DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Clouds

Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu og köðlum úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stærð 5-14 ára.

DROPS Children 37-12
DROPS Design: Mynstur u-079-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
5/6 – 7/8 – 9/10 – 11/12 – 13/14 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 – 158/164

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-450-500 g litur 30, ljós gallabuxnablár

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-450-500 g litur 6235, gráblár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm fyrir flíkina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið út lykkjur hvoru megin við 2 lykkjur á neðri hluta á ermi. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum hvoru megin við öll 4 prjónamerkin (= 8 úrtökur í hverri umferð).
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Stykkin eru sett saman og berustykkið er prjónað í hring héðan. Eftir að lykkjum hefur verið fækkað fyrir hálsmáli er prjónað fram og til baka. Kantur í hálsi er prjónaður í hring á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 158-166-174-182-190 lykkjur á hringprjón 3 með Karisma eða Lima. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff þannig: * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir 20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið frá *-* út umferðina (það eru 4 lykkjur slétt mitt að framan, þ.e.a.s. að þessi umferð byrjar ekki í hlið).
Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið næstu umferð þannig: 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 4 lykkjur brugðið), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af 2 næstu lykkjum (= 4 lykkjur slétt), 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur brugðið í hverja og eina af 2 næstu lykkjum (= 4 lykkjur brugðið), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (= mitt að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í hverja og eina af 2 næstu lykkjum (= 4 lykkjur brugðið), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 4 lykkjur slétt), 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í hverja og eina af næstu 2 lykkjum (= 4 lykkjur brugðið), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið. Afgangur af umferð er prjónuð í mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ 5/6 ÁRA:
Prjónið 1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.
STÆRÐ 7/8 ÁRA:
Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.
STÆRÐ 9/10 ÁRA:
Prjónið 8 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.
STÆRÐ 11/12 ÁRA:
Prjónið 7 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.
STÆRÐ 13/14 ÁRA:
Prjónið 6 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú eru 160-168-176-184-192 lykkjur. Haldið áfram þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 60 lykkjurnar (þ.e.a.s. A.1a yfir fyrstu 14 lykkjurnar, A.1b yfir næstu 4 lykkjur, A.1c yfir næstu 24 lykkjur, A.1d yfir næstu 4 lykkjur og A.1e yfir síðustu 14 lykkjur), og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Teljið 14-16-18-20-22 lykkjur út hvoru megin við A.1 og setjið 1 prjónamerki (þetta merkir hliðar), nú eru 72-76-80-84-88 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 24-27-30-33-34 cm, fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 148-156-164-172-180 lykkjur í umferð. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 40-44-44-48-48 lykkjur á sokkaprjóna 3 með Karisma eða Lima.
Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 fyrstu lykkja (= mitt undir ermi).
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið sléttprjón.
Þegar ermin mælist 8-8-9-9-10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan.
Endurtakið útaukningu með 3-3½-3-3½-3 cm millibili alls 7-7-9-9-11 sinnum = 54-58-62-66-70 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 33-37-40-44-47 cm, fellið af 6 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 48-52-56-60-64 lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi = 244-260-276-292-308 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki.

ATH! Úrtaka fyrir hálsmáli byrjar áður en allar úrtökur fyrir laskalínu hafa verið gerðar til loka, LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Haldið áfram með mynstur A.1 og sléttprjón eins og áður, en prjónið 1 lykkju í sléttprjóni hvoru megin við hvert prjónamerki. Í 2. umferð byrja úrtökur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 19-21-23 24-26 sinnum.
Þegar stykkið mælist ca 35-39-43-47-49 cm (stillið af að það sé umferð með 6 lykkjum slétt mitt framan í mynstri), prjónið 14 miðju lykkjur að framan saman 2 og 2 = 7 lykkjur (þær 6 miðju lykkjurnar eru prjónaðar slétt saman 2 og 2, þær 4 lykkjur hvoru megin við kaðal eru prjónaðar brugðnar saman 2 og 2). Í næstu umferð eru miðju 17 lykkjurnar settar á 1 þráð fyrir hálsmáli (= allt A.1c). Stykkið er prjónað til loka fram og til baka frá miðju að framan – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og hálsmáli eru ca 56-56-56-64-64 lykkjur í umferð.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3, prjónið upp ca 29 til 35 lykkjur fram í hálsi (meðtaldar lykkjur af þræði) = ca 85 til 99 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður til þannig að það verða 8 lykkjur yfir hvorri ermi, 24-28-28-32-32 lykkjur yfir bakstykki og 35-35-35-43-43 lykkjur yfir framstykki (ekki fækka lykkjum eða auka út yfir miðju 17 lykkjurnar) = 75-79-79-91-91 lykkjur í umferð.
Prjónið stroff hringinn þannig: Þær 2 lykkjur yfir hverri laskalínu halda áfram í 2 lykkjur slétt, síðan eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið yfir hvorri ermi, lykkjur á bakstykki eru prjónaðar inn í 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, á framstykki eru miðju 17 lykkjurnar prjónaðar þannig: 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, aðrar lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar inn í 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið.
Þegar kantur í hálsi mælist 2-2-2-2-3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.12.2020
Leiðrétting á stærðum:
STÆRÐ 5/6 ÁRA: Prjónið 1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.
STÆRÐ 7/8 ÁRA: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.
STÆRÐ 9/10 ÁRA: Prjónið 8 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.
STÆRÐ 11/12 ÁRA: Prjónið 7 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.
STÆRÐ 13/14 ÁRA: Prjónið 6 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* út umferðina.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt og prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt og 3 prjónið lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Denise wrote:

