DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rosehip Jam Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað í perluprjóni með v-hálsmáli og köntum í stroffi. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-29
DROPS Design: Mynstur ml-063
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
250-300-300-350-350-400 g litur 20, vínber

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 18 umferðir á hæð með perluprjóni (A.1) = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir perluprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 79 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 77 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 5,5.
Í þessu dæmi eru prjónaðar til skiptis 4. og 5. hver lykkja og 5. og 6. hver lykkja brugðið saman og lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.

ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Í HÆGRA FRAMSTYKKI ÞANNIG: Lyftið ystu lykkjunni við miðju að framan af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Í VINSTRA FRAMSTYKKI ÞANNIG: Prjónið 2 síðustu lykkjur við miðju að framan slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-3 (á við um mitt framan í kanti í hálsi):
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð. Með þessu þá kemur miðjulykkjan að liggja eins og bein lína mitt að framan.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (= perluprjón). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp í stykkjum. Prjónað er fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant að framan og kant í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 79-85-91-99-109-117 lykkjur á hringprjón 6 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-16-18-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 65-71-75-81-89-97 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-5-5-6 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 3-3-4-5-5-6 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 59-63-67-71-79-85 lykkjur eftir.
Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjurnar.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 17-19-19-21-21-23 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með A.1 eins og áður. JAFNFRAMT er felld af 1 lykkja í hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 20-21-23-24-28-30 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 79-85-91-99-109-117 lykkjur á hringprjón 6 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-16-18-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 65-71-75-81-89-97 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, skiptist stykkið við miðju að framan fyrir v-hásmáli, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið 32-35-37-40-44-48 lykkjur eins og áður, setjið næstu lykkju á lykkjuhaldara (= miðjulykkja á framstykki), prjónið eins og áður út umferðina. Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 32-35-37-40-44-48 lykkjur. Byrjið frá röngu, þ.e.a.s. frá hlið og haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-5-5-5-5-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 5-5-5-6-6-6 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 3-4-4-5-5-6 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina.
Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og affellingu fyrir handveg, eru 20-21-23-24-28-30 lykkjur eftir.
Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 32-35-37-40-44-48 lykkjur. Byrjið frá röngu, þ.e.a.s. frá miðju að framan og haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-5-6-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 5-5-5-6-6-6 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 3-4-4-5-5-6 lykkjur, prjónið eins og áður og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli við miðju að framan eins og áður.
Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og affellingu fyrir handveg, eru 20-21-23-24-28-30 lykkjur eftir.
Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 37-39-39-41-43-43 lykkjur á hringprjón 6 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga): Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT er fækkað um 7 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA-1= 30-32-32-34-36-36 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-9-10-10-10 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 5-4½-4-3½-3-2½ cm millibili alls 8-9-10-10-11-12 sinnum í hvorri hlið = 46-50-52-54-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 49-48-47-46-43-41 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja hvar botninn á handveg byrjar. Prjónið áfram þar til ermin mælist alls 51-50-50-50-47-46 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant svo saumurinn verði ekki of þykkur.
Saumið ermakúpu við handveg á framstykki og bakstykki – sjá teikningu. Saumið botninn á handveg – prjónamerki sem voru sett í ermar eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki.
Saumið saum undir ermum og hliðarsaum í eitt – byrjið neðst á ermi og saumið upp að handveg, saumið síðan niður að uppfitjunarkanti á fram- og bakstykki (saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur).
Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu mitt að aftan með stuttan hringprjón 6 með Melody og prjónið upp ca 78 til 98 lykkjur í kringum hálsmál (meðtalin lykkja á lykkjuhaldara mitt að framan) -(lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en stillið stroffið af þannig að lykkja frá lykkjuhaldara sé prjónuð slétt.
JAFNFRAMT í hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-3 (lykkjum er fækkað svona til að kantur í hálsi leggist fallega við miðju að framan). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð þar til kantur í hálsmáli mælist 4 cm. Fellið af allar lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (2)

country flag Chantal Melser wrote:

Het midden van de halsrand wordt niet zo mooi als op de foto, misschien doe ik iets verkeerd, al lijkt het me dat ik de beschrijving wel juist volg. Is er op een andere plek nog beter te zien wat wordt bedoeld met twee steken samen afhalen en daarna over de gebreide steek heenhalen? Ik vind hier zelf geen instructievideo van.

17.04.2021 - 18:37

DROPS Design answered:

Dag Chantal,

Als het goed is heb je 1 steek recht midden voor (waar een markeerdraad in zit. Bij het minderen begin je 2 steken voor deze steek. Je haalt de steken samen recht af (dus niet een voor een), dan 1 recht, dan de afgehaalde steken overhalen. Zie ook onderstaande video:

19.04.2021 - 19:45

country flag Lieve De Cremer wrote:

Hallo, waarom wordt dit model met een rondbreinaald gebreid en niet met gewone naalden? Mvg, Lieve

14.11.2020 - 15:32

DROPS Design answered:

Dag Lieve De Cremer ,

Waarschijnlijk wordt vanwege het grote aantal steken (met name bij de grotere maten) aangeraden om met de rondbreinaald te breien. Als de steken op de naalden passen, kun je ook gewoon met rechte naalden brien.

15.11.2020 - 18:27