DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dublin Winter Sweater

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og A-formi. Stærð XS - XXL.

DROPS 215-12
DROPS Design: Mynstur ai-297
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 30, salvíugrænn

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
15 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STROFF (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Endurtakið umferð 1 og 2.

KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-*.
Endurtakið umferð 1 og 2.

ÚTAUKNING (á við um útaukningu í klukkuprjónslykkju):
Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (þ.e.a.s. 1. umferð í klukkuprjóni).
Aukið út um 4 lykkjur í klukkuprjónslykkju þannig:
Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman 1 sinni, færið prjónamerkið að þessari lykkju (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna saman 1 sinni til viðbótar (= 3 lykkjur og 2 uppslættir), sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni.
Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar þannig:
* Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið (= 3 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið).
Prjónamerkið situr nú í miðju á útauknu lykkjum, þ.e.a.s. í sléttri lykkju.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (þ.e.a.s. í 1. umferð í klukkuprjóni).
Byrjið mitt undir ermi (þ.e.a.s. á undan lykkju með prjónamerki) og fækkið um 4 lykkjur í umferð þannig:
Prjónið fyrstu 2 lykkjurnar í klukkuprjóni eins og áður, lyftið næstu lykkju + tilheyrandi uppslætti af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur + tilheyrandi uppslátt slétt saman og steypið lyftu lykkjunni + tilheyrandi uppslátt yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman. Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki (= miðjulykkja undir ermi), prjónið næstu 3 lykkjur + tilheyrandi uppslátt slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið síðustu lykkju í umferð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Á berustykki er aukið í 6 lykkjur sem eru merktar með prjónamerki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 78-78-84-90-90-96 lykkjur á hringprjón 4 með Air.
Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan STROFF – sjá útskýringu að ofan í 12 cm, stillið af þannig að síðasta umferð sé 2. Umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 52-52-56-60-60-64 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 6.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði. Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið 6 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna). Öll prjónamerkin eru sett í slétta lykkju.
Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út í berustykki.
Teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju í umferð (= aftan á hægri ermi), teljið 5-5-7-5-5-7 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína að framan), teljið 7-7-7-9-9-9 lykkjur, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= mitt að framan), teljið 7-7-7-9-9-9 lykkjur, setjið 4. Prjónamerki í næstu lykkju (= laskalína að framan), teljið 5-5-7-5-5-7 lykkjur, setjið 5. prjónamerki í næstu lykkju (= aftan á vinstri ermi), teljið 11-11-11-13-13-13 lykkjur, setjið 6. prjónamerki í næstu lykkju (= mitt að aftan), nú eru 3 lykkjur eftir í umferð.
Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar prjónaðar hafa verið 2-2-6-2-6-2 umferðir í klukkuprjóni, aukið út lykkjur í næstu umferð þannig:
Aukið út um 4 lykkjur í allar 6 lykkjurnar með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 24 lykkjur fleiri í hverri umferð).
Aukið svona út í 12.-10.-10.-10.-8.-10. hverri umferð (þ.e.a.s. í 6.-5.-5.-5.-4.-5. sýnilegar umferðir með klukkuprjónslykkjum) alls 5-6-6-7-8-8 sinnum við 1., 2., 4. og 5. lykkju í umferð og alls 4-5-6-6-7-8 sinnum við 3. og 6. prjónamerki = 164-188-200-220-244-256 lykkjur í umferð.
Ef prjónfestan passar á hæðina, mælist stykkið ca 20-20-22-24-24-28 cm frá prjónamerki við háls.
Lengra í stykkinu á útaukning við 3. og 6. prjónamerki að halda áfram eins og áður 2 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. aukið er út alls 6-7-8-8-9-10 sinnum mitt að framan og mitt að aftan), ef stykkið mælist styttra en 20-20-22-24-24-28 cm, getur gerst að þessar útaukningar komi á berustykki. Þá kemur lykkjufjöldinn við skiptingu fyrir fram- og bakstykki og ermar ekki til með að verða sá sami og í útskýringu að neðan. Auka lykkjurnar koma til með að koma á framstykki og bakstykki. (1. og 5. prjónamerki hefur einnig fleiri útaukningar eftir skiptingu fyrir fram- og bakstykki og ermar – þetta er útskýrt undir ERMI).

Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 14-16-16-18-20-20 lykkjurnar, setjið næstu 31-35-37-43-47-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, prjónið eins og áður yfir næstu 51-59-63-67-75-79 lykkjur, setjið næstu 31-35-37-43-47-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 lykkjur undir ermi og prjónið þær 37-43-47-49-55-59 lykkjur sem eftir eru eins og áður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 116-132-140-148-164-172 lykkjur – þessi lykkjufjöldi á við um ef aukið var út 4-5-6-6-7-8 sinnum við 3. og 6. prjónamerki á berustykki. Ef aukið hefur verið út oftar á berustykki, koma til með að vera fleiri lykkjur núna á fram- og bakstykki).
Prjónið síðan þannig:
Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni eins og áður og prjónið e.t.v. síðustu 2 útaukningar við 3. og 6. prjónamerki. Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í fyrstu umferð án þess að prjóna saman með uppslætti.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru = 132-148-156-164-180-188 lykkjur fyrir fram- og bakstykki.
Prjónið þar til stykkið mælist 26-28-28-29-30-29 cm frá skiptingu (stillið af að næsta umferð sé 1 umferð þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með sléttu lykkjunni).
Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið nú stroff þannig:
* Prjónið sléttu lykkjuna og uppsláttinn slétt saman eins og áður, 1 uppsláttur (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 198-222-234-246-270-282 lykkjur.
Prjónið síðan stroff hringinn eins og í hálsi í 5 cm (uppslátturinn er prjónaður snúinn í fyrstu umferð með stroffi). Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 31-35-37-43-47-49 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 6 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-44-50-54-56 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi (þ.e.a.s. 1 lykkja slétt í klukkuprjónsmynstri). Þessi lykkja merkir mitt undir ermi og það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við hana. Byrjið umferð á undan miðjulykkju og prjónið þannig:
Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni eins og áður, lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í fyrstu umferð án þess að prjóna saman með uppslætti. Jafnframt er aukið út í 1./5. prjónamerki frá berustykki og lykkjum er fækkað mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan:

ÚTAUKNING:
Haldið áfram með útaukningu eins og áður í 1./5. Prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu). Aukið svona út í 12.-10.-10.-10.-8.-10. hverri umferð alls 4 sinnum. Á eftir fyrstu útaukningu er lykkjufjöldinn 42-46-48-54-58-60 lykkjur (síðan kemur lykkjufjöldinn til með að vera sá sami þar sem lykkjum er fækkað jafnframt því sem aukið er út).

ÚRTAKA:
Þegar 2. útaukning er gerð á ermi, fækkið jafnframt um lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð þar sem aukið er út (alls 3 sinnum).

Þ.e.a.s. í 1. útaukningu á ermi eru lykkjur auknar út í umferð = 42-46-48-54-58-60 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum og aukið út jafnmargar lykkjur á þeim 3 útaukningum sem eftir eru þannig að lykkjufjöldinn verður sá sami.
Prjónið í klukkuprjóni þar til ermin mælist 34-35-34-33-32-30 cm (nú eru 3 cm að loka máli).
Prjónið nú stroff á sama hátt og á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttu lykkjunni, að auki er aukið út um 1 lykkju á eftir hverja slétta lykkju og brugðna lykkjan er prjónuð brugðið = 63-69-72-81-87-90 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff hringinn eins og á hálsi og fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 1 slétt klukkuprjónslykkja og 2 lykkjur brugðið) í 3 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Ermin mælist ca 37-38-37-36-35-33 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (77)

country flag Linnéa wrote:

Hej! Har sett flera fråga samma sak men ser inget försåtligt svar. I stl S har jag nu ökat 5 resp 6 varv, har 188 maskor och arb mäter 20cm, precis som mönstret säger. Jag har hoppat över att öka på 3:e och 6:e markören på sista varvet och nu ska det stickas till 22cm innan delning till ärmar (innan sista 2 ökningarna)- men då blir det ju ett lägre avstånd mellan ökningarna fram och back än innan? Stämmer det verkligen? Stort tack!

06.03.2024 - 16:18

DROPS Design answered:

Hej Linnea, du skall öka vid 3:e och 6:e markören 2 ggr till, så du har 22 cm när du delar till fram och bakstycke :)

13.03.2024 - 15:31

country flag Mari wrote:

In the beginning (size S) I have 15 (7+1+7) stiches in the front and 23 st in the back (8+3+1+11), how can I have equal number of stiches (back 14+1+37, front 51) after separated the sleeves?

23.02.2024 - 20:57

DROPS Design answered:

Dear Mari, the markers are not exactly showing the transition sleeves and body, so just increase exactly as explained for your size so that you get the correct number of stitches at the end of yoke when dividing. Happy knitting!

26.02.2024 - 07:45

country flag Claudia wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum Übergang der Halsblende zur Passe. Bei Größe XXL habe ich in der letzten Runde der Halsblende 64 Maschen. In der ersten Runde der Passe habe ich nach dem 5. Marker noch 13 Maschen übrig. Laut Anleitung sollten nur 3 Maschen übrig sein. Ist das ein Druckfehler? Oder zähle ich falsch? Die Umschläge habe ich nicht mitgezählt.

11.02.2024 - 10:42

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, so sollen die Maschen auf der Nadel aussehen: 10 M, 1 M mit Markierung, 7 M, 1 M mit Markierung, 9 M, 1 M mit Markierung, 9 M, 1 M mit Markierung, 7 M, 1 M mit Markierung,13 M, 1 M mit Markierung, 3 M = 10+1+7+1+9+1+9+1+7+1+10+1+3=64 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

12.02.2024 - 07:45

country flag Elize wrote:

Am I correct to increase 8times on the yoke but at the 8time row of increase i skip marker 3 and 6 and just knit 2tog that will make count for increase 7times at markers 3and6

17.05.2023 - 16:25

DROPS Design answered:

Dear Elize, maybe you could tell us which size you are working on? So that we could check together how to increase in your size. Thanks for your comprehension.

19.05.2023 - 07:50

country flag Elize wrote:

Am I correct to increase 8times on the yoke but at the 8time row of increase i skip marker 3 and 6 and just knit 2tog that will make count for increase 7times at markers 3and6

17.05.2023 - 15:24

DROPS Design answered:

Dear Elize, in 5th size you will increase 8 times on markers 1, 2, 4 and 5 and at the same time increase 7 times on marker 3 and 6. Then incrase 2 more times on markers 3 and 6 (but not on the other markers anymore, except when working sleeve). Happy knitting!

17.05.2023 - 15:54

country flag Brigitte wrote:

Hei! Ny utfordring :) På ermene så skal man fortsette å øke i 1/5 raglansøkning samtidig som man feller to på hver side av merkemasken under ermet. Iht økeinstruksen øker man 4 masker hver i 1 og 5, mens man feller 4 under ermet., sa øker man 4 masker per øke/felle-runde, men det står at man øker og feller like mye på hver omgang og slik blir maskeantallet likt. Hvordan blir det slik?

20.02.2023 - 15:09

DROPS Design answered:

Hei Birgitte. 1 merke = bak på høyre erme og 5. merke = bak på venstre ermet. Når du strikker det ene ermet øker du som tidligere ved 1. merke eller 5. merke, (ett merke på hvert erme), og du feller 4 masker under hvert erme. Maskeantallet vil da være det samme. mvh DROPS Design

06.03.2023 - 09:09

country flag Brigitte wrote:

Beklager at jeg gjentar meg selv, men siden det skal økes to ganger til på 3 og 6, altså 9 ganger mot 8 ganger på raglanen ville jeg trodd at jeg økte 8 ganger på alle, så én gang til på 3 og 6 iht for å få 9 økninger framme og bak.

16.01.2023 - 14:43

DROPS Design answered:

Hej Birgitte, ja du fortsætter økningerne ved 3. og 6. merke (midt foran og midt bagpå) til du har totalt 9 gange i din størrelse.

19.01.2023 - 07:47

country flag Brigitte wrote:

Hei! Jeg forstår ikke hva jeg skal gjøre ved siste raglanøkning. XL: "Øk slik på hver 8. omgang (dvs på hver 4. synlige omgang med patentmasker) totalt 8 ganger ved 1., 2., 4. og 5. merke og totalt 7 ganger ved 3. og 6.merke " Når jeg øker den 8. gangen på 1, 2, 4 og 5 (raglan, altså er det ikke skilt til bol og ermer enda) hva gjør jeg ved 3 og 6 siden det ikke skal økes der på den runden, men skal økes 2 ganger til senere. Altså når har jeg 244 masker på pinnen?

16.01.2023 - 14:06

DROPS Design answered:

Hei Birgitte. Den siste omgangen det økes ved merke 1,2, 4 og 5, økes det ikke ved merke 3 og 6. Du startet med 60 masker, så skal du øke ved merke 1-2-4 og 5. Du øker med 4 masker 4 steder pr. omgang = 16 økte masker og dette gjøres på 8 omganger = 16 x 8= 128 økte masker. Samtidig ved merke 3 og 6 økes det med 4 masker + 4 masker = 8 økte masker og dette gjøres 7 ganger = 8 x 7 = 56 masker. Du har da startet med 60 masker, økt med 128 og 56 masker = 60 + 128 + 56 = 244 masker. mvh DROPS Design

16.01.2023 - 14:36

country flag Brigitte wrote:

Sorry, this is going in circles and I am still not clear. You are describing the process up until 244 stitches, 8 increases in raglan, and 7 increases in front and back. However, since the increases continue on the front and the back twice more, 9 times total, I don't understand at which point I have 244 stitches on the needle. Does the interval for the 8th and 9th increase in front and back change?

16.01.2023 - 12:02

DROPS Design answered:

Dear Brigitte, you will have 244 sts after these increases explained below will have been worked. Your piece should be 24 cm from the marker on the neck edge. Then you will increase 2 times more on markers 3 and 6, if your piece is shorter than 24 cm, some of these increase will be on yoke - this will then depend on your tension. You should divide when piece measures 27cm from the marker. So check your tension and adjust if necessary. Happy knitting!

16.01.2023 - 16:27

country flag Brigitte wrote:

Thank you again! This is however before we split into body and arms, so I still don't know what to do at the front and back markers when knitting the eighth increase in XL.

16.01.2023 - 09:49

DROPS Design answered:

Dear Brigitte, in XL increase 7 times 4 sts in each of the 6 marker- stitches and then increase 1 time 4 sts at markers 1,2, 4 and 5 = you increase 7 times x 4 sts x 6 = 168sts then 1 time 4 sts x 4 markers = 16 sts, there were 60 sts on needle + 168+16 = 244 sts. Happy knitting!

16.01.2023 - 10:49