DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3344.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spice Of Life

Prjónað vesti / slipover með v-hálsmáli úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-27
DROPS Design: Mynstur as-137
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-150-150-150-150-200 g litur 19, karrí

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3344.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring upp að handvegi. Hér skiptist stykkið og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Kantur í hálsmái og í handvegi er prjónað í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-132-140-152-160-176 lykkjur á hringprjón 5,5 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjum slétt og 2 lykkjum brugðið þar til stykkið mælist 3 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 24-28-24-28-24-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 96-104-116-124-136-148 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 48-52-58-62-68-74 lykkjur, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið í sléttprjóni þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru felldar af 6-6-8-8-12-14 lykkjur fyrir handvegi í hvorri hlið: Fellið af 3-3-4-4-6-7 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki.
Prjónið síðan framstykki og bakstykki hvort fyrir sig með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

BAKSTYKKI:
= 42-46-50-54-56-60 lykkjur. Prjónið eins og áður og fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-3-4-4-4-5 sinnum = 38-40-42-46-48-50 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti.
Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið og fellt er af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 12-13-13-15-15-16 lykkjur, fellið af næstu 14-14-16-16-18-18 lykkjur slétt og prjónið út umferðina.
Héðan eru axlir prjónaðar hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá. Vinstri öxl er síðan prjónuð héðan.

VINSTRI ÖXL (bakstykki):
= 12-13-13-15-15-16 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður út umferðina. Fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu og prjónið út umferðina = 11-12-12-14-14-15 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti.

HÆGRI ÖXL (bakstykki):
= 12-13-13-15-15-16 lykkjur. Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður út umferðina. Fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá röngu og prjónið út umferðina = 11-12-12-14-14-15 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu og fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu.
Stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti.

FRAMSTYKKI:
= 42-46-50-54-56-60 lykkjur. Prjónið eins og áður og fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-3-4-4-4-5 sinnum = 38-40-42-46-48-50 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm frá uppfitjunarkanti.
Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið og lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 16-17-18-20-21-22 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Setjið síðustu 19-20-21-24-25 lykkjur á þráð án þess að prjóna þessar lykkjur.
Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá. Vinstri öxl er síðan prjónuð héðan.

VINSTRI ÖXL (framstykki):
= 18-19-20-22-23-24 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í lok hverrar umferðar frá réttu alls 7-7-8-8-9-9 sinnum til viðbótar = 11-12-12-14-14-15 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRI ÖXL (framstykki):
Setjið til baka 19-20-21-24-25 lykkjur af þræði á prjóninn.
Prjónið í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með byrjun frá réttu og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð frá réttu (fækkið lykkjum með því að lyfta 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð) alls 8-8-9-9-10-10 sinnum = 11-12-12-14-14-15 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu í botni á v-hálsmáli. Prjónið upp ca 80-84-88-92-96-100 lykkjur (fjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) innan við 1 kantlykkju í kringum allt hálsmálið með hringprjón 5,5. Snúið stykkinu og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina (umferðin endar með 2 lykkjum brugðið).
Haldið áfram fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm. Leggið stroff kantana þannig að þeir komi yfir hvorn annan við miðju að framan. Sú hlið sem er með 2 lykkjur slétt í byrjun yst, leggst yfir hina hliðina. Saumið þetta kantana niður með nokkrum smáum sporum.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Prjónið upp ca 72-96 lykkjur (fjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) innan við 1 kantlykkju í kringum handveg með hringprjón 5,5. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist ca 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
BAKSTYKKI + FRAMSTYKKI:.. fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-3-4-4-4-5 sinnum...

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Marie wrote:

Hej igen. Jeg er vist desværre kommet tl at formulere mig lidt uklart i fht. måden jeg fik spurgt på. Mit spørgsmål til " Bagstykke ( VENSTRE SKULDER) Luk 1 maske af i begyndelsen af næste pind fra retsiden" er om jeg skal lukke den 1. maske af? eller om jeg skal lukke en tilfældig maske i starten af skulderen? Mvh Marie

01.11.2023 - 13:51

DROPS Design answered:

Hej Marie, ja du lukker første maske af :)

03.11.2023 - 11:48

country flag Marie wrote:

Hej. Jeg har et spørgsmål til "VENSTRE SKULDER (bagstykke)" Her står der " luk 1 maske af i begyndelsen af næste pind fra retsiden.." Hvordan gør jeg det? På forhånd tak for svar

31.10.2023 - 01:35

DROPS Design answered:

Hej Marie, den lukker du af på samme måde som du har lukket halsmaskerne af :)

