DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6402.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cooler Days Ahead

Prjónað vesti / slipover með v-hálsmáli úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-35
DROPS Design: Mynstur fl-058
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150-150-200-200 g litur 08, brúnn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-75-100-100-100 g litur 35, súkkulaði

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund= 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6402.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 170 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 28) = 6,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN A.2 ÞANNIG: Byrjið 2 lykkjur á undan A.2 og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR A.2 ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að byrjun á v-hálsmáli. Síðan stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka. Að lokum er stroff kantur prjónaður hringinn í v-hálsmáli og í kringum báða handvegi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 170-184-204-224-248-272 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Flora og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 28-30-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 142-154-170-186-206-226 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 71-77-85-93-103-113 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið 25-28-32-36-41-46 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21 lykkjur mitt að framan) og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 18-18-20-20-22-22 cm = 150-162-178-194-214-234 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli. Stillið af að næsta umferð sé 1. eða 3. umferð í A.1 og prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 6 lykkjur, prjónið 34-37-41-45-50-55 lykkjur eins og áður, setjið næstu lykkju á þráð eða lykkjuhaldara (= mitt að framan og mitt í A.1), prjónið 34-37-41-45-50-55 lykkjur eins og áður, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið þær 69-75-83-91-101-111 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= bakstykki).
Bakstykki og framstykki er nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 69-75-83-91-101-111 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 4-3-3-3-4-5 sinnum í hvorri hlið = 57-61-65-69-71-75 lykkjur eftir.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan sléttprjón og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 17-19-20-22-22-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm.
Fellið aðeins laust af. Prjónið síðan hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Byrjið frá röngu mitt að framan, prjónið A.2 yfir fyrstu 8 lykkjurnar (A.2 er lesið frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu) og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur – A.2 á nú að passa fallega yfir A.1.
JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg og lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

HANDVEGUR:
Fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá handveg þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 4-3-3-3-4-5 sinnum.

V-HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli á undan A.2 mitt að framan (séð frá réttu) – sjá ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5 sinnum í öllum stærðum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-6-7-7-8-8 sinnum.
Eftir allar affellingar fyrir handveg og úrtöku fyrir v-hálsmáli eru 17-19-20-22-22-24 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið aðeins laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu í hlið við handveg og prjónið sléttprjón eins og áður þar til 8 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið A.2 yfir síðustu 8 lykkjurnar. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli og fellt er af fyrir handveg alveg eins og á vinstra framstykki, en í gagnstæðri hlið. Þ.e.a.s. nú er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að ofan, eftir A.2 mitt að framan (séð frá réttu) og fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá handveg eins og útskýrt er að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasaumana innan við affellingarkantinn.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu neðst í handvegi og prjónið upp ca 92 til 114 lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum handveg á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2).
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við annan axlarsauminn og prjónið upp ca 114 til 140 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2).
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en passið uppá að það verði 1 lykkja slétt nákvæmlega mitt að framan yfir lykkju á þræði. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan sléttu lykkjunni mitt að framan, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með þessu þá kemur v-hálsmálið til með að liggja fallega í hálsmáli og sléttar lykkjur koma til með að fylgja sem slétt lína mitt að framan.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm – munið eftir AFFELLING!

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Cecilia wrote:

Bonjour, le modèle est tricoté avec deux qualités de fils, mais comment assortir les couleurs . Avez-vous des suggestions

10.11.2023 - 09:27

DROPS Design answered:

Bonjour Cecilia, vous trouverez d'autres exemples de cette association sous le nuancier de DROPS Flora, votre magasin saura également vous conseiller les couleurs assorties dans les nuances que vous recherchez, n'hésitez pas à le contacter, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

10.11.2023 - 11:26

country flag Kaja Bordenave wrote:

Hi. I am on the beginning of the V-neck and armholes. I have cast off 6 stitches at the marker, then knitted to A1, placed a stitch on a marker, and then I counted 27 stitches to the marker. It says to knit 34 stitches and then cast off, but I counted 24 stitches, and it turns out I've knitted 24 stitches before A1 as well. Is this a typo on the recipe?

24.08.2023 - 14:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bordenave, when casting off for armhole, you should cast off 3 sts before the marker at the beg of the round + 3 sts after this marker, then work 34 sts, slip the middle stitch on a thread, work 34 sts, cast off the next 6 sts (3 sts on each side of the marker) and work the last 69 sts = 6+34+1+34+6+69=150 sts. Hope it can help. Happy knitting!

