DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 56-14
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: Small/medium (Medium/large)
Yfirvídd: 49 (53) cm. Lengd: 55 (57) cm
Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
600 (650) g litur nr 36, gallabuxnablár

Einnig er hægt að hekla stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að hekla 6 mynstureiningar af M.2 á breidd/ 18 fastalykkjur af M.1 verði 10 mynstureiningar á hæðina 10 x 10 cm. 1 mynstureining M.2/3 fastalykkjur af M.1 = 1,67 cm.

DROPS TALA NR 531: 7 st
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Snúið við eftir hverja umferð. Mynstrið er deilanlegt með 3 lykkjur + 2 lykkjur.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 89 (95) loftlykkjur með heklunál 3 og Muskat. Heklið M.1 – sjá mynsturteikningu, snúið við eftir hverja umferð. Heklið síðan M.2 upp úr (= 30 (32) mynstureiningar meðtalin ysta eining á hvorri hlið). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31 (32) cm eru heklaðar 4 mynstureiningar færri á hvorri hlið (= affelling fyrir ermar og háls) = 22 (24) mynstureiningar meðtalin ysta eining á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 54 (56) cm er síðasta umferð hekluð þannig: Heklið 6 (7) mynstureiningar, klippið frá og hoppið yfir miðju 10 mynstureiningarnar (= affelling fyrir hálsmáli), heklið síðustu 6 (7) mynstureiningarnar. Stykkið mælist ca 55 (57) cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 44 (47) loftlykkjur með heklunál 3 og Muskat. Heklið M.1 – sjá mynsturteikningu, snúið við eftir hverja umferð. Heklið síðan M.2 upp úr (= 15 (16) mynstureiningar meðtalin ysta eining á hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 31 (32) cm eru heklaðar 4 einingar færri á hægri hlið (= affelling fyrir ermar og háls) = 11 (12) mynstureiningar meðtalin ysta eining á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 42 (44) cm (nú eru eftir 13 umferðir á hæðina = 13 cm) heklið affellingu í hálsi þannig: (klippið frá þegar affelling í hálsi byrjar í affelingu frá hlið):
1. umferð: Heklið yfir 2 einingar færri, 2., 3. og 4. umferð: Heklið yfir 1 mynstureiningu færri = 6 (7) mynstureiningar á öxl. Endið þegar stykkið mælist ca 55 (57) cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og hægra framstykki, nema fellið af á gagnstæðri hlið.

ERMI:
Heklið 38 (41) loftlykkjur með heklunál 3 og Muskat. Heklið M.1 – sjá mynsturteikningu, snúið við eftir hverja umferð. Heklið síðan M.2 upp úr (= 13 (14) mynstureiningar meðtalin ysta eining á hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 5 (5) cm er aukið út um 1 mynstureiningu á hvorri hlið í 5. hverri umferð 8 sinnum = 29 (30) mynstureiningar – aukið er út þannig: Byrjun á umferð: Á eftir 4 loftlykkjum er hekluð 1 loftlykkja á milli tveggja síðustu stuðla í fyrri umferð: 1 stuðull, 1 loftlykkja, 1 stuðull, 1 loftlykkja, haldið síðan áfram með fyrsta stuðul sem er teiknaður inn í mynsturteikningu í sömu loftlykkju. Lok umferðar: Á eftir síðasta stuðli er heklað í sömu lykkju: 1 loftlykkja, 1 stuðull, 1 loftlykkja, 1 stuðull, síðan 4 loftlykkjur, snúið stykkinu. Heklið síðan eftir mynsturteikningu með fyrsta stuðul niður í loftlykkju á milli 1. og 2. stuðuls.
Þegar stykkið mælist 46 (46) cm er sett eitt prjónamerki í hvora hlið og síðan eru heklaðar að auki 7 umferðir. Í 3 næstu umferðum er heklað yfir 4 einingar færri á hvorri hlið í hverri umferð. Stykkið mælist ca 56 (56) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og hliðarsauma. Heklið 5 umferðir með ca 70-75 fastalykkjum meðfram hægra framstykki. Endurtakið meðfram vinstra framstykki nema í 2. umferð eru hekluð 7 hnappagöt jafnt yfir með því að hekla 3 loftlykkjur í stað 3 fastalykkjum. Heklið 3 umferðir með ca 95-105 fastalykkjum í kringum háls (heklið einnig yfir kant að framan). Saumið ermasauma upp að prjónamerki. Saumið ermar í og tölur.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja
symbols = stuðull
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 56-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Marthe wrote:

Goedemorgen, bovenaan het patroon staat bovenwijdte 49 cm. Hoe bedoelen jullie dat? Dat is toch veel te weinig voor een normale bovenwijdte? Waar meten jullie dat dan?

14.08.2023 - 05:46

DROPS Design answered:

Dag Marthe,

Dit is als je het kledingstuk plat neerlegt en de bovenwijdte van het kledingstuk zelf meet. Eigenlijk is het dus de helft van de bovenwijdte.