Bonjour je suis rendu a faire le raglan. On doit faire 23 diminution au 2 tour c'est a dire 46 rangs au total. Comment on peut diminuer 23 fois avec 15 mailles de chaque cote de A1? Merci

01.04.2024 - 20:06

DROPS Design answered:

Bonjour Denise, augmentez pour le raglan comme indiqué sous RAGLAN au début des explications, autrement dit le motif A.1 va progressivement diminuer d'1 maille au début et d'1 m à la fin tous les 2 tours. Tricotez les mailles comme elles se présentent quand vous n'avez plus suffisamment de mailles pour tricoter une torsade complète à cause des diminutions. Bon tricot!

02.04.2024 - 15:43

country flag Rebecca wrote:

Hallo, Ich verstehe nicht ganz genau wie ich das nun abketten soll. "Die Arbeit wird nun in Hin- und Rück-Reihen ab dem vorderen Rand weitergestrickt – GLEICHZEITIG am Anfang jeder Reihe, d.h. beidseitig, wie folgt für den Halsausschnitt abketten: 2 Maschen je 2 x und 1 Masche je 2 x." Was genau ist mit 2 maschen je 2 x und 1 masche je 2 x gemeint?

15.02.2024 - 10:35

DROPS Design answered:

Liebe Rebecca, wenn die mittleren Maschen für den Halsausschnitt stillgelegt wurden, strickt man die Passe weiter in Hin- und Rückreihen, die Raglanabnahmen wie zuvor stricken, aber gleichzeitig, wird man ab Hals (Hinreihen ab rechtes Vorderteil/Rückreihen ab links Vorderteil) stricken und Maschen für den Hals so abketten: 2 Maschen am Anfang der 4 nächsten Reihen (2 M x 2 M beiseitig) dann 1 Masche am Anfang der 4 nächsten Reihen (1 Maschen 2 Mal beidseitig). Viel Spaß beim stricken!

15.02.2024 - 15:23

country flag Hilary K wrote:

Hello, I’m having difficulty reading the cable for this pattern, as the different sections (e.g A.1e, A.1d, etc) all have a different number of rows, so finding my place is confusing! Do you have any tips or advice on how to keep track of where I am in the various sections? Thank you!

13.01.2024 - 13:36

DROPS Design answered:

Dear Hillary, you could use markers of different colours to show when a new repeat of each chart starts, so that you can at least count how many rows you have worked in each repeat of each chart and remember which row you need to work now. You could also keep count by making a table in your computer or in paper of which row of each chart to work in each row of the pattern. Happy knitting!

14.01.2024 - 20:05

country flag Jelly Zwaan wrote:

Goedenavond, ik heb een vraag over patroon 37. Omdat de verschillende teltekeningen allemaal in een andere toer eindigen, weet ik niet zo goed hoe ik het kan volgen. Weet u hoe ik dit het handigst kan aanpakken? Ik raak erdoor van in de war. Alvast erg bedankt, met vriendelijke groeten Jelly

21.08.2023 - 21:06

DROPS Design answered:

Dag Jelly,

Je zou het telpatroon een aantal keren uit kunnen printen en dan de verschillende telpatronen in de hoogte aan elkaar plakken. Op die manier kun je beter zien wat je moet doen.

