DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Wisps Set

Prjónað eyrnaband, hálsskjól og vettlingar úr DROPS Alaska. Stykkin eru prjónuð með köðlum og útaukningu fyrir axlarsæti.

DROPS 214-49
DROPS Design: Mynstur x-450
Garnflokkur C eller A + A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - L/XL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garfnlokki C)
350-400 g litur 03, ljós grár

EYRNABAND:

STÆRÐ:
Ein stærð
Höfuðmál: 54/56 cm – eða að óskarði lengd.

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garfnlokki C)
100 g litur 03, ljós grár

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 40 cm fyrir sléttprjón.
DROPS KAÐLAPRJÓNN - fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Mál:
Lengd: ca 32-34 cm mælt frá eftir stroff í hálsi.
Breidd á öxl: ca 34 - 39 cm.

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garfnlokki C)
200-200 g litur 03, ljós grár

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 60 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M - L/XL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100 g litur 03, ljós grár

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN - fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3, A.4 og A.5.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um hálsskjól):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur) mínus lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (t.d. 4 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-3 (á við um vettlinga):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Lykkjum er fækkað í einingu í sléttprjóni að neðanverðu á vettlingi þannig:
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju á prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin.

EYRNABAND:
Fitjið upp 31 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 2 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 27 lykkjur, 2 kantlykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 49 cm, eða prjónið að óskaðri lengd – stillið af að endað sé eftir 4. eða 10. umferð í A.1. Fellið af. Saumið eyrnabandið saman innan við uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er prjónað í hring þar til útaukning fyrir öxl er lokið.
Síðan er framstykki og bakstykki prjónað hvort fyrir sig.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 76-84 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 12-16 lykkjur, setjið 1. prjónamerki hér, prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki hér, prjónið 2 lykkjur brugðið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 24-28 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér, prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjurnar (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki hér, prjónið 2 lykkjur brugðið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir síðustu 12-12 lykkjurnar. Haldið svona áfram hringinn í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Héðan er nú mælt. Prjónið síðan mynstur þannig:

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Haldið áfram með A.2 yfir axlalykkjur í hvorri hlið og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Nú er einungis bara aukið út á bakstykki og framstykki og fjöldi lykkja á öxl verður sá sami. Aukið út í hverri umferð alls 14-16 sinnum = 132-148 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur fram að axlalykkjum, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur yfir 12 axlalykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 54-62 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir framstykki, fellið af næstu 12 axlalykkjur, prjónið sléttprjón yfir allar 54-62 lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 2 kantlykkjum GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar kraginn mælist 27-29 cm frá prjónamerki sem setta var í eftir hálmáli, aukið út um 12-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 66-78 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: 2 lykkjur garðaprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (lykkjur í garðaprjóni eru felldar af með sléttum lykkjum).
Hálsskjólið mælist ca 32-34 cm frá prjónamerki.

FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 5,5 og prjónið á sama hátt og á bakstykki.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 40-44 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-3 lykkjur slétt. Setjið eitt prjónamerki hér.
Þetta er byrjun á umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2-3 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir næstu 18 lykkjur (= 1 lykkja fleiri), 2-3 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 16-18 lykkjur = 40-44 lykkjur. Prjónið eina umferð með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og A.3 yfir A.3.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið síðan mynstur þannig: 2-3 lykkjur slétt, A.4 yfir A.3, sléttar lykkjur yfir næstu 19-22 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við síðustu lykkju í umferð fyrir þumal (= 2 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út á ytri hlið við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 50-56 lykkjur. Setjið nú 11-13 þumallykkjur á þráð.
Prjónið mynstur eins og áður hringinn á vettlingnum og fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við þumal í næstu umferð = 40-44 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.4 hefur verið prjónað til loka 4 sinnum á hæðina.
Vettlingurinn mælist nú ca 23 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki á eftir 23-25 lykkjum (= 23-25 lykkjur á efri hlið á vettlingi og 17-19 lykkjur að neðanverðu á vettlingi). Prjónið nú A.5 yfir A.4, JAFNFRAMT í næstu umferð er lykkjum fækkað að neðanverðu á vettlingi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 5 sinnum og í hverri umferð 2 sinnum. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 12-16 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð þar sem allar lykkjur eru prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 6-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11-13 þumallykkjur á þræði á sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 4 lykkjur aftan við þumal = 15-17 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5-5½ cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú á að vera ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 umferðir slétt JAFNFRAMT þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við 24.-26. lykkju (= 3.- 4. lykkja í sléttprjóni eftir A.4).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.10.2020
Leiðrétting: VINSTRI VETTLINGUR:..Þetta er byrjun á umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2-3 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir næstu 18 lykkjur (= 1 lykkja fleiri), 2-3 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 16-18 lykkjur = 40-44 lykkjur.Prjónið eina umferð með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og A.3 yfir A.3.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar 2 þannig að lykkjan liggi utan um tvær síðustu lykkjurnar sem voru prjónaðar (= 1 lykkja færri)
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjóninn aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjóninn framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 1 lykkju brugðið og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri)
symbols = 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-49

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Anette Wingefors wrote:

Hej. Jag funderar på detta mönster och vill använda befintligt garn som jag har hemma och där man ska använda stickor 6 mm. Kan jag göra och hurr mycket garn kommr det att gå åt?

15.01.2024 - 18:04

DROPS Design answered:

Hej Anette, det kan vi ikke svare på. Vi bruger DROPS Alaska hvor der er 70 m / 50 gram - så kan du prøve at regne det ud med det du har...

16.01.2024 - 14:32

country flag Eva wrote:

På oppskriften på hals hadde det vært fint om "strikk 2 vrang, (2 rett / 2 vrang) over de neste 24-28 maskene" ble endret til " strikk 2 vrang, deretter (2 rett / 2 vrang) over de neste 24-28 maskene" og tilsvarende på den neste med samme tilfelle.

04.01.2024 - 20:59

country flag Susanne Persson wrote:

Stickar vanten och har stickat klart på höjden. Det står att jag ska minska på undersidan vartannat varv fem gånger och varje varv två gånger men det stämmer inte med diagrammet. Det står att minska efter markören det är innan aviga maskor… ???

12.12.2023 - 20:58

DROPS Design answered:

Hej Susanne, du skal både tage ind ifølge diagrammet og indenfor mærkerne, i de glatstrikkede masker indeni hånden :)

13.12.2023 - 14:50

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi I see there are a few knitters having the same problem am having with the neckwarmer am making the large size. Is the pattern worked back and forth the joined an work in the round? At last sett of instruction says to: A.2 over the next 12 stitches (= shoulder stitches), insert 4th marker here, purl 2, (knit 2/purl 2) over the last 12-12 stitches. But I only have 12 sts to work sit here. How do I correct this? S

25.06.2023 - 11:16

DROPS Design answered:

Dear Sharon, when starting the neck warmer, you have 84 stitches. Work rib over the first 16 stitches, insert marker between the stitches, A.2 over 12 stitches , insert marker between the stitches, purl 2 , work rib over 28 stitches, insert marker between the stitches, work A.2 over the next 12 stitches, insert marker between the stitches, purl 2, work rib over the last 12 stitches. 16+12+2+28+12+2+12 = 84 stitches. Happy knitting!

25.06.2023 - 14:29

country flag Marianne wrote:

Försöker mig på halsvärmaren men får avslut på två räta efter2 a markören stickat 24 m och efter 3 e markör börjar det m räta. Blir ju fyra räta efter varandra på den sidan då.. Blir inte lika på andra.. får inte maskorna att stämma.

25.11.2022 - 00:31

country flag Helga Eitel wrote:

Hallo, bei dem Schalkragen ist das Diagramm A.2 angegeben wonach ich Zopfmuster stricken müsste. In der Abbildung ist das aber nicht zu sehen. Ich möchte aber ohne Zopfmuster stricken.

18.04.2022 - 09:00

DROPS Design answered:

Liebe Frau Eitel, A.2 finden Sie unter A.1 (Zopf für den Stirnband); dh A.2 wird Rippenmuster: 2 M re, 3 M li, 2 M re, 3 M li, 2 M re (= 12 Maschen). Viel Spaß beim stricken!

19.04.2022 - 11:24

country flag Silje Kvamsdal Guddal wrote:

Hei. Lurer på om det finnes ein genser-oppskrift i samme stil som i denne halsen..?synes ribb mønsteret var så kult når den gjekk nedover..og trur det hadde gjort seg på ein genser..

12.02.2022 - 11:28

DROPS Design answered:

Hei Silje. Ta en titt på oppskrift 217-23, eller så søk på sadelskulder oppskrifter. Kanskje du finner noe som faller i smak. mvh DROPS Design

14.02.2022 - 13:30

country flag Jane wrote:

Hello, I am knitting the neck warmer, S/M size. I cast on 76 stitches, but when I add up the stitches for the first round of the rib, it only comes to 72 stitches. What am I supposed to do with the extra 4 stitches? Thank you.

24.01.2022 - 11:39

DROPS Design answered:

Dear Jane, work the 76 stitches as follows: Knit 2/Purl 2 over the first 12 sts, marker, A.2 (= 12 sts), marker, P2, K2/P2 over the next 24 sts, marker, A.2 (= 12 sts), marker, P2, K2/P2 over the last 12 sts, you should have: 12+12+2+24+12+2+12= 76 sts. Maybe you forgot the P2 after A.2 and before rib K2/P2? Hope it will help, happy knitting!

24.01.2022 - 15:44

country flag Jessica wrote:

Finns det en annan beskrivning, jag förstår inte diagrammet och inte beskrivningen heller.

21.01.2022 - 18:16

DROPS Design answered:

Hej Jessica. Se svar under. Mvh DROPS Design

24.01.2022 - 07:51

country flag Jessica wrote:

Jag förstår inte diagrammet och beskrivningen för pannbandet alls. Finns det en skriven beskrivning som förklarar det, tyvärr blir jag inte klokare av de videos som finns heller.

21.01.2022 - 18:04

DROPS Design answered:

Hej Jessica. Nej vi har dessvärre ingen annan beskrivning än denna. Du börjar längst ner från höger på diagrammet och läser/stickar mot vänster. På nästa varv stickar du från vänster till höger på diagrammet. Är det något speciellt som blir fel så kanske vi kan hjälpa dig? Mvh DROPS Design

24.01.2022 - 07:51