14.08.2023 - 13:56

country flag Christine wrote:

Ich habe noch einmal überlegt : Könnte es so gemeint sein, daß man am Ende der Ärmel nicht nur einmalig über 4 Rapporte weniger auf beiden Seiten häkelt, sondern in jeder der 3 nächsten Reihen ? Dann bleiben 5 Rapporte übrig und es entsteht keine Stufe.

08.10.2022 - 17:08

country flag Christine wrote:

Danke für Ihre schnelle Antwort. Vielleicht habe ich meine Frage nicht präzise genug formuliert, denn ich weiß leider immer noch nicht, wie ich mit der entstandenen Stufe verfahren soll. Auch auf dem Diagramm ist dies nicht zu erkennen. Können Sie noch einmal helfen ?

06.10.2022 - 17:15

country flag Christine wrote:

Irgendwie komme ich mit dem Einnähen der Ärmel nicht klar. Dadurch, daß die letzten 3 Reihen der Ärmel kürzer sind, entsteht ja eine Stufe. Soll dies dann etwas zusammengenäht werden, wie eine Art Abnäher ?

05.10.2022 - 23:25

DROPS Design answered:

Liebe Christine, verteilen Sie den oberen Teil des Ärmels entlang des Armausschnitts und heften Sie ihn gegebenenfalls an und verteilen Sie gleichzeitig die Maschen so harmonisch wie möglich, damit das Muster schön bleibt. Viel Spaß beim fertigstellen!

06.10.2022 - 08:27

country flag Christine wrote:

Ist das Absicht oder ein Versehen, daß die Knopflöcher an der linken Blende eingearbeitet werden sollen ? Bei den Damenmodellen befinden sich in der Regel dort doch die Knöpfe, oder ?

18.09.2022 - 19:44

DROPS Design answered:

Liebe Christine, so wurde diese Jacke entworfen, aber gerne können Sie die Knopflöcher auf der rechten Blende arbeiten. Viel Spaß beim häkeln!

19.09.2022 - 10:50

country flag Christine wrote:

Danke ! Ich habe es mir inzwischen schon so gedacht. Der Markierungsfaden ist wichtig für's Zusammennähen, dann 7 weitere Reihen und erst bei den letzten 3 Reihen ( nicht bei den nächsten wie im Text ) wird abgenommen. Dann kommt man auch auf die Gesamtlänge. Das Diagramm zeigt es ganz richtig. Danke nochmal und freundliche Grüße ! Ich finde die Anleitungen ansonsten sehr gut nachvollziehbar und freue mich deswegen über neue Modelle !

25.08.2022 - 12:16

country flag Chrisrine wrote:

Danke für die schnelle Antwort ! Die Technik des Auf-und Zunehmens ist mir bekannt, mir war nur nicht klar, bei welcher Reihe dies passieren soll. Das weiß ich jetzt, danke ! Wie geht es dann aber weiter ? Nach 46 cm plus 3 Reihen sind es erst 49 cm. Danach einfach weiterhäkeln bis 56 cm ? Das Diagramm dazu ist etws ungenau finde ich. Freundliche Grüße !

25.08.2022 - 10:39

DROPS Design answered:

Liebe Christine, oops es fehlt etwas in die deutsche Anleitung, Sie häkeln zuerst 7 Reihen nach 46 cm dann 3 Reihen mit Abnahmen = insgesamt 10 Reihen für das Ermetopp. ca 10 cm. Viel Spaß beim häkeln!

25.08.2022 - 11:50

country flag Christine wrote:

Wie werden die Ärmel nach 46 cm beendet ? "Bei den nächsten 3 R." : heißt das in jeder der 3 nächsten R. jedesmal oder nur alle 3 R. über 4 Rapporte weniger häkeln ? Wieviele Maschen sind es dann zum Schluß ? Das Diagramm und die dazu angegebenen Maße ( 7 ?,3 ? ) passen irgendwie nicht zur Beschreibung. Ich hoffe, Sie können mir weiterhelfen. Freundliche Grüße

24.08.2022 - 21:55

DROPS Design answered:

Liebe Christine, dieses Video zeigt, wie man am Anfang + am Ende jeder Reihe abnimmt, dh *1 Kettmasche in die ersten 4 Rapporte häkeln, dann bis zuvor bis 4 Rapporte am Ende der Reihe bleiben, wenden*, von *-* noch 2 Mal häkeln (insgesamt 3 Mal/3 Reihen) = 4 Rapporte x 3 werden beideseitig abgenommen - es sind nur noch 5-6 Rapporte. Viel Spaß beim häkeln!

25.08.2022 - 09:21

country flag Barbora wrote:

Hi, are the V-stitches (dc, ch, dc) worked into the chain from previous round, or into the ch-1 space (around the chain)? Thanks.

22.05.2022 - 17:39

DROPS Design answered:

Dear Barbora, these stitches are worked in the ch-1 space. Happy crocheting!

22.05.2022 - 23:47

country flag Jeanet wrote:

Ik kan dit patroon niet haken, begrijp er niks van met rapporten. en de opzet en minderen of meerderen of wat ook. Kan er ook een eenvoudig telpatroon komen van het gehele vest Ik vind het jammer dat het buitenlandse patronen zijn en je ze zo nooit kunt maken of leren.

28.04.2022 - 07:07