25.08.2023 - 08:07

country flag Michèle Tremblay wrote:

Bonjour, Je suis rendue au devant gauche. Ils disent de tricoter le motif A2 au dessus des 8 mailles du milieu si je tricote comme cela je n’arrive pas à couvrir le A1 car il reste d’eux maille sur le motif A1. Merci de me répondre

12.03.2023 - 22:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, quand on divise le devant, on divise au milieu de A.1 = on a pour le devant gauche les 10 premières mailles de A.1 ( puis 1 m en attente (= la m centrale de A.1) et les 10 dernières mailles de A.1 pour le devant droit), mais on ne va plus tricoter la torsade (= les 2 premières mailles de A.1), on va donc tricoter A.2 sur les 8 premières mailles sur l'envers/dernières mailles sur l'endroit (devant gauche). Bon tricot!

13.03.2023 - 10:35

country flag Michèle Tremblay wrote:

Bonjour, J’ai un problème avec la grille A1. Pour le premier rang pas de problème je suis très bien. Au deuxième rang je me trouve toujours à tricoter en endroit. Alors que faire pour le jeté. Pourriez vous m’expliquer comment le faire ce deuxième rang en tricotant en rond

03.03.2023 - 12:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, avez-vous vu la réponse précédente? Le 2ème et le 4ème rang de A.1 ont été décrits et devraient pouvoir vous aider. Bon tricot!

03.03.2023 - 13:15

country flag Michèle Tremblay wrote:

Bonjour, J’aimerais savoir en tricotant en rond je me trouve toujours à tricoter toujours en endroit. Sauf quand je tricote la grille 21 les jetés sont en endroits je ne peux pas les tricoter dans dans le rang suivant car je suis toujours en endroit. Que faire? Merci de me repondre

02.03.2023 - 21:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, aux rangs impairs de A.1 tricotez ainsi: 2 m end, 3 m env, 2 m end (rang 2: le jeté du rang précédent + la diminution/ rang 4: la diminution + le jeté), 7 m env, 2 m end (rang 2: le jeté du rang précédent + la diminution/ rang 4: la diminution + le jeté), 3 m env, 2 m end. Quand vous tricoterez ensuite A.2 sur l'envers les 2 m du milieu (la diminution+ le jeté ou bien le jeté + la diminution) se tricoteront à l'envers sur l'envers. Bon tricot!

03.03.2023 - 09:10

country flag Michèle Tremblay wrote:

Bonjour. Ce gilet se tricote sur des aiguilles circulaires. Alors je suis toujours sur l’endroit comment faire l’allee Retour pour le diagramme parce que je suis toujours à l’endroit. Merci de m’en repondre

29.12.2022 - 18:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, on tricote le pull en rond sur circulaire jusqu'aux emmanchures, puis on tricote chaque partie séparément en allers et retours, ainsi, en rond, on tricote toujours sur l'endroit en lisant le diagramme de droite à gauche, puis on lira les rangs sur l'envers de gauche à droite après la division de l'ouvrage. Bon tricot!

02.01.2023 - 12:54

country flag Candra wrote:

I'm extremely inspired with your writing talents and also with the layout for your blog. Is thaat this a paid topic or did you customize it yourself? Either way keep up the excellent quality writing, it's rare to look a nice weblog like this one today.. Médecine du sport webpage pharmacologie du sport

29.12.2022 - 00:11

country flag Lara wrote:

Thanks for every other informative blog. The placde else may just I get that kind oof info written in such an ideal way? I have a cchallenge that I am just now running on, and I've been on the look out for such info. Hoow tto pump the press webssite how to pump the press

28.12.2022 - 11:57

country flag Hansson wrote:

När jag ska börja på framstycket, kan jag då inte börja från rätsida högra sidan istället? Förstår inte hur jag ska börja på avigsidan och om jag ska läsa mönstret från Vänster till Höger som det står i beskrivningen så blir det väl den högra delen jag i så fall börjar på o gör klart? Puh 😅

28.03.2022 - 19:50

DROPS Design answered:

Hei Hansson. For at det skal bli symmetrisk rikitg må du strikke 1. pinne fra vrangen. Når du leser diagrammet fra venstre mot høyre når det strikkes fra vrangen, vil du også merke at når du skal strikke masker sammen er det lettere å gjøre dette fra retten (2. pinne i diagrammet). mvh DROPS Design

04.04.2022 - 11:44

country flag Hansson wrote:

Varför kan jag inte skriva ut mönstret så att själva diagrammet för mönsterstickningen kommer med?

19.03.2022 - 11:11

DROPS Design answered:

Hei Hansson. Klikk på skriv ut ikonet (ikke brukt ctrl+P) eller sjekk skriver innstillingenen på din PC. mvh DROPS Design

21.03.2022 - 13:37