31.10.2023 - 09:16

country flag Karen wrote:

Rettelse: HØJRE SKULDER (forstykke): Sæt de 19-20-21-23-24-25 masker fra tråden tilbage på pinden. Der mangler 23 i str. XL Mvh Karen

30.12.2022 - 21:40

country flag Sarah wrote:

Der kan på ingen måde være 80 masker at samle op i halsen på jeres mindste størrelse. Der er 16 masker i halsen og 13 på hver side af halsen. Skal man samle mere end en maske op ad gangen pr maske? Hvad gør jeg forkert😂 Når du først har strikket indtagnignerne ved skuldrene på forsiden er der jo kun få rækker tilbage at strikke før man når 52 cm. Så hvor kan de 80 masker samles op fra🤪

07.12.2022 - 20:43

DROPS Design answered:

Hei Sarah. Du strikker opp ca 80 masker rundt hele v-halsen. Om du plukker opp 1-2 masker pr cm i front hvor det er ca 18 cm i hver side av V`en i v-halsen har du ca 27 masker i hver side = 54 masker, så har du 14 masker på 1 tråd (bak halsen) = 54+14 = 68, så plukker du opp ca 6 masker i hver side av halsen på bakstykket = 54+14+6+6 = 80 masker. Dette er sånn ca, bare husk å plukke opp samme antall på hver side, nok masker slik at det ikke vil stramme og antallet må være delbart med 4). mvh DROPS Design

12.12.2022 - 10:44

country flag TeresaCC wrote:

Where can I get the pattern in Portuguese? Thank you, Teresa

04.12.2022 - 19:52

country flag Yasmin wrote:

Hejsa Skal den strikkes på alm pinde. Jeg har startet den på rundpind:/ Mvh yasmin

26.11.2022 - 11:12

DROPS Design answered:

Hei Yasmin. Denne vesten strikkes rundt på rundpinne opp til ermehullet. Her deles arbeidet, og forstykket og bakstykket strikkes videre hver for seg. Her kan du velge om du vil strikke frem og tilbake med parpinner eller frem og tilbake med rundpinne. mvh DROPS Design

28.11.2022 - 14:31

country flag Yasmin wrote:

Hvad mener i med rettelsen? "Opdateret online: 07.03.2022 BAGSTYKKE + FORSTYKKE: ... tag ind på hver 2.pind 2-3-4-4-4-5 gange..."

19.11.2022 - 10:27

DROPS Design answered:

Hei Yasmin. 07.03.2022 ble det gjort en rettelse på denne vesten. Om du.feks hadde skrevet ut denne oppskriften før 07.03.2022 ville det ha stått noe andre tall under BAKSTYKKE + FORSTYKKE: ... , fell på hver 2.pinne 2-3-4-4-4-5 ganger ... Om du har begynt å strikke denne vensten etter 07.03.2022 er alt OK / oppskriften på nett er riktig / oppdatert. mvh DROPS Design

21.11.2022 - 11:30

country flag Rosy wrote:

Bonjour, pour les diminutions des emmanchures, faut il diminuer uniquement sur l endroit (un rang sur deux), ou sur l endroit et l envers (à chaque rang) ? Merci !

13.02.2022 - 14:00

DROPS Design answered:

Bonjour Rosy, on diminue pour les emmanchures tous les 2 rangs (= tous les rangs sur l'endroit). Bon tricot!

14.02.2022 - 11:02

country flag Ellen Henriksen wrote:

Jeg strikker vesten \\\"Spice of life\\\". På forstykket skal det være V-hals. Når man skal vegynne på V\\\'en, står det (her strikkes det glattstrikk fram og tilbake på rette pinner): \\\"På retten: Strikk som før de første 16 maskene, strikk 2 masker sammen og strikk 1 kantmaske i rille\\\". Hva betyr \\\"kantmaske i rille?\\\" Og videre står det at man skal strikke \\\"1 kantmaske i rille ihver side\\\".

17.01.2022 - 22:02

country flag Britt Ahrenstein wrote:

Skal igang med bagstykke, men der står at der skal lunkes 1 maske af indenfor kantmasken???? Kan man det? Menes der at jeg skal strikke de næste 2 masker sammen, altså indtagning i stedet for?

17.08.2021 - 11:17

DROPS Design answered:

Hei Britt. Ja, det skal felles 1 maske innenfor 1 kantmaske i rille i hver side 2-3-4-4-4 eller 5 ganger = 38-40-42-46-48 eller 50 masker på pinnen avhengig av hvilken størrelse du strikker. mvh DROPS design

18.08.2021 - 14:43