Yosha wrote:
Waarom begin je het eerste halve stokje van de toer met twee losse en eindig je met een halve vaste in die tweede losse?
01.03.2021 - 10:26DROPS Design answered:
Dag Yosha,
Als je aan het begin van de toer bent, ben je a.h.w. op de basis van de toer en moet je lossen maken om in de hoogte te komen.
02.03.2021 - 10:15
Green Ears |
|
|
|
Hekluð húfa með stórum eyrum fyrir börn úr DROPS Snow. Stærð 1 - 8 ára. Þema: Halloween.
DROPS Children 37-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta hálfa stuðli í umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Allar umferðir enda með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. 2 HÁLFIR STUÐLAR SAMAN: * Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 5 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan er hekluð í hring, ofan frá og niður. Eyrun eru hekluð fram og til baka og saumið niður á húfuna í lokin. HÚFA: Notið heklunál 6 og DROPS Snow. Heklið 5 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 8 hálfa stuðla um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 hálfa stuðla í hvern hálfan stuðul umferðina hringinn = 16 hálfir stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 1 hálfan stuðul í fyrsta hálfa stuðul, * 2 hálfir stuðlar í næsta hálfa stuðul, 1 hálfur stuðull í næsta hálfa stuðul *, heklið *-* umferðina hringinn og endið með 2 hálfa stuðla í síðasta hálfa stuðulinn = 24 hálfir stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Heklið 1 hálfan stuðul í hvorn af fyrstu 2 hálfu stuðlum, * 2 hálfir stuðlar í næsta hálfa stuðul, 1 hálfur stuðull í hvorn af næstu 2 hálfum stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 hálfa stuðla í síðasta hálfa stuðulinn = 32 hálfir stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern af fyrstu 3 hálfum stuðlum, * 2 hálfir stuðlar í næsta hálfa stuðul, 1 hálfur stuðull í hvernaf næstu 3 hálfu stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 hálfa stuðla í síðasta hálfa stuðulinn = 40 hálfir stuðlar. UMFERÐ 6: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern af fyrstu 4 hálfum stuðlum, * 2 hálfir stuðlar í næsta hálfa stuðul, 1 hálfur stuðull í hvern af næstu 4 hálfu stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 hálfa stuðla í síðasta hálfa stuðulinn = 48 hálfir stuðlar. Héðan er heklað og aukið út í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ 1/2 - 3/4 ára: UMFERÐ 7: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul, JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir 4-8 hálfir stuðlar í umferð = 52-56 hálfir stuðlar. UMFERÐ 8: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul umferðina hringinn = 52-56 hálfir stuðlar. STÆRÐ 5/6 – 7/8 ára: UMFERÐ 7: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern af fyrstu 5 hálfum stuðlum, * 2 hálfir stuðlar í næsta hálfa stuðul, 1 hálfur stuðull í hvern af næstu 5 hálfum stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 hálfa stuðla í síðasta hálfa stuðulinn = 56 hálfir stuðlar. UMFERÐ 8: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul, JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir 2-4 hálfa stuðla í umferð = 58-60 hálfir stuðlar. ALLAR STÆRÐIR: Útaukning hefur verið gerð til loka í öllum stærðum, það eru 52-56-58-60 hálfir stuðlar í umferð. Heklið hringinn með hálfum stuðlum þar til stykkið mælist 16-17-18-18 cm ofan frá á húfu (nú eru eftir 2 umferðir til loka). KANTUR: UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur (koma í stað fyrsta hálfa stuðul eins og áður), * heklið 1 hálfan stuðul um næsta hálfa stuðul frá bakhlið á stykki, heklið 1 hálfan stuðul um næsta hálfa stuðul frá framhlið á stykki *, heklið frá *-* þar til 1 hálfur stuðull er eftir í umferð. Heklið 1 hálfan stuðul um síðasta hálfa stuðul frá bakhlið á stykki og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju. UMFERÐ 2: Heklið eins og umferð 1. Klippið þráðinn frá og festið. EYRA: Notið heklunál 6 og Snow. Heklið 19 loftlykkjur og snúið stykkinu UMFERÐ 1: Heklið 1 hálfan stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni og heklið 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 18 hálfir stuðlar. UMFERÐ 2-4: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul. UMFERÐ 5: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern af fyrstu 7 hálfu stuðlum, heklið 2 HÁLFIR STUÐLAR SAMAN – sjá útskýringu að ofan, 2 sinnum (= 2 lykkjur færri) og heklið 1 hálfan stuðul í hvern af síðustu 7 hálfum stuðlum = 16 hálfir stuðlar UMFERÐ 6: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul. UMFERÐ 7: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern af fyrstu 6 hálfu stuðlum, heklið 2 hálfa stuðla saman 2 sinnum (= 2 lykkjur færri) og heklið 1 hálfan stuðul í hvern af síðustu 6 hálfu stuðlum = 14 hálfir stuðlar. UMFERÐ 8: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern af fyrstu 5 hálfu stuðlum, heklið 2 hálfa stuðla saman 2 sinnum (= 2 lykkjur færri) og heklið 1 hálfan stuðul í hvern af síðustu 5 hálfum stuðlum = 12 hálfir stuðlar. UMFERÐ 9: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern af fyrstu 4 hálfum stuðlum, heklið 2 hálfa stuðla saman 2 sinnum (= 2 lykkjur færri) og heklið 1 hálfan stuðul í hvern af síðustu 4 hálfum stuðlum = 10 hálfir stuðlar. UMFERÐ 10: Heklið 1 hálfan stuðul í hvern af fyrstu 3 hálfum stuðlum, heklið 2 hálfa stuðla saman 2 sinnum (= 2 lykkjur færri) og heklið 1 hálfan stuðul í hvern af síðustu 3 hálfum stuðlum = 8 hálfir stuðlar. UMFERÐ 11: Heklið 1 hálfan stuðul í hvorn af fyrstu 2 hálfum stuðlum, heklið 2 hálfa stuðla saman 2 sinnum (= 2 lykkjur færri) og heklið 1 hálfan stuðul í hvorn af síðustu 2 hálfum stuðlum = 6 hálfir stuðlar. UMFERÐ 12: Heklið 1 hálfan stuðul fyrsta hálfa stuðul, heklið 2 hálfa stuðla saman 2 sinnum (= 2 lykkjur færri) og heklið 1 hálfan stuðul í síðasta hálfa stuðul = 4 hálfir stuðlar. UMFERÐ 13: Heklið 1 hálfan stuðul, heklið 2 hálfa stuðla saman, heklið 1 hálfan stuðul í síðasta hálfa stuðul = 3 hálfir stuðlar. Klippið þráðinn frá og þræðið í gegnum síðustu lykkjuna. Heklið annað eyra á sama hátt. FRÁGANGUR: Eyrun eru saumuð niður yfir kantinn hvoru megin á húfu. Brjótið inn hliðarnar á eyrum að miðju, leggið húfuna flata með byrjun á umferð mitt að aftan og saumið eyrun niður þannig að uppábrotið á eyrum liggi að framhlið á húfu. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |