelmütze“ auch eine Strickanleitung Reihe für Reihe in der Größe 104-110 für absolute Strickanfänger gibt. Ich verstehe leider ihre vorgeschlagene Anleitung nicht und kann sie nicht umsetzen. Für Ihre Hilfe möchte ich mich ganz herzlich bedanken.
17.10.2023 - 22:04DROPS Design answered:
Liebe Frau Schäfer, dieses Modell wurde in entweder 3/4 Jahre (= 98/104) oder 5/6 Jahre (= 110-116) entworfen, hier lesen Sie aber mehr, wie Sie die Grösse wählen könnnen. Dieser Pullover war ein von unseren DROPS-Along, hier lesen Sie mehr mit Fotos fast Schritt nach Schritt, sicher kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!
18.10.2023 - 08:21Inken wrote:
Moin! Ich habe eine Frage zu den Ärmeln. Im Text steht:In dieser Weise alle 3-5-6-7-8-9-10 cm insgesamt 4 x in der Höhe abnehmen (für alle Größen) = 34-36-38-38-40-42-46 Maschen übrig. Ohne Abnahmen weiterstricken, bis der Ärmel eine Länge von 15-20-24-26-30-34-37 cm ab der Teilung hat. Die letzten 3 Maße stimmen nicht. Z.B. soll ich 4x alle 8cm Maschen abnehmen. Das sind 32cm, doch im Text steht was von 30cm. Können sie mich aufklären? Grüße
29.08.2023 - 01:50DROPS Design answered:
Liebe Inken, die 1. Abnahme wird nach 3 cm gestrickt, die 2. Abnahme nach 11 cm (8 cm danach), die 3. Abnahme nach 19 cm (8 cm danach) und die 4. cm nach 27 cm (8 cm danach), dann stricken Sie noch 3 cm bis die Ärmel 30 cm misst. Viel Spaß beim stricken!
29.08.2023 - 09:17Caroline wrote:
Hoe kan ik terugvinden hoeveel wol ik moet bestellen voor een specifieke maat of hoogte van een kind?
21.08.2023 - 19:28DROPS Design answered:
Dag Caroline,
Bovenaan bij de materialenlijst bij elk patroon staat per maat aangegeven hoeveel gram je nodig hebt. (Het eerste getal geldt voor de kleinste, het tweede getal voor de daaropvolgende maat, enzovoort). 1 bol weegt 50 gram, dus als er bijvoorbeeld 400 gram staat heb je 8 bollen nodig.
22.08.2023 - 20:12Irene Jensen wrote:
Mønstret med de hvide snefnug forskyder sig når men tager masker ud på bærestykket, vil det også være tilfældet med nisserne ?
29.10.2022 - 20:15DROPS Design answered:
Hei Irene. Om du ser på diagrammet i den størrelsen du strikker vil du se at der det er økninger kan det være 1 maske forskjell på siden av nissen. Men dette er jevnt over, slik at det ikke blir forskjell fra nisse til nisse. mvh DROPS Design
31.10.2022 - 12:00Ulla Hansen wrote:
Hvordan gør jeg hvis jeg vil strikke en 1.5 årige str? Skipper en mønter i h er række f.eks ? Og selvfølgelig lidt mindre masker Mvh Ulla
29.10.2022 - 09:23DROPS Design answered:
Hei Ulla. Ja, du kan prøve med 1 rapport mindre av diagrammet (regn ut hvor mange cm mindre det vil blir) og legg opp færre masker. Sammenlign gjerne med en annen lignende genser i samme garngruppe som DROPS Air (garngruppe C) og regn ut. Design avd. har dessverre ikke mulighet til å omregne oppskrifter til alle som ønsker det. mvh DROPS Design
31.10.2022 - 11:25Jane Dunst wrote:
Bonjour, Je voudrais tricoter ce pull en taille 3/4 ans, pourriez vous m\'indiquer les quantités à commander en qualité ALASKA ou BIG MERINO ? Merci beaucoup pour votre aide !
23.03.2022 - 16:07DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dunst, utilisez notre convertisseur pour chacune de ces 2 laines, vous pourrez ainsi avoir la quantité nécessaire dans chaque couleur pour la taille souhaitée. Bon tricot!
23.03.2022 - 16:29Jeannette wrote:
I do not understand this pattern and your pattern tutorial does not describe this kind of motif in the round. If I am making the smallest size starting with 66 stitches divided evenly (11 stitches) I have way more stitches than the pattern starts with. Where do the extra stitches go? There are 10 increases plus the initial 11 stitches is 21 stitches in each section not 16. I really want to learn how to do this.
13.12.2021 - 21:52DROPS Design answered:
Dear Jeannette, the diagram is read bottom up, ie you start with 11 repeats of 6 stitches each (= 6x 11 = 66 sts), and increase as shown in diagram (see last symbol under diagram key); when diagram is done, there are 16 sts in each repeat x 11 repeats = 176 sts. Can this help?
14.12.2021 - 07:45Sylvia wrote:
Why are so many sweaters of this type so TIGHT in the armpit region? I hated this as a kid. Really. And with all of your beautiful designs, it makes me want to cry!
09.12.2021 - 05:38DROPS Design answered:
Dear Sylvia, our patterns are not tight, check measurements from chart compared to a similar garment that the person likes; read more about charts here - and always remember to check and keep the correct tension in height to avoid tighter measurements/shorter yoke - read more about tension here. Happy knitting!
09.12.2021 - 08:36