22.08.2023 - 20:11

country flag Lyna Madec wrote:

Bonjour j'ai un soucis de compréhension du diagramme A1d et A1b s'arrête au 12e rang A1e et A1a s'arrête au 14e rang et A1c continue jusqu'au 22e rang comment dois je tricoter à partir du 12e rang sans les explications? est ce que par exemple pour A1a je dois revenir au 1er rang après le 14e rang? je vous remercie pour la vitesse de réponse de ma 1ere question

19.01.2023 - 10:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Madec, lorsqu'un des diagrammes est terminé en hauteur, reprenez-le au 1er rang, mais continuez les autres comme avant et continuez ainsi, autrement dit, les diagrammes se répètent sur un nombre différent de mailles, mais les torsades doivent bien être tricotés au bon rythme indiqué par chacun des diagrammes. Bon tricot!

19.01.2023 - 11:13

country flag Lyna Madec wrote:

Bonjour ce modèle a été corrigé et je ne comprend pas où ce fait la correction merci

16.01.2023 - 14:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Madec, cette correction ne s'applique que si vous avez imprimé les explications avant cette date, sinon, tout est juste ainsi, vous pouvez imprimer le modèle. Bon tricot!

16.01.2023 - 16:43

country flag Myriam DEVAUCHELLE wrote:

Finalement, je pense avoir compris que le début du rang se trouve de chaque côté de A1c (les 17 mailles sur l'arrêt de mailles), et donc je rabats de chaque côté de cet arrêt de mailles pour l'encolure. comment fait t' on pour rabattre proprement: 2 fois 2 mailles ensemble ou tricoter 2 mailles et passer la première sur la 2°, et recommencer une fois pour diminuer de 2 mailles. Comme on tricote en aller retour, comment fait t'on le retour avec le dessin? encore merci d'avance

04.12.2022 - 16:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devauchelle, vous devez simplement rabattre les mailles de l'encolure, autrement dit, coupez le fil et reprenez le rang à partir de l'encolure, et rabattez les 2 premières mailles (tricotez 2 mailles comme elles se présentent, passez la 1ère de ces 2 mailles par-dessus la 2ème etc;). veillez à bien reprendre du bon côté pour que les torsades soient toujours sur l'endroit et continuez les diagrammes comme avant en tricotant les mailles comme indiqué (à l'endroit ou à l'envers sur l'envers). Bon tricot!

06.12.2022 - 10:12

country flag Myriam DEVAUCHELLE wrote:

Je reprends ma question. Je débute l'encolure. Quand j'aurai fait le 1° rang en tricotant les 14 mailles du mileu ensemble 2 par 2, puis le 2° rang en mettant sur un arrêt de mailles les 17 du milieu devant, je dois en même temps rabattre pour l'encolure, je suppose que je débute cela au 3° rang, mais où démarre les rangs? au début de A1a et à la fin de A1e? je suis un peu perdue. merci de votre réponse

04.12.2022 - 15:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devauchelle, lorsque vous aurez mis les mailles de l'encolure devant en attente, terminez votre tour et coupez le fil. Vous devez tricoter maintenant en allers et retours à partir de l'encolure, attention à bien reprendre du bon côté (endroit/envers) pour que les torsades soient toujours bien sur l'endroit. Tricotez les dernières mailles de A.1c comme elles se présentent de chaque côté de l'encolure et continuez les diagrammes suivants comme avant. Bon tricot!

06.12.2022 - 10:05

country flag Myriam DEVAUCHELLE wrote:

Merci de votre réponse, donc si je comprends bien, pour les diminutions je tricote toujours des mailles à l'endroit, même au niveau du dessin.Pour l'instant le raglan rend très bien. Merci pour vos réponses toujours rapides et vos modèles

01.12.2022 - 11:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devauchelle, tout à fait, continuez simplement les diminutions du raglan exactement comme avant, et, si vous n'avez plus suffisamment de mailles pour les torsades, tricotez ces mailles à l'endroit simplement- sur la dernière photo, on voit le raglan d'un peu plus près, cela vous aidera peut-être à visualiser le résultat. Bon tricot!

01.12.2022 - 11:58

country flag Myriam DEVAUCHELLE wrote:

Bonjour, quand j'arriverai à la 17° série de diminutions pour le raglan, en ce qui concerne le devant, je serai dans le dessin , soit pour les 7 diminutions restant à faire, de chaque côté du devant comment tricoter à la fois le dessin et faire les diminutions? sur le modèle, effectivement les dernières diminutions affectent le dessin, mais je cale sur la technique à employer. merci de m'aider. Cordialement

01.12.2022 - 09:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devauchelle, les diminutions du raglan ne changent pas lorsque que le motif se rapproche des raglans, vous devez toujours diminuer de la même façon: 2 m ens à l'end avant le marqueur, 2 m end (le marqueur est entre ces 2 m, et glissez 1 m à l'end, 1 m end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée après le marqueur. Bon tricot!

01.12.2022 - 11:38